Morgunblaðið - 29.12.1988, Page 35

Morgunblaðið - 29.12.1988, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1988 35 Jón Pálsson héraðsdýralæknir Við höfum verið minnt á að lífið og tíminn líður. Jón Pálsson fyrrver- andi héraðsdýralæknir á Selfossi er fallinn frá 97 ára að aldri. Jón náði óvenju háum aldri, en hann átti ætt- ir til þess að verða háaldraður og halda sér vel fram í andlátið. Jón fæddist 7. júní 1891 í Þing- múla í Skriðdal, en fluttist 8 ára gamall með foreldrum sínum að Tungu í Fáskrúðsfirði og ólst þar upp. Þegar Jón hafði aldur til hóf hann nám í Flensborgarskólanum og fór þaðan í Menntaskólann. Þegar Jón hafði lokið 5. bekk bauðst honum styrkur til dýralæknisnáms í Kaup- mannahöfn. Jóhann Siguijónsson skáld hugði upphaflega á dýralækn- isnám og hafði hlotið styrk til þess, en varð svo afhuga dýralæknisnám- inu og sneri sér að skáldskap og nýtti ekki styrkinn. Þekktur maður á Selfossi, Björn Sigurbjarnarson, fékk þá styrkinn en snerist einnig hugur. Jón Krabbe kom því svo til leiðar að Jóni Pálssyni byðist styrkur- inn og hóf hann þegar námið. Skömmu eftir að Jón byijaði námið í Kaupmannahöfn hófst heimsstytj- öldin fyrri. Foreldrar Jóns vildu þá að hann kæmi heim en hann hélt náminu áfram og lauk því 1918. Jón hafði ekki fyrr lokið prófínu en hann gekk að eiga Áslaugu Stephensen og voru þau gefin saman í ráðhúsinu í Kaupmannahöfn. Strax var haldið heim þar sem Jón tók við dýralæknis- héraði Austurlands. 1934 fékk Jón veitingu fyrir dýralæknisembættinu á Suðurlandi og vann þar fram til þess að hann lét af störfum um ára- mót 1961—62. Þegar Jón tók við héraðinu spannaði það allt Suður- landið frá Selvogi austur að Lóma- gnúp. Það gefur augaleið að ekki var hægt að sinna dýralækningum í nútíma skilningi við þær aðstæður sem voru í samgöngumálum og síma- málum. Aðalvegurinn var að mestu bílfær í gegnum allt héraðið en út- vegir voru lélegir. Hestar voru því mikið notaðir fyrst framanaf enda þótt Jón eignaðist bíl eftir að hann kom á Selfoss. Fyrstu störf Jóns eft- ir að hann kom á Suðurland voru eftirlit með sauðfjárböðun og eftirlit með mjólkurframleiðslunni og ráð- leggingar í sambandi við hana. Mjólkurbú Flóamanna var þá nýtekið til starfa og í kjölfar þess kom mik- ill uppgangur í kúabúskap. Almennar dýralækningar stundaði Jón eins langt út frá Selfossi og hann náði en þar fyrir utan varð að styðjast við leikmenn sem höfðu sýnt vilja og hæfni til þess að fást við dýra- lækningar. Til þess að ná sem bestum árangri við þessar erfiðu aðstæður efndi Jón til námskeiða fyrir þessa menn og kenndi um helstu sjúkdóma og helstu lyfín þannig að hægt væri að ræða um sjúkdómana og með- höndlun þeirra af meiri þekkingu í síma en síminn var mikið notaður. Auðvitað hefur á öllum tímum verið fólk sem fengist hefur við að hjálpa sjúkum dýrum, en þá meira af innri þörf og nauðsyn en af getu og þekk- ingu. Með námskeiðum Jóns og ann- arra dýralækna barst þekkingin út. Brautryðjendurnir voru að verki. Nú eru þessir aðstoðarmenn að hverfa af sjónarsviðinu'. Þeirra er ekki leng- ur þörf. Á því svæði sem Jón þjón- aði með þeirra hjálp eru nú 7 héraðs- dýralæknar og 1 praktiserandi í tengslum við Selfosshéraðið. Að auki er dýralæknir forstöðumaður sæð- ingastöðvarinnar í Þorleifskoti. Einn síðasti af þessum hjálparmönnum féll frá á síðasta ári, Þorlákur Bjarnason, landskunnur hestamaður, dýralæknir og bóndi í Eyjarhólum í Mýrdal. Þeir voru miklir vinir Jón og hann og þeir nutu ellinnar saman eftir að Þorlákur fluttist á Selfoss fyrir nokkrum árum. Áugamálin voru þau sömu hjá báðum: hestamennska, pólitík — báðir voru sjálfstæðismenn — og landbúnaður. Margir af starf- andi héraðsdýralæknum í dag kynnt- ust íslenskum dýralækningum fyrst hjá þeim Áslaugu og Jóni og var ég einn af þeim. Það var ómetanlegt fyrir unga dýralækna