Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 44
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Sveiró Kristátsson. sölufliQri - Porieifuf Guömundsson, sölum.
Þóróltur Halldóisson. Jöofr,- Unnsteinn Beck hrf.i simí 12320
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
EB sendir íslenskum stjórnvöldum bréf:
Mótmæla afskiptum stjórn-
valda af ferskfiskútflutningi
Ráðuneytið í raun hætt afskiptum, segir utanríkisráðherra
í BRÉFI sem fiskimáladeild Evr-
ópubandalagsins í Brussel hefur
sent íslenskum stjórnvöldum er
farið fram á að þau hætti afskipt-
um af útflutningi á ferskum fiski
til aðildarríkja bandalagsins. í
bréfinu segir að afskipti
Höfttðborgarsvæðið:
757 skráðir
atvinnulausir
Á höfúðborgarsvæðinu eru nú
757 manns skráðir atvinnulausir,
og hefúr þeim Qölgað um 135
frá áramótum. í Reykjavík eru
548 skráðir atvinnulausir, en
þeir voru 457 talsins um áramót-
in.
Atvinnulausir karlar í Reykjavík
eru nú 333 talsins, en 251 kona
er skráð atvinnulaus. I Kópavogi
er 101 skráður atvinnulaus, og eru
liarlar þar í meiribluta. Um áramót-
in var 81 skráður atvinnulaus í
Kópavogi. I Hafnarfirði eru 79
skráðir atvinnulausir, 52 karlar og
27 konur, og hefur þeim fjölgað
um 20 frá áramótum. Á atvinnu-
leysisskrá í Mosfeilsbæ eru 23, 9
karlar og 14 konur, en voru 19 um
áramótin, og á Seltjarnamesi em 6
skráðir atvinnulausir.
íslenskra stjómvalda bijóti í
bága við ákvæði fríverslunar-
samnings EB og íslendinga og
sömuleiðis GATT-tollasamkomu-
lagið. Að sögn Jóns Baldvins
Hannibalssonar, utanríkisráð-
herra, er afskiptum ráðuneytis-
ins af ferskfiskútflutningi í raun
lokið frá og með áramótum, þó
að nefhd til leyfisveitinga sé enn
starfandi. „Það er nú verið að
ræða ýmsar hugmyndir um afla-
miðlun og stýringu og ég er
reiðubúinn að doka ögn við eftir
niðurstöðu úr þeim umræðum."
Aðspurður sagði Jón Baldvin að
til tals hefði komið að fela Lands-
sambandi íslenskra útvegsmanna
eða einhverri upplýsingastofnun
stjómun útflutningsins. Fundur um
málið verður haldinn í utanríkis-
ráðuneytinu í dag, laugardag. Jón
Baldvin sagðist gera ráð fyrir að
útflutningur væri svo lítill á þessum
árstíma að það skipti litlu máli þó
að menn þyrftu enn að sækja um
leyfí til ráðuneytisins.
Embættismenn hjá Evrópu-
bandalaginu tjáðu Kristófer Má
Kristinssvni, fréttaritara Morgun-
blaðsins í Brussel, að bréfið væri
sent vegna afskipta ráðuneyta á
íslandi af fiskútflutningi til EB og
þá helst úthlutun útflutningsleyfa.
Evrópubandalagið hefur gert
munnlegar athugasemdir við þetta
fyrirkomulag frá því snemma í
haust en þetta er fyrsta bréfíð sem
fer á milli. Beðið er eftir svörum
íslenskra stjórnvalda og þá helst
staðfestingu þess að þessum af-
skiptum sé hætt. Ekki fengust svör
við því innan bandalagsins hvort
það myndi sætta sig við að samtök
útgerðarmanna hefðu stjórn á út-
flutningnum.
