Morgunblaðið - 29.12.1988, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1988
Hraðskákmót
í Valhúsaskóla
Hlíðarfjall:
Ekkikomið
skíðafæri
EKKI eru miklar likur á skíða-
lyftumar í HIíðarQalli verði
gangsettar fyrir áramót. „Þó
töluvert hafi snjóað í bænum
undanfarna daga vantar ansi
mikið upp á að skíðafæri sé í
Hlíðarfjalli," var það svar sem
símsvari Skíðastaða gaf þeim
sem vora tilbúnir með skíðin
og stafina í híbýlum sínum á
Akureyri í gær, svo og blaða-
manni Morgunblaðsins.
„Það var alveg autt í fjallinu
áður en fór að snjóa, þannig að
það þarf talsvert til viðbótar til
að við getum opnað. Við ætluðum
að troða brautir í gær, en snerum
frá vegna þess að snjórinn var
ailtof lítill. Þá hefur verið alveg
logn og því ekkert skafið," sagði
ívar Sigmundsson forstöðumaður
Skíðastaða í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Það þarf að minnsta
* kosti annan eins skammt og kom-
inn er áður en við getum farið að
troða brautirnar," sagði ívar.
Peninga-
gjöftil FSA
FÆÐINGARDEILD Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri barst
I gær peningagjöf, 25.000 krón-
ur, sem veija á til áhaldakaupa.
Gjöfin barst frá kvenfélaginu í
Fnjóskadal og það voru þær
Kristín Ketilsdóttir og Hlín Guð-
mundsdóttir sém afhentu gjöfína.
Gjöfin er til minningar um Amdísi
Kristjánsdóttur ljósmóður frá Víði-
vöilum í Fnjóskadal sem lést í
nóvember síðastliðnum. A mynd
Rúnars Þórs frá því í gær eru, frá
vinstri: Jónas Franklín læknir,
Kristín Ketilsdóttir, Hlín Guð-
mundsdóttir, Bjami Rafnar yfir-
læknir og Friðrika Ámadóttir yfír-
ljósmóðir. Þess má geta að fæðing-
ardeildinni barst önnur gjöf í
síðustu viku — þá komu Lionessur
í Ösp í heimsókn og færðu deild-
inni myndbandstæki í jólagjöf.
Hressir krakkar að undirbúa einu áramótabrennuna á Akureyri að þessu sinni. Alda Ómarsdóttir,
Harpa Helgadóttir, Silja Einarsdóttir, Ómar Ingimarsson, Konráð Logi Jóhannesson og Rúnar Friðriks-
SOn. Morgunblaðið/Rúnar Þór
Eina brennan á Akureyri um áramótin:
Pabbarnir fa allt draslið - við erum
eiginlega bara að hjálpa þeim!
AÐEINS ein brenna verður á
Akureyri á gamlárskvöld; en
þessi eina verður greinilega heíj-
ar stór ef svo heldur fram sem
horfir. Er blaðamaður kom við
hjá brennunni í gær voru nokkr-
ir krakkar að vinna við að færa
til drasi, voru hinir hressustu og
hlökkuðu greinilega mikið til
þess augnabliks er kveikt verður
í öllu saman.
Krakkamir, sem öll eru úr Síðu-
skóla, sögðust hafa gaman af því
að starfa við brennuna — en þau
gætu nú kannski ekki mikið gert.
„Það eru pabbar okkar sem fá allt
þetta drasl — við erum eiginlega
bara að hjálpa þeim,“ sagði einn
krakkanna í gær. En hvar fá þeir
allt þetta drasl sem komið er í
brennuna? „Það komu vörubílar og
gáfu okkur þetta . . . og fólk sem
nennir ekki upp á öskuhauga með
draslið sitt kemur hingað og hendir
því.“ Og allt er þetta löglegt, enda
eins gott: „Það var fengið leyfi hjá
bænum til að setja allt draslið
héma. Svo kemur grafa og ýtir
þessu öllu í einn haug,“ sagði einn
— og svo verður kveikt í á gamlárs-
kvöld; pabbamir sjá um það.
Krakkamir sem blaðamaður hitti
við brennuna í gær voru Alda Óm-
arsdóttir 10 ára, Harpa Helgadóttir
9 ára, Silja Einarsdóttir 8 ára,
Ómar Ingimarsson 9 ára, Konráð
Logi Jóhannesson 9 ára og Rúnar
Friðriksson 9 ára. Tveir krakkar til
viðbótar hafa lagt hönd á plóginn,
Gerald Hastler Aðalsteinsson 10
ára og Anna Ragnheiður Jónsdóttir
10 ára, en þau voru fjarverandi í
gær. Hvemig gengur svo samstarf-
ið — eru allir jafnduglegir að vinna?
„Nei, iss — stelpumar leita bara
að einhverju Barbie-dóti meðan við
vinnum verkin,“ sagði einn strákur-
inn! Stelpumar voru nú aldeilis ekki
sammála þessu: „Þeir em alltaf að
leita að byssum — og brauði til að
gefa hestum," sagði ein þeirra um
strákana. En hvað sem samstarfinu
líður, þá hefur safnast mikið drasl
á staðinn og á eflaust eftir að loga
glatt í brennunni að kvöldi gamlárs-
dags.
Norðurfell og Málning
kaupa hús Raforku
GENGIÐ hefúr veríð frá kaupum
byggingarvöraverslunarinnar
Norðurfells hf. á Akureyri og
málningarverksmiðjunnar Máln-
ingar hf. á húsi Raforku hf. við
Glerárgötu. Húsið er fjögurra
hæða og verður verslun Norður-
fells á tveimur neðstu hæðunum.
