Morgunblaðið - 29.12.1988, Page 15

Morgunblaðið - 29.12.1988, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1988 15 Panþeon, mikilfenglegasta musterið sem varðveitzt hefur frá tímum Rómveija hinna fomu. Panþeon samsvara því kröfum RÍM af nákvæmni — en á gjörólíkan veg. Og minna ber á, að verklag Lugli er þveröfugt við vinnuaðferð þá er liggur að baki RÍM: Lugli rannsakar fomleifar og miðar helztu minnismerki og byggingar út frá jarðneskum mælingum og mörkunum einvörðungu. A tákn- máli er ekki byggt, enn síður goð- sögnum. Má raunar segja, að ítölum hafí til skamms tíma ekki verið ljóst fremur en íslendingum, að unnt væri að greina sundur og túlka táknmál í goðsögnum. En nú blasir sú staðreynd við — og eigi með óglæsilegri ásýnd þar syðra. Staðsetning Panþeons Eitt eftirtektarverðasta einken- nið á sólstaðnalínu Rómar er, að þótt talið sé óyggjandi, að línan marki jól og mitt sumar, þá er þar miðað við sólarlag á sumri, sólar- upprás á vetri. Þessu var öfugt farið hér í Rangárhverfí, að líkum málsins, miðað var við sólarupprás lengsta dag árs að Stöng í Þjórsár- dal, við sólarlag stytzta dag árs að Bergþórshvoli og Þrídröngum. Sú lína er markar sólstöður í Róm er m.ö.o. ekki samstæða línunnar í Rangárhverfi heldur gagnstæða hennar. Þetta breytir þó að sjálf- sögðu ekki mikilvægi samanburð- arins; gerir hann aðeins óvæntari. En sjónlína sú sem Panþeon er við miðuð er mörkuð við borgina Tus- culum (suðaustur af Róm) og fæð- ingu Ágústusar keisara. Er hún þannig hvort tveggja í senn, mörk- un á stað — sjóndeildarhring — og tíma — eins og hliðstæðan hér nyrðra. En á degi vetrarsólstaðna færðu Rómverjar gyðju, er Anger- ona hét, fómir. Samkvæmt Lugli var réttur dagur þessarar línu skil- greindur sem 21. desember, og er það athyglisvert vegna jólahelgi Ósíris ellegar hinnar ósigrandi sól- ar, sem mörkuð var við 25. desem- ber. Þama er m.ö.o. ekki um að ræða beina samsvömn við þau jól er kristnir menn tóku síðar upp og helguðu fæðingu Frelsarans. Sú staðreynd, að um gagnstæðu er að ræða í Róm, ekki samstæðu, gerir það að verkum, að eigi er unnt að skilgreina „Bergþórshvol" þeirra Rómveijanna án vandlegrar rannsóknar. Á hið sama vitanlega við um „Stöng“. Hins er að gæta, að slík fim efnis em nú handbær til samanburðarrannsókna, að lítill vafí er á fundi þessara staða í ná- inni framtíð. Vafalaust rekur ein- hver upp stór augu, þá er hann sér íslenzk staðamöfn notuð á þennan hátt í Róm, en sannleikurinn er sá, að þau em handhæg og sjálfsögð. Þar kemur það ekki sízt til, að sömu nöfn má nota við samanburð hvarvetna í hinum miklu menning- arsamfélögum fomaldar. Þannig getum við í framtíðinni talað um „Bergþórshvol" margskonar ríkja, svo sem Súmera, Hittíta og Egypta, að ekki sé talað um þau er nær standa á landakortinu. Nú þegar getum við talað um „Steinkross" (miðjuna á Rangárvöílum) Róm- veija, þ.e. hliðstæðuna, er nefndist Fomm Pacis, „Friðartorg". Málum er svo langt komið, að sennilega verður unnt að rekja fjölda staða í Róm og festa við goðsagnir, sem ráðnar vom hér norður við Dumbs- haf. Sá möguleiki veldur stærri umbreytingum en okkur hefði órað fyrir að fyrrabragði. Um Panþeon Nafnið Panþeon er komið úr grísku og notuðu Rómveijar það yfír „alla heilaga“. Var vinna við musterið hafín árið 27 f.Kr., og brann það árið 80 e.Kr. en var þá endumýjað. Árið 110 brann hofíð