Morgunblaðið - 27.01.1989, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989
Akureyri:
, Evrópumót í golfí?
„ÞAÐ ER ekki enn Ijóst hvort Golfldúbbur Akureyrar heldur Evrópu-
mót kvenna í golfi á þessu ári. Það ræðst af því hvort okkur tekst að
útvega þá fjármuni sem til þarf, en reiknað er með að beinn kostnað-
ur við mótshaldið verði um 12-13 milljónir króna. Vonandi skýrist þetta
á næstu vikum," sagði Gunnar Sólnes, stjórnarformaður Golfldúbbs
Akureyrar.
Félagsstofiiun stúdenta á Akureyri:
Bygging stúdentaíbúða hefst í vor
AÆTLAÐ er að helja byggingu húsa með stúdentaíbúðum á kom-
andi vori. Miðað er við að fyrra húsið verði tilbúið áður en skólaár
Háskólans á Akureyri hefst næsta haust og vonast er til að það
síðara verði tilbúið áður en sjávarútvegsdeild háskólans tekur til
starfa i janúar árið 1090. A næstu dögum verður ákveðið hvaðá
lóðir félagsstofnun stúdenta fær til umráða, en nokkrir staðir innan
bæjarmarkanna koma til greina.
Á fundi bygginganefndar á mið-
vikudag var lóðaumsókn félags-
stofnunar stúdenta rædd og í gær
litu fulltrúar félagsstofnunar á þær
lóðir sem til greina koma. Sigurður
P. Sigmundsson, stjórnarformaður
félagsstofnunar, sagði að taka
þyrfti ákvörðun um byggingarstað
mjög fljótlega, ef takast ætti að
byggja húsið fyrir næsta skólaár.
„Við höfum hugsað okkur að byggja
tvö hús, sem hvort um sig verður
860 fm,“ sagði Sigurður. „Húsin
verða einföld og ódýr að allri gerð
og auðvelt að færa til innveggi eft-
ir því hvort þörf er á einstaklings-
herbergi eða stærri íbúð. í hvoru
húsi er gert ráð fyrir 28 íbúum."
Sigurður sagði að að mörgu
þyrfti að hyggja þegar valinn væri
staður fyrir stúdentaíbúðir. „Við
ætlum ekki að byggja upp hverfi
með stúdentaíbúðum, heldur byggja
upp á víð og dreif um bæinn, svo
við getum sem best fellt húsin að
ríkjandi bæjarmynd," sagði hann.
„Það þarf einnig að huga að ýmsum
öðrum atriðum. Sem dæmi má
nefna að ef við byggjum í Síðu-
hverfi gæti það skapað erfiðleika,
því Síðuskóli er mjög þétt setinn. I
stúdentaíbúðum verður sjálfsagt
nokkuð um fjölskyldufólk og við
verðum að hafa það í huga. Hins
vegr leggjum við mikla áherslu á
að geta byijað framkvæmdir sem
fyrst og staðsetning ræðst nokkuð
af því. Bygginganefnd hefur lýst
því yfir að hún sé tilbúin að af-
greiða málið hratt í gegnum kerfið,
svo ekki ætti það að stranda þar.“
Sigurður sagði að um leið og
félagsstofnun stúdenta hefði ákveð-
ið hvaða lóðir yrðu fyrir valinu feng-
ist staðfesting frá Húsnæðisstofnun
ríkisins um lán. Húsnæðisstofnun
lánar 85% af verði húsanna. Sigurð-
ur kvaðst reikna með að húsin tvö
myndu kosta um 60-70 milljónir,
lauslega áætlað, og stærstu eining-
ar í þeim verða 56 fm tveggja her-
bergja íbúðir. Þær lóðir, sem til
greina koma, eru við Vestursíðu,
Skarðshlíð, Víðilund og í Innbæn-
um. „Áður en endanleg ákvörðun
er tekin um lóðarval þurfa að liggja
fyrir dýptarmælingar, því við viljum
ekki ráðast í kostnaðarsamar upp-
fyllingar á grunnum. Um leið og
við höfum ákveðið hvaða lóðir verða
fyrir valinu verður ráðist í að hanna
húsin,“ sagði Sigurður P. Sig-
mundsson.
