Morgunblaðið - 27.01.1989, Síða 1
64 SIÐUR B/C
22. tbl. 77. árg.
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
stöðugt vaxandi
Managua. Reuter.
VAXANDI fólksflótta gætir nú í Nicaragua og að þessu sinni ekki
meðal menntaðra manna og iðnlærðra, sem margir eru þegar farn-
ir, heldur meðal verkafólks. Efnahagslifíð er í rúst, verðbólgan á
síðasta ári 20.000% og lífskjörin orðin þau sömu og voru á fjórða
og fimmta áratug aldarinnar.
Að undanfömu hafa ferðaskrif-
stofur skotið upp kollinum líkt og
gorkúlur í höfuðborginni, Managua,
en þær eru að því leyti ólíkar flest-
um öðrum slíkum fyrirtækjum, að
þær bjóða aðeins farseðil aðra leið,
eitthvað burt frá landinu. Talið er,
að hálf milljón manna af 3,5 millj.
íbúa hafi flúið land síðan sandinist-
ar komust til valda 1979 og aðal-
lega þeir, sem einhveija menntun
höfðu. Raunar þykir svo sjálfsagt,
að menntamenn komi sér burt, að
opinbera málgagnið Barricada birti
í síðasta mánuði forsíðufrétt og
fyrirsögn, sem sagði: „Kunnur
skurðlæknir lýsir yfir: Eg er ekki á
förum."
Nú er það einnig verkalýðurinn,
Bush býður
Motzfeldt í
Hvíta húsið
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti og kona hans, Barbara, hafa
boðið Jonathan Motzfeldt, for-
manni grænlensku landstjórnar-
innar, og Lars Chemnitz, forseta
landsþingsins, til málsverðar í
Hvíta húsinu 2. febrúar nk.
Motzfeldt segir, að ekki verði
nein ákveðin mál á dagskrá, heldur
verði tækifærið notað til að ræða
almennt um samskipti Grænlend-
inga og Bandaríkjamanna. George
Bush hefur einnig haft samband
við Poul Schlúter, forsætisráðherra
Danmerkur. Segir í Berlingske
Tidende, að hann hafi hringt í
Schlúter á þriðjudag og óskað eft-
ir fundi bráðlega um sarriskipti
ríkjanna.
sem er að gefast upp á ástandinu,
og þeir, sem ekki hafa efni á flug-
farmiða, reyna að komast með lang-
ferðabílum, skipum eða jafnvel fót-
gangandi. Hafa nágrannaríkin, til
dæmis Hondúras og Costa Rica,
miklar áhyggjur af flóttamanna-
straumnum og Bandaríkin einnig
enda stefna margir þangað. Sandin-
istastjórnin hefur lítið gert til að
stemma stigu við flóttanum og virð-
ist láta sér vel líka að losna við
hugsanlega stjórnarandstæðinga
með þessum hætti. Daniel Ortega
forseti hótaði raunar nýlega ótil-
teknum efnahagsaðgerðum, sem
gerðu andstæðingum stjórnarinnar
„þann kost einan að flýja til Miami
á vit lýðræðis og fjármuna".
Stjórnvöld kenna skærúliðum um
hvemig komið er en leiðtogar þeirra
benda hins vegar á, að vopnahlé
hafi ríkt í tæpt ár án þess að nokk-
ur batamerki sjáist á efnahagslíf-
inu. Astæðan fyrir landflóttanum
sé því örbirgð og pólitísk kúgun og
Jorge Canda, sem starfar í áróður-
smálaráðuneytinu, hefur viður-
kennt, að fólksflóttinn hafi vaxið
um allan helming á síðasta ári.
Afganistan:
Samstöðuprestur kvaddur
Utför pólska prestsins Stefans Niedzielaks fór fram
Varsjá í gær að viðstöddum þúsundum manna.
Fannst hann látinn á heimili sínu sl. laugardag,
myrtur að sögn kirkjunnar manna, en honum höfðu
áður borist bréf þar sem honum var hótað sama
dauðdaga og prestinum Jerzy Popieluszko, sem ör-
yggislögreglumenn myrtu árið 1984. Niedzielak var
mikill Samstöðumaður og hafði helgað kirkju sína
minningu þeirra Pólverja, sem myrtir voru í Sov-
étríkjunum.
Þorpum gjöreytt og hundr-
uð óbreyttra borgara dreprn
Islamabad. Reuter.
HUNDRUÐ óbreyttra borgara
féllu í stórskotaliðshríð sovéskra
og afganskra stjórnarhermanna
síðastliðinn mánudag þegar þeir
reyndu að opna aðalveginn milli
höfuðborgarinnar, Kabúl, og Sov-
étríkjanna. Er það haft eftir vitn-
um, að heilu þorpin hafi verið
þurrkuð út. Orvænting stjórnar-
innar í Kabúl vex nú með degi
hveijum enda virðist ekkert geta
komið í veg fyrir, að skæruliðar
taki borgina strax og sovéski her-
inn er á brott.
