Morgunblaðið - 27.01.1989, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989
29
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
I.O.O.F 12 = 1701278'A =
I.O.O.F. 1 = 1701278'/z = Sp.
Frá Guðspeki-
fólaginu
Ingótfastræti 22.
Áskrtftarsími
Ganglara or
39573.
í kvöld kl. 21.00: Þór Jakobsson,
Líf í alheimi.
Á morgun kl. 15.30: Herdís
Þorvaldsdóttir.
Ungt fólk
f3ÍÉ| meðhlutverk
YWAM - ísland
Fræðslustund verður á morgun
laugardag kl. 10.00 í Grensás-
kirkju. Efni: Hver er náðargjöf
þín og hæfileikar?
Þátttakendur gera eigin persónu-
og hæfileikakönnun. Eftir kaffihlé
kl. 11.15 verður bænastund.
Allir velkomnir.
m
Útivist,
Þorrablótsferð í Skóga
27.-29. jan.
Gist i nýju félagsheimili. Fjöl-
breyttar göngu- og skoðunar-
ferðir undir Eyjafjöllum og i
Mýrdal. Sundlaug i nágr.
Byggðasafniö skoðað. Þorrablót
Útivistar og kvöldvaka á laugar-
dagskvöldinu. Fararstjórar:
Kristján M. Baldursson og
Lovisa Christiansen, sem jafn-
framt er veislustjóri þorrablóts-
ins. Nokkur sæti laus vegna for-
falla. Uppl. og farm. á skrifst.,
Grófinni 1, simar: 14606 og
23732.
Sunnudagsferð 29. jan. kl. 13
Gömul verleið: Hraunssandur -
Þórkötlustaðanes - Hópsnes.
Gengið með ströndinni að aust-
an til Grindavíkur. Skemmtileg
leið. Óvenjumikiö fuglalif. Komið
við hjá strandstað danska flutn-
ingaskipsins. Verð 900,- kr., frítt
f. börn m. fullorðum. Brottför frá
BSi, bensínsölu. Gullfossferð
er frestað þar til klaki er kominn
á fossinn. Munið árshátið Úti-
vistar 18. febr. í Skíðaskálanum,
Hveradölum. Gerist Útivistarfé-
lagar og fáið senda ferðaáætlun
1989. Skráning á skrifstofu.
Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
nauðungaruppboð
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Bifreiðageymslunnar hf. fer fram opinbert uppboð á ýms-
um bifreiöum laugardaginn 28. janúar 1989 og hefst það kl. 16.00.
Uppboöiö fer fram á athafnasvæði Bifreiðageymslunnar hf. við Vatna-
garöa (fyrir ofan Miklagarð). Seldar verða væntanlega eftirtaldar
bifreiðar:
A-5591, R-15103, R-62042, R-47145, R-65222,
E-3377, G-15653, R-28860, --'''R-56671, R-70106,
E-3519, R-15013, R-37802, R-64624, R-72282.
G-5541, R-24615,
Greiðsla við hamarshögg. Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla
nema með samþykki uppboðshaldara eða gjaldkera.
Greiösla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer fram í skrifstofu embættisins, Hörðuvöllum 1:
Þriðjudaginn 31. jan. 1989 kl. 10.00
Þelamörk 54, Hveragerði, þingl. eigandi Lars O. Níelsen.
Uppboðsbeiðandi er Búnaðarbanki íslands.
Miðvikudaginn 1. feb. 1989 kl. 10.00
Eyrarbraut 57, Stokkseyri, þingl. eigandi Rögnvaldur Hjörleifsson.
Uppboðsbeiðandi er Iðnaöarbanki islands hf. Önnur sala.
Frumskógar 2, Hveragerði, þingl. eigandi Sóley Jónsdóttir.
Uppboðsbeiðendur eru Landsbanki islands og Jón Eiriksson, hdl.
Önnur sala.
Lækur, Hraungerðishreppi, þingl. eigandi Rikissjóður íslands, Jarð-
eignad.
Uppboösbeiöandi er Eggert B. Ólafsson, hdl. Önnur sala.
