Morgunblaðið - 27.01.1989, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 27.01.1989, Qupperneq 12
'12________________MÖR&ÍJNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989_ Góður hagiir Sements- verksmiðju ríkisins Rætt við Ásgeir Pétursson Morgunblaðið átti nýverið samtal við Ásgeir Pétursson formann stjómar Sementsverk- smiðju ríkisins um hag hennar og framtíðarstörf. Fer samtalið hér á eftir: — Hver var niðurstaðan á rekstri Sementsverksmiðju ríkis- ins á árinu 1988? — Hún var góð. Sementsalan á árinu varð 131.819 tonn og er það mesta sala verksmiðjunnar síðan árið 1977, þegar virkjunarfram- kvæmdir voru hvað mestar. Það er því eftirtektarvert um þessi áramót að sala til sérstakra verkefna, svo sem virkjana, Keflavíkurflugvallar o.þ.h. er með allra minnsta móti á síðast ári. Á sama tíma varð gjall- framleiðslan 117.500 tonn svo gengið var á eldri birgðir. í reynd er það afkastageta brennsluofnsins, sem mestu ræður um framleiðslu- magnið. Mölunarafköst þeirra tækja, sem verksmiðjan á er mun meiri eða um það bil 200.000 tonn á ári. Af þessu er ljóst að það er af- kastageta ofnsins sem auka þarf ef sementsnotkun hérlendis heldur áfram að vaxa. Ljóst er að sements- sala sl. tvö ár hefur verið meiri en framleiðslan en með því að ganga á birgðir hefur verið komist hjá því að flytja inn erlent gjall til mölunar hér. Verksmiðjan sparar gjaldeyri og skapar atvinnu og verðmæti. Hér finnst ekki jám og timbur, ekki ennþá. Steinsteypa er því eina grundvallar byggingarefni okkar, sem er innlent. — Var ekki gerð breyting á framleiðsluaðferðum fyrir nokkrum árum? — Jú, með vissum hætti má segja það. Það var árið 1983 að talið var rétt að hætta við að nota olíu til brennslu og breyttum við — eftirMagnús Óskarsson Það á að reka álla embættismenn sem eyða of miklu, æpti fjármála- ráðherra á messutíma og rauðu ljósi á Akureyri. Skera, skera, sagði hann. Skera niður útgjöldin og skera niður við trog þá yfirmenn, sem fara fram úr fjárlögum ríkis- ins. Svo boðaði hann ný brottrekstr- arlög og útiýmingarherferð gegn þeim ríkisstarfsmönnum, sem í óleyfi eyða fjármunum almennings. Skyldi Sturla fræðslustjóri hafa verið á fundinum? Sá hefur hlegið. Ekki eru margar vikur síðan hann stóð á verðlaunapalli Ólafs Ragnars Grímssonar og tók úr hendi hans við ómældum milljónum almennings verksmiðjunni þá til kolabrennslu. Þessi breyting tókst mjög vel og var sannkallað happaspor. Fyrst og fremst stuðlaði þetta að lækkuðu sementsverði, þar sem svo fór að kolin urðu meira en helmingi ódýr- ari en olían var. Afkastageta ofns- ins hélst þó óbreytt eða nálægt 100.000 tonn á ári. En síðan (1984-1985) voru gerðar tilraunir til þess að auka afkastagetu ofnsins og leiddu þær til 10% afkastaaukn- ingar eftir breytingar, sem gerðar voru á ofninum. Síðan var brennslu- hólfið í ofninum endurnýjað 1987 og jók það afköstin enn um 5%. Fyrir þá sem eru ókunnugir sem- entsgerð er rétt að greina frá því að sementsgjallið er svo blandað gipsi og kísilryki og síðan fínmalað og við það myndast sement. Á þessu sama árabili lagði verk- smiðjan í mikinn kostnað og stór- framkvæmdir til mengunarvarna. Helsta framkvæmdin í því efni voru kaup og uppsetning á stórri rafsíu, sem reist var við sementsofninn árið 1984. Verður allt gert sem unnt er til þess að vetjast því að mengun stafí frá verksmiðjunni og hefur hundruðum milljóna króna verið varið í því skyni á liðnum árum. — En hvernig varð þá fjár- hagsútkoman í árslok? — Mér sýnist að gera megi ráð fyrir að hagnaður verksmiðjunnar á síðasta ári verði rúmar 30 m.kr. Þó er rétt að fram komi að hagnað- ur verksmiðjunnar í uppgjöri lækk- ar um rúmlega 8 m.kr. vegna geng- isbreytingar í byijun þessa árs, en endurskoðendur miða við nýja