Stórskotaliðsárásirnar voru gerðar
á svæðið fyrir sunnan og norðan
Salang-jarðgöngin en um þau fara
mestallir birgðaflutningar frá Sov-
Vígvæðing Sovétmanna á norðurslóðum:
Mikil uppbygging flotans
FLOTASTYRKUR Sovétmanna á norðurslóðum hefúr verið efldur
til muna á undanfornum mánuðum. Norðurflotinn hefúr fengið
ný skip til umráða og vestrænir hernaðarsérfræðingar telja sam-
setningu flotans gefa til kynna að Sovétmenn hyggist taka upp
nýjar sóknaraðferðir ef til ófriðar dregur.
Nýverið bættist orrustu-beiti- heyrir undir Kyrrahafsflotann.
skipið Kalínín í Norðurflotann en
það er af svonefndri Kírov-gerð.
Kalínín var hleypt af stokkunum
29. apríl 1986 en var tekið í notk-
un á síðasta ári. Skipið er 28.000
tonn og nær 33 hnúta hraða.
Vopnabúnaðurinn er mikill og
öflugur. Kalínín er búið loftvarna-
flugskeytum af gerðinni SA-N-6
og öflugum eldflaugum gegn skip-
um af. gerðinni SS-N-19. Nú eru
tvö skip af Kírov-gerð í Norðurflot-
anum en þriðja skipið, Frúntse,
Fjórða skipið er í smíðum og mun
það að líkindum verða staðsett á
Kyrrahafi.
Á sama tíma bættist tundurspill-
ir af gerðinni Sovremenníj og ann-
ar af Údalov-gerð í flotann auk
freigátu af Krívak-gerð en skip
þessi höfðu verið gerð út frá Kúbu.
I ágústmánuði fékk Norðurflotinn
að auki tvo nýja tundurspilla.
Flugvélamóðurskipið Bakú hélt
nýverið frá Miðjarðarhafi og hefur
það nú verið fært undir Norðurflot-
ann. Bakú er fjórða flugvélamóð-
urskipið af Kíev-gerð sem Sovét-
menn smíða og telja sérfræðingar
að Sovétmenn hyggist taka upp
svipaðar aðferðir og Bandaríkja-
menn ef til ófriðar dregur á norður-
slóðum. Talið er að Sovétmenn
vilji með þessu samræma aðgerðir
einstakra skipa og flotadeilda.
Þannig gæti orrustu-beitiskip af
Kírov-gerð varið flugvélamóður-
skip gegn árásum úr lofti í krafti
SA-N-6 loftvarnaeldflauganna.
Norðurflotinn ræður því nú yfir
tveimur Kíev-flugmóðurskipum og
tveimur orrustu-beitiskipum af
Kírov-gerð.
Hehnild: Jane’s Defence
Weekly.
Bakú á siglingu. Rétt aftan við
stefnið eru liólkar undir loft-
varnaeldflaugar af gerðinni
SA-N-9. Þá sjást skotpallar fyr-
ir eldflaugar af SS-N-12-gerð,
ætlaðar gegn skipum.
étríkjunum. Hafa skæruliðar Ahmad
Shah Masoods setið um veginn og
gert flutninga um hann mjög erfiða
enda er talið, að þeir og aðrir skæru-
liðaflokkar hafi mestalla landsbyggð-
ina á sínu valdi. Er það haft eftir
vitnum og erlendum stjómarerind-
rekum, að sovésku og afgönsku her-
mennimir hafi ekki linnt skothríðinni
á nokkur þorp á þessu svæði fyrr
en þar stóð ekki steinn yfir steini
og mörg hundruð manna lágu í valn-
um.
Talið er, að helmingur þeirra
30.000 sovésku hermanna, sem hafa
gætt Kabút, sé nú farinn á brott og
verður ástandið í borginni ískyggi-
legra með degi hveijum. Sitja skæru-
liðar um hana á alla vegu og bíða
þess eins, að síðasti sovéski hermað-
urinn fari heim en brottflutningnum
á að vera lokið 15. febrúar nk. Er-
lend sendiráð hafa sent flesta starfs-
menn sína burt enda hafa orðið upp-
þot í Kabúl vegna mikils matar- og
eldsneytisskorts. Ríkisstjóm Naji-
bullah forseta sendi í gær Javier
Perez de Cuellar, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, boð um að
koma til landsins en óvíst er, að
hann þiggi það eins og ástandið er.
Er haft eftir heimildum, að búið sé
að flytja fjölskyldur margra hátt-
settra manna til Sovétríkjanna, til
svæða í Afganistan, sem liggja að
Sovétríkjunum, og til Indlands.
Nicaragua:
Fólksflóttinn fer