Morgunblaðið - 27.01.1989, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 27.01.1989, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989 Reuter Japanskt „grænmeti" á stórmörkuðum Smábílar, sem nefhdir hafa verið „grænmeti" og eru ætlaðir húsmæðrum, eru nú seldir á stórmörkuðum í Tókíó og fást hvergi annars staðar. Þeir eru annaðhvort rauðir eða hvítir, ekki grænir. Hver bíll kostar 595.000 jen, eða 235.000 ísl. kr. Litháenska gerð að opinberu tungumáli Moskvu. Reuter. FORSÆTISNEFND Æðsta ráðs Sovétlýðveldisins Litháens hefiir lýst þvi yfír að litháenska verði eftirleiðis opinbert tungumál f landinu. Háttsettum embættis- mönnum og síjórnendum iðnfyrir- tækja hefur verið veittur tveggja ára firestur til að læra tungumál- ið, að sögn Linas Myadyalis, að- stoðarritstjóra litháenska dag- blaðsins Vozrozhdeniye. Linas sagði, f simtali við fréttamann Reuters-fréttastofnnnar að lithá- ensk yfirvöld hefðu gefið út lög þessa efnis síðastliðinn miðviku- dag. Lögin, sem Forsætisnefndin sam- þykkti, ná til ríkisskjala, bréfaskrifta og allrar félagslegrar þjónustu í landinu, þar með taldra sjúkrahúsa, skrifstofa og iðnvera. í annarri tilskipun er kveðið á um að þjóðhátíðardagur Litháa verði 16. febrúar, en þann dag árið 1918 var sjálfstætt ríki Litháa stofnað. „Það er fast að orði kveðið í tilskip- uninni og aðeins einu sinni er vikið að rússnesku tungunni. Þá eru engar tilslakanir í þessum lögum eins og reyndin varð í Eistlandi," sagði My- adyalis. Lög, sem hníga í sömu átt og sam- þykkt voru í Eistlandi í þessum mán- uði, veita íbúum í landsins aðlögunar- frest til fjögurra ára en undanþágur voru veittar til þeirra sem búa á svæðum þar sem rússneskir innflytj- endur eru í meirihluta. Myadyalis sagði að forystumenn „Unity“, sem eru samtök íbúa af öðru þjóðemi en Litháar, hefðu kvartað undan því við yfirvöld í Viln- ius, höfuðborg Litháens, og í Moskvu, að lögin brytu í bága við „grundvallarreglur sósíalismans". BARNA- KULDASKÓR! „Pechiney-hneykslið“ í Frakklandi: Ráðherra fjármála kveðst Tilboðsverð á öllum barnaskóm í búðinni Dæmi: Jtur: Rautt rúskinn. St. 30-36. Áður 2.000. Nú 995. atnsheldir Litir: Grænt, dökkblátt og gult. St. 24-27. Áður 2.485. Nú 1.245. Jtir: Fjólublátt og svart, brúnt og einlitt svart. St. 29-35. Áður 2.590. Nú 1.290. Litur: Nature. St. 22-27. Áður 1.995. Nú 995. Litur: Dökkblátt með grænu. St. 23-30. Aður 2.245. Nú 1.125. SIÐAN ALLT A FULLT VERÐ AFTUR Póstsendum smáskór Skólavörðustig 6, sími 622812 hlynntur lögreglurannsókn París. Reuter. PIERRE Beregovoy, Qármála- ráðherra Frakklands, hvatti í gær til þess að fram færi lög- reglurannsókn vegna grunsemda GEORGE Bush, forseti Banda- rikjanna, hyggur á tveggja daga Kinaheimsókn i næsta mánuði. Fer hann þangað frá Japan þar sem hann verður viðstaddur út- for Hirohitos keisara. Bush var á sinum tima fyrsti fulltrúi Bandarikjanna i Kina efitir að samskipti ríkjanna bötnuðu fyrir tilstilli Richards Nixons, fyrrum forseta. Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkjastjórnar, sagði, að Bush yrði í Kína 25. og 26. febrúar til að „treysta enn betur góð sam- skipti ríkjanna" og til að rifja upp gömul kynni. Vísaði hann á bug getgátum fréttamanna um að Kína- ferðina mætti skiija sem sneið til Míkhaíls Gorbatsjovs, leiðtoga Sov- étríkjanna, sem hefur áhuga á að Bandaríkin: Blökkumað- ur formaður demókrata? Washington. Reuter. LEIÐTOGI demókrata í Michig- an-ríki í Bandaríkjunum, Richard Wiener, hætti á miðvikudag bar- áttu sinni fyrir því að verða lands- formaður Demókrataflokksins. Þar með er talið nær fullvist að lögfræðingurinn Ron Brown, sem er blökkumaður, hljóti embættið en Wiener lýsti yfir stuðningi við hann. Brown var áður einn helsti ráð- gjafí Jesse Jacksons er keppti að útnefningu sem forsetaframbjóðandi flokksins á síðastliðnu ári. Á lands- fundi demókrata, er Michael Dukak- is var valinn frambjóðandi, stjómaði Brown aðgerðum stuðningsmanna Jacksons. Skömmu eftir yfírlýsingu Wieners sagði Brown að hann hefði tryggt sér nægilega mörg atkvæði til að hljóta landsformannsembættið á flokksþingi demókrata í febrúar. um að ólöglega hafi verið staðið að hlutabréfakaupum franskra kauphallarhéðna í bandarísku stórfyrirtæki. Sérstök eftirlits- hitta Bush að máli sem fyrst. Hefur Bush raunar sagt, að ekki