Morgunblaðið - 01.11.1988, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, 1>RIÐ.JUDAGUR 1. NÓVEMBRR 1988
55*-.
V estur-Þýskaland:
Framtíð fiskút-
flutnings getur ráð-
ist á næstu vikum
Hamborg. Frá Kristófer Má Kristinssyni fréttaritara Morgnnblaðsins.
KAUPENDUR íslenskra sjávarafurða í Vestur-Þýskalandi hafa vax-
andi áhyggjur af hugsanlegum afieiðingum hvalveiðistefnu íslend-
inga á stöðu fyrirtækja sinna. Ákvörðun Tengelmann samsteypunn-
ar hefur vakið mikla athygli og svo virðist sem mörg fyrirtæki
hugleiði að feta í fótspor þeirra. Þetta er niðurstaða viðræðna frétta-
ritara við fulltrúa nokkura kaupenda íslenskra fískafurða hér í
Vestur-Þýskalandi.
„Það er endanlega afstaða neyt-
enda sem ræður úrslitum í þessu
máli,“ sagði einn viðmælenda
fréttaritara, og bætti við: „í raun-
inni á þessi hvalveiðideila að fara
fram á íslandi en ekki við búðar-
dyrnar hjá okkur hér.“
Það virðast fyrst og fremst vera
smærri kaupendur sem láta undan
þrýstingi og hætta að kaupa ís-
lenskar sjávarafuiOir, eða gefa það
í skyn að minnsta kosti. Nokkrir
stórmarkaðir hafa nú þegar, eða
hyggjast í náinni framtíð, fara fram
á vottorð frá vinnslustöðvum og
dreifingarfyrirtækjum, þess efnis
að þau noti ekki afurðir frá íslandi.
Sú skoðun virðist almenn á með-
al fískkaupenda að mál þetta snúist
ekki um hvalveiðar heldur markaðs-
setningu á íslenskum fiski og ljóst
sé að stefni í umtalsverða erfíð-
leika. Einn framleiðandi sagði
fréttaritara að á síðustu dögum
hefði ástandið versnað að mun og
sagðist hann ekki sjá fram á annað
en verða að ákveða á næstu dögum
hvort hann vildi halda áfram að
kaupa fisk frá Islandi og fara á
hausinn, eða hætta að kaupa
íslenskan fisk og vera áfram í
rekstri.
Forsvarsmenn fyrirtækja eru
annars tregir til að gefa afdráttar-
lausar yfirlýsingar um aðgerðir á
næstu vikum, hugsanlega í þeirri
von að íslensk stjórnvöld gefi út
yfirlýsingu um algera stöðvun hval-
veiða. Þá er fullyrt að neikvæð og
þvermóðskufull afstaða stjórnvalda
á íslandi, til dæmis að freista þess
ekki að eiga friðsamleg samskipti
við Grænfriðunga, hafi spillt mjög
málstað Islendinga. Þá er ítrekað
að fyrirtæki, sem versla með sjávar-
afurðir, eigi við ærna erfiðleika að
etja vegna ýktrar og ósanngjarnrar
umræðu í fjölmiðlum um mengun
og ormafár, þó svo þau bæti ekki
á sig afleiðingum af hvalveiðistefnu
íslendinga.
Lögmönnum falið
að fá viðurkenndan
MERKIÐ SEGIR ALLT UM GÆÐIN
camDos
/ 3
SKÆÐl LAUGAVEGI - SKÆÐI KRINGLAN - SKÓVERSLUN KÓPAVOGS
SKÓBÚÐ SELFOSS - KAUPSTAÐUR MJÓDD - SKÓBÚÐIN KEFI WIK
VERSLUNIN NÍNA AKRANESI - SKÓBÚÐ SAUÐÁRKRÓKS
FÍNAR LÍNUR AKUREYRI - SKÓHÖLLIN HAFNARFIRÐI
eignarrétt á mörkum
EINSTAKA eigendur eyma-
marka sem markanefiid hefiir
bannað að nota mörk sín vegna
ákvæða í reglugerð um hömlur
á sammerkingum sauðQár hafa
falið lögmönnum að fá eignar-
réttinn viðurkenndan. Til fram-
kvæmda er að koma ný reglu-
gerð um mörk, markaskrár og
takmörkun á sammerkingum
búfjár og hefur markanefhd lok-
ið að úrskurða í öllum þeim rúm-
lega 100 málum sem vísað var
til hennar.
