Morgunblaðið - 07.01.1989, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989
11
Söii£ftónleikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Sigríður Jónsdóttir mezzósópr-
ansöngkona hélt sína fyrstu tón-
leika í Norræna húsinu sl. mið-
vikudag og henni til aðstoðar var
Jónas Ingimundarson, píanóleik-
ari. A efnisskránni voru lög eftir
Bononcini, Pergolesi, Faure,
Britten og lagaflokkurinn Frau-
enliebe und -leben, eftir Schum-
ann. Islensku lögin voru: Þú eina
hjartans yndið mitt og Ég lít í
anda liðna tíð, eftir Sigvalda Kald-
alóns og Söngur bláu nunnanna
og Jarpur skeiðar, eftir Pál ísólfs-
son.
Sigríður hefur undanfarin þijú
ár stundað söngnám í Banda-
ríkjunum og mun á næstunni ljúka
BA-prófi í tónlist. Þetta er frum-
raun og trúlega liður í námi henn-
ar að koma fram, svo að hér gef-
ur að heyra forspjall að því sem
verða má að námi loknu.
Sigríður hefur feikna fallega
rödd, er músíklega mjög örugg
og ræður þegar yfir nokkuð góðri
tækni. Það óöryggi sem heyra
mátti í öndun og hafði nokkur
áhrif á jafnvægi raddarinnar er
eitthvað sem yfirvinna má og trú-
lega veldur þar nokkru um það
reynsluleysi söngkonunnar, sem
aðeins verður yfírunnið með frek-
ara tónleikahaldi. Hvað sem þessu
líður er hér á ferðinni mjög efni-
leg söngkona.
Efnisskráin var þannig saman-
sett, að fyrst var tekist á við
ítalskar „antik-aríur“, þá þýskan
og franskan ljóðasöng. íslensku
lögin, sem komu þar á eftir, hefðu
frekar átt að vera á undan þýsku
ljóðalögunum og að enda tónleik-
ana á útsetningu Brittens og því
saklausa alþýðulagi, Danny boy,
varð til þess að niðurlag tónleik-
anna var frekar dauft.
Fyrsta lag tónleikanna, Per a
gloria, eftir Bononcini, var mjög
vel sungið og sömuleiðis Claire
de lune og Aprés un Réve, eftir
Faure. Lagaflokkur Schumanns
er erfið tónsmíð og þó margt
væri þar vel gert hjá söngkon-
unni, vantaði nokkuð á fullt jafn-
vægi raddarinnar. í heild voru
tónleikamir uppfærðir af smekkv-
ísi og músíkölsku öryggi og rödd-
Sigríður Jónsdóttir
in er, eins og fyrr segir, feikna
falleg og býr yfir miklum mögu-
leikum, bæði hvað varðar blæmót-
un og styrk.
Undirleikur Jónasar Ingimund-
arsonar var í heild yfirvegaður
og oftlega með þeim ágætum, sem
hann á best til.
Sínfóníutónleíkar
Efiiisskrá:
Mozart: Forleikur að Töfra-
flautunni
Beethoven: Píanókonsert nr.l
Stravinski: Sinfónía í C
Einleikari: Guðmundur Magn-
ússon
Stjórnandi: Páll P. Pálsson.
Tónleikamir hófust á Forleikn-
um að Töfraflautunni eftir Mozart
en samkvæmt fyrstu útgáfu efnis-
skrár vetrarins átti að hefja þá á
Serenöðunni nr. 10, fyrir tólf blás-
ara og kontrabassa. Það er æði
oft sem gripið er til forleikja
Mozarts, þegar eitthvað fer úr-
skeiðist og því finnst mörgum
hlustanda það augljóst, að verið
sé að nota þessi fallegu verk
meistarans sem uppfyilingu, en
að öðm leyti sé Mozart ekki á
dagskrá.
Aðalefni tónleikanna var frum-
raun Guðmundar Magnússonar,
píanóleikara, í fyrsta píanókon-
sertinum eftir Beethoven og Sin-
fónía í C eftir Stravínskí. Guð-
mundur lék konsertinn af öryggi
og mátti vel heyra ýmislegt fal-
lega gert hjá honum, þó hljóm-
Guðmundur Magnússon
sveitin undir stjóm Páls P. Páls-
sonar væri nokkuð hrá og ekki
hljómfalleg á köflum. Guðmundur
stóð sig vel og hafði greinilega
unnið heimavinnuna sína vel og
ástæða til að bjóða hann velkom-
inn í hóp þeirra íslensku píanóleik-
ara sem erindi eiga upp á hljóm-
leikapallinn með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands.
Lokaverkefnið á tónleikunum
var Sinfónía í C, eftir Stravinskí.
