Morgunblaðið - 29.12.1988, Qupperneq 3
MÖRGUNBLAÍÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1988
FLUGLEIDIR
OFAROGOFAR
NÝJUSTU FRÉTTIR FYRIR VIÐSKIPTAVINI • DESEMBER 1988
Heimsfréttirnar á Saga Class
Frá og með þessum mánuði
bjóða Flugleiðir Saga Class
farþegum mörg vönduðustu
dagbiöð og tímarit Evrópu. íslensk
dagblöð og tímarit skipa eftir sem
áður veglegan sess á Saga Class.
Listinn yfir erlendu blöðin, sem
fáanleg eru um borð að öllu jöfnu,
er forvitnilegur og í anda þeirra
sem gera kröfur. Má þar nefna blöð
eins og International Herald
Tribune, Wali Street
Journal, Financial Times,
USA Today, Time,
Newsweek, Spiegel og
L’Express. Þekktustu dagblöðin
frá Norðurlöndunum, Bretlandi,
Þýskalandi og Frakklandi kóróna
svo nýtt og fjölbreyttara
dagblaðaúrval fyrir Saga Class
farþega.
Laugardagar - Alpadagar
Allir laugardagar í vetur eru
Alpadagar hjá Flugleiðum
því þá fljúgum við beint til
Salzburg í Austurríki. Hressilegt
skíðafólk á leið til Mayrhofen, Zell
am See og Kitzbiihel kánn vel að
meta þessar laugardagsferðir.
íslenskir Alpafarar, athugið:
skíði og snjór eru engin aðalatriði í
Salzburg og Mið-Evrópu.
í hinni vinalegu Salzburg eru
góð hótel, hlýlegar krár,
veitingastaðir sem bragð er að,
verslanir með stíl og lágt vöruverð
og mörg diskótek. Tónsnillingurinn'
Mozart fæddist í Salzburg og þarf
ekki að fara fleiri orðum um
tónlistarandann sem þar svífur yfir
vötnum. Aldagamlar hallir, kirkjur
og hús gæða umhverfið
rómantískum blæ.
Salzburg er á öndvegisstað í
Evrópu. Þaðan er fárra stunda ferð
með lest eða bflaleigubíl til
nafntogaðra borga: Vínar,
Múnchen, Zurich, Mflanó,
Frankfurt, jafnvel til Hamborgar,
Amsterdam og Parísar.
Flugleiðir bjóða þér til
Salzburg í vikuferð frá_
kr. 19.900.
Hótel Esja með
nýjum blæ
Eftir áramót mun Hótel Esja
bjóða upp á gistingu í
nýinnréttuðum herbergjum.
Hótelið er sex hæðir með 135
herbergjum. Nýlega voru fyrstu
46 herbergin á tveimur fyrstu
hæðunum opnuð. Allt gamalt var
tekið út og nýtt sett inn í staðinn. í
janúar bætast við aðrar tvær hæðir
og við stefnum að því að
nýsköpuninni verði lokið þann 1.
mars 1989. Herbergin sem eru af
öllum stærðum eru einstaklega
björt og innréttuð samkvæmt
nýjustu tísku.
Smáatriðin sem gera dvölina
þægilegri gleymdust ekki. Nýju
herbergin verða búin fatapressu,
hárþurrku, smábar og litasjónvarpi.
Á skjánum má velja um myndbönd,
ríkissjónvarpið, Sky Channel og
síðast en ekki síst hina alþjóðlegu
CNN fréttaþjónustu allan
sólarhringinn. Alþjóðlegur
veitingastaður, Pizza Hut, var
nýlega opnaðurá 1. hæð hótelsins.
Þar er einnig hinn sígildi
matsölustaður Esjuberg og auðvitað
er Skálafellið sívinsæla á
9. hæðinni.
Hótel Esja er sannarlega
hótel í stöðugri sókn.
„Listablað"
flugfarþegans
Hjá Flugleiðum færð þú
dýrindis perlufestar á góðu
verði. En hvað með penna,
úr og klukkur, leikföng, gullkeðjur
og sólarlandavörur sem Flugleiðir
bjóða til sölu? Jafnvel tísku- og
leðurvörur?
Við þessu fást svör í glænýjum
og glæsilegum vörulista Saga
Boutique, búðarinnar um borð í
millilandaflugi Flugleiða, sem nú
iiggur frammi á söluskrifstofum
Flugleiða, hjá umboðsmönnum og
ferðaskrifstofum - heima og
erlendis. Og auðvitað eru litmyndir
eru af öllum vörum. Sem sagt, allt
sem þú þarft að vita um Saga
Boutique er í þessu ,Jistablaði“.
Saga Boutique býður
sambærilegt eða lægra verðlag en
ýmsar fríhafnir á jörðu niðri. En
það er þægilegra að versla í ró og
næði í flugvélinni og láta fara vel
um sig í sætinu.
Ekki er ráð nema f tíma sé tekið.
Gjörðu svo vel að taka nýja Saga
Boutique _ vörulistann.
