Morgunblaðið - 27.01.1989, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 27.01.1989, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989 25 407 manns á Grund og Asi/ Asbyrgi Heimilismenn Elli- og hjúkr- unarheimilisins Grundar og Dvalarheimilisins Ass/Asbyrgis voni um áramótin 407 manns. Á Grund voru 189 konur og 90 karlar, samtals 279 og í Ási/Ás- byrgi voru 52 konur og 76 karlar, samtals 128. Á Grund komu á árinu 49 konur og 25 karlar, samtals 74, 18 konur fóru og 13 karlar, samtals 31. 45 konur létust og 9 karlar, samtals 54. I Ás/Ásbyrgi komu 17 konur og 17 karlar, samtals 34, 23 konur fóru og 16 karlar, samtals 38. 1 karl lést á árinu 1988 í Ási. (Fréttatilkynning) Sjálfstæðiskvennafélagið Eygló: Skattaálögum mótmælt Vestmannaeyjum. Morgunblaðinu hefúr borist eftirfarandi ályktun, sem sam- þykkt var á aðalfúndi Sjálfstæð- iskvennafélagsins Eyglóar í Vestmannaeyjum. Aðalfundur Sjálfstæðiskvennafé- lagsins Eyglóar baldinn 9. janúar 1989 mótmælir skattaálögum ríkis- stjómarinnar. Meðan verðstöðvun er í landinu leyfir ríkisstjórnin sér að ganga fram fyrir skjöldu með auknar álög- ur á lækkandi tekjur fólks. Grímur. UtfÖr Gísla Jónssonar bónda á Víðivöllum Varmahlíð Útför Gísla Jónssonar bónda á Víðivöllum fór fram frá Mikla- bæjarkirkju í Skagafirði 21. jan- úar. Sóknarpresturinn sr. Dalla Þórðardóttir jarðsöng og sr. Þór- steinn Ragnarsson flutti útfarar- ræðu. Gísli Jónsson var fæddur að Vatni á Höfðaströnd 21. nóvember 1917 og var því á 72 aldursár er hann lést að heimili sínu 11. þessa mánaðar. Gísli var mikill félags- málamaður, sat í sveitarstjóm Akrahrepps um tíma og gegndi auk þess mörgum trúnaðarstörfum í byggðarlaginu. Hann var orðlagður léttleika maður, hress og kátur og hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi. Hann bjó myndar búi að Víði- völlurn ásamt konu sinni Unni Gröndal frá árinu 1962, nú hin síðustu ár á móti dóttur sinni og tengdasyni Sigurði Kristjánssyni. Þau Gísli og Unnur eiga þijú börn á lífi, Halldóru, Gísla Sigurð og Hólmfríði Amalíu. PD Námskeið á veg- um Þrídrangs ÞRÍDRANGUR heldur um næstu tvær helgar námskeið í sam- felldri upplifun tilfinninga og losun gamalla tilfinningahnúta.I fréttatilkynningu frá Þrídrangi segir að námskeiðið byggist á beinni þátttöku og trúnaðar- trausti þátttakenda. Námskeiðið fer fram í jógastöðinni Heilsubót helgina 27.-29. janúar og í nágrenni Snæfellsjökuls helgina 3.-5. febrúar, en þar verða meðal annars gerðar líföndunaræfingar í sundlauginni á Lýsuhóli. ~ Námskeiðshaldari verður Leifur Leópoldsson, sem starfar sem nudd- ari og huglæknir. Þátttökugjald er 6.500 krónur. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 26. janúar. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Helldar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 61,00 42,00 50,91 5,362 273.045 Ýsa 101,00 77,00 94,86 3,408 323.222 Ýsa smá 31,00 31,00 31,00 0,050 1.535 Steinbítur 31,00 31,00 31,00 0,019 589 Hlýri 31,00 31,00 31,00 0,060 1.860 Langa 36,00 34,00 35,55 0,208 7.376 Lúða 325,00 170,00 229,13 0,372 85.123 Ufsi 23,00 23,00 23,00 0,020 449 Keila 22,00 22,00 22,00 0,509 11.197 Keilaósl. 19,00 19,00 19,00 0,278 5.282 Samtals 69,01 10,284 709.678 Selt var aðallega úr Stakkavik ÁR, frá Færabak hf Stöðvarfiröi, Magnúsi Snorrasyni á Bolungav?k og úr ýmsum bátum. i dag verður selt úr ýmsum bátum og frá Tanga hf á Grundarfirði. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Ekkert var selt á Faxamarkaði í gær. 1 dag verða seld alls 50-60 tonn, þar af 30 tonn þorskur, 8 tonn ufsi, auk þess ýsa og langa og fl. teg. