Morgunblaðið - 29.12.1988, Page 1
56 SIÐUR B
297. tbl. 76. árg.
FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bankar og sparisjóðir í Danmörku:
Tap vegna gjaldþrota
og nauðungaruppboða
43,6 milljarðar króna
Kaupmannahöfii. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins í Danmörku.
DANSKIR bankar og sparisjóðir munu í ár tapa um 6,5 milljónum
danskra króna, eða jafhvirði 43,6 milljarða íslenzkra, vegna gjald-
þrota og nauðungaruppboða á fyrirtækjum.
í fyrra töpuðu sömu lánastofnan-
ir um 4,5 milljörðum danskra króna,
eða 30 milljörðum íslenzkra. Er því
um að ræða um 44% aukningu frá
fyrra ári.
Steen Rasborg hjá Privatbanken,
sem er formaður samstarfsnefndar
banka og sparisjóða, sagði í viðtali
við blaðið Ekstra Bladet í gær, að
tapið næmi lánum eða ábyrgðum,
sem lánastofnanir hefðu veitt tap-
fyrirtækjunum. Hann fullyrti að
ekki væri hægt að segja að bank-
amir hefðu farið ógætilega í lán-
Bandaríkin:
Landhelgin
í 12 mílur
veitingum. Hér væri um eðlilega
áhættu að ræða, sem jafnan væri
tekin í bankaviðskiptum.
Það vegur upp á móti tapinu að
reiknaður gengishagnaður bank-
anna af verðbréfakaupum er um-
talsverður á árinu, eða um 5,5 millj-
arðar danskra króna, jafnvirði 36,9
milljarða íslenzkra. Hann verður þó
ekki handbær nema bankamir selji
bréfin.
Það em ekki aðeins bankamir
sem tapa peningum. Skýrt hefur
verið frá því að ríkissjóður hafí tap-
að 62 milljónum króna, 415 milljón-
um íslenzkra, í fyrra. Er þar um
að ræða eftirgjöf á námslánum, sem
atvinnulausir stúdentar er hætt
höfðu námi í miðjum klíðum, höfðu
ekki efni á að endurgreiða. Alls er
um að ræða 828 námsmenn, þar
af skuldaði 81 þeirra hver um sig
rúmar 250 þúsundir danskra, eða
1,7 milljónir íslenzkra.
Öflugt hraungos
Ekkert lát hefur orðið á öQugu hraungosi í eldQallinu Lonquinay
i Andesfjöllunum í Chile, en það hófst á aðfangadag jóla. Fjallið
spúði ösku, hrauni og gastegundum í gær af sama krafti og í
upphafi goss. Gossprungan er í hliðum Qallsins og er um 350
metra löng. íbúum í nágrenni Lonquinay hefiir ekki stafað hætta
af gosinu vegna hagstæðra vindátta. í gær náði gosmökkurinn í
um 24 þúsund feta hæð en þá var myndin tekin. Sjá má stórar
hraunflygsur sem skotist hafa í loft upp.
Frönsku
systurnar
ófundnar
Ollioules, Frakklandi. Reuter.
IBUAR smábæjarins Ollioules við
Toulon í suðurhluta Frakklands
bíða þess í ofvæni að heyra hver
verða örlög sex og sjö ára systra,
sem líbanskir mannræningjar
sögðust ætla að láta lausar um
jólin. Ekkert hefiir spurst til
þeirra og sagði frændi systranna
í gær að þær og fjölskylda þeirra
hefðu verið misnotuð í áróðurs-
striði Palestínumanna.
Franska þjóðin fagnaði öll á að-
fangadagskvöld er Byltingarráð
Fatah, róttæk samtök Palestínu-
manna í Líbanon, tilkynnti að syst-
umar Marie-Laure og Virginie Va-
lente hefðu verið látnar lausar. Fátt
hefur verið um annað rætt en örlög
systranna í Frakklandi en í gær-
kvöldi voru þær enn ekki komnar
fram.
Faðir systranna, amma þeirra og
frændi héldu strax til Beirút hlaðin
jólagjöfum í von um endurfundi á
jóladag, en þær vonir brugðust.
Stúlkunum var rænt í nóvember í
fyrra ásamt móður þeirra og fimm
Belgíumönnum er mannræningjar-
tóku áhöfn og farþega skútu þar sem
hún var á siglingu undan Gaza, hinu
hertekna svæði Israela. Mannrænin-
gjamir sökuðu skipverja um að vera
njósnarar ísraela.
Los Angeles. Reuter.
RONALD Reagan, Banda-
ríkjaforseti, gaf i gærkvöldi
út tilskipun um að landhelgi
Bandaríkjanna og bandarískra
yfirráðasvæða hefði verið
færð út úr þremur sjómílum í
12.
Bob Hall, talsmaður Banda-
ríkjastjómar, sagði að helzti
ávinningurinn af útfærslunni væri
að með henni yrði erlendum
ríkjum gert erfiðara að stunda
njósnir meðfram strandlengju
Bandaríkjanna og að upplýsinga-
söfnun þeirra yrði óáreiðanlegri.
