Morgunblaðið - 27.01.1989, Page 33

Morgunblaðið - 27.01.1989, Page 33
pw HAiMAi vs' smnAauTácVÍ cnaAJHWiToaoM SE MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR Í989 ' 33 þeirra ríkiti innilegt samband og sýndi Einar móður sinni mikla um- hyggju og ástúð. Við fráfall hennar settist að Einari djúpur harmur. Hann hafði hluta af sínu lífi háð hverja hildina af annarri við hinn óvægna Bakkus konung og réðst sá óvættur enn til atlögu á þessu skeiði. Þar kom þó að Einar hafði fullan sigur á þeim fjanda sínum. í öllu því myrkri, sem að Einari helltist í þann tíma, stafaði sólar- geisla í líf hans, sem sól ijúfi ský. Sunna Emanúels gekk til liðs við hann og gengu þau í hjúskap árið 1981. Eg held að þá hafi Einar lif- að sitt annað jarðneska tilverustig og notið þeirrar hamingju, sem hann hafði áður ákaft leitað. Það funaði af þeirra hjúskap. Ólík áhugamál en þó mjög sameiginleg. Sitthvort sjónarmið en þó áþekk. Einar hóf flugnám á fimmta ára- tugnum. Fyrst með ötulli þátttöku í svifflugi og síðar í vélflugi. Hann hafði öll réttindi atvinnuflugmanns og flugkennara og hafði um 7.000 flugtíma að baki er hann lést. Hann starfaði m.a. hjá Flugsýn, hollenska flugfélaginu KLM og þá í Surinam í Suður-Ameríku, Flugskóla Helga Jónssonar og Flugskólanum Flug- taki. Ennfemur stofnaði hann og rak með öðrum eigin fýrirtæki t.d. Flugskólann Cumulus, Flugskólann Frey og flugfélagið Artic. Eg var einn af þeim íjölmörgu mönnum, konum og körlum, sem naut einstakrar handleiðslu hans og leiðsagnar í flugnámi. Líklega urðum við öll, þau hundruð sem hann kenndi, vinir hans. Persónu- Sigrún var elst 5 systkina, sem eru: Arinbjöm, stórkaupmaður og iðnrekandi til fjölda ára, Lárus, stór- kaupmaður, sem lést 1972, Málfríð- ur húsmóðir búsett í Bandaríkjunum og Dóróthea, búsett hér í bæ. Sigrún var fædd að Skólavörðustíg 14, í húsi ömmu sinnar Sesselju ljósmóð- ur, sem var ljósa flestra barna í Reykjavík um aldamótin. Á Skólavörðustígnum lifði hún sína bemsku við leik og gleði í hópi glaðværra barna. Þar eignaðist hún sínar æskuvinkonur systumar Venný og Siggu Helga, sem bjuggu á Óðinsgötunni, Grétu og Bubbu Jóels og Dúnu, sem bjuggu á Skóla- vörðustígnum. Þegar Sigrún komst á legg flutti fjölskyldan að Fjólugötu 3, sem þá þótti langt út úr bænum, en þar reistu Óskar og Anna stórhýsi. Heimili Óskars og Önnu var stórglæsilegt, umsvif mikil og stór barnahópur. Þar vom að jafnaði 2 til 3 vinnukonur, því mikið þurfti að sulta, súrsa, baka, þvo og mlla. Anna, móðir Sigrúnar, var mikil húsmóðir, enda mjög gestkvæmt á heimilinu óg margar glæstar veislur haldnar þar. Óskar, faðir Sigrúnar, var einn þriggja Lámsarbræðra, sem byggðu stórhýsið Bankastræti 5, þar sem nú er Verslunarbankinn. Þar var L.G.L. eða skóverslun Lámsar G. Lúðvíkssonar til húsa. Vekur það furðu í dag, að í 35 ár frá 1929 til 1964 var rekin af stórhug og mynd- arbrag skóverslun í öllu húsinu, sem var 3 hæðir og kjallari, enda stærsta skóverslun á