Fimmtudaginn 2. feb. 1989 kl. 10.00
Austurmörk 7, Hverageröi, talinn eigandi Austurverk hf.
Uppboðsbeiðendur eru Jón Egilsson, hdl., Landsbanki íslands, Guð-
jón Ármann Jónsson, hdl og Brunabótafélag íslands. Önnur sala.
Setberg 29, Þorlákshöfn, þingl. eigandi Árni Pálmason.
Uppboðsbeiðandi er Ingimundur Einarsson, hdl. Önnur sala.
Sýslumaðurinn í Árnessýslu.
Bæjarfógetinn á Selfossi.
Sjálfstæðisfélag
Húsavíkur
heldur bæjarmálafund á Hótel Húsavík nk. laugardag kl. 10.00 f.h.
Mætið stundvíslega.
Stjórnin.
Aðalfundur
Aðalfundur Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum
verður haldinn i Hótel Þórshamri laugardaginn 28. janúar og hefst
kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna
i Vestmannaeyjum.
Fundur um sveitarstjórna-
og byggðamál
verður haldinn föstudaginn 27. janúar kl. 16.00 í Valhöll, Háaleitis-
braut 1.
Fundarefni: Undirbúningur vegna ráðstefnu um sveitarstjórna- og
byggðamál í Borgarnesi 4. febrúar nk.
Sveitarstjórna- og byggðamálanefnd Sjálfstæðisflokksins.
Akranes
Þorrablót
Föstudaginn 27. janúar 1989 kl. 20.00 halda sjálfstæðisfélögin á
Akranesi sitt árlega þorrablót i Sjálfstæöishúsinu i Heiðargerði 20.
Þeir, sem áhuga hafa á að mæta í mat, glens og grín, hafi samband
við Óla Grétar eða Lellu.
Sjálfstæðisfélögin á Akranesi.
Akureyri
Sjálfstæðisfélag Akureyrar heldur hádegisverðarfund á Hótel KEA
laugardaginn 28. janúar kl. 12.00.
Fundarefni: Bæjarmálin. Frummælandi Tómas Ingi Olrich.
Stjórnin.
Sauðárkrókur
Sjálfstæðiskvennafélagið á Sauðárkróki heldurfund i Sæborg, mánu-
daginn 30. janúar kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Kynning á starfi Landssambands sjálfstæöiskvenna.
2. Önnur mál.
Nýjir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Garðbæingar -
opinnfundur
Huginn F.U.S gengst fyrir opnum fundi í
Kirkjuhvoli laugardaginn 28. janúar kl. 16.00.
Sverrir Hermannsson flytur þar framsögu
og svarar fyrirspurnum. Sverrir hefur á liön-
um vikum gagnrýnt vaxtastefnu ríkisstjórn-
arinnar harðlega og eftirminnilega.
Garðbæingar eru hvattir til að fjölmenna á
skemmtilegan fund sem er öllum opinn.
Huginn F.U.S
Ráðstefna um málefni aldr-
aðra í Vestmannaeyjum
Ráðstefna um málefni aldraðra í Vestmannaeyjum verður haldin á
veitingastaðnum Munum, sunnudaginn 29. janúar og hefst kl. 16.00.
Ráðstefnustjóri verður Sigurður Einarsson.
Þátttakendur i pallborðsumræðum verða:
Kristjana Þorfinnsdóttir, formaöur Félags eidri borgara,
Unnur Gígja Baldvinsdóttir, hjúkrunarfræðingur,
Pétur Sigurðsson, fv. alþingismaður,
Sigurður Jónsson, bæjarfulltrúi,
Steinunn Einarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
Svanhildur Guðlaugsdóttir, fulltrúi I félagsmálaráöi.
Almennar umræöur og fyrirspurnir. Ráðstefnan er öllum opin sem
vilja láta málefni aldraðra sig einhverju varða.
Sjálfstæðisfélögin i Vestmannaeyjum.
Minninff:'
Lára Lárusdóttir
Fædd27.júlí 1927
Dáin 17. janúar 1989
Dáinn. Horfínn. Harmafregn.