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 60,50 52,50 56,08 3,331 186.803 Keila 21,00 20,50 20,55 1,102 22.641 Ýsa 75,00 75,00 75,00 0,059 4.425 Blálanga 26,50 26,50 26,50 0,037 981 Ufsi 20,00 20,00 20,00 0,109 2.180 Karfi 30,00 30,00 30,00 0,054 1.620 Steinbítur 29,50 15,00 29,00 0,665 19.284 Hlýri 26,50 15,00 25,78 0,175 4.506 Langa 25,50 15,00 23,81 0,186 4.451 Samtals 45,03 5,770 259.854 Selt var aðallega úr Sighvati GK, Hörpu GK og Baldri KE. í dag veröur selt úr dagróðrabátum ef gefur á sjó. Guðlaug Halldórsdóttir og Guðvarður Gíslason, eigendur kaffi- og veitinggahússins Jónatan Llvings- ton Mávur, ásamt starfsfólki. Nýjungar á nýjum veitingastað NYTT kaffi- og veitingahús, Jónatan Livingston Mávur, hóf fyrir nokkru starfsemi við Tryggvagötu þar sem áður var veitingastaðurinn „Við Sjávars- íðuna“. Matseðill nýja veitingahússins er blandaður, og er meðal annars boðið upp á mexíkanska, jap- anska, franska og íslenska rétti á aðalseðli. í kaffihluta er boðið upp á smáréttaseðil, auk þess sem hægt er að velja á milli um 50 kokteila og kaffidrykkja. I hádeginu á sunnudögum verð- ur boðið upp á svokallað morgun- verðarhádegi, undir lifandi jass- tónlist, en hljóðfæraleikarar í jan- úar verða þeir Richard Kom bas- saleikari og Reynir Sigurðsson víbrafónleikari. Framkvæmdastjóri veitinga- hússins er Guðlaug Halldórsdóttir, en hún er jafnframt eigandi stað- arins ásamt manni sínum Guð- varði Gíslasyni. Sendibifr eiðastj órar: Auknum álögum mótmælt TRAUSTI, félag sendibílstjóra, hefúr mótmælt auknum álögum stjórnvalda í formi hækkaðra innflutningsgjalda á bifreiðar, brennsluefni, þungaskatti á díselbifreiðum og fleiru, sem kemur niður á bifreiðaeigendum. „Við teljum að verið sé að bera í bakkafullan lækinn eftir allt sem á undan er gengið,.svo sem „kílóa- gjaldið“, svo að ekki sé minnst á hækkanir trygginganna," segja sendibílstjórar í ályktun sinni. Þar kemur einnig fram að hækkun á taxta sendibíla komi að takmörkuðu gagni til að vega upp auknar álög- ur, þar sem vinna bílstjóra hafi stór- lega dregist saman og fjöldi þeirra hafi nú laun undir skattleysismörk- um. „Við teljum að framferði stjórn- valda í þessum efnum bendi til ótrú- legrar fáfræði um störf sendibíl- stjóra og annarra vinnustétta og sé ekki í neinu samræmi við yfir- lýsta stefnu þeirra um að halda AÐALFUNDUR fúlltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Keflavík verður haldinn á veitingahúsinu Glóðinni næstkomandi laugar- dag, 28. janúar, kl. 14. Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Þorsteinn Pálsson, formaður niðri verðbólgu," segja sendibíl- stjórar. „Við minnum á að sérhvert það hús sem er sjálfu sér sundur- þykkt fær ekki staðist." Sjálfstæðisflokksins, koma á fund- inn og ræða stjórnmálaviðhorfið, sundurþykki stjórnarflokkanna og málflutning sjálfstæðismanna. Matthías A. Mathiesen, 1. þingmað- ur Reykjaneskjördæmis, tekur einn- ig þátt í umræðum á fundinum. Sjálfstæðisfélögin Keflavík: Aðalfundur á Glóðinni Núverandi eigendur verslunarinnar Hjörtur Nielsen, Templara- sundi, Margrét Rögnvaldsdóttir og Hlín Kristinsdóttir. Eigendaskipti á versl- uninni Hirti Nielsen Eigendaskipti hafa orðið á verslun- inni Hjörtur Nielsen, Templara- sundi 3, Reykjavík. Að sögn nýju eigendanna, þeirra Margrétar Rögnvaldsdóttur og Hlín Kristins- dóttur, hefur borið á því að við-- skiptavinir halda að verslunin sé að því komin að loka vegna gjald- þrotámáls Ávöxtunar, en verslunin Hjörtur Nielsen var í eigu Ávöxtun- ar áður. Þær Margrét og Hlín keyptu versl- unina af þrotabúi Ávöxtunar og stofnuðu nýtt fýrirtæki í kringum hana. Þær vildu taka það skýrt fram að verslunin kæmi gjaldþrotamálinu ekkert lengur við þó nafn hennar væri áfram hið sama og áður. Bústaðakirkja: Tissa Weer- ashingha talar Tissa Weerashingha frá Sri Lanka talar á tveimur samkom- um í Bústaðakirkju, helgina 28.-29., janúar. Samkomurnar hefjast báða dagana klukkan 20.30. Söngfólk úr hinum ýmsu kristnu söfnuðum borgarinnar tekur þátt í samkomunum. Tissa Weerashingha þjónar Cal- vary-kirkjunni í Colombo, sóknar- börn hans koma jafnt úr röðum singala og tamíla. Auk þess er hann eftirsóttur prédikari og ferðast víða um heim í þeim erindum. Tissa nam við Seattle Bible Training School og lauk námi þar 1973. Síðar fékk hann námsstyrk við Fuller Theological Seminary. Þaðan lauk Tissa magistersprófi og vinnur nú að doktorsritgerð. Hann hlaut sérstaka viðurkenningu Full- er-guðfræðiskólans fyrir umfjöllun um búddisma. Á Sri Lanka er al- menn trú á endurholdgun, þar er búddatrú útbreidd og hindúar fjöl- margir. Allir eru velkomnir á samkom- uraar meðan húsrúm leyfir. (FréttatUkynning)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.