Morgunblaðið - 27.01.1989, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.01.1989, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989 Arkitektafélag Islands 50 ára eftirHarald Helgason Á þessu ári minnist Arkitektafé- lag íslands þess, að hálf öld er liðin frá stofnun Húsameistaraféiags ís- lands hinn 31. maí 1939. Til þess að fyrirbyggja vissan misskilning og vegna þess, að starfssvið arki- tekta er mun víðtækara en að teikna hús, var samþykkt nafnbreyting á félaginu árið 1956 og hefur það síðan heitið Arkitektafélag íslands. Hálfrar aldar starf Arkitektafélags- ins og aðdragandi stofnunar þess , er mikið og afar athyglisvert við- i fangsefni. Ákveðið hefur verið að ráðast í að skrá sögu félagsins og er þess vænzt að hægt verði að gefa hana út innan margra ára. I þessari grein verður eingöngu fjall- \ að um aðdragandann og skýrt m.a. frá tveimur félögum arkitekta, sem störfuðu um nokkurt skeið samtím- 1 is og voru undanfari Arkitektafé- lagsins. Byggingamál á íslandi fyrr á tímum Húsagerð á íslandi var svo gott sém heimilisiðnaður langt fram eft- ir öldum. Menn fengust að sjálf- sögðu mismikið við smíðar, en margir byggðu sér eigin hús og héldu þeim við. Eins og vænta má sköruðu ýmsir fram úr í þessum efnum og á ýmsum stöðum er getið um sveitasmiði, sem störfuðu fyrir aðra í byggðarlagi sínu. Fátt er þó sem bendir til þess að til hafi verið farandsmiðir, sem lifðu eingöngu af smíðum, og miða má tilkomu iðnaðarstétta á íslandi við myndun bæja á síðustu öld. Bágur íjárhagur landsmanna fyrr á árum og skortur á innlendu byggingarefni hafa sett þróun byggingarlistar á íslandi þröngar skorður og valdið því, að hér hefur ekki skapazt byggingarhefð eins og tíðkast hjá flestum menningar- þjóðum. Fyrr á öldum var mestum fjármunum varið í kirkjubyggingar og til þeirra kallaðir beztu smiðim- ir, enda stóðu þær flestar mun bet- ur en sambærilegir sveitabæir. ís- lenzkir smiðir munu hafa staðið að smíði nálega allra kirkna á landinu fram til miðrar 19. aldar og var yfírleitt vel staðið að smíði þeirra. Fyrsta steinhúsið hér á landi var fullgert árið 1752. Var það lands- fógetasetrið í Viðey, sem gert var upp af miklum myndarskap og opn- að á síðasta ári. Smiðimir voru danskir. Þá voru fímm stór steinhús reist á næstu árum, öll eftir upp- dráttum danskra húsameistara. Al- menningur var ekki á eitt sáttur um ágæti steinhúsa þessara, og víst var að þau reyndust ákaflega kostnaðarsöm fyrir fátækan lands- sjóð. Svo fór að mjög dró úr bygg- ingu steinhúsa eftir aldamótin 1800. Bygging þessara húsa hefur hins vegar vafalaust haft góð áhnf á byggingarþróun í landinu. ís- lenzkir smiðir höfðu fram að þessu lítið sem ekkert kynnzt húsagerðar- list eða lært af dönsku fagmönnun- um, sem hingað komu, enda höfðu þeir betri tæki og beittu nýstárleg- um vinnubrögðum. Þegar byggingu vandaðra steinhúsa lauk, var áfram haldið að reisa vel smíðuð timbur- hús, sem bezt virtust henta íslenzk- um aðstæðum allt fram á þessa öld. Skipting iðnaðarmanna í sérstak- ar starfsstéttir er ung hér á landi. Á 17. öld var farið að greina húsa- smiði í timburmenn, snikkara, múrara og málara. Um eiginlega iðnmenntun var að sjálfsögðu