Morgunblaðið - 07.01.1989, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1989
15
viðkvæmasta stað borgarinnar.
Um næstu áramót yrði húsið að
fullu uppsteypt og yrði þá byrjað
að glerja það. Fljótlega eftir að
þeim áfanga væri náð yrði upp-
fyllingin út í Tjömina vegna bygg-
ingarframkvæmdanna fjarlægð.
„Allar spár um erfiðleika við
byggingu ráðhússins hafa reynst-
rangar," sagði Davíð Oddsson.
„Jafnvel þó spámenn hafi skreytt
sig með miklum fræðimannstitl-
um.“
Mesta umhverfisátak
hérlendis
Áfram verður haldið fram-
kvæmdum við að hreinsa fjörur
borgarinnar með byggingu sam-
ræmda rása og dælustöðvar við
Ægissíðu og sagði borgarstjóri
þessar holræsaframkvæmdir
líklega mesta umhverfisátak sem
gert hefði verið hér á landi. Mikl-
ar aðrar framkvæmdir væru líka
í gangi varðandi umhverfismál,
t.d. væri Reykjavíkurborg mesti
skógræktaraðili á landinu. Á
þessu ári mun borgin planta um
300.000 tijám í borgarlandinu.
Einnig verður haldið áfram bygg-
ingu Laugardalsgarðsins þar sem
undirbúningur húsdýragarðs fyrir
reykvísk böm er nú á lokastigi.
Mikið átak verður gert varð-
andi bifreiðastæði í gamla mið-
bænum en í þeim efnum sagði
borgarstjóri að þegar hefði tölu-
vert áunnist. Byggt yrði bíla-
stæðahús með 150 stæðum við
Bergstaðarstræti sem ætti að vera
tilbúið fyrir næstu jól. Jafnframt
yrði byijað á öðrum þáttum er
snerta fjölgun bílastæða þó að
þeim yrði ekki lokið á árinu.
í gatnagerðarmálum er aðal-
verkefnið að ljúka við Bústaðar-
veg niður að Miklatorgi og að
breyta Miklatorgi úr hringtorgi í
ljósastýrð gatnamót. Það á að
létta mjög á umferð sunnanmegin
í borginni og verður þeim fram-
kvæmdum lokið í haust.
Gervilausnir I
efnahagsmálum
Fjárhagsáætlun borgarsjóðs
fyrir þetta ár hljóðar upp á 8,8
milljarða og ijárhagsáætlun fyrir-
tækja borgarinnar í heild nálgast
sömu tölu. Sagði Davíð að gert
væri ráð fyrir því að 2,5 milljörð-
um yrði varið til eignabreytinga.
Steftit er að því að afgreiða fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar
fimmtudaginn 19. janúar.
„Það má segja að rekstur fyrir-
tækja borgarinnar gangi vel. Við
höfum lagt áherslu á að greiða
niður skuldir fyrirtækja en hætt
er við að gervilausnir í efnahags-
málum á borð við verðstöðvun
veiki stöðu þeirra á árinu.“
Davíð Oddsson borgarstjóri:
Förum hægar í sak
irnar vegna erfið-
leika í þjóðfélaginu
Borgin hækkar
ekki sína skatta
ÚTSVAR í Reykjavík verður
óbreytt á þessu ári eða 6,7%.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
segir í samtali við Morgun-
blaðið, að borgin reyni að halda
þannig á sínum rekstri, að hún
þurfí ekki að hækka skatta.
Þrengingar í þjóðfélaginu haS
þó auðvitað áhrif á borgar-
reksturinn og eitthvað hægar
verði að fara í framkvæmdir
af þeim sökum. Hins vegar sé
alls ekki um neina stöðnun að
ræða og ráðist yrði i margar
mikilvægar framkvæmdir á
árinu vegna mikillar Qölgunar
íbúa. Rekstur fyrirtækja borg-
arinnar gengur vel að sögn
borgarstjóra en hann óttast að
„gervilausnir í efhahagsmál-
um“ á borð við verðstöðvun
kunni að veikja stöðu þeirra á
árinu.
„Við erum hluti af þjóðfélaginu
og erfíðleikar þar hljóta að koma
fram í rekstri borgarinnar," sagði
Davíð Oddsson. „Það hjálpar okk-
ur að staðan hefur verið sterk og
skuldimar óveralegar. Ríkisvaldið
hefur nokkur ár í röð hækkað
skatta umfram verðlagsþróun og
má segja að keyri nú um þverbak
í þeim efnum. Borgin hefur reynt
að halda þannig á sínum málum
að hún geti rekið sinn búskap án
aukinna skatta. Höfðum við t.d.
framkvæði að því að tilkynna að
útsvar yrði óbreytt 6,7% í
Reykjavík. Af þessum sökum för-
um við heldur hægar í sakimar
en við hefðum ella gert.“
Engin stöðnun
Borgarstjóri sagði að á hinn
bóginn væri ekki um neina stöðn-
un að ræða. Slíkt væri ófært. Á
síðasta ári hefði íbúum fjölgað
meira en en þeir hefðu gert í fjör-
utíu ár á undan. Hefði íbúum
Borgarleikhúsið í Reykjavík. Steftit er að því að framkvæmdum ljúki á þessu ári og að hægt verði
að taka leikhúsið i notkun i októbermánuði.
borgarinnar fjölgað sem svaraði
einum Kópavogi í borgarstjóratíð
hans. Óhjákvæmilegt væri að
mæta slíkri fjölgun með um-
fangsmiklum framkvæmdum og
væra þær því miklar á sviði skóla-
mála, dagvistarmála, heilbrigðis-
mála og málefna aldraðra.
