Morgunblaðið - 27.01.1989, Síða 4

Morgunblaðið - 27.01.1989, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989 Umboðsmenn erlendra bjórframleiðenda: Oánægðir með hömlur UMBOÐSMENN erlendra bjórframleiðenda eru óánægðir með þær takmarkanir, sem virðast eiga að vera á fjölda bjórtegunda sem ATVR selur eftir 1. mars næstkomandi. Eins og fram hefur komið verða þijár erlendar tegundir seldar í öllum verslunum ÁTVR, auk tveggja eða flögurra innlendra tegunda. Allt eru þetta svokallaðir Ijósir bjórar, eða lager bjórar. Höskuldur Jónsson forstjóri ÁTVR hefur nú boðað að i hinni sérstöku bjórbúð ÁTVR á Stuðlahálsi verði einungis þessar tegundir lager bjórs og að auki dökkir bjór- ar, eða svokallaðir „stout“ bjórar. Þetta telja umboðsmennirnir ekki vera í samræmi við það sem áður var boðað um bjórbúðina og ekki heldur í samræmi við óskir kaupenda. „Þetta kom okkur satt að segja nokkuð á óvart," sagði Friðrik The- odórsson hjá Rolf Johansen & Company sem hefur umboð fyrir Heineken bjór. Hann vísaði til fréttatilkynningar sem gefín var út um leið og upplýst var hvaða reglum yrði fylgt um sölu bjórsins. „Að vísu er ekki talað þar um hvaða tegundir verði í bjórversluninni, en þar er sagt að fjölbreyttara úrval verði þar en í öðrum verslunum ÁTVR. Það er ennþá okkar skiln- ingur að þama verði fleiri tegundir, hvenær sem það verður,“ sagði Friðrik. Hann sagði það hafa komið ótvír- ætt í ljós í Fríhöfninni á Keflavíkur- flugvelli að fólk velur Heineken bjór. „Heineken hefur um 38% af bjórsölunni í Fríhöfninni, sem er fyrst og fremst það sem fólkið vel- ur. Það eru nákvæmlega 110.335 pakkar með sex hálfs lítra dósum á síðasta ári. Það sýnir enn frekar að fólk velur Heineken, að þessi sala er þrátt fyrir þau hlunnindi sem íslenski bjórinn hefur, að fólk getur keypt sex lítra af Heineken eða átta lítra af innlendu tegundunum." Friðrik sagðist ekki hafa fengið neitt erindi þess efnis að breyta ætti til varðandi bjórsölu í Fríhöfn- inni. Þar hafa verið seldar fjórar tegundir bjórs, Viking frá Sanitas, Polar frá Olgerðinni, Carlsberg og Heineken. Hann sagði súrtí broti ef það kæmi svo á daginn, að Heine- ken bjór fengist ekki í hinni sér- stöku bjórbúð ÁTVR. „Heineken hafði mjög mikinn áhuga á að selja bjór til íslands og stefndu að því með sínu tilboði. Við verðum að vona það besta, við vitum að við bjóðum einn besta bjór í heimi," sagði Friðrik Theodórsson. „Þetta þýðir að það verður eng- inn þýskur bjór til sölu í verslunum ÁTVR,“ sagði Karl Eiríksson hjá Bræðrunum Ormsson, sem hafa umboð fyrir Beck’s bjórinn þýska. „Það munaði rétt innan við 5% á nettóinnkaupsverði á tilboði okkar og Kaiser frá Austurríki. Mér skilst að það verði heldur ekki leyft að selja Beck’s bjór í sérverslun ÁTVR á Stuðlahálsi. Mér sýnist að ljós þýskur bjór verði hvergi til sölu." Karl sagði að í könnun, sem gerð hefði verið hér á landi, kæmi fram að Beck’s væri vinsælastur þýskra bjóra. Mest væri jafnframt flutt út af honum frá Þýskalandi og hann fengist í hverri búð í Bandaríkjun- um, svo dæmi væri nefnt. VEÐURHORFUR í DAG, 27. JANÚAR YFIRLIT f GÆR: Á vestanveröu Grænlandshafi er kyrrstæö 966 mb lægð og um 300 krri norðaustur af Melrakkasléttu er 973 mb lægð á leið norðaustur. Um 1200 km suðsuðvestur af Vestmanna- eyjum er vaxandi 976 mb lægð sem stefnir norðnorðaustur. Heid- ur mun hlýna í veðri í nótt en kólna aftur á morgun. SPÁ: Á morg- un verður hvöss norðan- og norðvestan-átt með ýmist snjókomu eða éljum um norðan- og vestanvert landið, en austan og suðaust- an- stinningskaldi eða allhvasst og rigning eða slydda á Suðaust- ur- og Austurlandi. Hiti rétt ofanvið frostmark á Austfjörðum og Suðausturlandi, annars frost 0 til 4 stig. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á LAUGARDAG:Vestan- og norðvestan-átt með éljum um norövestan og vestanvert landið, en bjart veður Suðaustan- lands. Vægt frost. HORFUR A SUNNUDAG: Hæg vestlæg og suðvestlæg átt. Él vest- anlands en léttskýjað austan- og norðanlands. Frost 0—5 stig. x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * 10° Hitastig: 10 gráður á Celsius Skúrir Él Þoka Þokurnóða Súld Mistur Skafrenningur Þrumuveður V * V ? ? ? oo 4 K VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hhi +1 +0.8 veAur léttskýjað haglél Bergen S alskýjað Helsinki 1 alskýjað Kaupmannah. 