Morgunblaðið - 01.11.1988, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
51
Gerum landið að
einukjördæmi
Til Velvakanda.
Fyrir nokkru birtist grein í Velvak-
anda en höfundur hennar nefnir sig
Reykvíking. Þar er á það bent, að
Reykvíkingar hafi í raun verið af-
skiptir enda séu þingmenn lands-
byggðarinnar duglegir að skara eld
að sinni köku. Þarf nokkurn að
undra þó svona sé komið eins og í
pottinn er búið?
Ekki þarf að kunna glögg skil á
íslenskri pólitík til að gera sér ljósa
Spurt
og svarað
Þátturinn Spurt og svarað
mun hefja göngu sina i Vel-
vakanda innan skamms. Les-
endur geta hringt í síma
691282 frá kl. 10 til 12 frá
mánudegi til föstudags og
borið fram spurningar sem
reynt verður eftir föngum .
að afla svara við.
Fullt nafn, heimilsfang og
nafnnúmer verður að fylgja öll-
um spumingum þó spyijandi
óski nafnleyndar.
þá uppvæniegu þróun sem orðið
hefúr á síðustu áratugum varðandi
svokallað vægi atkvæða. Hvernig
getur það verið réttlætanlegt í lýð-
ræðisríki að atkvæðisvægi þegnana
sé ekki jafnt, að atkvæðisvægi eins
manns t.d. á Vestfjörðum sé á við
atkvæði margra manna á höfuð-
borgarsvæðinu. Ég hef skrifað um
þetta áður og sýnt fram á að þetta
getur ekki samræmst meginreglum
lýðræðis en enginn virðist þora út í
ritdeilu um þetta mál.
Og hveijar eru afleiðingarnar af
þessari meginskekkju í íslenskum
stjómmálum? Einstakir þingmenn
vinna eingöngu fyrir sitt kjördæmi
en taka lítið tillit til hagsmuna þjóð-
arinnar í heild. Bomð er jarðgöng
fyrir hundmð milljóna fyrir norðan
þó þau nýtist aðeins fáeinum hundr-
uðum. Gæti hugsast að taumlaus
ijámastur í landbúnaðinn undan-
farna áratugi eigi sér sömu skýr-
ingu? Þetta þjóðarmein verður að
lækna áður en meira illt hlýst af.
Þjóðin á að sameinast um þá kröfu
að Island verði gert að einu kjör-
dæmi. Þess er nefnilega engin von
að þingmenn muni starfa í þágu
þjóðarheildarinnar fyrr en þetta
verður leiðrétt. Ef lýðræði kæmist
hér á yrði minna um mistök í ijár-
festingum og svo sannarlega veitir
ekki af því núna þegar kreppir að.
Að lokum. Jón Baldvin var að
biðja um sparnaðartillögur fýrir
nokkm og ætli Ólafi Ragnari vanti
ekki líka slíkar hugmyndir. Vel
mætti fækka þingmönnum og
eflaust einnig starfsmönnum ráðu-
neyta. Ef þingmenn væm 30 svo
dæmi sé tekið. Þannig yrði ábyrgð
hvers og eins þingmanns meiri og
þar með hvatningin meiri að standa
sig. En Alþingi ætti að starfa allt
árið, það myndi auka traust og
ábyrgð Alþingis og koma í veg fyrir
að ríkisstjómir misnotuði núverandi
heimild sína til setningar bráða-
birgðalaga. Virðing þjóðarinnar fyrir
ráðamönnum hefur farið mjög þverr-
andi og er það ekki að undra. Þar
verður engin breyting á nema landið
verði gert að einu kjördæmi og hrep-
papólitíkin gerð útlæg af Alþingi.
S.T.
ÍÞessir hringdu . .
Störfum með
umhverfísverndasamtök-
um
U mh verfísver ds verndarsinni-
hringdi:
„Þann 23. október birtist í
Morgunblaðinu ræða háskólarekt-
ors sem hann flutti við útskriftar-
hátíð í Háskólabíói 22. sama mán-
aðar. í ræðu þeirri hvatti rektor
menn til umhverfisvemdar hvers
konar, þar á meðal minntist hann
á hin umtöluðu hvalveiðimál ís-
lendinga. Það var mjög uppör-
vandi fyrir áhugafólk um náttúm-
vernd að kynnast viðhorfum slíks
ágætis manns í þeim málum.
Þakkir þeim sem þakka ber. Við
íslendingar ættum að taka hönd-
um saman við erlend umhverfis-
vemdarsamtök okkur til stuðn-
ings því hver veit hvenær hin
hræðilega mengun, sem veldur
eitrun og dauða á sjávarlífvemm,
berst að ströndum eyjunnar okk-
ar. Hvemig verður þá framtíð
hinna fámennu eyjarskeggja."
Læða
Brún og hvít læða fór að heim-
an frá sér að Löngumýri í
Garðabæ fyrir nokkm. Þeir sem
orðið hafa verir við hana em vin-
samlegst beðnir að hringja í síma
657107.
Silkislæða
Fyrir um tveimur mánuðum
tapaðist í Reykjavík handmáluð
silkislæða eftir Ellu Mag og er
nafn hennar á slæðunni. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 23613. Fundarlaun.
Endursýnið Gaby
Elín hringdi:
„Ég vil hvetja forráðamenn
Stjömubíós til að endursýna kvik-
myndina „Gaby“ sem þar hefur
verið sýnd að undanfömu. Hið
fatlaða íþróttafólk, sem hefur orð-
ið þjóð sinni til mikils sóma á
nýafstöðnum Heimsleikum, ætti
að fá tækifæri til að sjá þessa
mynd. Dómur um hana birtist í
Morgunblaðinu hinn 28. október
en þá var hætt að sýna myndina.
Ég er viss um að margir hafa
misst af þessari mynd og vona
að hún verði sýnd aftur í
Stjömubíói."
Kim Larsen norður
„Ég skora á þá sem fengu
söngvaran Kim Larsen til landsins
að senda hann norður, honum
yrði vel tekið á Akureyri. Vil ég
hvetja Norðlendinga til að láta
heyra í sér um þetta.“
Steypu-
hrærivélar
lí 'eggflísar
3^
Ká rsnesbraut 10( 5. Simi 46044 - 46159.
infotec
TELEFAX
Þegartíminn
er peningar
JUL
Heimilistæki hf
hitamælar-þrýstimælar
Þekking Reynsla Þjónusta
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8. SIMI 84670
RAUÐARÁRSTÍG 18 Sími 623350
Ljúffengir pastaréttir meö súpu, brauði og
kaffi á aðeins 490 kr.
Frítt fyrir börn innan 6 ára aldurs og
hálft gjald fyrir börn innan 12 ára.
Slepptu eldamennskunni af og til og
líttu inn í Lindina.
Þar færðu fullkomna máltíð á frábæru verði.
Hótel Lind er staður fyrir alla fjölskylduna.
jjum UjW
ri -