ekki að ræða lengst af og lærðu menn mest hverjir af öðrum. Til er skrá frá árinu 1850 um fjölda iðnaðar- manna í Reykjavík. Ibúar bæjarins voru þá taldir 1.149 og þar af voru steinsmiðir 2, snikkarar 14, auk þess sem 5 voru í námi og aðeins 1 timburmaður var á skrá. Á þess- um tíma bendir ýmislegt til vaxandi áhuga almennings á húsbygging- um. Má þess m.a. sjá merki í stofn- un framfarafélaga víða um land í rómantískum anda þeirra Fjölnis- manna. Mörg þessara félaga eignuðust bókasöfn, sem í voru bækur og tímarit, sem auk annars fjölluðu um húsagerðarlist. Þá voru gefnir út bæklingar um byggingamál, og mun einn sá fyrsti vera sá, sem sr. Jón Gíslason gaf út árið 1837 og nefndi „Einföld meining um hagan- legustu kirkjubyggingu". Um og eftir 1840 hófst mikið byggingatímabil á íslandi. Fram að þeim tíma hafði staðið yfir langur harðindakafli og var því mörgum orðin brýn nauðsyn á því að byggja upp hús sín. Verzlun var loks gefín ftjáls árið 1854 og þá hófst inn- flutningur timburs í stórum stíl, einkum frá Noregi. Fram undir aldamótin 1900 voru torfbæir að vísu langalgengastir til sveita, en þá fóru menn líka almennt að snúa við þeim baki, ekki sízt eftir Suður- landsskjálftann mikla. Á síðari hluta 19. aldar reistu menn nær einvörðungu timburhús í kauptúnum, sem leiddi til þess að þar voru ýmsir famir að kunna vel til smíða. Um aldamótin hafði húsa- smiðum fjölgað stórlega, og árið 1930 voru trésmiðir á skrá ekki færri en 1.020, auk þess sem múrarameistarar vom orðnir 206. Hafnar voru tilraunir með bygging- ar úr steinsteypu laust fyrir alda- mótin síðustu og náði steinsteypan skjótri útbreiðslu um allt land. Jafn- framt áttu sér stað stórfelldar þjóð- félagsbreytingar og hið einfalda landbúnaðarþjóðfélag, sem ríkt hafði öldum saman, varð smám saman að flóknu kerfí, þar sem til sögunnar kom sérhæfing, þar sem mun strangari kröfur voru gerðar til menntunar og ábyrgðar þeirra, sem fyrir verkum stóðu. Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík var stofnað 1867 og var tilgangur- inn að bæta menntun iðnaðarmanna í landinu, sem stofnfélagarnir 31 töldu að verið hefði í molum fram til þess tíma. Félagið beitti sér fyr- ir stofnun kvöldskóla (1869), sem fljótlega lognaðist þó út af. Árið 1873 var settur á stofn sunnudaga- skóli, sem starfaði fram til ársins 1888, en fímmtán árum síðar vannst fullnaðarsigur með stofnun Iðnskólans í Reykjavík. Iðnaðar- mannafélagið beitti sér einnig fyrir iðnsýningum til fróðleiks fyrir iðn- aðarmenn og almenning, og einnig þrýsti félagið á yfirvöld til þess að veita iðnaðarmönnum styrki til námsdvalar í útlöndum. Hefíir þetta framtak án efa leitt til þess, að hér varð brátt til hópur faglærðra iðn- aðarmanna, sem betur skildu eðli góðrar húsagerðarlistar en þá var títt meðal iðnaðarmanna og al- mennings. Þessi sérmenntaði hópur tengdist sterkum böndum og ákvað að beita sér fyrir bættri húsagerðar- list í landinu. Fyrstu lög um iðnnám voru samþykkt árið 1893, en fram að því hafði hveijum smið verið heimilt að kenna öðrum iðn sína um lengri eða skemmri tíma! Þeim var síðan heimilt að stunda þá iðn, án þess að hafa innt af hendi neitt eiginlegt iðnpróf. Með