Með þessari ákvörðun eru
Bandaríkin komin í hóp 104 ann-
arra ríkja, sem fært hafa land-
helgi sína formlega út frá því
Hafréttarráðstefna Sameinuðu
þjóðanna heimilaði þá stækkun
árið 1982.
Nýárstré
skreyttí
Leninakan
Fátt er um að menn geri sér
dagamun á skjálftasvæðunum
í Armeníu um þessar mundir.
Á leikskóla í Leninakan er þó
reynt að leiða hug barna frá
hörmungunum og var myndin
tekin í skólanum af börnum að
skreyta nýárstré, eins og
tíðkast hefiir þar um slóðir.
Pilturinn og stúlkan í forgrunni
misstu bæði foreldra sína í jarð-
skjálftunum.
Sannað að sprengja hafi grandað Pan American-þotunni:
Alþjóðleg leit hafin
að ódæðismönniinum
London. Washington. Reuter.
BANDARÍKJAMENN hétu því í gær að komast að því hveijir grön-
duðu Boeing-747-breiðþotu bandaríska flugfélagsins Pan American
(Pan Am) yfir Skotlandi á miðvikudaginn í síðustu viku. Brezk flug-
málayfirvöld tilkynntu í gær að rannsókn á braki úr þotunni hefði leitt
í ljós óyggjandi sannanir þess að öflug sprengja hefði grandað henni.
Bandarisk og brezk yfirvöld tilkynntu að í ljósi þessarar niðurstöðu
yrði nú hafin alþjóðleg leit að ódæðismönnunum. Hefur Bandarikja-
stjóm ákveðið að veita hálfrar milljónar dollara verðlaun fyrir upplýs-
ingar er kunna að leiða til handtöku spellvirkjanna.
Reutcr
I tilkynningu brezku flugslysa-
nefndarinnar í gær sagði að
sprengjuleifar, sem fundist hefðu í
braki þotunnar, hefðu ótvírætt leitt
í ljós að mjög öflug svokölluð hnoð-
sprengja hefði grandað henni. Enn-
fremur hefðu málmflísar fundizt í
líkum farþega og útilokaði það þá
kenningu að þotan hefði splundrazt
vegna málmþreytu en skyti stoðum
undir þá niðurstöðu að sprengja hefði
grandað henni. Niðurstöður úr rann-
sókn á flugrita, sem skráir upplýsing-
ar um flug þotunnar og stjómkerfi
á stálþráð, og segulbandi með upp-
tökum á samtölum í flugstjómarklefa
staðfestu einnig að sprenging hefði
orðið í þotunni. Hefði sprengjan
splundrað þotunni rétt eftir að hún
flaug yfír skozku landamærin 131
þúsund feta hæð.
Talsmaður flugslysanefndarinnar
sagði að enn hefði ekki fengizt stað-
fest hvar í þotunni sprengjan var eða
nákvæmlega hvaða sprengiefni var
notað, en sérfræðingar sögðu að með
ítarlegri rannsókn yrði hægt að leiða
hvoru tveggja í ljós. Merki um
sprengingu fundust m.a. á farang-
ursbretti. Hermt er að hnoðsprengjur
megi móta innan í töskur og annan
farangur og að mjög erfitt sé að fínna
þær við gegnumlýsingu farangurs.
Stærstu hlutar braksins úr þotunni
hrapaði niður á skozka bæinn Lock-
erbie og biðu a.m.k. 11 bæjarbúar
lífið auk þeirra 259, sem í flugvél-
inni vom. Fórst hún tæpri klukku-
stund eftir brottför frá Heathrow í
London í áætlunarflugi til Kennedy-
flugvallar í New York.
í framhaldi af ódæðinu hefur
bandaríska flugmálastjómin (FAA)
látið herða öryggisráðstafanir vegna
ferða bandarískra flugfélaga um
heim allan.
Bandaríska stórblaðið New York
Times sagði í gær að innan banda-
rísku leyniþjónustunnar væri nú talið
ólíklegt að samtökin Verðir bylting-
arinnar, sem styðja írani, bæru
ábyrgð á sprengingunni þar eð þau
þekktu ekki til fullkominnar sprengj-
usmíði.
Að sögn blaðsins þykja tvenn sam-
tök Palestínumanna helzt koma til
greina. Annars vegar 15. maí-sam-
tökin, sem báru ábyrgð á sprengjutil-
ræði í Pan Am-þotu á leið frá Tókýó
til Honolulu á Hawai 1982. Hins
vegar Alþýðufylking til frelsunar
Palestínu, samtök sem klufu sig út
úr Frelsissamtökum Palestínumanna
(PLO) vegna ágreinings við Yasser
Arafat, leiðtoga PLO, árið 1982. Þau
njóta stuðnings stjórnvalda í Sýr-
landi og eru með bækistöðvar í Dam-
askus.