Morgunblaðið - 13.11.1988, Blaðsíða 25
mm » M> l,i f>á-» £.} »1 A I U »»-* Írfl>*lStl
MORGUNBLAÐIÐ VEROLD/HLAÐVARPINN SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER
25~
Það var 20. ágúst í sumar að
Sólon Mortenz, níu ára Selfyss-
ingur, lagði að baki níu klukku-
stunda gönguferð á „Pjallið hans
afa“, eins og Hekla er kölluð á
heimili hans. Hún skipar reyndar
virðingarsess í fjölskyldunni því
langafi Sólons, Kristinn Mortenz
málari, var í sveit undir Heklurótum
og hefur málað mikið í kringum
Heklu, og amma hans er alin upp
í nágrenni fjallsins. Það vill reyndar
svo skemmtilega til að Kristinn
málari gekk einmitt á Heklutind
níu ára gamall.
Kristinn Rúnar Mortenz, faðir
Sólons, segist hafa smitast af afa
sínum og fengið göngubakteríuna
við að klifra í klettum í kringum
sumarbústað gamla mannsins í
Borgarfirði. „Frá honum eru fyrstu
gönguskómir komnir og öll þessi
árátta að fara út í náttúruna og
finna þá angan sem þar er og eiga
stundir saman. Afi sagði alltaf í
svona ferðum: „Hlustaðu, þefaðu,
og þetta er mikils virði," segir Krist-
inn Rúnar.
Með þessum orðum sfnum minn-
ist Kristinn Rúnar reyndar á þátt
sem sýnir hversu uppeldisáhrif ber-
ast milli kynslóða. Það er óhætt að
staldra við svona atriði. Er hér ekki
komið dæmi um gullinn þráð sem
ofinn er úr tilfinningum manna og
næmi fyrir náttúrunni? — Hvað
ungur nemur gamall temur.
Þeir feðgar Kristinn Rúnar, Sól-
on og Marel, sem er sex ára, ganga
mikið á fjallið okkar Selfossbúa,
Ingólfsfjall. Þar eiga þeir sitt uppá-
haldsgil að fara um og sína áninga-
staði. Einn heitir Ingólfur og er það
stuðlabergssteinn sem þeir feðgar
reistu upp og strákamir skírðu Ing-
ólf. Síðan er þessum Ingólfi alltaf
heilsað í hverri ferð á fjallið . ..
„Það hefur lengi verið okkar tak-
mark að ganga á Heklu,“ segir
Kristinn Rúnar og Sólon samsinnir
því. Göngudagurinn var hinn feg-
Markinu náö: Sólon Morthen ásamt
ursti, hvergi ský á himni, hár bærð-
ist varla á höfði og fjallið var alveg
hreint í heiðríkjunni. Þeir feðgar
héldu af stað léttklæddir, skildu
bílinn eftir í Heklubrautinni og
gengu upp suðvestanmegin í fjall-
inu. Gangan upp tók þá fimm tíma.
Þeir fóru yfir nýjasta hraunið og
upp á suðurtind fjallsins. Þegar
þeir stóðu á tindinum og virtu fyrir
sér útsýnið sáu þeir tveimur útlend-
ingum bregða fyrir á norðurtindin-
um. Þessir menn vom úlpuklæddir
þama í hitanum. Þegar Sólon kom
upp á tindinn og stóð við hliðina á
föður sínum þá spratt upp þriðji
útlendingurinn og þeir störðu á þá
feðga í gegnum sjónauka. Attu ör-
ugglega ekki von á að sjá svo ung-
an og léttklæddan göngumann á
Heklutindi.
Það er víðsýnt uppi á Heklu og
litadýrð mikil. Þar uppi segjast
menn vera í öðmm heimi og segja
nálægðina við eldgíginn gefa vissa
spennu. Þessi öfl, spennan og út-
sýnið yfir Suðurlandsundirlendið,
gefa fjallinu aðdráttarafl. „Maður
skilur það vel að afi sæki í að ganga
þama upp, sem hann gerir ennþá
orðinn 72ja ára gamall," segir
Kristinn Rúnar.