gengið við uppgjör síðasta árs, sem út af fyrir sig er eðlileg ákvörðun þeirra að mínum dómi. Gjaldfærsla vegna gengisbreyt- inga á síðasta ári og í bytjun þessa og 2ja ára heiðursdvöl í útlöndum á kostnað sama almennings í þakk- lætisskyni fyrir að sólunda ríkisfé í heimildarleysi með glæsibrag, sem seint mun fyrnast. Um tíma hafði hann sem svarar tuttugu manns í vinnu í blóra við ijárlög, auk ann- arra ávirðinga. Vel fór á því hjá Ólafi að taka þessa U-beygju á rauðu ljósi og sýnir vel aksturslag hans. Ekki var síður við hæfí að gera þetta í fána- bænum Akureyri og vonandi hafa skólastjórar haft þrek til að flagga daginn eftir — í hálfa stöng. P.s. Greinarkom þetta, örlítið lengra að vísu, sendi ég ritstjóra Morgun- blaðsins s.l. þriðjudagsmorgun. Öll- um liggur á og auðvitað hefði ég árs verður væntanlega um 36 m.kr., en tekjufærsla á móti verður lítil, þar sem efnahagur verksmiðj- unnar fer stöðugt batnandi. Mér sýnist að hagnaður verksmiðjunnar síðustu þijú árin sé um 175 m.kr. og er þá miðað við verðlag síðasta árs. Það má skjóta því hér inn að eigandi verksmiðjunnar, ríkið, hefur aldrei lagt þessu fyrirtæki sínu fjár- muni að heitið geti. Hún var reist fyrir lánsfé og hefur orðið að beij- ast í gegnum mikinn vanda og margvíslegan frá uphafi og er það löng saga. En þeim mun betra og ánægjulegra er að geta skýrt frá því að skuldimar hafa verið greidd- ar niður að mestu. Það má reyndar gera ráð fyrir því að innan þriggja ára hafi verksmiðjan greitt niður allar eldri langtímaskuldir sínar. Þá verða aðeins áhvílandi lán vegna þeirra framkvæmda, sem nú standa yfir. I væntanlegum reikningi vegna 1988 geri ég ráð fyrir að eigið fé verði um 620 m.kr., en fyrrgreindar skuldir verði um 125 m.kr. Veltufj- árstaða yrði því mjög góð og nálg- ast hratt hlutfallið 2,0, þ.e. veltufj- ármunir verða væntanlega um 120 m.kr. hærri en skammtímaskuldir í væntanlegum ársreikningi. — Hveijar eru helstu skýring- ar á bættum hag verksmiðjunn- ar? — Það eru nokkrir meginþættir sem skýra bættan hag fyrirtækis- ins. Segja má að verksmiðjan sé eiginlega dæmi um það hve fjár- magnskostnaðurinn ræður miklu um afkomu fyrirtækja. Af verk- smiðjunnar hálfu hefur verið reynt að breyta óhagstæðum lánum í önnur hagstæðari og bæta stöðu á þeirri dreifingu, sem var á útistand- andi lánum. Á þann hátt m.a. var unnt að losna við mikinn fjármagns- kostnað. Betri tök náðust svo auð- vitað í þessu efni með greiðslu lána og minnkandi raunskuldum. Þá er það staðreynd að eftirspurn Magnús Óskarsson kosið að það birtist strax. Ég skil hins vegar vel, að ritstjórarnir þurfa oft að láta greinar bíða, jafnvel þær stytztu, auk þess sem þeir sömdu á meðan ritstjórnargrein um málið miklu lengri og betri. M.Ó. Höfundur er borgarlögmaður. Ásgeir Pétursson eftir sementi hefur verið mikil og byggingariðnaðurinn líflegur, því hefur sala verið mikil, — en auðvit- að græðir verksmiðjan mest á síðustu tonnunum sem hún selur ár hvert, þ.e. því magni, sem verður umfram kostnað við framleiðsluna. Breytingjn frá olíu í kolabrennslu var hyggileg og skilar góðum arði. Sama er að segja um ýmsar tækn- inýjungar og breytingar. Ennfremur er athyglisvert hvetju bætt hagræðing áorkar í þessu efni. Föstum starfsmönnum hefur fækk- að um rúmlega 40 á síðustu 5 árum. Það var unnt vegna tæknivæðing- ar, hagræðingar og útboða, sem skipta talsverðu máli. Trúlega má gera ráð fyrir að starfsmönnum geti enn fækkað nokkuð á næstu 5 árum ef áform verksmiðjunnar ná fram að ganga. — En hveijar eru svo fram- tíðarhorfúr? — Verksmiðjan hefur þegar haf- ið undirbúning að því að mæta þörf markaðarins og renna fleiri stoðum undir rekstur hennar á næsta ára- tug. Þannig verður t.d. á þessu ári HALLDÓR Ásgeirsson, myndlist- armaður, opnar