Morgunblaðið - 29.12.1988, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDÁÓUR 29. DESEMBER 1988
Ríkisendurskoðun athugar greiðslur til lækna frá sjúkrasamlögum:
Margir læknar í fullu starfi
hjá ríkinu og með einkarekstur
MARGIR læknar, sem ráðnir eru í fullt starf hjá opinberri stofn-
un, eru að auki með eigin rekstur eða í hiutastarfi annars staðar.
Þá eru margir læknar í hlutastarfi hjá fleiri en einni stofiiun og
dæmi eru um mjög háar greiðslur til einstakra lækna. Þetta kem-
ur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreikn-
ings fyrir árið 1987, og er meðal ýmissa atriða sem talið er ábóta-
vant í rekstri heilbrigðiskerfisins.
Ríkisendurskoðun endurskoðaði
í fyrsta skipti rekstur allra sjúkra-
húsa og sjúkrastofnana á síðasta
ári, og í skýrslunni kemur fram,
að viðvarandi rekstrarhalli er á
þeim öllum. Er rekstrarhalli sjúkra-
húsa á föstum fjárlögum að meðal-
tali 4,8% af veltu, en sjúkrahúsa á
daggjöldum 17,1%.
Ríkisendurskoðun telur að helstu
orsakir stöðugs rekstarhalla
sjúkrahúsa séu þær, að samræmt
bókhald og reikningsskil séu ekki
til staðar, óglögg skil séu miili
rekstareininga í skýrslum sjúkra-
húsa og á milli sjúkrahúsa og heil-
sugæslustöðva þegar þessar stofn-
anir eru teknar sameiginlega.
Kostnaði sé ekki rétt skipt upp, og
því falli yfirleitt meiri kostnaður á
sjúkrahús og þar með ríkissjóð. Þá
sé starfsmannaíjöldi sjúkrahúsa
yfirleitt umfram heimildir ijárlaga.
Margir starfsmenn séu ráðnir til
hlutastarfa en vinni síðan lengri
vinnutíma með hærra álagi.
Ríkisendurskoðun gerði sérstaka
athugun á nokkrum sjúkrastofnun-
um, m.a. Landakotsspítala en sú
athugun var mjög í fréttum fyrr á
þessu ári. Þá var athugun gerð á
rekstri Sjúkrahótels Rauða kross
íslands með sérstöku til aukins
halla á árinu 1987. Þar kom fram,
að tap á síðasta ári hafi verið 49%
af veltu, en hafði verið 35% árin á
undan. Er það skýrt af hækkun
launa, fæðiskostnaðar, húsaleigu
og fjármagnskostnaðar. Fram
kemur að rekstur hótelsins er orð-
inn mun umfangsmeiri en ráð var
fyrir gert, þegar starfsemi þess
hófst árið 1974, og hafi heilbrigðis-
yfirvöld ekki amast við því.
Þá gagnrýnir Ríkisendurskoðun
rekstur sjúkrasamlaga, sem voru
40 talsins á síðasta ári. Er bent
á, að sjúkrasamlögin valdi mörg
ekki hlutverki sínu, bókhaldsþekk-
ingu og þekkingu á lögum um al-
mannatryggingar sé víða ábóta-
vant, og er talið nauðsynlegt að
breyta núverandi fyrirkomulagi í
færri einingar eða eina sjúkra-
tryggingu.
VEÐUR
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gáer)
/V
V
í DAG kl. 12.00:
VEÐURHORFUR íDAG, 29. DESEMBER
YFIRLIT í GÆR: Á Grænlandssundi er 970 mb lægð á norðaustur-
leið, og önnur álíka skammt suðaustur af Jan Mayen einnig á norð-
austurleið. Um 250 km suðaustur af Vestmannaeyjum er þriðja
lægöin, um 979 mb djúp, og hreyfist hún austnoröaustur. Veður
fer kólnandi og má búast við 3ja til 6 stiga frosti víða um land á
morgun.
SPÁ: Allhvöss ríorðanátt með éljum norðan- og vestanlands, en
hægari og úrkomulaust í öðrum landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hægviðri - víða él á Norðausturlandi og
suövestanlands, annars staðar að mestu úrkomulaust.
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðaustanátt, víða allhvöss eða hvöss
um suövestan- og vestanvert landið, en hægari í öðrum lands-
hlutum. Sunnanlands og vestan- slydda eða rigníng, en úrkomulít-
ið annars staöar í fyrstu.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
A__
ZjRk. Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j Q° Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
== Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
|~<^ Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavfk hlti 0 +1 veður alskýjað léttskýjað
Björgvin 7 rigning og súld
Helsinki +11 snjókoma
Kaupmannah. 6 skýjað
Narssarssuaq +19 léttskýjað
Nuuk vantar
Ósló 2 skýjað
Stokkhólmur 0 þokumóða
Þórshöfn 8 rigning
Aigarve 16 skýjað
Amsterdam 11 þokumóða
Barcelona 11 mistur
Berlin 6 skýjað
Chicago +9 alskýjað
Feneyjar 6 þokumóða
Frankfurt 9 skýjað
Glasgow 13 mistur
Hamborg 6 þokumóða
Las Palmas 18 rykmistur
London 12 skýjað
Los Angeles 4 heiðskírt
Lúxemborg 6 þoka
Madríd 5 tágþokublettir
Malaga 15 skýjað
Maliorca 15 skýjað
Montreal 2 rígning
New York 11 alskýjað
Orlando 18 þokumóða
Par/s 10 skýjað
Róm 9 þokumóða
San Diego 7 léttskýjað
Vín 9 skýjað
Washington 12 skýjað
Winnipeg +27 heiðskírt
Morgunblaöið/Sverrir
Safnað í brennu
Strákamir á Ægisíðunni láta ekki sitt eftir liggja þegar kemur
að því að safiia í brennu. Þeir stilltu sér stoltir upp á hrauknum
er ljósmyndarinn átti leið þjá I gær og hugsa sér eflaust gott tU
glóðarinnar á gamlárskvöld.
