Morgunblaðið - 13.11.1988, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐE) MINNINGAR SUNNUDAGUR 13. NÓ'CEMBER 1988
EyjólfiurE. Eyfiells
Þórsson -Minning
Fæddur 15. febrúar 1961
Dáinn 4. nóvember 1988
Hann Eyvi bróðir er dáinn. Þetta
er búið að hljóma í höfðinu á mér
síðan ég fékk fréttina um andlát
yngsta bróður míns. Hvemig er
hægt að sætta sig við að missa
þennan unga mann sem ætti að
eiga allt sitt líf framundan?
Eyjólfur Einar Eyfells Þórsson
var yngstur af fimm bömum Þórs
Jóhannssonar og Elínar R. Eyfells.
Ég var ellefu ára þegar hann fædd-
ist og fannst eins og ég væri búin
að fá lifandi dúkku að leika mér
að. Eyjólfur var bæði fallegt og
skemmtilegt bam. Ég flutti svo af
landi brott og þá minnkaði sam-
bandið á milli okkar, þar til við svo
áttum aftur meira sameiginlegt
seinustu árin. Ég eignaðist mína
fjölskyldu seint svo bömin okkar
em á líkum aldri.
Eyjólfur kvæntist Ingibjörgu Jó-
hannsdóttur 10. maí 1986 og þau
eiga Jóhann saman, hann Jóa litla,
sem fæddist 18. apríl 1987 og Ingi-
björg á von á öðru bami þeirra
þeirra í janúar næstkomandi. Eyj-
ólfur átti við erfíð veikindi að stríða
seinustu mánuðina sem bám hann
ofurliði, þrátt fyrir alla hans bar-
áttu og lífsvilja. Hann var alltaf
hughraustur og bjartsýnn og minn-
ingin um hann mun verða mér stöð-
ug stoð í framtíðinni.
Ég færi foreldmm okkar, systk-
inum og Ingibjörgu eiginkonu hans
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Guð blessi Eyva minn. ,
Anna Kristín
Ó hve létt er þitt skóhljóð
og hve leingi ég beið þín,
það er vorhret á glugga,
napur vindur sem hvín,
en ég veit eina stjömu,
eina stjömu sem skín,
og nú loks ertu komin
þu ert komin til mín.
(Halldór Laxness).
Mig langar til að rita fáein
kveðjuorð vegna fráfalls góðs vinar
míns og dætra minna, Eyjólfs Ein-
ars Eyfells Þórssonar.
Ég kynntist honum fyrir fáeinum
ámm, er hann trúlofaðist vinkonu
minni, Ingibjörgu Jóhannsdóttur.
Hann var nágranni okkar í Skipa-
sundinu, og tókust því fljótlega
kynni milli heimilanna. Eyjólfur var
sérlega þægilegur maður, viðræðu-
góður, átti gott með að tala við
hvem sem var, og vomm við mæðg-
umar fljótar að yfírvinna alla feimni
við fyrstu heimsókn þeirra Immu í
Skipasund 27.
Þegar þau hófu sambúð, var
heimili þeirra notalegur griðastaður
í erli dagsins. Eyjólfur var sérlega
góður heimilisfaðir, dætur mínar
tvær sóttust sérstaklega eftir að fá
að heimsækja Immu og Eyva, fyrst
í íbúðina á Skólavörðustígnum og
síðan í þeirra eigin íbúð á Laugar-
nesveginum. Eyjólfur var mjög dug-
legur og vom þau Imma samhent
við að bæta og prýða heimili sitt.
Það var mikil gleði er þau eignuð-
ust soninn Jóhann, og fékk Eyvi
þar sína heitustu ósk uppfyllta.
Við ótímabært fráfall hans stönd-
um við höggdofa, við eigum stund-
um svo erfitt með að skilja örlögin.
Við dáðumst að hinni hetjulegu
baráttu hans við banvænan sjúk-
dóm, og hörmum það, hve hjálpar-
vana við emm enn gagnvart sjúk-
dómum og dauða. En það er hugg-
un að eiga minningar um góðan
dreng, sem var öllum góður og skil-
ur hvarvetna eftir hlýhug og þakk-
læti í hugum samferðamanna sinna.
Okkur fínnst hann ef til vill vera
að eilífu glataður, en hann lifir
áfram í hugum okkar og vonandi
erfa bömin hans einnig hans bestu
kosti.
