Morgunblaðið - 29.12.1988, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1988
Brasilía:
Þekktur umhverfis-
verndarsinni myrtur
Sao Paulo. Reuter.
MORÐINGI brasílsks umhverfisverndarsinna, Francisco Mendes, sem
myrtur var í síðustu viku, gaf sig fram við lögreglu á mánudag.
Mendes hafði áunnið sér alþjóðlega viðurkenningu fyrir baráttu sína
gegn eyðingu regnskóga á Amazon-svæðinu í Brasilíu.
Reuter
Torgsali í Belgyað afhendir viðskiptavini dagatal með mynd serb-
neska flokksleiðtogans Slobodans Milosevics. Á innfelldu myndinni
sést blaðsíða í tímaritinu NIN með mynd af konu Milosevics. Hann
lét eyðileggja eintök með myndinni af ótta við ásakanir um persónu-
dýrkun.
Stjórn Júgóslavíu í kröggum:
Mendes var skotinn til bana á
heimili sínu í bænum Xapuri í
Amazon 22. desember síðastliðinn.
Morðinginn, Darci Alves Pereira,
er 21 árs gamall sonur nautgripa-
bónda. Að sögn lögreglu og um-
hverfisverndarsamtaka beindist
grunur strax að honum og bróður
hans.
Mendes barðist einarðlega fyrir
vemdun regnskóga Amazon-svæð-
Tillaga til sambandsfjár-
laga felld á þjóðþinginu
Belgrað. Reuter.
ÞJÓÐÞING Júgóslavíu felldi í gær tillögur rikissijórnar Branko
Mikulics til fjárlaga fyrir allt sambandsríkið. Áður höfðu tvö auðu-
gustu sambandsríki Júgóslavíu, Króatía og Slóvenía, neitað að sam-
þykkja Qárlögin Þrýstingur eykst sífellt á Mikulic um að hann segi
af sér. Andstaða þinga ríkjanna tveggja þvingaði á sínum tíma sam-
bandsstjórnina í Belgrað til að notast við bráðabirgðafjárveitingar
langt fram á árið sem er að líða.
Á ríkisfjárlögunum eru m.a.
framlög til hers og ríkisstofnana
ásamt stuðningi við þau héruð sem
eru aftarlega á merinni efnahags-
lega. Fjáriögin verða að hljóta ein-
róma samþykki allra sex sambands-
ríkja og beggja sjálfsstjómarhéraða
Júgóslavíu til að verða að lögum.
Tekið var undir kröfur um afsögn
Mikulics, sem komu fram í flokks-
blaðinu Borba síðastliðinn mánu-
dag, í slóvenska blaðinu Delo í gær
og króatíska blaðið Vjesnik sagði
að „það yrði meira undrunarefni
ef ríkisstjómin lifði af en hitt, að
hún félli.“ Verkalýðssamband Júgó-
slavíu ræddi í gær tillögu frá Kró-
atíu-deild sambandsins þess efnis
að borin skyldi fram vantrauststil-
laga á ríkisstjómina á sambands-
þinginu í Belgrað og jámbrautar-
starfsmenn í Slóveníu, sem em í
verkfalli, hafa krafist afsagnar Mik-
ulies sem liggur undir ámæli fyrir
mistök í efnahagsmálum og tengsl
við hneykslismál.
Dagatöl með myndum af Slobod-
an Milosevic, leiðtoga kommúnista-
flokksins í ijölmennasta sambands-
ríkinu, Serbíu, em nú seld á götum
úti í Belgrað, höfuðborg Serbíu og
allrar Júgóslavíu, en Milosevic hefur
haldið mjög á lofti málstað Serba,
m.a. í deilum við Albani sem sakað-
ir em um að kúga serbneskan
minnihluta í sjálfstjómarhéraðinu
Kosovo. Athygli hefur vakið að
Milosevic hefur gert sér far um að
eiginkona hans sé lítt áberandi í
fjölmiðlum. Er talið að hann óttist
ásakanir andstæðinga um að hann
leyfi fylgismönnum sínum að stuðla
að persónudýrkun og hann geti orð-
ið að athlægi fyrir vikið. Fyrir
skömmu lét hann stöðva dreifingu
tímaritsins NIN með grein eftir eig-
inkonuna, ásamt mynd af henni,
og vom 12 þúsund eintök eyðilögð.