einkasýningu í austursal og á gangi Kjarvals- staða næstkomandi laugardag, 28. janúar, kl. 16.30. „Myndlist Halldórs byggist k sjónrænu hugarflæði, sem hann skráir ósjálfrátt niður. Efniviðurinn er tekinn úr umhverfi og lífsreynslu listamannsins hveiju sinni og eru meðal annars ferðalög ríkur þáttur í hinni sjónrænu upplifun, hvort sem auga og penni ferðist um óbyggðir Islands eða sigli upp ána Níl. Þegar kemur að úrvinnslu hugmyndanna staldrar Halldór við, ígrundar efni og form gaumgæfilega þar til teikn- ingarnar, sem hann skeytir saman á ólíkan hátt falla inn í efnið. Verk- in eru máluð á pappír eða léreft, skorin út eða höggvin í tré, þar finnast bein og sviðin hurð, svart flauel og brotin gler,“ segir í frétta- tilkynningu um sýninguna. Sum myndverkin eru samsett úr ólíkum efnum og spanna bæði vegg og gólf. „Sögusmiðurinn" er mættur í salinn þakinn myndum og frásögn- um úr undirheimum, þetta eru hug- arbrot og örstutt ljóð úr draumi og veruleika sem áhorfendum ber að túlka að eigin vild, að sögn lista- mannsins. Halldór er fæddur árið 1956 og nam myndlist við Parísarháskóla númer átta á árunum 1977-80 og endurbættur framleiðslubúnaður við semetnsmölun. Sjálfvirkri tölvu- stýrðri sementsmölun verður komið upp, sem nær til alls mölunarkerfis verksmiðjunnar. Rannsóknarbún- aður til efnagreiningar verður end- urnýjaður og loks er ráðgert að koma á sjálfvirkni við sementsofn- inn, trúlega að tveim til þrem árum liðnum. Þá má geta þess að verksmiðjan hefur nú ákveðna stefnu í því að auka markað fyrir sement og stein- steypu. Það var lengst af mitt sjón- armið að ekki ætti að víkka út hlut- verk verksmiðjunnar meðan hún var þjökuð af skuldaþunga. Hlutverk hennar væri einungis framleiðsla sements og dreifing þess. En við fjárhagslega bættar aðstæður má endurskoða það efni og þó með gætni. Hér nefni ég þá umbót að verksmiðjan stofnaði ásamt Is- lenska járnblendifélaginu fyrirtæk- ið Sérsteypuna sf. Það fyrirtæki hefur unnið umtalsvert þróunar- starf. Því má skipta í þijá þætti, þ.e. að auka notkun á sementi og steypu í stór mannvirki svo sem virkjanir og gatnagerð. Nefna má að steypt stíflumannvirki hafa mjög vikið fyrir jarðstíflum á síðari árum. Steypa hefur ekki náð árangri gagnvart malbiki í götur og vegi. Hér hafa gæði vikið fyrir kostnaði og þróunarvinnan beinist að því að finna ódýrari lausnir með stein- steypu án þess að það verði á kostn- að gæða. Svonefnd þurrsteypa sem Sérsteypan hefur gert virðist gefa góðar vonir um árangur. Þá má nefna þróun á tilbúinni pússningu og viðgerðarefnum fyrir steypu ásamt nauðsynlegum tækja- búnaði. Loks má um þennan þátt segja að með tilkomu nýrra bæti- efna í steypu hafí orðið miklar fram- farir sem bæti steypuna. Hugsan- legt er að nýir eiginleikar steypu geri kleift að nota steypu þar sem áður var notað stál, timbur eða plast. En þau efni verðum við nú að flytja inn frá útlöndum. — Hvað viltu segja um þátt- töku Sementsverksmiðju ríkisins í gerð jarðganga undir Hval- fjörð? — Að svo stöddu ekki ýkja mik- ið. Það er þó kunnugt að verksmiðj- an hefur tekið þátt í könnun mála- vaxta. í þessu efni segi ég sem einkaskoðun mína að allt er málið áhugavert. En við skulum hafa í huga að þetta er fyrst og fremst Eitt verka Halldórs Ásgeirssonar „Ýmir“ 1988. 1983-86. Hann dvaldi í Austurlönd- um fjær veturinn 1976-77 og í Mexíkó 1982-83. Halldór er nú búsettur i Reykjavík. Þetta er sjötta einkasýning Halldórs á íslandi, en hann hefur sýnt og starfað að myndlist undanfarin ár, bæði heima og erlendis. Sýningin stendur til 12. febrúar og er opin daglega frá kl. 11.00 til 18.00. U-beygja á rauðu ljósi Kjarvalsstaðir: * Halldór Asgeirs- son opnar sýningu -

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.