Bannað að auglýsa
„frían“ kaupbæti
VERÐLAGSRÁÐ hefiir bannað
Sanitas að nota orðið „frítt“ á
gosumbúðum þó innihaldið sé
aukið án þess að verð flöskunnar
sé hækkað. Er talið að þessi notk-
un orðist stangist á við verðlags-
lögin, hún sé brot á samkeppnis-
reglum og sé auk þess villandi.
Ragnar Birgisson forstjóri Sanit-
as segir að fyrirtækið muni virða
bannið og hætta notkun á umbúð-
um með þessu orði eftir því sem
birgðir af merkimiðum kláruðust
og nefiia þessa endurgjaldslausu
viðbót eftirleiðis „ábót“.
Sanitas hefur selt IV2 lítra gos-
flöskur á „verði IV4 lítra“ í nokkra
mánuði og auglýst 25 cl „frítt".
Að undanfömu hefur það einnig
selt 2 lítra flöskur á verði sem sagt
er IV2 lítra-verð og auglýst V2 lítra
„frítt". Samkeppnisaðilar á gos-
drykkjamarkaði kærðu þetta. Gísli
G. ísleifsson yfirlögfræðingur Verð-
lagsstofnunar segir að reynt hafi
verið að ná samkomulagi við fyrir-
tækið. Þar sem þessari merkingu,
sem talin hafí verið ólögleg, hafi
ekki verið hætt hafi málið verið
tekið fyrir í verðlagsráði 21. desem-
ber.
Verðlagsráð ákvað að banna
notkun orðsins „frítt“ í þessu sam-
hengi með vísan til verðlagslag-
anna. í tilkynningu til Sanitas er
bent á að þessi svokallaði frí hluti
gosdrykksins fáist því aðeins að
flaskan í heild sé keypt og endur-
gjald komi fyrir en ekki sé heimilt
að nota orðið frítt nema um það
sem fáist án endurgjalds.
Gísli segir að bann verðlagsráðs
hafi strax tekið gildi og væri Sanit-
as óheimilt að dreifa gosdrykkjum
með þessum merkingum.
Sanitas hefur undanfama mán-
uði selt Pepsi í dósum þar sem sagt
er: 50% meira fyrir sama verð. Gísli
sagði að ekki hefðu verið gerðar
athugasemdir við þetta enda væri
heimilt að veita kaupbæti ef kaup-
bætirinn sé sama eðlis og viðkom-
andi vara og einnig væri mönnum
frjálst að gefa afslátt.
Norræni sjónvarpssjóðurinn:
Styrkur veittur til
myndaflokks í umsjá
Hraftis Gunnlaugssonar
HRAFN Gunnlaugsson mun
skrifa handrit fyrir og leikstýra
myndaflokki sem sækir efnivið í
islenskar fornsögur. Til þessa
verkefiiis hefúr Norræni sjón-
varpssjóðurinn veitt upphafs-
styrk að upphæð um 3 milljónir
ísl. króna. Sá styrkur er veittur
til „umfangsmikillar undirbún-
ingsvinnu sem liggja þarf fyrir
áður en endanleg ákvörðun um
upptöku verður tekin,“ segpr í
frétt frá Sjónvarpinu. Þetta er í
fyrsta sinn sem fé er veitt úr
þessum sjóði og hlutu í það sinn
fiögur verkefiii styrki. OU verk-
efiiin verða unnin í samvinnu
tveggja eða fleiri sjónvarps-
stöðva sem aðild eiga að Nord-
vision.
Alls voru veittar tæpar 50 millj-
ónir íslenskra króna úr sjóðnum,
en gert er ráð fyrir að í framtíðinni
muni sjóðurinn hafa um 100 millj-
ónir króna til ráðstöfunar árlega.
Þau verkefni sem fengu styrki
nú eru, auk myndaflokksins sem
Hrafn gerir, Norðurlönd 1814 sem
er leikin heimildamynd um stjórn-
málaviðburði á Norðurlöndum þetta
ár, Stein 0mhoj frá norska ríkis-
sjönvarpinu stjómar upptökum;
Goðafræði Norðurlandabúa sem
er teiknimyndasyrpa ætluð bömum
um goðafræði, vestnorræna jafnt
sem austnorræna, í 24 þáttum og
annast fínnski hreyfílistamaðurinn
Seppo Putkinen gerð þeirra fyrir
hönd finnska sjónvarpsins; Axel
sem er sjónvarpsmynd eftir sögu
Bo Carpelans undir leikstjóm Anssa
Blomstedt, myndina gerir finnska
sjónvarpið. Að auki er gert ráð fyr-
ir að veita styrk til norræns saka-
málamyndaflokks að ákveðnum
skilyrðum uppfylltum. Sá flokkur
ber heitið Det skulle væra sá
sundt.