Morgunblaðið - 13.11.1988, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988
ERLENT
INNLENT
Deilt um
togaraskipti
Stjóm Byggðastofnunar sam-
þykkti á þriðjudag að lána Fisk-
iðju Sauðárkróks 35 milljónir til
að gera möguleg skipti á tveimur
togurum Hraðfrystihúss Keflavík-
ur hf. og frystitogara Útgerðarfé-
lags Skagfírðinga. Ágreiningur
er meðal stuðningsmanna ríkis-
stjómarinnar um málið.
Albert
boðinParís
Albert Guð-
mundssyni for-
manni Borgara-
flokksins hefur
verið boðin
sendiherrastaða
í París. Hann
segist munu
skýra Jóni Bald-
vin Hannibalssyni utanríkisráð-
herra frá svari sínu um næstu
mánaðamót.
Mannbjörg
viðEyjar
Mannbjörg varð er Sigurvon
ST 54, sextíu tonna eikarbátur,
strandaði í Viðlagavfk í nýja
hrauninu í Vestmannaeyjum að
morgni síðastliðins miðvikudags.
Handbolti
áStöð2
Samtök fyrstudeildarfélaganna
í handknattleik sömdu við Stöð 2
um einkaleyfí stöðvarinnar á sýn-
ingu leikja í 1. deild og bikar-
keppni HSÍ.
Skinnaiðnaður
í Kírgízíju?
Pulltrúar frá sovétlýðveldinu
Kírgízíju í Mið-Asíuhluta Sov-
étríkjanna ræddu við fulltrúa Loð-
skinns hf. á Sauðárkróki á mið-
vikudag og óskuðu eftir aðstoð
fyrirtækisins við uppbyggingu
skinnaiðnaðar í lýðveldinu.
Fárviðri
fyrirvestan
Fárviðri gekk yfír Vestflrði á
fímmtudag. Á ísafirði fór vind-
styrkurinn yfír 90 hnúta í verstu
kviðunum. Þá varð mikið tjón um
borð í togaranum Gnúpi frá
Grindavík er hann fékk á sig tvo
brotsjói í Víkurál.
Nordsee hætt-
ir fiskkaupum
Þýska fyrirtækið Nordsee hefur
ákveðið að hætta að kaupa fryst-
an físk frá íslandi vegna andstöðu
viðskiptavina fyrirtækisins við
hvaiveiðar íslendinga.
Fjórirí
biskupskjöri
Fjórir prestar hafa
lýst því yflr að þeir gefí
kost á sér við væntan-
legt biskupskjör en
herra Pétur Sigurgeirs-
son biskup íslands læt-
ur af störfum um mitt
næsta ár. Þeir eru:
Heimir Steinsson á
Þingvöllum, Jón Bjar-
man sjúkrahúsprestur,
Ólafur Skúlason dóm-
prófastur og Sigurður
Sigurðarson á Sel-
fossi.
ERLEIMT
Bush kjör-
inn forseti
George Bush-
var á þriðjudag
lqörinn 41. for-
seti Banda-
ríkjanna. Bush
sigraði andstæð-
ing sinn, demó-
kratann Michael
Dukakis, (40 af
50 ríkjum Bandaríkjanna og hlaut
54% atkvæða. Demókratar
treystu sig ( sessi f koaningum til
þingsins f Washington og hafa
meirihluta f báðum deildum. Á
miðvikudag tilnefndi Bush vin
sinn og samstarfsmann, James
Baker, til embættis utanríkisráð-
herra.
1.000 fiurast í Kína
Óttast er að allt að 1.000 manns
hafl farist f jarðskjálftum í suð-
vesturhluta Klna á sunnudag.
Stærsti skjálftinn mældist 7,6 stig
á Richter-kvarða.
Umbætur í Ungveijalandi
Dómsmálaráðherra Ungveija-
lands skýrði frá þvf á fimmtudag
að landsmönnum yrði heimilað að
stoflia stjómmáiaflokka sam-
kvæmt nýju frumvarpi sem af-
greitt verður f næsta mánuði.