Norðurlöndum. Sigrún var með allra fallegustu og glæsilegustu stúlkum, sem ólust upp í Reykjavík á þessum ámm. Enn í dag heyrum við fólk segja: „Hún Sigrún var svo falleg." Enda ums- vermuð á sínum unglingsámm. leikinn var þvílíkur. Stórkostleg frá- sagnargáfa, orka og glaðlyndi dró að sér flugáhugamenn hvar sem hann fór. Hann var ákaflega nettur og gætinn flugmaður. Kenndi fólki gjaman með samlíkingum: „Fljúgðu þannig að farþegann langi til að koma aftur.“ Við strákana sagði hann gjaman: „Meðhöndlaðu vélina eins og konu, mjúkt en ákveðið og fáðu þitt fram.“ Ekki veit ég hvaða samlíkingu hann not- aði við stúlkumar. Ég hef marga kennara haft um æfina og ýmsa mjög góða, en Freddinn, eins og hann var kallað- ur, var í mínum huga tvímælalaust sá besti. Einar var skapríkur og tilfinn- ingaheitur mannvinur. Hann hafði ást á lífinu og öllu sem því til- heyrði. Það kom glöggt í ljós gagn- vart bömum, unglingum og dýmm. Hann var ekki einn af þeim mönn- um, sem helgaði líf sitt peningum. Ég held að hann hafi álitið peninga vera aðeins til að eyða þeim. Hann var trúríkur og trúfastur kaþólikki og hafði náið andlegt samneyti við sína kirkju. Einar Frederiksen skilur eftir sig hlýjar minningar í bijóstum vina. Pétur Einarsson Mig langar í örfáum orðum að minnast vinar míns, Einars Frede- riksen flugkennara, er lést þriðju- daginn 17. janúar sl. eftir skamma og erfiða sjúkralegu. Okkar kynni bám fyrst að er ég var að undirbúa mig undir einka- flugmannspróf hjá Flugskóla Helga Axel er giftur undirritaðri og eiga þau 4 böm og 5 bamaböm. Árið 1936 giftist hún ungum lög- fræðingi, Ragnari Bjarkan. Þau bjuggu fyrst á Freyjugötunni, en fluttu síðan á Gunnarsbraut. Síðar byggðu þau í félagi við aðra glæsi- legt hús að Háteigsvegi 40. Þau hjón eignuðust 4 dætur: Ing- er, fædd 23. maí 1937, gift Jóhanni Björnssyni forstjóra og eiga þau 3 böm og 5 bamaböm. Anna fædd 7. maí 1940, gift Bjarna Konráðs- syni byggingatæknifræðingi. Þau áttu 3 syni, en einn þeirra, Böðvar, lést aðeins 21 árs að aldri. Kristín, fædd 21. maí 1942, gift Gunnari Ingimundarsyni verkfræðingi og eiga þau 2 böm. Jóna, yngst fædd 31. janúar 1944, gift Páli Eiríkssyni geðlækni og eiga þau 3 börn. Sigrún og Rangar slitu samvistum árið 1953. Eftir það bjó Sigrún ein með dætmm sínum. Sigrún var á undan sinni samtíð í mörgu. Þegar hún ung dvaldist í Danmörku hjá móðursystur sinni, Jónu, lærði hún að borða heilsu- fæði, sem hún mat mikils, og vildi helst ekki annað fæði alla tíð síðan. Núna þegar allir em í megmn og á heilsukúrum, er erfitt að skilja það að grín var gert að henni fyrir 40—50 ámm. Eins hafði hún hjólað mikið erlendis og hélt því áfram er heim kom, en á þeim ámm sáust ekki margir fullorðnir hjólandi um bæinn. Sigrún var ekki mannblendin. Hún átti fáa en góða vini. Hæst bar vináttan við æskuvinkonumar Siggu, Venný, Grétu, Bubbu, Dúnu, Ingibjörgu og Stellu. Saumaklúbb- urinn, eða stelpumar eins og hún kallaði þær alltaf, vom tryggar og