0.8 þokumóða Narssarssuaq +16 snjókoma Nuuk +16 skýjað Osló 2 skýjað Stokkhólmur 2 heiðskírt Þórshöfn S hálfskýjað Algarve 12 skýjað Amsterdam S mistur Barcelona 12 mistur Berlin 1 mistur Chicago 1 alskýjað Feneyjar 8 heiðskfrt Frankfurt 2 mistur Glasgow 8 skýjað Hamborg 2 mistur Las Palmas 19 léttskýjað London 10 mistur Los Angeles 5 heiðskfrt Lúxemborg 3 mistur Madrid 9 skýjað Malaga 1B alskýjað Mallorca 16 hálfskýjað Montreal +5 snjókoma New Yorit vantar Orlando 13 léttskýjað París 5 heiðskírt Róm 12 þokumóða San Diego 8 heiðskfrt Vln 0 mistur Washington 4 alskýjað Winnipeg +17 alskýjað Morgunblaðið/Sigurgeir Dílamjórinn sem Náttúrugripasafnið í Vestmannaeyjum fékk i sínar hendur á sunnudaginn. Vestmannaeyjar: Dílamjóri í Nátt- úrugripasaftiið Vestmannaeyjum. STARFSMENN Náttúrugripa- safnsins i Vestmannaeyjum fengu á sunnudaginn fremur sjaldgæfan Ssk, dílamjóra. Það voru skipverjar á Valdimar Sveinssyni VE sem færðu Kristj- áni Egilssyni forstöðumanni Nátt- úrugripasafnsins lifandi dfla- mjóra. Fiskinn fengu þeir við Hvalbakinn nokkrum dögum áður og tókst að halda lífínu í honum til lands. í samtali við Mbl. sagði Kristján að dílamjórinn væri af svokallaðri mjóraætt. í þessari ætt eru 10 tegundir og finnast margar þeirra í köldum sjó hér við land. Mjóram- ir geta verið frá 8 sm að stærð, eins og Jensensmjórinn, og upp í 90 sm. Kristján sagði að dílamjóri hefði veiðst nokkrum sinnum áð- ur, en aldrei fyrr hefði tekist að halda lífínu í honum svo lengi. Yfírleitt væru þeir dauðir nokkr- um tímum eftir að þeir veiddust. Ekki er vitað til þess að þessi físk- ur sé til lifandi i nokkru fiska- safni í heiminum. í gær virtist dílamjórinn vera við bestu heilsu og sagði Kristján að hann væri eitthvað farinn að taka æti en þó mætti 'búast við að hann yrði allt að viku að jafna sig alveg á hinum nýju heimkynn- um sínum. Grímur. Ríkisendurskoðun feer aðgang að sjúkraskýrslum: Heimlislæknar leggja Hæstaréttardóminn fyrir umboðsmanninn STJÓRN Félags íslenskra heimilislækna hefur ákveðið að leggja niðurstöður Hæstaréttar, um að Ríkisendurskoðun fái aðgang að sjúkraskýrslum, fyrir umboðsmann Alþingis. Á sfjórnarfúndi FÍH, sem haldinn var í fyrrakvöld, var Gunnari Inga Gunnarssyni, stjóru- armanni FÍH, yfírlækni heilsugæslustöðvarinnar í Árbæ og form- anni sfjórnar Læknavaktarinnar, falið að leggja málið fyrir umboðs- mann Alþingis, Gauk Jörundsson. „Hér er á ferðinni mikið réttar- slys. Stjóm FÍH þykir niðurstaða Hæstaréttar mjög dapurleg í alla staði og telur að þarna hafí meiri hagsmunir verið látnir víkja fyrir minni. Réttur til einkalífs og vemd- un trúnaðar hefur verið fórnað vegna réttar hins opinbera til bók- haldseftirlits. Við höfum reynt að sýna fram á að sjúkraskýrslumar, sem slíkar, eru mjög léttvægur gagnagmnnur að baki reikningum lækna og sanni hvorki né afsanni réttmæti þeirra,” sagði Gunnar Ingi í samtali við Morgunblaðið í gær. „Til þess að fá raunhæfa niður- stöðu í rannsókn á réttmæti reikn- inga, verða rannsóknaraðilar að sjálfsögðu að snúa sér til sjúkling- anna sjálfra - þeirra, sem þjón- ustuna fengu. Þanng gétur hið op- inbera haft virkt eftirlit með lækn- um. Slíkt kerfí hefur tíðkast í Kanada til margra ára þar sem sjúkrasamlögin taka stikkprufur. Hringt er til sjúklinganna og það kannað hvort reikningamir em á rökum reistir. Getur íslenska ríkið ekki notað sömu aðferð? Hver á að vera hagsmunavörður sjúklingsins, sem þegar öllu er á botninn hvolft, sá, sem á þessar trúnarðampplýs- ingar? Til að A geti rannsakað B, þarf ríkið endilega að fara ofan í trúnaðarskýrslur C. Það getur Fé- lag íslenskra heimilislækna ekki sætt sig við,“ sagði Gunnar Ingi. Hann sagði að nú eftir dóm Hæstaréttar, bæri læknum að upp- lýsa skjólstæðinga sína um þessa skoðunarheimild Ríkisendurskoð- unar. Gæti það þá leitt til þess að hinir efnameiri fæm að borga fullt gjald á heilsugæslustöðvum til að klippa á þessa skoðunarleið ríkis- endurskoðunar, sem hefði þá aðeins aðgang að trúnaðarmálum þeirra, sem ekki hefðu efni á að kaupa sér sjálfsagða leynd einkalífsins. Fiskverði ssigt upp Á FUNDI Verðlagsráðs sjávarút- vegsins í gær var almennu fis- kverði sagt upp frá og með 15. febrúar 1989. Núgildandi flskverð var ákveðið með bráðabirgðalögum frá 28. sept- ember 1988, með heimild til upp- sagnar frá 15. febrúar n.k. — Verðlagsráð sjávarútvegs- ins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.