11 mánaða uppreisn
Á miðvikudag voru 11 mánuðir
liðnir frá þvf uppreisn Palestfnu-
manna hófst á hemámssvæðum
Í8raels. Um 320 Palestfnumenn
hafa fallið á þessum tfma. Fundur
Þjóðarráðs Palestínu hófst f Alsfr
í gær en búist er við þvf að lýst
verði yflr stofnun rfkis Palestínu-
manna er honum lýkur á þriðju-
dag.
Sakharoví
Bandaríkjunum
Sovéski andófs-
maðurinn
Andrej Sak-
harov kom til
Bandaríkjanna á
sunnudag og er
það f fyrsta
skipti f 80 ár sem
hann fær að yfirgefa Sovétríkin.
Sakharov gagnrýndi nýja lög-
gjöf, sem takmarkar fundafrelsi
manna eystra og sagði hana jafn-
gilda herlögum.
Andrej Sakharov:
Ríki Vesturlanda eiga
að styðja Gorbatsjov
New York. Reuter.
SOVÉSKI maimréttindafrömuðurinn Andrej Sakharov, sem nú er í
tíu daga heimsókn í Bandaríkjunum, segir að Gorbatsjov Sovétleið-
togi reyni nú að taka öll völd f eigin hendur til að eiga auðveldara
með að berja niður andstöðu sovéskra afturhaldsafla gegn perestroj-
ku, umbótaáætlun leiðtogans.
Sakharov hvetur samt vestræn
ríki til að styðja við bakið á Gor-
batsjovs þar sem Sovétríkin gætu
annars lagt út á braut útþenslu-
stefnu er gæti „orðið hættuleg allri
heimsbyggðinni." Á fundi með fuli-
trúum bandarfsku Helsinki-nefndar-
innar, er fylgist með mannréttinda-
málum í Austantjaldsríkjunum,
sagðist Sakharov hafa áhyggjur af
valdaeinokun Gorbatsjovs, er hann
sagði nálgast stjómarbyltingu, jafn-
vel þótt markmiðið með henni væri
gott.
Sakharov gagnrýndi tillögur Sov-
étstjómarinnar um stjómarskrár-
breytingar sem kveða á um stofnun'
2.250 manna þjóðþings er koma
skal saman einu sinni á ári til að
kjósa annað, 450 manna þing en því
er ætlað að funda mun oftar hvert
ár. Sagði hann að leiðtogi þess síðar-
nefnda (sem búist er við að verði
Gorbatsjov) myndi „safna á eigin
hendur gífurlegu valdi - meira en
forseti Bandaríkjanna." Hann sagð-
ist telja þetta hættulega þróun og
auðvelt væri að ímynda sér atburða-
röð í framhaldi af þessu sem leitt
gæti til hörmunga.
Njósriað um
ferðir sela
London. The Daily Telegraph.
BRESKIR vfsindamenn hyggjast
beita gervihnöttum til að fylgjast
með ferðum sela í þeirri von að
unnt reynist að greina orsakir
veirusjúkdóms sem lagt hefur um
14.000 seli f Norðursjó að velli á
þessu ári.
Komið hefur verið fyrir senditækj-
um f 20 selum og verður þannig
unnt að fylgjast með ferðum þeirra
og fæðuleit. Á næsta ári hyggjast
vísindamennimir iíma öflugri og
tölvustýrð senditæki á selina. Bún-
aðurinn mun senda upplýsingar til
njósnahnatta á braut umhverfis
jörðu. Tekin verða sýni úr selunum
til að ganga úr skugga um hvort
þeir beri veiruna eða hvort finna
megi merki um eiturefni í blóði
þeirra.
Reuter
Fjölmenn mótmæli íPóllandi
Pólveijar minntust þess á föstudag að 70 ár voru Uðin frá því
landið fékk aftur sjálfstæði eftir meira en 120 ára kúgun nágrann-
arflga. Til átaka kom á nokkrum stöðum, einkum f Gdansk, þar
sem óeirðalögregla notaði kyifiir og háþrýstidælur gegn 5.000
manna mótmælagöngu eftir að unglingar köstuðu gijóti að lög-
reglumönnum. f Varsjá þar sem myndin var tekin tóku 15.000
manns þátt f kröfugöngu f nafiii Samstöðu.