Við biðjum honum blessunar og
þökkum fyrir góða viðkynningu.
Ég enda þessar línur með þessum
ljóðlínum úr Sólarljóðum:
Hér við skiljumst
og hittast munum
á feginsdegi fira;
drottinn minn
gefi dauðum ró
en hinum líkn, er lifa.
Guðrún Jónsdóttír
Eyjólfur vinur okkar er dáinn.
Okkur setur hljóð við þessa harma-
fregn. Af hveiju? spyr maður sjálf-
an sig, af hveiju er svona ungur
t
Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR SKÚLI BERGMANN BJÖRNSSON,
fyrrverandi starfsmaöur Flugmálastjórnar ríkisins,
Gnoðarvogi 28, Reykjavik,
veröur jarðsunginn mánudaginn 14. nóvember kl. 13.30 frá Lang-
holtskirkju.
Fyrir hönd aöstandenda,
Regína Bergmann.
t
Móöir okkar og fósturmóðir,
BJARNÞÓRA BENEDIKTSDÓTTIR,
veröur jarðsungin þriðjudaginn 15. nóvember kl. 13.30 frá Foss-
vogskirkju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim
sem vildu minnast hinnar látnu er bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd aöstandenda,
Valgerður Stefánsdóttir,
Sigríöur Stefánsdóttir,
Sigríöur V. Ingimarsdóttir.
Systir okkar,
ÁSGERÐUR ANDRÉSDÓTTIR
frá Þórisstööum, Þorskafiröi,
Framnesvegi 42, Reykjavfk.
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 15.
nóvember kl. 15.00.
Jensína Andrósdóttir,
Fanney Andrósdóttir,
Sigrfður Andrésdóttir.
t
Viö þökkum innilega veitta samúð og vinarhug við andlát og út-
för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÁTVARÐAR JÖKULS JÚLfUSSONAR,
Miðjanesi,
Reykhólasveit.
Sérstakar þakkir til allra þeirra sem í gegnum árin hafa aöstoðaö
hann, einkanlega starfsfólk á Reykjalundi og Dvalarheimilinu
Barmahlíö.
Rósa
Helga Játvaröardóttir,
Halldóra Játvarðardóttir,
Ámundi Játvarðarson,
Jón Atli Játvarðarson,
Þórunn Játvarðardóttir,
Marfa Játvarðardóttir,
barnabörn
Vilhjálmur Sigurðsson,
Lovfsa Hallgrfmsdóttir,
Dfsa Sverrisdóttir,
Þórarinn Þorsteinsson,
Hugo Rasmus,
barnabarnabörn.
Hjörleifsdóttir,
og
LOKAÐ
mánudaginn 14. nóvember e.h. vegna jarðarfarar
GUÐMUNDAR BERGMANNS
Gneisti hf., vélsmiðjan.
Laufbrekku 2, Kópavogi.
Guðmundur B.
Bergmann -Minning
Mig langar í örfáum orðum að
minnast og kveðja tengdaföður
minn, Guðmund B. Bergmann, en
hann varð bráðkvaddur á heimili
sínu þann 5. nóvember síðastliðinn.
Útför hans fer fram á morgun,
mánudag, frá Langholtskirkju.
Þegar maður kynnist tilvonandi
tengdaforeldrum er alltaf visst
happdrætti hvort manni líkar vel
við þá, en ég var svo heppinn að
það má segja að ég hafí fengið
fyrsta vinninginn.