verði af fundi hans og Gorbatsjovs fyrr en Bandaríkjastjóm hafí endurmetið stefnuna í afvopnunarmálum, rætt þau mál við bandalagsríkin og ekki fyrr en að loknum viðræðum James Bakers, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, og sovésks starfsbróður hans, Edúards Shevardnadzes. nefiid með kauphallarviðskiptum vinnur nú að rannsókn málsins, sem í daglegu tali er nefnt „Pech- iney-hneykslið“ en fram til þessa hafa talsmenn franska Sósíal- istaflokksins og Francois Mitt- errand Frakklandsforseti haldið því firam að bíða beri niðurstöðu þeirrar rannsóknar áður en lengra er haldið. „Pechiney-hneykslið“ snýst um kaup franska álfyrirtækisins Pech- iney á bandarísku stórfyrirtæki, Triangle Industries, í nóvember á síðasta ári. Kaupverðið var rúmir 60 milljarðar ísl. kr. en grunur leik- ur á um að frönskum kaupsýslu- mönnum hafi verið skýrt frá því að til stæði að kaupa fyrirtækið. Þeir hafi þá rokið til og fjárfest í hlutabréfum í fyrirtækinu í kaup- höllinni í New York áður en salan fór fram. Talið er að gróði þeirra hafí numið fimmföldu kaupverði bréfanna. Pierre Beregovoy skýrði frá breyttri afstöðu sósíalista í gær er hann svaraði spurningum þing- nefndar um málið en franskir íhaldsmenn hafa reynt að nýta sér hneykslið til að styrkja stöðu sína í bæjar- og sveitastjómarkosning- um sem fram fara í mars. Sósíalist- ar hafa á hinn bóginn haldið því fram að íhaldsmenn hafí „lekið“ upplýsingum til fjársterkra stuðn- ingsmanna sinna er fjölmörg ríkis- fyrirtæki voru seld á ámnum 1986 til 1988. Beregovoy sagði að rann- saka þyrfti þetta mál jafnframt því sem fyllsta ástæða væri til að kanna hlutabréfakaupin í bandaríska fyr- irtækinu. Hingað til hafa sósíalistar lagst gegn slíkri rannsókn en dag- blaðið Le Monde kvaðst um síðustu helgi hafa heimildir fyrir því að náinn vinur Mitterrands Frakk- landsforseta hefði keypt 50.000 hlutabréf í Triangle-fyrirtækinu og orðið um 90 milljónum ísl. kr. ríkari er fyrirtækið var selt. Harðar deilur um heim- ilisfang Evrópuþingsins Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. EVRÓPUÞINGIÐ í Strasborg hef- ur samþykkt heimild til að flytja hluta af eigin starfsmönnum frá Lúxemborg til Brussel og heimila aukafundi utan Strasborgar. Ástæðan er fyrst og fremst sú að þingmenn hafa skrifstofur sínar í Brussel og þar eru jafhframt haldnir nefndarfundir en mann- ekla hefiur háð þeirri starfsemi. Ríkisstjórn Lúxemborgar hefiir ákveðið að kæra samþykktina fyr- ir Evrópudómstólnum og krefjast ógildingar hennar. Umræður um aðsetur Evrópu- þingsins eru jafnan mikið hitamál á fundum þess. Annars vegar eru þeir sem halda því fram að aðsetur þess eigi að miðast við að þingið sinni hlutverki sínu sem best, Strasborg, Lúxemborg eða Álaborg gildi þá einu því aðeins að þingið sé í nánum tengslum við aðrar stofnanir EB. Sömuleiðis er kvartað undan sífelld- um ferðalögum á milli Lúxemborgar, Strasborgar og Brussel, samgöngum' við Strasborg er talið mjög ábóta- vant og borgin sé að mörgu leyti illa í stakk búin til að hýsa þingið. Hins vegar eru þeir sem vísa til þeirra ákvarðana sem hinir evrópsku feður tóku í upphafi um að þingið skyldi hafa aðsetur í þremur borgum, að vísu til bráðabirgða. Það sé ekki hlut- verk þingmanna að hafa skoðanir á Evrópuhöllin í Strasborg. Þar eru höfuðstöðvar Evrópuráðsins og hinn umdeildi fundarstaður Evrópuþingsins. því hvar þingið starfí, um það sé gott samkomulag á milli aðildarríkj- anna og ástæðulaust sé að hreyfa við því. Um þetta viðhorf hafa þing- menn frá Lúxemborg og Frakklandi góða samstöðu. Árið 1952 þegar Kola- og stál- bandalagið var stofnað hafði það aðsetur í Lúxemborg, það þótti því rétt að þingmannasamkoma þess kæmi þar einnig saman. Er þar kom- in söguleg skýring á því hvers vegna skrifstofur Evrópuþingsins eru þar. Hart deilt Umræður um tillöguna um þing- staðinn og skýrslu sem fylgdi henni voru mjög hávaðasamar nú um miðj- an janúar. Þingmenn sem alla jafna skipa sér í fylkingar eftir stjórn- málaskoðunum fylktu liði eftir þjóð- emi og stóryrði voru hvergi spömð. Strasborg er án nokkurs vafa hinn réttnefnda höfuðborg Evrópu, sögðu fulltrúar Frakklands studdir hálfgild- ings stríðsyfirlýsingum franskra ráð- Bandaríkin: Bush til Kína í næsta mánuði Washington. Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.