að njóta tilsagnar góðs kennara, en það var ekki síður gott að koma inn á gott heimili og sjá hvemig standa ætti að dýralækning- um heimafyrir, en þær lögðu undir sig heimilið þá eins og þær gera það nú. Þegar ég tók við af Jóni kynnt- ist ég viðhorfum bænda til hans og verka hans. Jón var glaðlyndur og flutti gleðina með sér. Bændurnir kunnu vel að meta þessa eiginleika hans og urðu margir vinir hans, en verkin hans kunnu bændur ekki síður að meta og myndi hvaða dýralæknir sem er vera fullsæmdur af þeim ein- kunnum sem hann fékk. Það fór því ekki hjá því að samferðamenn Jóns fólu honum ýmis trúnaðarstörf. Hann var formaður hestamannafé- lagsins Sleipnis og heiðursfélagi, formaður Hrossaræktarsambands Suðurlands um árabil og heiðurs- félagi Landssambands hestamanna- félaga. Jón var einn af stofnendum Dýralæknafélags íslands, formaður þess um tíma og heiðursfélagi og einn af stofnendum Rótaryklúbbs Selfoss. Jón hafði mikinn áhuga á stjórnmálum og fór ekki dult með að hann taldi að Sjálfstæðisflokkur- inn bæri fram þær skoðanir sem næst voru hans. Jón átti sæti í fýrstu hreppsnefnd fyrir Sjálfstæðisfíokk- inn og var heiðursfélagi sjálfstæðis- félagsins Óðins á Selfossi. Áslaug og Jón eignuðust 4 syni: Garðar, skógarvörð, kvæntur Móeiði Helgadóttur; Pál, tannlækni, kvænt- ur Svövu Þorsteinsdóttur; Ólaf, for- stjóra Steypustöðvar Suðurlands, kvæntur Hugborgu Benediktsdóttur; Helga, bankastjóra á Akureyri, kvæntur Höllu Teitsdóttur. Þau hjón- in ólu að auki upp tvær stúlkur; Ástu Beck frá Sómastöðum, ekkju Brynjólfs Þorvarðarsonar, og Stein- unni Sigurðardóttur, systurdóttur Áslaugar, gift Halídóri Jónssyni verkfræðingi. Ég vil að lokum láta í ljósi þakk- læti mitt fyrir það sem ég varð að- njótandi á heimili Áslaugar og Jóns bæði fyrr og síðar og votta ástvinum hans samúð mína og konu minnar. Jón Guðbrandsson MENNTASKÓLINN VID HAMRAHLÍÐ ÖLDUNGADEILD Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíó er fyrsta öldungadeild viö framhaldsskóla hérlendis, stofnuð 1972. Við höfum því langa reynslu og þj álfaðkennar alið. Nútímaþjóðfélag gerir kröfur um menntun og nú um áramótin er rétti tíminn til að hefja nám hjá okkur - hvort sem þú vilt rifja upp, bæta við eldri menntun eða hefja nýtt nám. Öldungadeild Menntaskólans viö Hamrahlíð býður framhaldsskólanám á 6 brautum: eðlisfræðibraut, náttúrufræðibraut, nýmálabraut, fornmálabraut, félagsfræðibraut (hún skiptist í fjölmiðlalínu, sálfræðilínu og félagsfræðalínu) og tónlistarbraut. Hægt er að stunda nám í mörgum eða fáum námsgreinum. Á vorönn 1989 býður skólinn eftirfarandi greinar: Tungumál: Danska Enska Franska ítalska Kínverska Latína Spænska Þýska Raungreinar: Stærðfræði Eðlisfræði Efnafræði Jarðfræði Líffræði Samfélagsgreinar: Félagsfræði Þjóðhagfræði Bókfærsla Listasaga Lögfræði Stjórnmálafræði Heimspeki Saga Mannfræði Auk þessa er boðið upp á nám í tölvufræðum, bæöi grunnnám og forrit- un. Notaðar eru tölvur af PC- og BBC-gerðum. Boðið er fjölbreytt nám í íslensku, bæði ritþjálfun og munnleg tjáning, bókmenntir og málfræði. Einnig eru myndlist og leiklist kenndar við öldungadeildina. Innritun og val í öldungadeild MH fer fram á skrifstofu skólans frá kl. 9.00-18.00, dagana 3.-6. janúar. Skólagjald er aóeins 7.400 krónur óháó fjölda námsgreina sem þió leggió stund á. VR og BSRB styAJa sfnafMaga tll þátt- tðku I námskslðlnu. 3.,5.,10.og 12.janúarkl.20-23. Innrítunísímum 687590 og 686790. Fjölbreytt, vandað og skemmtilegt byrj endanámskeið fyrirfólk á öllum aldri. Tilvalið námskeið til að losna við alla vanmáttarkennd gagnvarttölvum. Dagskrá: ★ Grundvallaratriði í notkun PC-tölva. ★ Stýrikerfið MS-D0S. ★ RitvinnslukerfiðWordPerfect. ★ Töflureiknirinn Multiplan. •Ar Umræðurogfyrirspurnir. Tölvufræðslan Borgartúni 28.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.