héldu hópinn lengst af. Sigrún var heimskona, orðheppin og góður grínisti. Hún naut þess að dvelja um Jónssonar, veturinn ’79-’80. Einar starfaði þar þá, tímabundið, og var honum falið að sjá um minn undir- búning. Einar var þá þegar goðsögn í íslenskum flugkennslumálum, svo ég taldi mig sérlega heppinn að fá að njóta leiðsagnar hjá þessum merka manni. Hann hafði sérstakt lag á að kenna mönnum að njóta þess unaðar að fljúga eins og fugl- inn fijáls, þó var alltaf stutt í al- vöm og ábyrgð þess að vera við stjómvöl vélarinnar. í dag em þeir ófáir flugmennirnir, hér og erlend- is, sem standa í mikilli þakkarskuld fyrir að fá að hafa notið kennslu Éinars í flugnámi. Seinna, eða árið 1985, lágu leiðir okkar Einars aftur saman er hann leitaði aðstoðar minnar við að koma á laggimar nýstofnuðu flugfélagi, Air Arctic. Upp úr því samstarfi þróaðist náinn vinskapur og gagnkvæm virðing, sem haldist hefur síðan. Okkar sam- starfsvettvangur hjá Arctic var þó ekki langur, þar sem samstarfs- og vinslit Einars og sameiganda hans í Aretic ollu því að félagið hætti starfsemi stuttu síðar. Veit ég að þá dó partur af Einari, þar sem honum fannst illa að sér vegið í þeim viðskiptum. En vinskap okkar Einars var ekki þar með slitið og höfum við átt mikil og góð sam- skipti allt til dauðadags Einars. Éinar var, að mér fannst, fremur hlédrægur maður að eðlisfari, en hafði ákveðnar skoðanir á hlutun- um, og bæri svo við að honum fynd- ist á sér eða vinum sínum troðið var hann haukur í homi; gaf sig hvergi, enda var hann stoltur mað- tíma af og til í Kaupmannahöfn hjá dóttur sinni, Kristínu, og hennar fjöl- skyldu, þegar hún bjó þar. í Kaup- mannahöfn hitti hún oft frænkur sínar Gunnu Lúðvíks og Fríðu Jóns og menn þeirra. Urðu þær ungar í annað sinn, þegar rifjaðir vom upp gömlu og góðu dagamir. Sigrún átti bamaláni að fagna. Henni þótti innilega vænt um bama- böm sín og fylgdist vel með upp- vexti þeirra meðan heilsan leyfði. Hún átti við astmaveiki að stríða í mörg ár. Þegar halla tók undan fæti flutti hún í litla íbúð áfasta við hús Kristínar og Gunnars. Leið henni þar mjög vel, þótt hún þráði alltaf að komast aftur á Háteigsveginn. Unun var að upplifa það hvað Kristín annaðist hana vel og umvafði hana kærleika, meðan hún bjó hjá henni. Síðustu mánuðina dvaldi hún á Hvítabandinu, farin að heilsu. Þar kom Inger nær daglega að lesa fyr- ir hana og létta henni stundimar, enda hafði hún alla tíð verið hægri hönd móður sinnar. Dætur hennar allar sýndu í verki hve vænt þeim þótti um móður sína, báru hana á höndum sér, sem drottning væri. Viljum við hjónin þakka það sérstak- lega. Erfitt er að búa úti í Eyjum, langt frá sínum nánustu, þegar hall- ar undan fæti og hafa ekki tök á að veita daglega umönnun. Við viljum öll þakka læknum og hjúkrunarfólki á Hvítabandinu frá- bæra hjúkmn og ummönnun, þar sem sjúklingar finna ekki fyrir spítalaanda heldur finnst sem þeir séu í heimahúsum. Að leiðarlokum þakka ég Sigrúnu