Morgunblaðið - 29.12.1988, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTIIDAGUR 29. DÉSRMBER 1988
Bréfabindi: Fyrir A4
skjöl, 7 cm. breið.
Úr plasti með stálkanti að
neðan. Hvít, blá, gul,
rauð og grœn að lit.
Kr. 198,- stk. (10 í kassa).
Tölvumöppur: Fyrir allar
stœrðir tölvulista. Bláar,
grcenar og rauðar að lit.
Kr. 249,- stk. (10 í kassa)
Skjalavasar: Úr pappa og
til í ýmsum stœrðum,
gerðum og litum.
Frá Kr. 25,- stk. (50 í
kassa)
Geymslukassar: Úr pappa
og í þremur gerðum og
stœrðum.
Kr. 39,- stk. (10-75 í kassa)
skilaboð í tvíriti
Kr. 290,- stk. (5 í pakka)
Söludeiid
HolðrfÖflhKn S.".>
LR sýnir söngleik
um maraþondans
Leikfélag Reykjavíkur frum-
sýnir í dag söngleikinn Heims-
meistarakeppnina í maraþon-
dansi eftir Ray Herman. Leik-
urinn er færður upp í skemmti-
staðnum Broadway. Heims-
meistarakeppnin i maraþon-
dansi er byggð á skáldsögunni
„They shoot horses, don’t they“
eftir Horace McCoy. Kvikmynd
hefur verið gerð eftir sögunni
með þeim Michael Sarrazin og
Jane Fonda í aðalhlutverkum.
Leikstjóri sýningarinnar í Bro-
adway er Karl Agúst Ulfsson.
Söngleikurinn fjallar um heims-
meistarakeppni í maraþondansi
vestur í Los Angeles árið 1935.
Atburðir verksins gerast að mestu
í stórum danssal, en einnig að
hluta niðri við höfn, segir í frétt
frá LR. Fylgst er með keppninni
frá upphafi til enda og skyggnst
inn í örlög nokkurra keppenda.
Inn í atburðarásina fléttast vofeif-
legir atburðir - mannlegur harm-
leikur.
„Keppni af því tagi sem hér er
lýst var algeng „skemmtun" vest-
ur í Bandaríkjunum á kreppuár-
unum. voru þær mikil fim: Dans-
að var nær linnulaust langt á
þriðja mánuð og verðlaun sigur-
vegaranna - eina parsins sem eft-
ir stóð að. loknu tvö þúsund
klukkustunda kvalastríði - voru
geysihá. En flestir færðu aðeins
fómir og spmngu á limminu; ör-
vinlaðir allsleysingjar langt um
aldur fram,“ segir í frétt LR.
Með aðalhlutverk í söngleikn-
um fara Pétur Einarsson sem leik-
ur Rocky Gravo, dansstjórann,
Helgi Björnsson sem leikur Ro-
bert Syverten og Hanna María
Karlsdóttir sem leikur Gloriu Be-
atty. Nítján leikarar fara með
hlutverk í leiknum. Sjö manna
Pétur Einarsson sem dansstjórinn Rocky Gravo og Erla B. Skúla-
dóttir sem Mary Hawley í Heimsmeistarakeppninni í maraþon-
dansi.
hljómsveit leikur undir stjóm Jó- ir marga höfunda, þeirra á meðal
hanns G. Jóhannssonar, en hann em Cole Porter, George Gershwin
útsetti einnig lögin. Tónlist er eft- og Irving Berlin.
Fjármagnskostnaður eykst
og samkeppnisstaðan veikist
- segir Víglundur Þorsteinsson um álagningu vörugjalds
„VÖRUGJALDIÐ veikir veru-
lega samkeppnisstöðu innlendr-
ar framleiðslu gagnvart innflutt-
um vörum. En því miður virðist
iðnaðarráðherra ekki hafa tekið
eftir meginröksemdum Félags
íslenskra iðnrekenda gegn vöru-
gjaldinu,“ sagði Víglundur Þor-
steinsson formaður FÍI er leitað
var álits hans á þeim ummælum
Jóns Sigurðssonar iðnaðarráð-
herra að álagning vörugjaldsins
raskaði ekki samkeppnisstöðu
innlendrar framleiðslu.