Vilhjálmur Vilhjálmsson hjá LÍÚ
sagði að ekki hefði verið haft sam-
band við samtök útvegsmanna um
UM 70 unglingar höfðu verið
færðir á lögreglustöðina í Hafii-
arfirði laust eftir miðnætti í nótt
í því skyni að afstýra ólátum á
þrettándakvöldinu, að sögn lög-
reglu. Nokkrar heimatiibúnar
sprengjur voru gerðar upptækar,
en þó ekki nærri eins margar og
á þrettándanum í fyrra. I
Reykjavík fór þrettándinn frið-
samlega fram, en flugeldur braut
rúðu í húsi í Drekavoginum laust
breytta tilhögun á útflutningi á
ferskfiski. Reglurnar væru enn
óbreyttar; menn sæktu um leyfi í
viðskiptaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins fyrir hádegi á föstudögum
og fengju síðan svör síðar um dag-
inn um sölu vikuna á eftir. Hann
sagði að LÍÚ væri andvígt hömlum
á útflutningi, en hafði fallist á þau
rök að þær væru nauðsynlegar til
skamms tíma, en þau voru að nauð-
synlegt væri að koma í veg fyrir
offramboð og verðfall á ferskfísk-
mörkuðunum í Þýskalandi og Bret-
landi.
fyrir klukkan 23 og olli þar bruna-
skemmdum, en slökkvilið Var þó
ekki kallað til.
Ekki var kunnugt um að neinar
sprengjur hefðu sprungið í Hafnar-
firðinum, en ein rúða var brotin í
bænum skömmu eftir miðnætti.
Hringt var í foreldra þeirra unglinga
sem færðir voru á lögreglustöðina
og þeir látnir sækja þá. í Reykjavík
safnaðist nokkur hópur unglinga
saman við Eddufell í Breiðholti og
Borgarleik-
húsið í notk-
un í október
STEFNT er að þvi af hálfú
Reylgavíkurborgar að fram-
kvæmdum við Borgarleikhúsið
verði að mestu lokið á þessu ári
og að hægt verði að taka það í
notkun í október. Kemur þetta
fram í viðtali við Davið Oddsson,
borgarstjóra, i Morgunblaðinu í
dag. Borgarstjóri ræðir einnig
Qárhagsáætlun Reykjavíkurborg-
ar og segir útsvar verða óbreytt
á þessu ári eða 6,7%.
Davíð Oddsson segir að þó þreng-
ingar séu í þjóðfélaginu, og það komi
fram í rekstri borgarinnar, þá hafí
borgin reynt að halda þannig á
sínum búskap að ekki þurfi að
hækka skatta. Hins vegar verði far-
ið hægar í sakirnar varðandi fram-
kvæmdir en ella hefði verið gert.
Ekki sé þó um stöðnun að ræða
og ráðist verður í margar fram-
kvæmdir sem eru nauðsynlegar
vegna mikillar fjölgunar íbúa borg-
arinnar. Framkvæmdir yrðu því
miklar á sviði skólamála, dagvistar-
mála, heilbrigðismála og málefna
aldraðra.
Sjá samtal við borgarstjóra á
bls. 15.
Fjárlög af-
greidd og
þingið í frí
ALÞINGI samþykkti frumvarp til
fjárlaga síðdegis í gær. Nokkrar
umræður urðu um fyrirkomulag
á heiðurslaunum listamanna og
sagði Svavar Gestsson, mennta-
málaráðherra, að hann teldi að
fyrirkomulag á þeim bæri að end-
urskoða.
Hlé var gert á þingstörfum í gær
að tillögu forsætisráðherra og verður
þing kallað saman á ný í síðasta
lagi 6. febrúar. Lýsti forsætisráð-
herra því yfír að ríkisstjómin hygð-
ist ekki nýta sér réttinn til að setja
bráðabirgðalög í þinghléi. Ef það
reyndist nauðsynlegt yrði haft sam-
ráð við stjórnarandstöðu og lagt til
að þing yrði kallað saman sem fyrst
til að afgreiða þau lög.
Ólafur G. Einarsson sagði sjálf-
stæðismenn ekki ætla að leggja stein
í götu þessarar tillögu eftir yfirlýs-
ingar forsætisráðherra. Þeir gætu
þó ekki greitt tillögunni atkvæði sitt
þar sem of mörg mál biðu óafgreidd.
Sjá þingsíðu bls. 27.
hafði uppi einhver ólæti.
í Keflavík var mikið fjölmenni við
álfabrennu á íþróttavellinum. Gisk-
aði lögregla á að þar hefðu verið
2.500-3.000 manns. Á Selíossi var
farin blysför að álfabrennu og flug-
eldum skotið á loft. Allt var með ró
og spekt á þessum stöðum þegar
Morgunblaðið hafði síðast spurnir
af í gærkvöldi. Álfabrennur, blys-
farir og flugeldasýningar fóru fram
víða um land.
Þrettándinn:
Flugeldur inn um rúðu
og unglingar í fangelsi