Síðar birtist greinin en að þessu
sinni án mynda.
Suður-Kórea:
Roh boðar að-
gerðir gegn
mótmælendum
Seoul. Reuter.
ROH TAE-WOO, forseti Suður-
Kóreu, sagði í gær að framvegis
yrði gripið til harðari aðgerða
gegn ólögmætum vinnudeilum
og mótmælum sem beinast að
stjórnvöldum. Hann réðst að rót-
tækum verkamönnum og stúd-
entum í ávarpi sem hann flutti í
beinni sjónvarpSútsendingu frá
forsetabústaðnum að afloknum
fúndi ríkisstjómarinnar og for-
manna stjórnarflokkanna.
í ávarpinu sagði Roh að þjóðin
hefði að undanfömu orðið vitni að
ólöglegum aðgerðum sem stofnuðu
lýðræði landsins í hættu, brytu gegn
lögum og reglum samfélagsins og
stefndu hagsæld þjóðarinnar í voða.
„Það eru daglegir viðburðir að
athafnalíf í skóium og verksmiðjum
landsins lamist og umferðaröng-
þveiti skapist vegna ólöglegra mót-
mæla. Mótmælendur setjast að í
opinbemm skrifstofum, erlendum
sendiráðum og þinghúsinu og eld-
sprengjum er varpað að skrifstofum
stjómmálaflokkanna," sagði Roh.
Stjómarerindrekar segja að þetta
sé harðorðasta aðv.ömn sem Roh
hefur veitt mótmælaöflum í landinu
frá því að hann tók við völdum í
febrúar síðastliðnum, eftir fyrstu
frjálsu kosningamar í Suður-Kóreu
í 16 ár.
Reuter
Torséða árásarvopnið
gegn fjárlagahallanum
Sjónvarpsmál Dana:
að enginn atburður á árinu 1988
hefði skaðað ímynd Brasilíu erlend-
is jafn mikið og morðið á Mendes.
isins og beitti sér gegn fjölgun naut-
gripabúa á svæðinu. Umhverfis-
vemdarsinnar, kirkjunnar menn og
vinstri sinnaðir stjómmálamenn
halda því fram að ríkisstjóm lands-
ins beri ábyrgð á dauða hans.
Skömmu fyrir andlát sitt skýrði
Mendes yfirvöldum frá því að naut-
gripabóndi nokkur hefði ráðið leigu-
morðingja til að ráða sig af dögum.
í brasílska dagblaðinu Folha de
Sao Paulo var því haldið fram í gær
PLO skorar
á ísraela:
Vilja ráð-
stefiiu um
hryðjuverk
Dammam. Reuter.
FULLTRÚI PLO, Frelsissam-
taka Palestínumanna, hefúr
skorað á ísraelsstjórn að taka
þátt í ráðstefiiu ásamt PLO
um hryðjuverkastarfsemi og
leiðir til að koma i veg fyrir
hana.
„Við erum reiðubúnir að setj-
ast niður með ísraelum og taka
þátt í ráðstefnu í Washington
eða New York þar sem rætt
yrði fyrir opnum tjöldum um
hryðj u verkastarfsemi, “ sagði
Said Kamal, fulltrúi PLO í Kai-
ró, í viðtali við saudi-arabíska
dagblaðið al-Yom. „Eg segi
þetta vegna þess, að nú beinast
allra augu að PLO, nú vilja allir
vita hver er afstaða samtakanna
til hryðjuverkastarfsemi. Þess
vegna skulum við hafa langa
sögu stutta og gera hreint fyrir
okkar dyrum.“
Fyrr í þessum mánuði gaf
Yasser Arafat, leiðtogi PIX), út
yfírlýsingu þar sem hann viður-
kenndi tilverurétt ísraelsríkis og
fordæmdi öll hryðjuverk.