í skólamálum mætti nefna að
á árinu á að byggja tvær nýjar
skólabyggingar. Seljaskóla í
Breiðholti og Foldaskóla f Grafar-
vogi. Jafnframt verður byggð ný
skólaálma við Grandaskóla og ný
skólaálma við Hagaskóla. Auk
þess mun framkvæmdum ljúka
við Vesturbæjarskóla á næsta ári.
Davíð sagði að borgin myndi
einnig byggja barnaheimili vestur
í bæ við Seljaveg og hefja bygg-
ingu bamaheimila við Selás og í
Grafarvogi. Jafnframt yrðu tvö
eldri heimili stækkuð til að auð-
velda lengri dvalartíma leikskóla-
barna' á heimilum.
í öldrunarmálum verður lokið
við stórbygginguna á homi Vest-
urgötu og Garðastrætis þar sem
verður þjónustumiðstöð fyrir aldr-
aða í gamla vesturbænum. Það
væri þó enn óvíst hvort tækist að
ljúka við heilsugæslustöð í því
húsi á þessu ári. Einnig verður
lokið við þjónustumiðstöð á Meist-
aravöllum og byijað á miklum
byggingarframkvæmdum fyrir
aldraða við Skúlagötu.
Þá verður opnuð ný legudeild
í B-álmu Borgarspítalans og lokið
verður við byggingu hjúkranar-
heimila Skjóls sem Reykjavíkur-
borg er þriðjungs aðili að. Þar
bætast við 30 hjúkranarrými fyrir
aldraða.
Borgarleikhúsið opnað
Af stórverkefnum borgarinnar,
Borgarleikhúsinu og ráðhúsinu,
er það að segja, að stefnt er að
því að ljúka við Borgarleikhúsið
þannig að það megi opna á þessu
ári, þó einhveijir þættir í húsinu
þurfi að bíða eitthvað áfram.
Verður Borgarleikhúsið líklega
opnað í október þó enn hafí ekki
verið tekin endanleg ákvörðun þar
um.
Haldið verður áfram með ráð-
húsbygginguna og sagði borgar-
stjóri áríðandi að hún gengi hratt
fyrir sig þar sem byggt væri á
Afhent viðurkenn-
ing fyrir starfsnám
350 starfsmenn 30 matvælafyrirtækja á höftiðborgarsvæðinu,
sem sótt hafa sérstakt starfsnám í matvælaiðnaði undanfarna
mánuði, tóku við viðurkenningarskjali iðnaðarráðherra 30. desem-
ber sl. Auk þessa folks tóku um 70 manns á Akureyri þátt í starfs-
námi þar.
Námskeið þetta er vísirinn að
fagmenntun almennra starfs-
manna í matvælaiðnaði. Með þátt-
töku í námskeiðinu er stefnt að
betri starfsmöguleikum, aukinni
verkkunnáttu og þekkkingu
tengdri starfí og starfsumhverfi,
auk þess sem lagður er grannur
að frekara námi fyrir þá sem
áhuga hafa á því. Námskeiðið er
í heild 40 stundir.
Þátttakendum af Reykjavíkur-
svæðinu og fulltrúum fyrirtækja,
sem fólkið vinnur hjá, vora afhent
sérstök viðurkenningarskjöl í mót-
töku iðnaðarráðherra, Jóns Sig-
urðssonar, þann 30. desember sl.
Þar kom fram ánægja allra aðila
með þennan áfanga í starfsmennt-
un.
Námskeiðin halda áfram í
Reykjavik á þessu ári og eru auk
þess af fara af stað víðsvegar um
landið. Hátt á þriðja þúsund
manns eiga kost á þessu starfs-
námi. Sérstök námskeið era einnig
að hefjast í janúar fyrir verkstjóra
innan matvælaiðnaðarins. Rétt til
að sækja námskeiðin eiga allir
félagar í Landsambandi iðnverka-
fólks og Verkamannasambandi
íslands.
Námskeiðin era haldin á vegum
Félags íslenskra iðnrekenda og
Iðju, félags verksmiðjufólks, en
umsjón með framkvæmd og upp-
byggingu starfsnámsins hefur
Iðntæknistofnun íslands.
(Fréttatilkynning)
Víglundur Þorsteinsson formaður FÍI og Halldór Björnsson varaformaður Dagsbrúnar afhenda viður-
kenningarskj öl.