Morgunblaðið - 25.11.1988, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988
B 5
Ras 1;
Góðvinafundur
■i Enn er efnt til Góð-
00 vinafundar á Rás 1 í
dag. Jónas Jónasson
tekur á móti gestum í Duus-
húsi og auk gesta í sal, sem að
þessu sinni eru meðlimir í Fé-
lagi eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni, býður hann vel-
komnar tvær dimmraddaðar
söngkonur, Guðmundu Elías-
dóttur og Sif Ragnhildardóttur
sem báðar taka lagið við undir-
leik Guðmundar Ingólfssonar
sem einnig leikur með tríói sínu
í þættinum. Þessi Góðvinafund-
ur verður fluttur aftur í nætur-
útvarpinu aðfaranótt þriðjudags
Jónas Jónasson tekur á móti
gestum á Góðvinafundi.
að loknum fréttum.
Stöð 2:
A la carte
■■■■ í þætti sínum A la carte á Stöð 2 í dag matreiðir Skúli
jg 45 Hansen:
Forréttur:
Lambalifrarpaté með sætum beijum (fyrir 4)
Hráefhi: 250 gr lambalifur, 250 gr lambafita, 4 stk. matarlímsblöð.
Krydd: Salt, hvítur pipar, Rosmarin, sherry eða koníak.
Bakað í vatnsbaði í 50—60 mínútur við 90—100 gráður.
Aðalréttur:
Lambafilé og humarhalar á teini með súrsætri sósu (fyrir 4)
Hráeftai: 400 gr lambafílé, 12 humarhalar, 2 meðalstórir lauk-
ar, 4 tómatar, V2 agúrka, 1 gul paprika.
Sósa: Tómatsósa, kínversk sojasósa, hunang, hvítlaukur, engifer,
kryddedik, sherry, sykur, ananassafi, appelsínusafi.
Tónlistaricrossgátan
^■1 I dag
1 05 verður
lögð fyrir
hlustendur Rásar 2
tónlistarkrossgáta
númer 117. Það er
sem fyrr Jón
Gröndal sem sér um
þáttinn og skal
senda lausnir til
Ríkisútvarpsins,
Rás 2, Efstaleiti 1,
108 Reykjavík,
merktar Tónlistar-
krossgátan.
Sjónvarpið:
Stundin okkar
■■ I Stundinni okkar í
00 dag fer fram sam-
— keppni um starf
hringjarans í Kærabæ og eru
dómnefnd og keppendur mættir.
Slangan segir Lilla söguna um
óþekktarorminn en myndir og
sagan er eftir Magnús B.
Óskarsson. Leikskólinn á Egils-
stöðum verður heimsóttur og '
sýnd er brúðuleikritið um
Brimaborgarasöngvarana sem
brúðuleikhús Egilsstaða sér um.
Palli og selurinn.
Rás 2:
FíkniefhaQandinn
■■■■ í Útvarpi unga fólksins í kvöld verður fyaliað um fíkniefna-
QA 30 fjandann svonefnda sem allt ungt fólk verður að taka
“vl afstöðu til fyrr eða síðar. Meðal þeirra spurninga sem leit-
að verður svara við í þættinum í kvöld eru þessar: Er hættulegt að
byrja snemma að dreka áfengi? Er í lagi að prófa fíkniefni einu
sinni? Er erfitt fyrir unglinga að segja: „Nei takk, ég nota ekki fíkni-
efni?“ Sigríður Arnardóttir er að venju umsjónarmaður Útvarps unga
fólksins í sunnudagsþættinum á Rás 2.
HVAÐ
ERAÐ
GERAST?
Hafnarborg
i Litla salnum i Hafnarborg, Menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar, Strandgötu
34, stendur nú yfir sýning á verkum
Halldórs Árna Sveinssonar og er þetta
síöasta sýningarhelgin. Á sýningunni eru
olíumyndir, vatnslitamyndirog pastel-
myndir. Sýningin eropin alla daga kl.
14—22 og stenduryfir til 27. nóvember.
í Aðalsal hanga nú uppi málverk í eigu
stofnunarinnar. Verkin eru hluti af mál-
verkagjöf Sverris Magnússonar og konu
hans IngibjargarSigurjónsdóttur.
Leiklist
Alliance FranQaise
Alliance FranQaise sýnir leikritið Nas-
hyrningurinn i Iðnó á mánudaginn kl.