Indverjar
og Pakist-
anar semia
Islamabad. Reuter.
Pakistanar og Indveijar, sem
hafa þrísvar sinnum borist á bana-
spjót, ætla að gera með sér samn-
ing um að ráðast ekki á kjarnorku-
mannvirki hvorir í annars landi.
Var þetta haft eftir embættis-
mönnum beggja í gær.
Rajiv Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, kemur til Islamabad í Pak-
istan í dag, fímmtudag, en ekki er
víst, að hann og Benazir Bhutto,
forsætisráðherra Pakistans, undirriti
samninginn meðan á þeirri heimsókn
stendur. Er sagt að fyrst verði að
ræða hann í ríkisstjóm og á þingi.
Koma Gandhis til Islamabad þar
sem hann ætlar að sitja leiðtogafund
Suðaustur-Asíuríkja er til marks um
batnandi samskipti Indverja og Pak-
istana. Hafa þeir lengi haft illan bif-
ur hvorir á öðrum og ekki síst vegna
hugsanlegrar kjamorkuvopnaeignar.
Indveijar sprengdu kjarnorku-
sprengju árið 1974 en fullyrða, að
kjarnorkuáætlanir þeirra séu einung-
is í friðsamlegum tilgangi.
Stöðvarnar takast á um fréttatímann
Kaupmannahöfn. Frá NJ. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
NÝJA sjópnvarpsstöðin í Danmörku, TV2, hefúr átt erfitt uppdrátt-
ar frá því að henni var hleypt af stokkunum 1. október sl. Hið eigin-
Iega ríkissjónvarp hefiir haft betur í samkeppninni en nú eru átök
stöðvanna farin að snúast um fréttatímann. Raunar er TV2 iíka í
ríkiseigu en reksturinn á að byggjast að mestu á auglýsingatekjum.
Danskir sjónvarpseigendur verða þó að greiða til hennar lágt afiiota-
gjald auk afnotagjaldsins af ríkissjónvarpinu en auglýsingatímarnir
eru tveir á kvöldi, fimm mínútur hvor.
Fréttasendingar beggja stöðv- sjónvarpsstöð og TV2 aðeins vara-
anna hafa verið á sama tíma klukk-
an 19.30 á kvöldin. Kannanir sýna,
að aðeins um 12% áhorfenda horfa
á fréttimar í TV2 en 50% á TVl
fréttimar. Finnst flestum Dönum,
að ríkissjónvarpið sé hin eiginlega
skeifa, sem gripið er til endmm og
eins. Vegna mikillar gagnrýni hefur
Jörgen Schleimann, stjómandi TV2
nú ákveðið, að færa fréttatíma
stöðvarinnar til klukkan 19.00 frá
og með 1. janúar. Því er ekki sér-
staklega fagnað af yfirstjóm Dan-
marks Radio og TVl. Schleimann
segir rangt, að hann hafí farið að
óskum stjómmálamanna í þessu
efni og ekki hafi hann heldur látið
undan óskum auglýsenda. Hann
hafí einungis tekið mið af því sem
áhorfendur vilji. Danmarks Radio
tapi aðeins andlitinu, ef eitthvað
fari úrskeiðis. Fyrir TV2 sé það
hins vegar banabitinn, ef fólk hætti
að horfa á stöðina.
Illa hefur gengið að fjármagna
reksturinn með auglýsingum en í
Qárlögum TV2 fyrir næsta ár er
gert ráð fyrir, að auglýsingaverðið
verði tvöfaldað. I þeim er raunar
einnig reiknað með, að áhorfenda-
fjöldinn verði helmingi meiri en
hann var í upphafi þótt sannleikur-
inn sé sá, að hann hefur farið lækk-
andi um langa hríð. í skoðanakönn-
un, sem Berlingske Tidende birti í
gær, kemur fram, að 53% horfa
aðallega á ríkissjónvarpið en aðeins
8% á TV2. Hefur verið áætlað að
fari áhorfendur TV2 niður fyrir 10%
þýði það flótta auglýsenda frá stöð-
inni.