þessum fyrstu iðnnámslögum var hins veg- ar krafízt skriflegra námssamn- inga, ef námspiltur var yngri en 18 ára. Þá var jafnframt kveðið á um að námstími skyldi ekki vera , lengri en 5 ár og að í kennslu skyldi vera dráttlist, — ef unnt væri. Að námstíma loknum skyldi gerð prófsmíði. Að þessu loknu skyldi meiátari gefa út sveinsbréf. Árið 1927 voru samþykkt lög um iðju og iðnað, þar sem þeim einum var heimilað að reka iðnað í kaup- stöðum, sem höfðu undir höndum iðn- eða meistarabréf. Þá máttu ennfremur einungis meistarar með meistarabréf hafa með höndum verklega iðnkennslu. Slík meistara- bréf fengu þeir, sem unnið höfðu ekki skemur en 3 ár að námi loknu hjá meistara með iðnbréf. í bygg- ingasamþykktum kaupstaða mátti ákveða að enginn mætti taka að sér húsbyggingu, nema að hann hefði hlotið löggildingu bygginga- nefnda. Enn voru samþykkt lög árið 1933 þar sem kveðið var á um stofnun iðnráða í kaupstöðum landsins. Skyldu lögreglustjórar leita um- sagnar iðnráðanna um ýmis iðnað- armál, og í nýjum lögum um iðnnám frá 1936 eru ýmis ákvæði um frek- ari tilhögun iðnnárns og námssamn- inga. í þeim voru mun strangari kröfur gerðar til menntunar iðnað- armanna og iðnmenntun komið í fastara form. Rögnvaldur Ólafsson Fyrsti íslendingurinn, sem stund lagði á húsagerðarlist og starfaði að einhveiju marki að húsahönnun á íslandi var Rögnvaldur ólafsson. Hann fæddist í Dýrafirði 1874; tók stúdentspróf aldamótaárið og að loknu heimspekiprófí frá Presta- skólanum ári seinna hélt hann til Kaupmannahafnar til náms í húsa- gerðarlist með styrk af landsfé. Á námsárunum kenndi hann veikinda, sem ollu því að hann hvarf til ís- lands sér til heilsubótar, en án þess að hafa lokið fullnaðarprófí. Rögn- valdur náði sér brátt, en hélt ekki áfram námi, heldur fór að vinna að hönnun bygginga hér á landi. Landsstjómin veitti honum styrk til leiðbeiningastarfs við opinberar byggingar og var þar einkum átt við kirkjubyggingar, enda hafði Hallgrímur Sveinsson biskup (1889-1908) einkum beitt sér fyrir styrkveitingunni. Hafði Rögnvaldur sérstaklega verið hafður í huga enda hafði hann þá þegar teiknað glæsilegustu kirkju landsins, Húsavíkurkirkju (1905-07). Starfí byggjngasérfræðings landsstjórnar sinnti Rögnvaldur af mikilli alúð. Hann hafði eftirlit með mörgum kirkjubyggingum og teiknaði sjálf- ur nokkrar kirkjur. Er þjóðkirkjan í Hafnarfírði þeirra glæsilegust. Styrkurinn til Rögnvaldar var auk- inn árið 1909 og jafnframt féll hon- j um í hlut hönnun fleiri bygginga, einkum skóla. Þegar Verkfræðinga- j félag íslands var stofnað 1912 var Rögnvaldur einn þeirra 13 stofnfé- laga, sem unnu tæknileg störf. Rögnvaldur var í fyrstu stjóm Verk- fræðingafélagsins og síðan til dán- ardags. Meðal stærstu verka Rögnvaldar Ólafssonar eru Pósthúsið við Póst- hússtræti og berklahælið á Vífils- stöðum, en þar lézt hann úr berklum árið 1917, tæplega 43 ára að aldri. Guðjón Samúelsson Sama ár og Rögnvaldur Ólafsson lézt kom Guðjón Samúelsson til Is- lands eftir 7 ára námsdvöl í Kaup- mannahöfn, en einnig án þess að hafa heldur fullnaðarprófi í húsa- gerðarlist. Hann fékk strax mörg verkefni og er ýmislegt, sem bendir til þess að hann hafi