20.30. Nashyrningurinn er eftir Eugene
lonesco og er hér í leikgerð Éric Eyc-
henne. Sagan erfrásögn söguhetjunnar,
Bérenger, í fyrstu persónu af atburöum.
Hann segir frá sinni eigin reynslu en í
leikritinu verða áhorfendur hins vegar
sjálfir vitni að atburðunum. Éric Eyc-
henne setti verkiö fyrst upp árið 1983
eftir að hann hitti lonesco að máli. Hann
leikur sjálfur Bérenger, en lika alla hina:
Jean, rökfræðinginn, skrifstofustjórann,
frú Boeuf og Daisy. Hvert þeirra verður
sjálfstæð persóna hvað snertir rödd og
alla háttu. Sviðsetningin er eins og leikar-
arnir væru jafnmargar persónur, allt upp
í sex á sviöinu í einu.
Alþýðuleikhúsið
Alþýðuleikhúsið sýnir Koss kóngulóar-
konunnar eftir argentínska skáldið Mánu-
ei Puig á laugardag kl. 20.30, sunnudag
kl. 16.00 og föstudag kl. 20.30. Sýningar
eru í kjallara Hlaðvarpans, Vesturgötu
3. Miðapantanirísima 15185 allan sólar-
hringinn. Miðasala í Hlaðvarpanum kl.
14—16 virkadaga og 2 timumfyrirsýn-
ingu.
Leikfélag Reykjavíkur
Leikfélag Reykjavíkur sýnir gamanleikritið
Sveitasinfónia eftir Ragnar Arnalds i Iðnó.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurösson. Sýn-
ingar eru á laugardag, sunnudag, mið-
vikudag og föstudag kl. 20.30.
Hamlet er sýndur á fimmtudag kl. 20.
Síðustu sýningar.
Miðasala eropin alla dagafrá kl. 14—19.
Simi 16620.
Gríniðjan hf.
Gríniöjan hf. sýnir gamanleikinn NÖRD í
Gamla bíói á laugardag, fimmtudag og
föstudag ki. 20.30. Þetta eru síðustu
sýningar fyrir jól. Miðasala er allan sólar-
hringinn i sima 11123 og í Gamla bíói
þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga
frá kl. 15 og föstudaga og laugardaga
frákl. 16.30.
Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið frumsýndi á miðvikudag
leikritið Stór og "smár (Gross und klein)
eftir þýska leikskáldið Botho Strauss.
Næstu sýningar verða á þriðjudag og
fimmtudag kl. 20. Anna Kristín Arngrims-
dóttir leikur höfuðpersónu verksins,
Lottu, sem ertalin ein stærsta kvenper-
sóna í leikbókmenntum nútimans. Áðrir
leikarar í sýningunni eru Arnar Jónsson,
Árni Pétur Guðjónsson, Árni T ryggvason,
Bryndís Petra Bragadóttir, Ellert A. Ingi-
mundarson, Guðlaug Maria Bjarnadóttir,
Guðrún Þ. Stephensen, Kristbjörg Kjeld,
María Sigurðardóttir, Róbert Arnfinnsson
og Sigurður Skúlason. Leikstjóri er Guð-
jón P. Pedersen, Hafliði Arngrimsson
þýddi verkið og er einnig aðstoðarleik-
stjóri.
Sýning Þjóöleikhússins og íslensku óper
unnar á óperunni Ævintýri Hoffmanns
eftir Offenbach verðurá laugardag, mið-
vikudag og föstudag kl. 20.00. Takmark-
aðursýningarfjöldi.
Síðasta sýning á ærslaleiknum Hvar er
hamarinn? eftir Njörð P. Njarövík verður
í Gamla biói á sunnudag kl. 15.
Á Litla sviðinu, Lindargötu 7, verður
sýndur japanski gestaleikurinn Yoh Iz-
umo á laugardag kl. 20.30.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga kl. 13—20. Símapantanir einnig
virkadaga kl. 10—12, sími 11200.
Leikbrúðuland
Leikbrúðuland sýnir um þessar mundir
nýja leiksýningu, Mjailhvíti, byggða á
ævintýrum Grimms-bræðra.Sýnt veröur
á sunnudag kl. 15 að Fríkirkjuvegi 11.
Miðasala á sama stað frá kl. 13.00. Sími
622215.