aftur og var musteri það sem nú stendur endurreist að undirlagi Hadríans keisara árið 120—124 e.Kr. En eins og segja má um ýmis fom mannvirki hafa verið gerðar á því nokkrar breytingar, til dæmis þær sem kenndar em við Septimus Sevems og Caracalla. Hinn 6. marz 609 breytti páfinn Boniface IV hinu heiðna hofí í kristna kirkju er kennd var við Maríu. Vom þá mörg lík kristinna manna færð úr katakombum yfír í Panþeon, og varð þetta framar öllu öðru til að bjarga musterinu frá eyðileggingu. Er kirkja Panþe- ons nú talin einskonar þjóðarkirkja allra ítala, og er hún sérstök að því leyti. Sem bygging er Panþeon fræg- ust fyrir hvolfþak sitt, sem talið er einstakt í heiminum. í miðju hvolfþaksins er op, um 30 fet í þvermál, og er eigi yfír það reft. En hvolfþakið er svo mikið um sig og slík völundarsmíð, að ekkert ananð hvolfþak á jörðu hér má við það jafnast, að sögn skýringabóka. Em þá jafnvel hvolfþök Péturs- kirkjunnar í Róm og Maríukirkju Flórenz ekki undan skilin. Það sem að öðm leyti einkennir Panþeon er einfaldleiki, tign og fegurð. Sjö innskot em í kirkjunni, og stóð stytta af guðinum Jupiter Ultor í miðjunni; tekið er fram, að sá guð hafi refsað vegendum Cæs- ars. Fleiri guði var þama að finna, en nú hafa menn eigi af þeim ná- kvæmar fregnir. Svo rík er kirkja Panþeons að minnum og tengslum við mikilmenni fortíðar, að hér gefst eigi rúm til að skýra það mál nánar. Nefna ber þó, að örlítil tengsl má greina við ísland innan veggja Panþeons: þar stendur mik- ið verk eftir Thorvaldsen og er tal- ið fágætlega gott, gert yfír Con- salvi kardínála (1755—1824). Staðan árið 1988 Þegár sá sem þetta ritar skoðaði Panþeon árið 1972, var þar til leið- sagnar kona ein mikil og menntuð í listfræði, • sem spurð var um mál kirkjunnar og hugsanlega tölvísi. Er það ein þeirra minninga er eigi hverfa úr hugskotinu, að kona þessi brást ókvæða við, kvað hin upp- mnalegu mál engu skipta, enda væri tölvísi utan hennar áhuga- sviðs. Hugsaði ég með mér, að þar gerðist listfræðingurinn berari að meiri skammsýni en efni stæðu til. Þegar þetta er ritað er ná- kvæmnisrannsókn í Panþeon óunn- in með hliðsjón af þeim óvæntu viðhorfum er skapazt hafa hér nyrðra. Að sinni skal því aðeins bent á örfáa möguleika sem lesa má úr stöðunni. Þar ber þess fyrst að geta, að tvö meginhugtök fomr- ar tölvísi ætti að vera að fínna í Panþeon, ef Hof á Rangárvöllum er haft til samanburðar. Annað er talan 216, ellegar talnamna sú sem einkennir þá tölu, hitt er talan 256. Nánar til tekið ætti þama að mega fínna hugtak Tenings (sem tengdist talnamnu 216) og hugtak Pólstjömu (er endurspeglaðist í tölunni 16 x 16 = 256). Ef við athugum fyrst hugtak Tenings stingur í augu, að Panþeon er nú talið 142—3 fet á hæð — og að breiddin er talin jöfn hæðinni. Á hið sama við um lengd, þ.e. ef unnt er að tala um breidd og lengd í kirkju sem er hringlaga. Nær væri að tala um þvermálið, en þama opnast samanburður við kirkju Maríu blómsins í Flórenz, sem einmitt er áttstrend, enda þótt talin sé gerð um hugmynd tenings (60x 60x 60 = 216000). Hring- laga form Panþeons er einnig 8— skipt. Sá möguleiki er m.