Ljósmynd/Rúnar Þór
Sigurður P. Siginundsson, stjórnarformaður félagsstofnunar, Jón
Þórðarsorn, brautarsljóri sjávarútvegsbrautar Háskólans á Akureyri
og Jón Geir Ágússon, byggingafulltrúi Akureyrar, skoðuðu í gær
lóðir þar sem hugsanlegt er að stúdentaíbúðiir rísi.
Gunnar sagði að Golfklúbbi Akur-
eyrar hefði verið boðið að halda Evr-
ópumót kvenna á síðasta ári, en ekki
getað þegið það. „Við viljum gjaman
haida mótið, en Golfklúbburinn hefur
ekki fjárhagslegt bolmagn til að
sinna því,“ sagði hann. „Klúbburinn
skuldar nú um 20 milljónir króna
eftir miklar framkvæmdir við félags-
heimili á undanfömum árum. Eg
óttast ekki að við séum komnir á
vonarvöl vegna þessarar skuldar, en
við treystum okkur ekki til mikilla
íjárútláta. Þess vegna höfum við leit-
að til ýmissa fyrirtækja, en því miður
hafa viðbrögð þeirra ekki verið sem
skyldi. Þau virðast ekki gera sér
grein fyrir þeirri miklu auglýsingu
sem Evrópumótinu fylgir. Flugleiðir
og Visa ísland eru meðal þeirra fyrir-
tækja sem hafa lofað okkur stuðn-
ingi og ég reikna með að nú þegar
höfum við náð um þriðjungi þeirra
12-13 milljóna sem til þarf.“
Evrópumót kvenna verður haldið
10.-13. ágúst og er reiknað með um
100 keppendum. Þeirra á meðal yrðu
þekktustu golfkonur heims, svo sem
Laura Davies, Dale Reid, Corinne
Dibnah, Liselotte Neumann, Alison
Nicholas og Karen Lunn. British
Open-mótinu lýkur 6. ágúst og er
áætlað að Flugleiðir flytji konurnar
beint frá Heathrow-fiugvelli í London
til Akureyrar. Gunnar sagði að ef
af því gæti orðið nú að Golfklúbbur
Akureyrar héldi mótið hefði klúbbur-
inn heimild til að halda það á hveiju
ári hér eftir. „Það væri þá hugsan-
legt að mótið væri ekki alltaf hér á
Akureyri, heldur yrði til dæmis á
velli Golfklúbbs Reykjavíkur í Graf-
^*arholti, eða á Suðumesjum," sagði
hann. „Þetta mót er mikil land-
kynning og er sýnt í sjónvarpi um
alla Evrópu. Því fyndist mér eðlilegt
að opinberir aðilar styddu nú við
bakið á Golfklúbbi Akureyrar. Við
höfum þegar kynnt íjármálaráðherra
málið, en ekki fengið viðbrögð það-
an.“
Golfklúbburinn heldur í sumar
Arctic Open-golfmótið þriðja árið í
• Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gunnar Sólnes
röð. Mótið sækja innlendir sem er-
lendir kylfíngar og á síðasta ári voru
þátttakendur alls 90. Mótið er haldið
um mánaðamótin júní-júlí.
Kínversk tón-
list í Lundi
JÓN Hlöðver Áskelsson flytur fyr-
irlestur í Gamla Lundi næstkom-
andi sunnudag, 29. janúar, kl. 17.
Hann ræðir þar um Kínaferð, sem
hann fór i síðastliðið sumar ásamt
öðru tónlistarfólki.
Jón minnist í máli sínu á stöðu
vestrænnar tónlistar í Kína, þjóðlega
tónlist, tónlistaruppeldi og fleira. Þá
segir hann frá heimsóknum í skóla
og leikur upptökur með ungu
kínversku tónlistarfólki.
Kinverskt te verður á boðstólum
gestum til hressingar. Aðgangur er
ókeypis fyrir félagsmenn í Tónlistar-
félagi Akureyrar, en utanfélags-
mönnum verður seldur aðgangur á
400 krónur.