Þegar ég kem fyrst á heimili
þeirra Guðmundar og Reginu sem
vinkona sonar þeirra hjóna, var ég
svolítið kvíðin. Ég var ung kona
með bam, og var ekki viss um
hvemig mér yrði tekið, en strax og
ég steig inn fyrir þröskuldinn var
eins og ég hefði þekkt þau alla
ævi, svo vel var mér og bami mínu
tekið. Dóttir mín, sem þá var ekki
nema 2*/2 árs, hljóp upp í fang
Guðmundar og það má segja að hún
hafí ekki farið þaðan aftur, svo
mikil bamagæla var Guðmundur
að hann vann hug hennar og hjarta
um leið og hún sá hann. Síðan þá
höfum við hjónin eignast dóttur og
son, og þau aftur eignast alveg
yndislegan afa og ömmu, sem alltaf
höfðu tíma og ánægju af því að
sinna þeim. Guðmundur var alveg
einstakur maður, það væri nú lítið
mál að búa í þessum heimi ef allir
væru eins og hann var. Alltaf var
hann fyrsti maður til að bjóða fram
aðstoð ef einhver þurfti á að halda
og þá skipti ekki máli hvort það
var að vinna með berum höndum
eða rétta síðustu krónumar að
manni. Síðustu mánuðina sem hann
lifði bauð hann okkur hjónunum
með krakkana alltaf í mat á hveiju
fímmtudagskvöldi og mikið óskap-
lega var hann alltaf ánægður þegar
við komum, okkur leið alltaf eins
og við hefðum ekki hist í marga
mánuði og var það mjög góð tilfinn-
ing að vera svona velkominn. Ég
held að engin orð geti lýst því hvað
hans verður saknað af þeim sem
þekktu hann á meðan hann var á
wm Faöir okkar, tengdafaöir og afi, h
ÞÓRARINN Ó. VILHJÁLMSSON,
Hrafnlstu,
veður jarðsunginn þriðjudaginn vogskirkju. 15. nóvember kl. 15.00 í Foss-
Guðmunda Þórarinsdóttir,
Þórður Þórarinsson, Guðný Þórarinsdóttir, Ingibjörg Auður Óskarsdóttir,
Guðrún Þórarinsdóttlr, Elín Þórarinsdóttir, Guðmundur H. Sigurðsson, María E. Ingvadóttir,
Jón Þórarinsson, Rósa Þorsteins. óttir
og barnabörn.
t
Útför
VALGERÐAR HJÖRDÍSAR SIGURÐARDÓTTUR,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 15. nóvember kl. 13.30.
Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaöir, en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Styrktarfélag vangefinna.
Guðlaugur Eyjólfsson,
Þorbjörg Guðlaugsdóttir,
Ingólfur Guðlaugsson,
Sigurður Guðlaugsson, Magna Baldursdóttir,
Jón Gunnar Guðlaugsson, Lára Jónsdóttir,
Bárður Guðlaugsson, Guðný Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
maður hrifínn burtu í blóma lífsins,
en vegir Guðs eru órannsakanlegir
og það er ekki okkar mannanna að
skilja.
Fyrir ári greindist hann með ill-
kjmja sjúkdóm, en meðferðin lofaði
góðu. Eyjólfur og Imma sýndu ein-
stakt hugrekki og styrk við þessar
erfíðu aðstæður og alltaf voru þau
bjartsýn á bata enda óraði okkur
ekki fyrir hve veikur hann var orð-
inn þar sem hann bar sig ætíð vel
og lét engan bilbug á sér fínna.
Það er þó huggun harmi gegn að
hann þurfti ekki að þola langvar-
andi sjúkrahúslegu áður en yfír
lauk.
Eyjólfur var sannur vinur vina
sinna og þeir voru ófáir sem nutu
greiðvikni hans, alltaf var hann
boðinn og búinn að rétta fram hjálp-
arhönd ef á þurfti að halda. Hann
var mjög bamelskur og var gleðin
því mikil þegar þau áttu von á barhi
og varla var til stoltari eiginmaður
og faðir þegar Jói litli kom i heim-
inn. Sárt er því til þess að hugsa
að hann eigi ekki eftir að njóta
samvista við bamið sem þau eiga
í vændum.
Elsku Imma og Jói, missirinn er
mikill og sorgin stór. Erfiðir tímar
em framundan en minningin um
góðan dreng lifir áfram í hugum
okkar allra. Við vottum ykkur og
fjölskyldum ykkar, okkar dýpstu
samúð.
Þóra, Garðar, Hafdís,
Zanný, Bjarni, Elín og
Kristján.
lífí, þessi mæti maður. Ég kveð
tengdaföður minn með söknuði og
virðingu og bið góðan Guð að varð-
veita hann og blessa. Hann átti virð-
ingu allra sem kynntust honum.
Björt minning um góðan mann mun
eiga eftir að lýsa okkur og ylja um
ókomin ár. Þökk fyrir allt og allt.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Vald.Briem).
Tengdadóttír
Blómastofa
Friöfmm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- elnnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.