Þetta verk er samið 1938, fyrir
hálfri öld og þrátt fyrir að höfund-
urinn byggi verkið á eldri form-
gerðum, sónötuforminu í fyrsta
þætti, gamalli aríugerð með óbóið
í aðalhlutverki i öðrum þætti, sem
Kristján Þ. Stephensen lék mjög
fallega, menúett og passepied
dansformum í þriðja og eftir hæg-
an inngang, eonserto grosso
vinnubrögðum í þeim Ijórða, er
samt langt frá því að tóntak
verksins sé gamaldags, jafnvel
enn í dag er það róttækara en
margt það sem samið er „í dag“.
Hvað sem þessu líður var flutn-
ingurinn á köflum góður, þó hér
og þar hefði mátt leggja áherslu
á meiri skerpu í hljóðfalli og hraða
en annar þáttur aftur á móti hefði
mátt vera ögn hægferðugari eða
meiri ró yfir honum í heild. Þetta
eru f raun aðeins smámunir og í
heild var verkið vel mótað af
stjómandanum, Páli P. Pálssyni
og hljómsveitin skilaði sínu vel.
Til sölu í Grafarvogi
4ra herbergja íbúðir á góðum stað.
íbúðirnar henta vel eldra fólki. Stór stofa,
stórar suðursvalir og bílskúr.
Örn ísebarn byggingameistari,
sími 31104.
LOKASMÖLUN
verðurá haustbeitarlöndum Fáksá
Kjalarnesi sunnudaginn 8. janúar. Þau
hross sem þá verða eftir verða auglýst
og seld sem óskilahross.
Bíll verður í:
Dalsmynnikl. 13.00
Arnarholti kl. 14.00
Saltvíkkl. 15.00
Hestamannafélagið Fákur.
Til sölu húseign í
miðbæ Reykjavíkur
Eignin er með samþykktum teikningum af viðbyggingu,
er í útleigu til skamms tíma og gefur af sér um 1,5 millj.
á ári. Verð 8,5 millj. Mikið áhvílandi.
Upplýsingar í síma 612437 eða 41707.
91^70 LÁRUSÞ.VALDIMARSSONframkvæmdastjori
L I I WV " L I 0 / U LARUS BJARNASON HDL. LÖGG. FASTEIGNASAU
f sölu eru aö koma meðal annarra eigna:
Endurnýjuð þakhæð í Laugardal
rótt við Sundlaugarnar. Nánar tiltekið 4ra herb. rúmir 100 fm. 3 góð
svefnherb. (geta verið 4). Mikið endurn. (gler, svalahurð, parket o.fl.).
Danfoss kerfi. Góðar suðursv. Geymsluris fylgir. Sanngjarnt verð.
Endurbyggð íbúð á Melunum
3ja herb. neðri hæð, ekki stór. Vel skipul. Allar innr. og taeki ný.
Þríbýli. Góður bílsk. 33,8 fm. Góð lán fylgja. Laus fljótl.
Góð eign - tvær íbúðir
í Vogunum. Nánar tiltekið efrl hæð 90 fm meö 3ja-4ra herb. íb. og
svölum. Neðri hæð 113 fm með 4ra herb. íb. Kj. 113 fm. Innb. bilsk.,
þvottah., geymslur. Gott vinnupláss.
Mikið af tækjum og innr. er nýtt. Ræktuð lóð. Mikil og góð lán fylgja.
Góð eign á góðu verði
2ja herb. suðurib. á 2. hæð 63,9 fm við Miövang í Hafnarfiröi. Sér-
þvottahús. Mikil og góð sameign. Skuldlaus. Mikið útsýni. Lausfijótl.
Hagkvæm skipti
HEIM,
OG
INNRETTINGUM
• Þriggja vikna afgreiðslu-
frestur.
• Ókeypis hugmynda-
vinna.
• Ókeypis heimsendingar-
þjónusta.
ELDHÚSINNRÉTTINGAR,
FATASKÁPAR OG BAD-
INN RÉTTINGAR, i hvltu,
hvitu og beyki, gráu,
gráu og hvitu, eik, beyki,
furu og aski.
Við erum við hliðina á Álnabæ i
Siðumúla.
Opið 9-19 alla daga.
Laugardaga 10-16.
Sunnudaga 10-16.
VER0CA.KR. 119.000,-
nnréttinpar
Siöumúli 32 Simi: 680624.
Eftir opnunartima 667556.
^Auglýsinga-
síminn er 2 24 80
4ra herb. góð ib. óskast i lyftuh. helst við Fannborg eða Hamraborg,
Kóp. í skiptum fyrir gott raðh. við Álfhólsveg með stórum bílsk.
Fjöldi fjársterkra kaupenda. Margskonar eignaskipti.
Opið í dag laugardag
kl. 10.00-16.00.
AIMENNA
FASTEIGWASALAW
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
STÓRÚTSÖLUMARKAÐUR
Stórútsölumarkaður verður haldinn á mjög góðum stað í
borginni f rá 10. janúartil 10. febrúar nk.
Húsnæðið er þekkt og vel auglýst. Áformað er að vera með aug-
lýsingaherferð í sjónvarpi, dagblöðum og útvarpi á tímabilinu.
Nokkrir sölubásar eru lausir. Upplýsingar í síma 12927.