Við nýja tækið, frá vinstri: Jónas Franklín formaður Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, Sig-
urður Ólason yfirlæknir röntgendeildar FSA, Halldóra Bjarnadóttir starfsmaður Krabbameinsfélags-
ins, Pedro Riba yfírlæknir röntgendeildar FSA, Hansína Sigurgeirsdóttir röntgentæknir og Vignir
Sveinsson skrifstofusfjóri FSA. Morgunblaðið/RúnarÞór
Krabbameinsfélaginu
gefið brjóstmyndatæki
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis færði Fjórðungssjúkra-
húsinu nýtt brjóstamyndatæki um síðustu helgi. Tækið hefúr verið
notað frá því um áramót en var ekki afhent formlega fyrr en þarna.
Krabbameinsfélagið hóf söfnun
fyrir þessu tæki fyrir um ári. Tækið
kostaði um 2,6 milljónir króna og
söfnuðust alls rétt tæpar 2 milljónir
króna. Félagið lagði sjálft fram mis-
muninn. Þess má geta að félagið er
nú fjölmennasta Krabbameinsfélag
landsins.
Pedro Riba, er nýráðinn yfirlæknir
á röntgendeild FSA — hann er í raun
tekinn við en Sigurður Ólason, sem
starfað hefur sem yfírlæknir á deild-
inni í áratugi, starfar áfram þar til
flutt hefur verið í nýtt húsnæði innan
vcggja sjúkrahússins. Riba sagði er
nýja tækið var afhent að það kæmi
sér mjög vel, væri mun fljótvirkara
og þægilegra en það gamla, bæði
fyrir starfsfólk og þær konur sem
koma í myndatöku. „Krabbamein er
mikill vágestur, jafngamall læknaví-
sindinum, en alltaf kokhraustur. Það
er hægt að laga krabbamein ef það
finnst nógu snemma. Bijóstamynda-
tæki er besta leiðin til að finna
krabbameinið og ég vil því hvetja
konur til að bregðast við kallinu er
það kemur, að fara bæði í legháls-
skoðun og bijóstmyndatöku," sagði
Riba, og bætti við: „Ég geri ekki lítið
úr gamla tækinu, það hefur þjónað
vel, en með því nýja er öryggið í
greiningu tryggt."
Riba sagði röntgendeild FSA bjóða
upp á hópskoðun í tveimur flokkum,
annars vegar fyrir 35 ára konur og
hins vegar 40-69 ára konum, í
síðustu viku og þessa. „Við bjóðum
upp á leghálsskoðun og bijóstaskoð-
un sama daginn. Það eru um 2.100
konur sem eru á skrá á Akureyri og
nágrannasveitum. Reynslan úr
Reykjavík er sú að um 70% kvenna
mæta í skoðun, en mætingin hefur
verið betri úti á landi.“ Hann sagði
að vegna skorts á starfsfólki og hús-
næði hefði deildin í raun verið komin
aftur úr, ekki tekist að skoða eins
margar konur og þurft hefði upp á
síðkastið, og því væri boðið upp á
umrædda hópskoðun til að bæta úr
því. „Við mynduðum 227 konur
fyrstu fimm dagana. 420 bréf voru
send út frá Leitarstöð Krabbameins-
félagsins. Það verða því væntanlega
hátt í 390 konur sem koma alls. Og
við ætlum okkur að ná til allra
kvenna á svæðinu, þessara 2.100, á
þessu ári,“ sagði Pedro Riba, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Utvegsbankinn:
Verk Harðar Jörundssonar
NÚ STENDUR yfir sýning í Út-
vegsbankanum á Akureyri á mál-
verkum Harðar Jörundssonar.
Sýndar eru 13 vatnslitamyndir.
Hörður fæddist í Hrísey árið 1931.
Hann lærði fyrst teikningar hjá Jón-
asi Jakobssyni myndhöggvara. Síðan
stundaði hann nám í Den Tekniske
Selskabsskole í Kaupmannahöfn í
viðar- og marmaramálningu. Hörður
hefur haldið tvær einkasýningar á
Akureyri og eina á Húsavík, auk
þess sem hann hefur tekið þátt {
fjölda samsýninga.
Þetta er sautjánda málverkasýn-
ingin sem sett hefur verið upp í Út-
vegsbankanum. Sýning Harðar, sem
er sölusýning, stendur út febrúar-
mánuð..