Leikfélag Kópavogs
Leikfélag Kópavogs sýnir barnaleikritið
Fróði og allir hinir grislingarnir eftir Ole
Strax á hljómleikaferð
Hljómsveitin Strax hefur haflA hlJómlalkaferA um landiA
til aA kynna plötu sfna Eftlr pólsklptln. Hljómsveltina
skipa þau Jakob Magnússon, Ragnhlldur Gfslason, Sig-
urAur Gröndal, Slgfús Óttarsson og Baldvln SlgurAsson.
Lund Kirkegaard. Tólf leikarartaka þátt
í sýningunni sem tekur um einn og hálf-
an tíma íflutningi. Sýningarverða iFé-
lagsheimili Kópavogs laugardaga og
sunnudaga og hefjast kl. 15.00. Miöa-
sala er opin virka daga milli kl. 16 og
18 og tveimur timum fyrir sýningu. Sími
41985.
Leikfélag Hafnarfjarðar
Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir leikritið
Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren laug-
ardag kl. 14 og sunnudag kl. 16 i Bæj-
arbííoi i Hafnarfirði. Miðasala eropnuð
tveimur timum fyrir sýningar en hægt er
að panta miða í síma 50184 allan sólar-
hringinn.
Leikfélag Keflavíkur
Leikfélag Keflavíkursýnirföstudag, laug-
ardag og sunnudag revíuna Erum við
svona? eftir Huldu Ólafsdóttur á veitinga-
húsinu Glóðinni í Keflavík. Leikritið er
fimm þættir þar sem fjallað er á gaman-
saman hátt í tali og tónum um nútíma
(slendinga.
Litla leikfélagið í
Garðinum
Litla leikfélagið í Garðinum sýnir Himna-
riki Hitlers eftir Bertolt Brecht. Leikstjóri
er Þórir Steingrímsson og verður sýnt í
Samkomuhúsinu i Garðinum á sunnu-
dag, fimmtudag og föstudag kl. 21.
Tónlist
íslenska óperan
Jane Manning sópran, Hafliði Hallgríms-
son selló og David Mason píanó halda
tónleika í íslensku óperunni á laugardag
k'l. 17. Á efnisskrá eru verk eftir Messia-
en, Hafliða Hallgrímsson og Debussy.
Norræna húsið
Á miðvikudag eru Háskólatónleikar í
Norræna húsinu kl. 12.30. Þaðerörn
Magnússon, píanóleikari, sem flygur verk
eftir Mozart og Haydn.
Hljómsvertin Strax
Hljómsveitin Strax er um þessar mundir
í hljómleikaferð um landið til að kynna
plötu sína. Tónleikarverða á laugardag
á Hótel Selfossi kl. 22, á þriöjudag á
Blönduósi, miðvikudag á Sauðárkróki,
fimmtudag í Menntaskóla Akureyrar og
föstudag í Sjallanum.
Ferðalög
Upplýsingamiðstöð
Upplýsingamiðstöö ferðamála er með
aðsetur sitt að Ingólfsstræti 5. Þareru
veittar allar almennar upplýsingar um
ferðaþjónustu á íslandi. Opið er mánu-
daga til föstudaga kl. 10—16, laugardaga
kl. 10—14. Lokað á sunnudögum. Síminn
er 623045.
Félagslíf
MÍR
Á sunnudag kl. 16 verður sovéska kvik-
myndin Anna Pavlova sýnd í biósal MÍR,
Vatnsstig 10. Þetta erfárra ára gömul
mynd og fjallar, eins og nafnið bendir
til, um ævi og starf hinnar heimsfrægu
rússnesku dansmeyjar. Myndin er með
skýringum á ensku. Aðgangur er ókeyp-
isog öllum heimill.
Sýning sú á svartlistarmyndum og list-
munum frá sovétlýðveldinum Kirgiziu,
sem sett var upp i salarkynnum MÍR í
tilefni Sovéskra daga 1988, er enn opin
þeim sem skoða vilja um helgina.
Igor N. Kúznetsov, varaforstjóri Laga-
stofnunar Sovétríkjanna, ervæntanlegur
til íslands i lok mánaðarins til fárra daga
dvalarhérog fyrirlestrarhalds i boði MÍR,
Menningartengsla Islands og Ráðstjórn-
arrikjanna. Flytur hann almennan fyrir-
lestur í húsakynnum MÍR mánudags-
kvöldið kl. 20.30 og ræðir þá m.a. um
19. flokksráðstefnuna og skipulagsbreyt-
ingar á stjórnkerfi Sovétrikjanna. Daginn
eftir, á þriðjudagskvöld kl. 20.30, situr
hann fyrir svörum á sama stað og víkur
þá að ýmsu því sem hæst ber í fréttum
frá Sovétríkjunum um þessar mundir, svo
sem umræðunni um stjórnarár Stalíns,
atburöina í Nagorno-Karabakh, þjóðern-
ishreyfingar i Ehystrasaltslýðveldunum,
efnahagsmál, utanríkispólitík Sovétríkj-
anna o.s.frv. Aögangr að fyrirlestri og
rabbfundi Igors N. Kúznetsovs eröllum
heimill.