samfylgdina og bið Guð að styrkja börn hennar og niðja. Sigurbjörg Axelsdóttir ur mjög, og fylgdi sinni sannfær- ingu til hins ítrasta. Alltaf var hann reiðubúinn að veita vinum sínum styrk, hvort sem um persónuleg eða ■ viðskiptaleg vandamál var að ræða. Þannig var hann sannur vinur vina sinna. Nú í seinni tíð varð ég þess að- njótandi að fá oft að njóta gestrisni og vinskapar hans og Sunnu, konu hans, á Hringbraut 71, en þar höfðu þau búið sér hlýlegt og gott heim- ili sem alltaf ljómaði af kærleik og ástúð. Vil ég þakka Einari af heil- hug. Sunna mín, þér og þínum votta ég mína dýpstu samúð, þú varst honum allt, í blíðu og stríðu. Blessuð sé minning um góðan dreng. Björn Ingason Kveðja frá Framsóknar- félagi Reykjavíkur Einar Frederiksen flugmaður var virkur í starfi Framsóknarflokksins í Reykjavík um langt árabil og duld- ist engum, sem fylgdust með störf- um hans á þeim vettvangi, að þar fór enginn meðalmaður, slíkur var dugnaður hans og elja. Lenti það oft á herðum hans að starfa við utankjörstaðakosningar og gat þá reynt á lægni og lipurð viðkom- andi, sem ekki brást, þegar Einar var annars vegar. Á sólríkum ágústdegii á sl. ári var Einar hrókur alls fagnaðar meðai framsóknarfólks úr Reykja- vík, sem áði á Kirkjubæjarklaustri á ferðalagi í Lakagíga. Hann hafði að vísu stuttan stans, því að hann hafði flogið með formann flokksins norðan úr landi og átti að fljúga með hann aftur skömmu síðar. Að sjálfsögðu var rætt um daginn og veginn og lét Einar skoðanir sínar í ljós, eins og jafnan áður, en hann var óvenjufróður um margvísleg efni og mikill málafylgjumaður. Þá þegar var vitað um þann sjúkdóm, sem átti eftir að verða honum að aldurtila. En á þessari stundu ríkti bjartsýnin ein í tali hans. Og ég minnist þess við brottförina hversu tignarlega flugvélin lyfti sér frá jörðu af krafti og mýkt undir ör- yggri stjórn Einars Fredriksen og hvarf út í blámann. Nú hefur hann farið í sína síðustu för og vinir hans horfa á eftir hon- um með söknuði og þakklæti fyrir samferðina. Eftirlifandi eiginkonu og ættingj- um Einars er vottuð samúð á þess- ari stundu. Alfreð Þorsteinsson form. FR. í dag verður til moldar borinn Einar F. Frederiksen, flugstjóri, sem lést í Landspítalanum í Reykjavík 17. janúar sl. Ég vil fyrir hönd Fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík þakka Einari dygga liðveislu við sameiginlegan málstað okkar. Einar starfaði fyrir flokkinn af og til sl. 20 ár við ýmis verkefni. Þegar kosningar stóðu fyrir dyrum var hann alltaf kallaður til. Hann lagði þá nótt við dag meðan kosn- ingaslagurinn stóð og sló þá ekki vindhöggin fremur en í öðru sem hann tók sér fyrir hendur. í næstu kosningum verður sannarlega skarð fyrir skildi. Ekkju Einars, Sunnu, votta ég mína dýpstu samúð. Að lokum vil ég þakkka persónulega vináttu Einars í minn garð. F.h. Fulltrúaráðs framsókn- arfélaganna í Reykjavík, Finnur Ingólfsson. Brids Arnór Ragnarsson Hreyfill — Bæjarleiðir Lokið er 15 umferðum