ö.o. aug- ljós í stöðunni, að Panþeon sé hugs- að sem hringur innan femings — og þannig tenings. Ef svo var, og ef „fet“ vom notuð við byggingu musterisins, liggur sú tilgáta ljós fyrir, að miðað hafí verið við töluna 144, þ.e. tólf sinnum tólf. Sú til- gáta mundi leysa dæmið á einfald- an hátt: ef miðað var við tólf „modules“ (mælieiningar) og hugs- unin var Teningur (er merkti stað- festu og hald, það sem við er mið- að) þá fellur lausnin að dæminu, sem svo var sett upp að fomu: 27-54-108-216-432-864- 1728, en 1728 er einmitt Teningur tölunnar 12. Ætla verður þannig, að þeir sem slá lausu máli á Panþe- on nú noti ekki rétta viðmiðunar- depla. Hin íslenzka tilgáta veitir þannig skýran möguleika á nánari rannsókn með fastri viðmiðun. Ber að minna á, að „fet“ vom breytileg að fomu. Svipuðu máli gegnir um töluna 256. Tala þessi er talan 16 marg- földuð með sjálfri sér. Allmikið hefur verið um þessa tölu ritað í RÍM, og gefst eigi færi á að fara út í þá sálma hér. Það sem máli skipt- ir er hins vegar, að „kórintu"— súlumar frægu, er mynda framhlið musterisins, em einmitt sextán að tölu. Enginn hefur, mér vitanlega, getið sér þess til á síðari tímum, að tala þessara súlna byggðist á hugmyndafræði tengdri tölvísi. Nú kemur hin íslenzka tilgáta til skjal- anna og kveður afdráttarlaust á um sennileikann. Má þannig segja, að það tvennt, sem augljósast er í byggingu Panþeons bendi nú þegar sterklega til hliðstæðu við Hof á Rangárvöllum. Hvort þama sé um „tilviljun" að ræða verða merin svo að meta með hliðsjón af þeirri stað- reynd, að Panþeon liggur einmitt á línu, sem sögð hafði verið fyrir í RÍM, þ.e. línu er markaði sólstöð- ur. Það eykur svo aftur á fjölda rannsóknarmöguleika, að um gagnstæðu er að ræða í Róm, eigi samstæðu. Hof og Loki Það skemmtilegasta við allt þetta er, að ekkert musteri er nú að fínna að Hofí á Rangárvöllum, engar fomar rústir til viðmiðunar, ekkert, sem mælt hefur verið og markað líkt og Lugli gerir í Róm. Gjörvöll hugmyndafræðin hefur verið út reiknuð af táknmáli hér nyrðra og innbyrðis afstöðu goð- sagna. Eins og sýnt er ffam á í síðustu bók RIM, Stefinu, er út kom nú í haust, virðist sama hug- myndafræði og sama landamörk- unin liggja til grandvallar öllum þingum Islands, og, þar með, goða- veldinu. Það er þessi mörkun, sem reiknuð var út, og lögð til grand- vallar tilgátum þeim sem prófaðar vora í Flórenz og Róm. Á einfaldri íslenzku merkir þetta, að grand- völlur hins íslenzka goðaveldis var mjög svipaður grandvelli Róma- réttar og Endurfæðingarinnar í Flórenz. Við stóðum ekki utan Evrópu, við voram hluti af henni. En það merkir þá enn, að flest sem íslendingar nútímans hafa haft fyr- ir satt um fákunnáttu og grófan hugmyndaheim landnámsmanna íslands er bábylja. Þar fór menntað fólk á sinnar tíðar vísu. Það hlýtur að verða með ein- dæmum forvitnilegt að grafa eftir fornleifum að Hofí á Rangárvöllum. Var þar að fínna byggingu í ætt við musteri fomrar tölvisi? Eða létu forfeður vorir sér nægja að geyma hugmyndafræðina í táknum? Skrýtnast fyrir þá sem áhuga hafa á fomum arfí íslendinga er að hyggja að goði því er byggði Hof; þar fór Loki, sá viðsjálsgripur. Þetta er nú augljóst af táknmálinu; Loki gekk aftur í Merði Valgarðs- syni, er tók yið búi að Hofi. En það merkir, svo einkennilegt sem það er, að við getum sagt fyr- ir um upphafleg goð Battistero di San Giovanni í Flórenz og Panþe- ons í Róm. Þar ríkti Satúmus æðst- ur; goð Tíma, Jarðar og Tenings. Framtíðin Vart inun á óvart koma, að Loki átti sér gervi í Róm. Sá slægi gat bragðið sér í allra kvikinda líki. Hitt, hversu