9 ]
m 30 UjV
k/JjWJU 'iÍÝZÍL
J
M
T
’ \ I
J
LM
AUÐVELT TENGIFLUG UM LONDON
OG GLASGOW í VETUR
Vetraráætlun Flugleiða til
Bretlands mælist sérstaklega
vel fyrir. Nýir brottfarartímar
gera tengiflug til og frá Evrópu um
London og Glasgow að leik einum.
(vetur bjóðum við 8 beinar ferðir til
Bretlands, alia daga nema
laugardaga.
Áðalbreytingin er fólgin í
síðdegisferðum til London alla
þriðjudaga og fimmtudaga frá ■
Keflavík kl. 15.30, tveimur tímum
fyrr en áður. Það þýðir að farþegar
geta reiknað með að ná tengiflugi
til allra helstu borga Evrópu upp úr
kl. sex, strax eftir komu
Flugleiðavélarinnar. Eða þá átt
ánægjulegt kvöld framundan í
London. Tengiflugsmöguleikarnir
eru fjölmargir: Amsterdam,
Briissel, Köln, París, Genf,
Hamborg, Frankfurt o.fl.
Önnur veigamikil breyting er
síðdegisferðir til Glasgow alla
mánudaga og föstudaga. Brottför
frá Keflavík er kl. 17, lent ytra um
sjöleytið. Til íslands er haldið kl. 20
og lent um tíuleytið. Þægilegt er
fyrir þá sem vilja komast heim fyrir
helgi að taka föstudagskvöldvélina
frá Glasgow. Þessar nýju ferðir til
og frá Glasgow bjóða einnig upp á
auðvelt tengiflug til helstu
stórborga Evrópu.
Sem sagt, Glasgowflug Flugleiða
að kvöldlagi er sömu daga og
morgunflug til London. Með þessu
fyrirkomulagi og síðdegisfluginu
nýja leitumst við sérstaklega við að
þjóna fólki í viðskiptaerindum.
Morgunflug til London er á
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum. Á sunnudögum
bjóðum við svo hið vinsæla
miðnæturflug frá London.
Rúsínan í pylsuendanum
er eftir. Flugleiðir ætla sér
að gera fslendingum kleift
að komast enn ódýrar til
Glasgow strax eftir
áramótin. Frá 1. janúar
bjóðum við súper-
apexfargjald báðar leiðir
fyrir 13.700
krónur.
Jólin í
Flugleidavélunum
Fyrir starfsfólk flugfélags er
ekkert eins ánægjulegt og
glaðir farþegar. Við viljum því
gjarnan nota gott tækifæri og leyfa
jólaandanum að leika um flugvélar
Flugleiða fram yfir hátíðar. Við
höfum m.a. skreytt farþegaiými
allra flugvélanna með jólakrönsum
og leikum jólatónlist fyrir farþega í
millilandaflugi. Einnig munu
yngstu farþegarnir fá lítinn
jólapoka.
Flugleiðir taka þátt í jóla-
hátíðinni með
landsmönnum, innanlands
sem utan.
Farangur strax
á Reykjavíkur-
flugvelli
Löng bið eftir farangri er ekki
það skemmtilegasta sem
farþegar lenda í. Hinsvegar
mætti halda að það skemmtilegasta
sem hlaðmenn innanlandsfiugs
Flugleiða á Reylqavíkurflugvelli
gerðu væri að koma farangri
farþega félagsins strax til skila.
Við viljum gjarnan vekja athygli
á því að þessum dugmiklu
starfsmönnum Flugleiða tekst
jafnan á 4-5 mínútum að skila
farangri úr flugvél inn í flugstöðina.
Biðin á því ekki að vera löng ef
nokkur. Þetta kallast strax. I
flugstöðina er nú komið nýtt og
fullkomið færiband sem auðveldar
afgreiðslu farangurs enn frekar og
stuðlar að bættri meðferð á honum.
Þetta er enn eitt lítið atriði í bættri
þjónustu við farþega.
Sérfræðingar lofa
rauðvínið okkar
Flugleiðir leggja mikið kapp á
að bæta þjónustuna um borð
í flugvélum félagsins
jafnframt því að brydda upp á
nýjungum í þeim efnum. í haust
fengum við til liðs við okkur
kunnáttumenn um vín til að meta
þær víntegundir sem við höfum haft
á boðstólum í millilandaflugi og
vera okkur til aðstoðar við val á
nýjum vínum. Fremstur meðal
jafningja í þessum hópi var
vínlistamaðurinn góðkunni Einar
Thoroddsen. ’>
Okkur til mikillar ánægju hlaut
eitt rauðvínið, sem hefur verið um
borð í vélum okkar undanfarin
misseri, bestu móttökurnar t
blindsmökkun vínlistamannanna.
Þetta vín kemur frá Bordeaux.
Flugleiðum er vitaskuld
sönn ánægja að bjóða
þeim farþegum flp sem
vilja vínið góða
enn um sinn.
Síðan munum
við bera fram
önnur rauðvín
og ný hvítvín
snemma
á næsta ári.
Bon appétit!
AUK/SlA kt 10d20-273