Jón Höskuldsson, formaður
markanefndar, segir að ein lög-
mannsstofa hafi skrifað landbúnað-
arráðherra fyrir hönd markeiganda
og beðið hann að fella úr gildi úr-
skurð markanefnda og viðurkenna
eignarrétt markeigandans. Ráð-
herra hafi ekki svarað þessu er-
indi. Þá sagðist hann vita um tvo
til þijá aðra markeigendur sem leit-
að hafi til lögfræðings vegna slíkra
mála.
Samkvæmt reglugerðinni eiga
markaskrár að koma út á þessu
ári, og eru þær byijaðar að koma
út. Þær eru nú tölvuunnar. Síðast
þegar markaskrár voru gefnar út
voru rúmlega 20 þúsund mörk 5
landinu en Jón taldi að þeim hefði
fækkað síðan um allt að þriðjung.
Hann sagði að mikil tilfinningasemi
væri í þessum málum, það væri
skiljanlegt, því sárt gæti verið fyrir
fólk að missa mörk sem það hefði
lefigi átt. í reglugerðinni væri hins
vegar hert á reglum um sammerk-
ingar og fleira.
Velti bíl
við Alþingi
ÖKUMAÐUR, sem grunaður er
um ölvun, velti Subaru-bíl sínum
í Kirkjustræti við Alþingishúsið
um klukkan hálfhíu á laugar-
dagskvöld.
Enginn slasaðist en bíllinn er
nokkuð skemmdur. Að sögn lög-
reglu gat maðurinn enga skýringu
gefið á því hvers vegna bíllinn valt.
Flugleiðir:
Mannabreytingar
á markaðssviði
Mannabreytingar hafa orðið á
markaðssviði Flugleiða, sem
hluti af endurskipulagningu á
sölu-, markaðs- og þjónusutu-
starfi fyrirtækisins.
Þær breytingar hafa orðið á inn-
anlandsdeild að Andri Hrólfsson
verður fórstöðumaður innanlands-
flugs og Þórarinn Stefánsson verð-
ur stöðvarstjóri.
Á skrifstofu markaðssviðs verður
Anna Birna Halldórsdóttir deildar-
stjóri markaðsáætlanagerðar. Á
stöðvadeild verður sú breyting að
Gunnar Ólsen verður stöðvarstjóri
í Keflavík.
Á söludeild verða þær breytingar
að Guðrún Jóhannsdóttir verður
deildarstjóri Farskrár, Jóhann D.
Jónsson verður sölustjóri á Islandi,
Jón óskarsson verður sölustjóri inn-
anlandsflugs, Pétur Esrason verður
sölustjóri flugleiða í Mið-Evrópu, til
Bretlands og yfir Norður-Atlants-
haf, og Sveinn Sæmundsson verður
sölustjóri á Norðurlandaleiðum og
tengiliður við auglýsingastofur.
Sigurður SkagQörð verður deild-
arstjóri þjónustudeildar og Ragn-
hiídur Gunnarsdóttir verður nýr
fulltrúi í þjónustudeild.
Enner
tœkilcari...
Fjöldi skemmtilegra og
fræðandi námskeiða, m.a.:
IAð gefa út fréttabréf og félagsblöð
Að sækja um vinnu
Að vera foreldri unglings
Aðventukransar
Bókhald smærri fyrirtækja
Fluguhnýtingar
Pappírsgerð
Auk þess ný námskeið:
IAðsaumajólafötábömin S Tölvurtil heimilisnota
Sölutækni og markaðsþekking Q (í samvinnu við Tölvuskóla íslands)
Hafið samband, ieitið upplýsinga
TÓMSTUNDA
SKOLINN
SkóiavörÖustíg 28
Sími 621488
Rammaþrykk
Sala og markaðssókn smærri fyrirtækja
Viðtöl og greinaskrif
Aðgeraviðbílinn sinn.
Að skipuieggja tíma sinn
Fatasaumur fyrir byrjendur
Videotaka á eigin vélar