augljóslega má setja fram tilgátur um samsvöran Hofs og Panþeons af hugmynd Tenings annars vegar, tölunnar 16 hins vegar, hlýtur að koma jafnvel lærð- ustu mönnum á óvart. Engu er líkara ÁÐUR en vettvangsrann- sókn er gerð og meðan einungis er miðað við gögn send frá Róm — en að hliðstæða musteranna tveggja sé nú þegar geimegld. Það sem ítölskum fræðimönnum mun koma mest á óvart er þó ótal- ið. Af hinni íslenzku hliðstæðu hljótum við að setja fram þá til- gátu, að lína sú sem nú er kennd við Tusculum og Ágústus keisara, sé mörgum öldum eldri og varði sjálfa stofnsetning Rómaborgar. Áð sjálfsögðu er þetta ekki gefíð — hugsanlega var Róm endurmörkuð og þann veg endurstofnuð þrem eða fjóram sinnum. En möguleikinn sem í samanburði Hofs og Panþe- ons felst er slíkur, að ætla má mikinn hluta svonefndra „Tróju“- sagna við bundinn. Þannig er Hof á Rangárvöllum ein helzta viðmið- un þess goðvefs er ofínn var í sögu Njáls á Bergþórshvoli, og þar sem annars vegar er miðað við sjónlínur (markleiðir) í þeim vef, hins vegar föst og ákveðin innbyrðis tengsl milli staða á jörðu niðri, á stjam- himni og á sjóndeildarhring, er ekki óhugsandi að unnt muni verða að skilgreina goðsögn Neleusar og Peliasar (Njáls og Flosa) í Róm, þeirra ellefu er inni brannu þar að Hvoli Upphafs, kerlingar Heljar (Bergþóra), Dauðans (Skarphéð- ins), Nestors, þess er einn slapp úr brennunni (Kára) — að ekki sé talað um sjálfan dæmigerving lag- ar, jarðar og lögspeki, Mörð Val- garðsson. Er þá að sjálfsögðu átt við goðmyndimar að baki. í Róm jafnt sem á Rangárvöllum var gjörvöll sögnin miðuð við jól. Betri jólagjöf hafa Islendingar vart fengið en þessa: héðan í frá verður eigi nákvæmari viðmiðunargrand- völlur fundinn í klassiskum fomum fræðum en sá sem varðveittist á skinni hér norður við yzta haf. Höfundur stundar rannsóknir i menningarsagnfræði. Þakkir vegna aðstoðar við Armeníu SENDIRÁÐ Sovétríkjanna á ís- landi hefiir beðið Morgunblaðið að birta eftirfarandi tilkynningu: „Sendiráð Sovétríkjanna á ís- Iandi lætur í ljós innilegt þakklæti sitt til allra þeirra sem lýst hafa yfír samúð sinni vegna hörmulegra afleiðinga náttúrahamfaranna í Armeníu svo og til þeirra stofnana og einstaklinga sem hafa á ýmsan hátt hjálpað nauðstöddum íbúum Armeníu.“ Veiðileyfi borguð með greiðslu- kortum ÞEIR stangaveiðimenn sem kaupa veiðileyfi hjá Stangaveiði- félagi Reykjavíkur geta nú greitt leyfin með greiðslukortum, bæði frá Visa og Eurocard. Er þetta nýlunda sem talin er að muni auka eftirspurn og sölu veiði- leyfa þrátt fyrir sihækkandi verðlag. “Við eram mjög ánægðir með að geta boðið þetta," sagði Jón G. Baldvinsson formaður SVFR um málið. Sagði Jón enn fremur, að ménn gætu greitt leyfin hér eftir með ýmsum leiðum, allt eftir því hversu háar upphæðimar væra, aðalatriðið væri að þeim gæfist kostur að ganga frá veiðileyfakaup- um með raðgreiðslum. Lágmarks- upphæð er 25.000 krónur og geta menn greitt það á allt að sex mán- uðum. Næsti flokkur er þar fyrir ofan og upp í 50.000 krónur, en þá býðst að greiða á allt að níu mánuðum. Loks er efsti flokkurinn, allt að 100.000 krónur, en veiði- leyfi í þeim flokki má greiða á allt að tólf mánuðum. Mörkun Rangárhverfis samkvæmt likum táknmáls sem lesa má af goðsögnum. Sú mörkun varðaði og mörkim Alþingis á Þingvöllum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.