Hvílíkt orð mig dynur yfir
en ég veit að látinn lifir.
Það er huggun harmi gegn. (J.H.)
Þriðjudaginn 17. janúar 1989
andaðist frú Lára Lárusdóttir,
Hagamel 48 hér í borg, eftir erfíða
sjúkdómslegu. Lára varð 61 árs
gömul, fæddist 27. júlí 1927 í
Krossnesi í Grundarfírði, en þar
bjuggu foreldrar hennar, Lárus
Guðmundsson og Sigurlaug Skarp-
héðinsdóttir. Böm þeirra hjóna urðu
alls átta og era nú fjögur á lífí.
Lára ólst upp í foreldrahúsum þar
til hún giftist eftirlifandi eigin-
manni sínum, Þorsteini Brynjólfs-
syni. Þau giftust þann 6. október
1951. í fyrstu bjuggu þau á Njáls-
götu 15a en fluttu fljótlega á Holts-
götu 21 og bjuggu þar í 26 ár.
Böm Lára og Þorsteins urðu alls
tíu. Fyrsta bamið fæddist 9. apríl
1951, það var Þuríður. Síðan komu
bömin hvert af öðru: Lára Sigur-
laug, Guðrún, Bryndís, Brynjólfur
Már, Dagbjört, Guðmundur Helgi,
Geir, Rúna Björg og Sigrún. Og
bamabörnin era orðin 11.
Enginn vafi er á að uppeldi svo
margra bama hefur verið erfitt, en
fas Lára og viðmót var þannig, að
það laðaði fólk ósjálfrátt að henni,
jafnt unga sem aldna. Þetta er ein-
mitt eitt einkenni þeirra sem geta
gert stóra hluti. Vissulega vann hún
afrek og það vita þeir að sjálfsögðu
best sem næstir stóðu henni í gegn-
um árin. Manni virðast verk hennar
nánast ótrúleg þegar litið er til
baka. Tíu böm og frekar lítið hús-
næði, en alltaf virtist hún búa yfir
sama stoltinu og viljanum til að
hlusta á aðra og gera allt fyrir þá
sem að hún gat, enda var vinahóp-
urinn stór.
Það lætur að líkum að kona við
slíkar aðstæður var sívinnandi og
hugsandi fyrir aðra. Lára átti eink-
ar auðvelt með það að setja sig í
spor annarra. Fólk sem hefur þetta
í sér skilur betur hugsanir, orð og
gerðir annarra og þess vegna er
það best til þess fallið að bregðast
rétt við. Manni líður ósjálfrátt vel
í návist þess. Þennan hæfileika
hafa fáir, alltof fáir og margt væri
öðravísi í samskiptum manna ef
fleiri hefðu hann. Eg er ekki að
segja að Lára tengdamóðir mín
hafi verið gallalaus, að hún hafi
verið hafin yfír mannlegt eðli. Ég
er einfaldlega að gera grein fyrir
því hvað mér finnst að hafi verið
mest áberandi þættir í persónugerð
hennar; dugnaður og fómfysi. Að
lokum vil ég þakka henni fyrir
margar ánægjulegar og lær-
dómsríkar stundir. Þau kynni vora
alltof stutt og feginn hefði ég viljað
fáð að vera nálægt henni miklu
lengur, og svo er um fleiri. En við
ráðum ekki og allt í einu er fólk
sem okkur þykir vænt um ekki leng-
ur á meðal okkar, en þá tekur minn-
ingin um það við og minningin um
Lára Lárasdóttur gefur manni ein-
hvern styrk og traust. Það er eins
og eitthvað gefi dánum ró en hinum
líkn sem lifa.
Guðmundur Kr. Þórðarson
t
Elskulegur eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
ÓLAFUR MAGNÚSSON,
Boðahlein 14,
Garðabae,
er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þeim, sem vildu minnast hans.er bent á Slysavarnafélag fslands.
--or----------------i
Jónina M. Olafsdóttir, Sigvaldi Ragnarsson,
Magnús Ólafsson, Elín Helga Njálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.