— „Það var dálítið erfítt að ganga
upp, sérstaklega þegar við þurftum
alltaf að fara upp og niður í hraun-
inu og steinarnir mnnu til þegar
maður labbaði. Ég var nú svolítið
hræddur við það þegar við lögðum
föður sínum á Heklutindi.
af stað að það kæmi eldgos, en svo
hætti ég að hugsa um það. Mér
fannst best að geta sest niður þeg-
ar við komum upp,“ sagði Sólon
Mortenz þegar ferðina bar á góma.
— „Maður þarf nú að hafa dálít-
ið fyrir svona göngu á Heklu og
ég held að það sé bara gott afrek
hjá stráknum að fara alla þessa
leið,“ sagði Kristinn Rúnar um ferð-
ina.
A leiðinni niður varð á vegi þeirra
feðga stór snjóskafl sem þeir lögðu
útá en snem fljótt við aftur því á
honum var stórt gat og þegar betur
var að gáð sáu þeir að þarna var
mikil hvelfíng og hyldjúpt vatn í
botninum. Þeir völdu sér því aðra
og ömggari leið niður fjallið. Skafl-
inn sýndi þeim feðgum að hættur
geta leynst víða.
— „Þama varð ég svolítið hrædd-
ur,“ sagði Sólon.
— „Ja, maður gat nú ekki hugsað
þá hugsun til enda hvað hefði getað
gerst ef við hefðum ekki tekið eftir
gatinu í skaflinum og bara haldið
áfram," sagði Kristinn Rúnar.
— „Það er ákaflega gefandi að
vera úti með börnunum og það
þarf ekki fjallgöngu til,“ segir Krist-
inn Rúnar Mortenz og vísar aftur
til áhrifanna frá afa sínum. „Þetta
er nokkuð sem foreldrar ættu að
hugsa um, að fara út í náttúmna
með bömunum, kenna þeim að
hlusta og þefa en umfram allt til
að eiga stund saman.“
Geng
áflaf
hans
Það er kannski ekki í frásögur
færandi þó mönnum detti i hug
að fa sér göngutúr og taki stefh-
una á næsta hól eða fjall. En
þegar fjallið er Hekla og göngu-
maðurinn aðeins níu ára, má
sfaldra við, ekki síst þegar
gönguferðin tók heila níu klukk-
utíma.
Símar35408 og 83033
AUSTURBÆR
Oðinsgata o.fl.
VOGAHVERFI
Sunnuvegur
Laugarásvegur 32-66
BUSTAÐAHVERFI
Garðsendi
KOPAVOGUR
Sunnubraut
SPORTVORU-
ÚTSALA SPÖRTU
Síðustu dagar - Enn meiri lækkun
10% afslátturafútsöluverði
KRUMPGALLAR
Nr. XS-S-M-L-XL
Verð 2.900,- til 3.900,-
(áður 6.190,-til 9.990,-)
Einnig barnastærðir.
kr. 2.900,-
BOMULLARGALLAR
Allarstærðir.
Verðfrákr. 1.190,-
ADIDAS ORiON
Nr. 36-42. Kr. 1.290,-
(áður kr. 2.200,-).
ELDORADO
Körfuboltaskór,
fótboltaskór, innan-
hússkór, hlaupaskór og
kuldaskór.
MARGAR AÐRAR SKÓTEGUNDIR
Leikflmi- og eróblkkfatnaður
Úr glansefni og bómull kr. 390,-
(áður kr. 1.690 til 2.080,-).
Glansgallar í barna- og unglingastærðum.
kr. 2.200,- (áður kr. 3.800,-).
Stuttbuxur nr. 140 til 176 kr. 390,-
(áður kr. 790,-).
Stakar trimmbuxur kr. 990,-
Stuttermabollr allar stærðir kr. 490,-
Sundbollr barnastærðir kr. 390,-
Barnaskíðasett kr. 1.490,-
Kuldaskór flestar stærðir.
Háskólabollr kr. 790,- (áður kr. 1.950,-)
Lúffur kr. 250,- (áður kr. 450,-).
Töskur
Karlmannaúlpur og margt, margtfleira.
Vlð rúllum boltanum tllykkar.
Nú ar taeklfaerlð tll þaaa að gara góð kaup.
Ath! 10% afslátturaföllum öðrum vörum
verslunarinnarmeðan á útsölunni stendur.
Sendum ípóstkröfu
Visa og Euro þjónusto.
SPORTVÖRUVERSLUNIN
emm
LAUGAVEGI 49 SIMI12024