ekki ætlað að halda lengra í námi. Þó þróuðust mál þannig, að Guðjón hélt aftur til Kaupmannahafnar og kom heim árið 1919, fyrsti fullmenntaði arki- tektinn. Á aldarafmæi Guðjóns fyrir tæp- um tveimur ámm vom starfi hans gerð nokkur skil og verður hér að- eins stiklað á stóm. Hann fæddist á Síðu árið 1887 og fluttist til Reykjavíkur aldamótaárið. Guðjón hélt til Hafnar árið 1908 með sveinspróf í trésmíðum og innritað- ist ári síðar í listaakademíuma í húsagerðarlist. Þegar starf hönnuð- ar opinberra bygginga losnaði við andlát Rögnvaldar, þrýsti Jón Magnússon, forsætisráðherra, mjög á Guðjón að ljúka prófi og hét hon- um góðu embætti að námi loknu. Guðjón tók svo við nýstofnuðu emb- ætti húsameistara ríkisins sumarið 1919 og um haustið var honum veitt innganga í Verkfræðingafé- lagið, sem þá var enn virðuleg sam- koma fárra manna. Guðjón Samú- elsson fékk einstakt tækifæri sem eini arkitekt hins unga fullveldis á einstökum breytingatímim og eftir hann liggja fádæma mörg verk á u.þ.b. þriggja áratuga starfsferli. Hann lést árið 1950. Sigurður Guðmundsson Um það leyti, sem Guðjón Samú- elsson kom heim frá Kaupmanna- höfn og árin þar á eftir komu einn- ig til landsins nokkrir bygginga- meistarar, sem farið höfðu utan til framhaldsnáms eftir iðnnám og sveinspróf, einkum til Danmerkur, þar sem þeir stunduðu gjaman nám við Det tekniske selskabsskole í Kaupmannahöfn. Nám við þennan skóla tók jafnan u.þ.b. 2 ár og þar lærðu menn ýmsar greinar bæði tæknilegs og fagurfræðilegs eðlis. Telja má víst, að þessir menn hafi litið nokkmm öðmm augum á hönnun húsa en margir húsasmíðameistarar, sem störfuðu við að byggja og selja hús á þessum uppgangstímum. Meðal hinna framhaldsskólagengnu var ; Sigurður Guðmundsson, sem þó átti sér talsvert annan feril að baki en hinir. Sigurður Guðmundsson fæddist í Skagafírði árið 1885. Vann hann fyrir sér sem kennari í Reykjavík og víðar árin 1908-1914, en hélt síðan til Danmerkur og stundaði nám í húsagerðarlist við akademí- una í Kaupmannahöfn árin 1915- 1922. Vann hann á ýmsum stofum í Danmörku á námstímanum og kynna sér arkitektúr. Sigurður kom heim til Islands árið 1925, en hafði ekki tekið lokapróf frá akademí- unni. Hann gekk ávallt undir nafn- inu Sigurður arkitekt og starfaði mikið að félagsmálum í sínu fagi. Honum var veitt innganga í Verk- fræðingafélagið árið 1934 og var í stjóm þess 1935-1938. Meðal helstu verka Sigurðar má nefna Bamaskóla Austurbæjar (1925-29), Elliheimilið Grund og Landakotsspítala og sjúkrahúsið í Stykkishólmi. Árið 1938 stofnaði j Sigurður stofu ásamt Eiríki Einars- syni, arkitekt, og teiknuðu þeir! saman m.a. sjómannaskólann, Fossvogskapellu (1944), Þjóðminja- safnið (1945-48) og Hallgríms- kirkju í Saurbæ. Sigurður var kos- inn formaður Bandalags íslenzkra listamanna og var gerður að fyrsta heiðursfélaga í Húsameistarafélagi íslands árið 1955. Hann lézt árið 1958. Þeir Rögnvaldur Ólafsson, Guð- jón Samúelsson og Sigurður Guð- mundsson fengu allir inngöngu í Verkfræðingafélag íslands, enda stóð ekkert annað fagfélag þeim þá nær. Fleiri arkitektar fengu inn- göngu í Verkfræðingafélagið eða allt fram til ársins 1937, er nafna- lögin, sem verða