Raforka flytur aftur á móti starf-
semi sína í Kaupang — þar sem
Norðurfell er nú til húsa.
Tryggvi Pálsson, eigandi Norður-
fells, sagði Morgunblaðinu að hann
hygðist opna verslun sína á nýja
staðnum um miðjan janúar. Norður-
fell er umboðsaðili Málningar hf. á
Akureyri og þannig stendur á sam-
vinnu þessara aðila um kaup á hús-
inu. Eignarhlutur aðilanna verður
jafn stór í húsinu og leigir Norður-
fell hlut Málningar. Verslunin verð-
ur á tveimur neðstu hæðunum sem
fyrr segir, en skrifstofur og aðstaða
fyrir starfsmenn á tveimur efstu
hæðunum.
Nokkuð er liðið síðan viðræður
hófust um kaup Norðurfells og
Málningar á húsi Raforku, en ekki
var gengið endanlega frá þeim fyrr
en í gær, er fulltrúi Málningar skrif-
aði undir kaupsamninginn.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hús Raforku sem Norðurfell og
Málning hafa keypt.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Skautajól
VÉLFRYSTA skautasvellið við
Krókeyri hefúr verið vinsælt í
vetur. „Það dró aðeins úr að-
sókninni fyrir jólin en svo hefur
aðsóknin verið mjög góð um
jólin,“ sagði Guðmundur Pét-
ursson hjá Skautafélagi Akur-
eyrar í samtali við Morgun-
blaðið. Svellið er opið á hveij-
um degi og öll kvöld nema
þriðjudagskvöld og Akur-
eyringar hafa einmitt nýtt sér
aðstöðuna við Krókeyri mjög
vel — eins og þegar Rúnar Þór
Ijósmyndari leit þar við í vik-
unni, er mikið var af foreldrum
með böra sín. Að sögn Guð-
mundar Péturssonar era
krakkar í miklum meirihluta
þeirra sem koma á svellið, „en
það hefúr aukist á ný að fúll-
orðnir komi með,“ sagði hann.
Hið árlega jólahraðskákmót
Taflfélags Seltjamarness verður
haldið í Valhúsaskóla í kvöld,
fimmtudag, kl. 20.00.
Þátttaka er öllum heimil og
verða vegleg verðlaun veitt. Þátt-
takendur eru hvattir til þess að
mæta stundvíslega.
Karl Steinar
formaður MF A
KARL Steinar Guðnason var
kjörinn formaður Menningar-
og firæðslusambands alþýðu á
fyrsta fúndi sfjórnar MFA sem
kosin var á þingi Alþýðusam-
bands íslands í nóvember. í
byrjun næsta árs hefst vinna
við ritun sögu ASÍ á vegum
MFA og er stefnt að útgáfu
fyrra bindis á 75 ára afinæli
ASÍ árið 1991.
Meðal verkefna næstu mánaða
er rekstur Félagsmálaskólans, þar
sem haldnar verða sérstakar
námsannir eins og undanfarin ár,
og sérstök námskeið í Ölfusborg-
um og að Illugastöðum í Fnjóska-
dal. Trúnaðarmannanámskeið
verða nokkur, auk félagsmála-
námskeiða og námskeiða fyrir
aldraða. Vorönn Tómstundaskól-
ans, sem er í eigu MFA, hefst í
bytjun febrúar. Þar verður boðið
upp á um 60 námskeið um fjöl-
breytt efni. Þá er von á tveimur
nýjum ritum á vegum MFA;
„Handbók vinnustaðarins" og
„Umheimurinn og ábyrgð okkar",
sem fjallar um umhverfismál, frið
og samstöðu þjóða.
Nýr oddviti á
Grundarfirði
Grundarfirði.
NÝR oddviti meirihluta sjálf-
stæðismanna var kosinn nú í
vetur á Grandarfirði.
Sigríður A. Þórðardóttir kenn-
ari, sem verið hefur oddviti síðustu
tvö ár, gaf ekki kost á sér áfram
og við tók Kristján Guðmundsson
vélstjóri. Sveitarstjóm Gmndar-
ijarðar skipa 5 fulltrúar, 3 fulltrú-
ar sjálfstæðismanna, 1 fulltrúi
framsóknarmanna og 1 fulltrúi
alþýðubandalagsmanna.
- Ragnheiður
Slagsmál
á Reykja-
nesbraut
TVEIMUR Svíum á leið í með-
ferð vegna áfengisneyslu að
Fitjum á Kjalarnesi varð sund-
urorða í bíl sem sótti þá á flug-
völlinn. Bíllinn var þá á Reykja-
nesbraut skammt frá Iögreglu-
stöðinni í Hafiiarfirði og vora
mennirnir báðir ölvaðir. Þegar
þeir tóku að láta hendur skipta
stöðvaði bíistjórinn bílinn,
mennirnir stigu út og slógust á
miðri Reykjanesbrautinni.
Bílstjórinn og þriðji farþeginn
fóm á lögreglustöðina í Hafnar-
firði að leita aðstoðar og þegar
lögreglan kom að lá annar mann-
anna í vegarkantinum, blóðugur í
andliti og með áverka á hnakka
en hinn var ósár. Meiðsli mannsins
vom ekki talin alvarleg og að lok-
inni skoðun á slysadeild voru báð-
ir fluttir á áfangastað.