af 23 í barometer-tvímenningnum og er staða efstu para þessi: Páll Vilhjálmsson — Lilja Halldórsdóttir 139 Þórður Elíasson — Viktor Bjömsson 136 Þorsteinn Sigurðsson — Árni Halldórsspn 123 Guðmundur V. Ólafsson — Sigurður Blöndal 80 Jón Sigurðsson — Vilhjálmur Guðmundsson 79 Sigurður Ólafsson — Daníel Halldórsson 75 Næstu fimm umferðir verða spil- aðar á mánudagskvöldið kl. 19.30 í Hreyfilshúsinu, 3. hæð. Keppnis- stjóri er Ingvar Sigurðsson. Bridsfélag Suðurnesja Jóhannes Ellertsson og Logi Þor- móðsson hafa enn afgerandi forystu í barometer-tvímenningnum, hafa hlotið 137 stig yfir meðalskor. Að- eins er eftir að spila fimm umferðir í þessu móti sem er meistaramót félagsins í tvímenningi. Staða næstu para: Gísli Torfason — Arnór Ragnarsson 70 Gísli ísleifsson — Kjartan Ólason 62 Gunnar Guðbjörnsson — Skapti Þórisson 56 Karl Karlsson — ■ Siguijón Jónsson 49 Keppninni lýkur á mánudags- kvöld. Spilað er í golfskálanum í Leirunni. Hefst keppnin stundvís- lega. Bridsfélag kvenna Að sex umferðum loknum í aðal- sveitakeppninni er staða efstu sveita þannig: Sveit: Öldu Hansen 113 Höllu Ólafsdóttur 110 Gunþórunnar Erlingsdóttir 102 Önnu Lúðvíksdóttur 98 Lovísu Eyþórsdóttur 93 Ólínu Kjartansdóttur 92 + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR JÚLÍUS JÓNSSON fyrrum bóndi, Vorsabae, Austur-Landeyjum, verður jarðsunginn frá Voðmúlastaðakapellu, Austur-Landeyjum, laugardaginn 28. janúar kl. 14.00. Sætaferðir verða frá BSÍ kl. 11.30 og Fossnesti á Selfossi kl. 12.30. Jón GuAmundsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Bóel GuAmundsdóttir, Sjöfn Guðmundsdóttir, Erlendur Guðmundsson, JarþrúAur GuAmundsdóttir, Björgvin Guðmundsson, Jónfna Jónsdóttir, Erna Árfells, Ólafur Guðmundsson, Ólafur Tryggvason, Helgi Jónsson, Ásta Guðmundsdóttir, Helgi B. Gunnarsson, Margrót Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för fööur okkar, tengdaföður, afa og langafa, HANNESAR HAFSTEIN AGNARSSONAR, Álfheimum 72. Gunnar Hannesson, Sigurjóna Símonardóttir, Edda Hannesdóttir, GarAar Sölvason, Guðrún Hannesdóttir, Hrafn Sigurðsson, Agnar Hannesson, Anna Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Sigrún S. Oskars- dóttir - Minning Fædd 28. desember 1910 Dáin 20. janúar 1989 Elskuleg tengdamóðir mín er lát- in. Sigrún Sesselja Óskarsdóttir hét hún, fædd 28. desember 1910 og því 78 ára er hún lést. Sigrún var dóttir sæmdarhjónanna Önnu Sigur- jónsdóttur og Óskars Lárussonar stórkaupmanns, sem bjuggu að Fjólugötu 3. Glæsileik sínum hélt hún alla ævi. Sigrún fór í Kvennaskólann og síðan til Berlínar á grautarskóla, eins og hún sagði sjálf frá, með vin- konu sinni Siggu Helga, og elskaði upp frá því allt sem þýskt var. Síðar fór hún til Danmerkur. Þar eignað- ist hún son, Óskar Axel, skókaup- mann í Vestmannaeyjum, sem alinn var upp á Fjólugötunni. Hann dvaldi þó oft hjá móður sinni og voru ávallt miklir kærleikar þeirra á milli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.