gerð skil hér á eftir, tóku gildi. Verkfræðingafé- lagið var ekki deildaskipt á þessum árum og var því varla von að arki- tektar gætu litið á það sem vett- vang sinna sérmála. Byggingameistarafélag Islands Árið eftir að Sigurður Guð- mundsson kom heim til íslands beitti hann sér fyrir stofnun félags, sem með vissum rétti má telja for- vera Arkitektafélags íslands, og bar reyndar það nafn á tímabili! Þann 30. mars 1926 mættu 9 herrar, sem allir höfðu mislangt framhaldsnám í útlöndum í byggingafræðum, í Báruhúsinu, þar sem nú rís ráðhús Reykvíkinga. Þarna mynduðu þeir félagsskap, sem þeir nefndu Bygg- ingameistarafélag Islands og var tilgangurinn „að stofna félagsskap milli manna er gera uppdrætti og þar að lútandi verk, aðallega yfir hús“ - eins og segir í fundargerð. Auk Sigurðar voru stofnfélagar Guðmundur Þorláksson (1887), starfsmaður hjá húsameistara ríkis- ins, Sigurður Pétursson (1896- 1959), síðar byggingafulltrúi Reykjavíkur (frá 1927), Þorleifur Eyjólfsson (1896-1968), lærður í Þýzkalandi, Þorleifur Ófeigsson (f. 1887), vann einkum sem verkstjóri við stórar byggingaframkvæmdir, Jens Eyjólfsson (1879-1959), Jó- hann Fr. Kristjánsson (1885-1932), Pétur Ingimundarson (1878-1944), slökkviliðsstjóri frá 1918, og Einar Erlendsson (1883-1968), starfs- maður hjá húsameistara ríkisins og gegndi hann starfí húsameistara ríkisins 1950-54. Auk þessara 9 mann voru skráðir stofnfélagar Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins, og Finnur Thorlacius (1883-1975). Á stofnfundinum voru samþykkt lög félagsins, auk gjaldskrár, svo að sjá má, að nokkur aðdragandi var að þessari félagsstofnun. Lögin voru vel unnin og í uppbyggingu svipuð þeim lögum, sem Arkitekta- félag íslands byggir enn á. Sigurð- ur Guðmundsson gegndi for- mennsku í Byggingameistarafélag- inu fyrstu 2 árin af þeim 13 sem félagið lifði. Auk stofnfundar voru 4 félagsfundir haldnir í Bygginga- meistarafélagi íslands fyrsta starfsárið. Var einkum flallað um taxtamál og ýmsar breytingar sam- þykktar á upprunalegri gjaldskrá. Einnig var stjóm falið að kaupa fagbækur og tímarit til afnota fyrir félagsmenn. Á síðasta fundi ársins skýrði stjóm félagsins frá viðtali sínu við bæjarstjóra Reykjavíkur, þar sem hann lofaði að leggja fyrir bygginganefnd bæjarins tillögu fé- lagsins um það að þeir menn einir fengju samþykkta uppdrætti af byggingum í bænum er fullnægðu kröfum, sem Byggingameistarafé- lagið gerði til félagsmanna sinna. Samúelsson, sem aldrei hafði mætt á fund í Byggingameistarafélaginu, lét að vísu strika sig út af félaga- lista þegar á 2. starfsári, en í félag- ið gengu 6 félagar og þeir tveir, sem lokið höfðu fullnaðarprófi í arkitektúr. Þetta voru þeir Bjöm Rögnvaldsson (1889-1962), eftir- litsmaður hjá húsameistaraembætt- inu, Guðmundur Guðjónsson (1903-1966), arkitekt hjá sama embætti, Guttormur Andrésson (1895-1958), Sigmundur Halldórs- son (1898-1964), Ágúst Pálsson (1893-1967) og Einar Sveinsson (1906- ), sem lauk fullnaðarprófí Fram til ársins 1934 voru að jafn- aði haldnir 6 félagsfundir á ári og ferðaðist einnig víða til þess að félagsstarfið gekk vel. Guðjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.