Víglundur nefndi þrennt máli
sínu til stuðnings: „Fyrstu megin-
áhrifin em þau að vömgjaldið er
lagt á ýmis hráefni í tolli. Og þó
þau séu frádráttarbær í virðisauka-
kerfi við sölu á fullunninni vöm þá
bindur innheimtan vemlegt fjár-
magn í íslenskum framleiðsluiðn-
aði. Það em tveir til þrír mánuðir
og jafnvel lengri tími sem líður frá
því hráefni er leyst úr tolli þar til
fullunnin vara er söluhæf. Þessi
fjárbinding hefur í för með sér auk-
inn fjármagnskostnað og veikir um
leið samkeppnisstöðu íslensku
framleiðslunnar. Við höfum óskað
eftir því við fjármálaráðherra að
innlendir framieiðendur fái gjald-
frest á vömgjaldi af hráefnum þar
til kemur að skilum á vömgjaldi
af vömnni fullunninni en höfum
ekki fengið hlýjar móttökum enn
sem komið er, hvað sem síðar verð-
ur.
I öðm lagi vil ég nefna að vöm-
gjaldið leggst í nokkmm tilvikum á
hráefni til framleiðslu vöm sem
vömgjald verður ekki á fullunninni.
Mun reyna á það í slíkum tilvikum
hvort ríkisvaldið fellir vömgjöldin
niður. Verði það ekki gert veldur
það ótvírætt samkeppnisóhagræði
gagnvart innflutningi.
I þriðja lagi má almennt segja
um álagningu vömgjaldsins að þeg-
ar Alþingi tekur út úr vömr og
vöruflokka til að skattleggja sér-
staklega með háum neysluskatti
getur það haft áhrif á heildareftir-
spurn og neyslu og valdið almenn-
um samdrætti í framleiðslunni. Og
þegar þessar vömr em að vemlegu
leyti það sem íslenskur iðnaður er
að framleiða bitnar það á iðnaðin-
um,“ sagði Víglundur.
HJÁLPIÐ
Símahappdrætti 1988
Eftirtalin símanúmer hlutu vinning:
1. vinningur Nissan Pathfinder
nr. 91-53520.
2.-4. vinningur Nissan Sunny Coupé
nr. 91-621445 - 91 -12338 - 94-80108.
5.-9. vinningur Nissan Sunny Sedan
nr. 91 -38200 - 91-687409 - 91 -651153
-92-15857-98-21244.
10.-29. vinningur vöruúttektir hjá
Gunnari Asgeirssyni hf.
91-22367 - 91-19725 - 91-38382 -
91-72017 - 91-673373 - 91-671848 -
91-74509 - 91-674100 - 91-26676 -
91-51045 - 91-52273 - 91-52837 -
93-13099 - 93-41226 - 96-71700 -
96-22320 - 96-22079 - 97-11094 -
98-22560 - 98-11533.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
Morgunblaðið/Sverrir
Ámi Arinbjarnarson orgelleikari heldur tónleika í Grensáskirkju
á föstudag.
Orgeltónleikar í Grensáskirkju
ÁRNI Arinbjarnarson heldur orgeltónleika föstudaginn 30.
desember kl. 20.30. Hann leikur á hið nýja orgel Grensás-
kirkju, sem sett var upp í kirkjunni og vígt sl. haust. Orgelið
var smíðað I orgelverksmiðjunni Bruno Christensen & Sönner
í Danmörku.
Á efnisskrá tónleikanna em orgelverk eftir Pachelbel, Buxtehude,
Bach, d’Aquin og Boéllmann, og em sum þessara verka tengd boð-
skap jólanna.
Áðgangur er ókeypis og öllum heimill.