Þjóðarráð Palestínu
ræðir áætlun Arafets
Búist við yfírlýsingu um stofíiun ríkis Palestínumanna
PALESTÍNUMENN á hinum hernumdu svæðum ísraels og bræð-
ur þeirra og systur um allan heim binda miklar vonir við fimd
Þjóðarráðs Palestínu, hins útlæga þings palestfnsku þjóðarinnar,
sem hófst f Alsír f gær enda má vænta sögulegrar yfirlýsingar
er fundinum lýkur á þriðjudag. Flest bendir til þess að tilkynnt
verði um stofiiun sjálfrtæðs rfkis Palestínumanna f samræmi við
áætlun Yassers Arafats, leiðtoga Frelsissamtaka Palestínu (PLO).
Yfirlýsing þessi sýnir að hófsamar fylkingar hafa treyst stöðu
sfna f Arabaheiminum á undanförnum árum þvi f henni felst f
raun viðurkenning á tilverurétti ísraels. Hún er einnig sigur fyr-
ir Hussein Jórdanfukonung, sem rauf tengsi við Vesturbakkann
til að þrýsta á leiðtoga PLO um að ganga til viðræðna við fland-
mennina um lausn Palestfnuvandans.
Tilgangurinn með yfirlýsing-
unni er ef til vill fyrst og
fremst sá að fulivissa leiðtoga
þjóða heims um að PLO sé reiðu-
búið til viðræðna um leiðir til að
binda enda á átök ísraela og Pal-
estínumanna. f nafni palestfnsku
þjóðarinnar verður lýst yflr stofn-
un sjáifstæðs rfkis og verður Jerú-
salem höfuðborg þess. Þetta er f
samræmi við ályktun öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna nr. 181 frá
árinu 1947, sem kveður á um til-
verurétt fsraels og rfkis Palestfnu-
manna. Leiðtogar Palestínu-
manna og stjómvöld f Araba-
ríkjunum höfnuðu þessari ályktun
BAKSVIÐ
efiir Atgeir Sverritton
á sfnum tfma og fyrir aðeins sex
árum sóru leiðtogar Arababanda-
lagsins þess dýran eið að tortfma
ríki gyðinga. Hér ræðir því um
skýra og afdráttarlausa stefnu-
breytingu, sem vitaskuld hefur
valdið nokkrum titringi í Araba-
heiminum. Hún er verulegt áfall
fyrir Sýrlendinga, sem hafa ein-
angrast að undanförau ekki sfst
sökum 8tuðnings þeirra við frani
í Persaflóastrfðinu. írakar hafa
hins vegar vaxið ört f áliti f Araba-
heiminum eftir sigra þeirra á
síðustu vikum Persaflóastríðsins
og þeir kunna að reynast Arafat
mikilvægir bandamenn.
Gera má ráð fyrir því að Þjóðar-
ráðið samþykki að mynduð verði
einhvers konar „bráðabirgða-
stjóra" til að fylgja eftir yflrlýs-
ingunni um stofnun ríkis Pa-
lestínumanna og að hvatt verði
til þess að haldin verði alþjóðleg
ráðstefna um frið f Mið-Áustur-
löndum, sem George Bush, hinn
nýkjömi forseti Bandaríkjanna,
kveðst vera hlynntur.
Bush er hins vegar vandi á
höndum þvf eftir sigur öfgamanna
f þingkosningunum f ísrael fyrr f
mánuðinum virðist lftii von um
sættir. Yitzhak Shamir, núverandi
forsætisráðherra, sem kveðst ætla
að gegna þvf stárfí áfram, segir
að ekki komi til greina að iáta
heraámssvæðin af hendi fyrir frið.
Yfírlýsing Þjóðarráðsins mun því
vafalítið fyrst og fremst reynast
mikilvægur pólitfskur áfangi og
gera má ráð fyrir því að hún
styrki áróðursstöðu PLO og Yass-
ers Arafats á alþjóðavettvangi.