Félagsvist
SGT heldur á hverju föstudagskvöldi fé-
lagsvist ÍTemplarahöllinni, Eiríksgötu 5.
Hljómsveitin Tiglar spila fyrir dansi til kl.
1.30.
Basar Vinahjálpar
BasarVinahjálparverðurá sunnudag í
Félagsmiðstöðinni við Frostaskjól 2 (KR-
húsinu) kl. 14. Á basarnum verða margir
jóla- og gjafamunir og, eins og undanfar-
in ár, hinir fallegu útsaumuðu jóladúkar
og hengi, einnig jólaskreytingar að
ógleymdu happdrætti. Alla munina vinna
nokkrar konur og allt er unnið í sjálf-
boðavinnu. öllum ágóða ervarið til líknar-
starfa.
Útivera
Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Fristunda-
hópsins Hana nú í Kópavogi verður laug-
ardaginn 26. nóvember. Lagt verður af
staðfrá Dígranesvegi 12 kl. 10.00. Mark-
miögöngunnarersamvera, súrefni og
hreyfing. Gönguklúbbur Hana nú er öllum
opinn.
Ferðafélag íslands
Á föstudagskvöld verður farin aðventu-
ferð til Þórsmerkur og komið til baka á
sunnudag um kl. 19. Gist verður í Skag-
fjörðsskála í Langadal og þurfa farþegar
aðeins að hafa með sér svefnpoka og
mat, annað sem til þarf er i sæluhúsinu.
Á sunnudag verður létt gönguferð kl. 13
en þá veröur gengið frá Vogum á Vatns-
leysuströnd meðfram ströndinni og til
Njarðvíkur. Gengið verðurá Grímshól,
sem er smáhæð á Vogastapa. Frestur
til að ná í farmiöa í áramótaferð F( ertil
10. des. nk. Eftir þann tíma verða frátekn-
ir miðar seldir öðrum.
Útivist
Útivist fer i sina árlegu og hefðbundnu
aðventuuferð i Þórsmörk nú um helgina
og er brottför á föstudagskvöld kl. 20.
Gist er i Útivistarskálunum í Básum og
er rétt að taka það fram að ekkert pláss
er laust til gistingar nema fyrir þátttak-
enduraðventuferðarinnar. Á sunnudag
kl. 13 er létt gönguferð á dagskránni.
Ekið verður upp í Kollafjörð og gengið
frá Saltvík um Brimnes og út í Hofsvík.
Brottförerfrá BSl’, bensínsölu.
Viðeyjarferðir
Hafsteinn Sveinsson er með daglegar
ferðir út í Viðey. Fyrsta ferð er fariö kl.
13.00 og er farið á heila tímanum frá
Reykjavík og á hálfa tímanum frá Viðey.
Mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga
fer siðasta ferð frá Viðey kl. 18.30 en
aðra daga kl. 23.30. Aukaferöir eru farn-
ar með hópar sem panta sérstaklega.
Kirkjan í Viðey er opin og veitingar f ást
í Viðeyjarnausti. Bátsferðin kostar 300
krónurfyrirfullorðna, 100 krónurfyrir
börn að 14 ára aldri en fritt er fyrir börn
5 ára og yngri.
Hreyfing
Keila
í Keilusalnum í Öskjuhlíð eru 18 brautir
undir keilu, á sama stað er hægt að
spila billjarð og pínu-golf. Einnig er hægt
að spila golf í svokölluðum golfhermi.
Sund
i Reykjavik eru útisundlaugar í Laugar-
dal, við Hofsvaliagötu og við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti. Einnig eru útisund-
laugar á Seltjarnarnesi, á Varmá og við
Borgarholtsbraut í Kópavogi. Innisund-
laugar á höfuðborgarsvæðinu eru við
Barónsstig og við Herjólfsgötu i Hafnar-
firði. Opnunartima þeirra má sjá í dag-
bókinni.