Morgunblaðið - 27.01.1989, Side 34
34
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989
RAUÐI KROSSINN
Ævintýraþráin vekur
þetta upp í mér
- segir Jón Karlsson hjúkrunarfræðingur, sem starfar
fyrir Rauða krossinn í Kabúl næstu mánuði
ÞRJÁTÍU og fimm ára gam-
all íslenskur hjúkrunarfræð-
ingur starfae næstu mánuði í
sjúkrahúsi í Kabúl i Afganistan
þar sem hann verður á vegum
Rauða krossins. Hjúkrunarfræð-
ingurinn er Jón Karlsson frá
Dvergsstöðum í Eyjafirði, en
hann útskrifaðist frá Hjúkrunar-
skóla íslands i janúar 1981. Hann
hefúr þrívegis áður unnið á
sjúkrastofnunum Rauða krossins
erlendis, fyrst í Thailandi og
síðar tvívegis í Pakistan.
„Ég er á svokallaðri veraldarvakt
Rauða krossins. Þetta er ekki form-
legt nafn, en við á veraldarvaktinni
höfum kosið að kalla starfsemina
þessu nafni. Um er að ræða fólk í
ýmsum starfsstéttum út um allan
heim sem starfar fyrir Rauða kross-
inn og er tilbúið til að fara með
stuttum fyrirvara þangað sem þörf
er á hverju sinni. Það má eiginlega
segja að ævintýraþráin veki þetta
upp í mér - þörfin fyrir að kynnast
einhveiju nýju, siðum fjarlægra
landa, fólki þess og menningu,"
sagði Jón þegar hann lýsti aðdrag-
anda ferðarinnar til Kabúl, þar sem
nú ríkir neyðarástand vegna skorts
á matvælum.
„Okkar starf snertir fyrst og
fremst leiðbeiningar og skipulagn-
ingu. Starfsfólk sjúkrastofnana er
að mestu heimamenn og fellur það
í hlut okkar Rauða kross-fólksins
að hafa umsjón með starfinu. Við
erum ekki blóðugir upp fyrir axlir
alla daga, eins og fólk kannski
ímyndar sér. Auðvitað koma tíma-
bil þegar margir sjúklingar koma
til okkar í einu og þá þarf vissulega
að taka til hendinni, en undir venju-
legfum kringumstæðum er megnið
af starfinu sjálfu unnið af heima-
mönnum," sagði Jón.
„Aðbúnaður okkar hjúkrunar-
fólksins er ágætur í þessum löndum.
Við búum í tiltölulega venjulegum
húsum. Mataræðið er þó ekki alveg
samkvæmt okkar venju hér á ís-
landi, en það verður bara að venj-
ast því. Menningin er vissulega af
allt öðrum toga en sú íslenska og
fólkið er múhameðstrúar. Onnur
trúarbrögð eiga ekki upp á pallborð-
ið hjá þessu fólki. Betra fínnst því
þó að menn hafi einhveija trú í stað
þess að vera heiðnir. Við útlending-
arnir látum trúmálin afskiptalaus
þó þau komi að einhveiju leyti inn
í starfið. Við verðum samt sem
áður að virða venjur, viðhorf, reglur
og siði landsmanna. Maður er jú
aldrei nema gestur í svona lönd-
um,“ sagði Jón.
Jón heldur væntanlega í byijun
mars til Kabúl þar sem hann verður
við störf á sjúkrahúsi Rauða kross-
ins fyrir stríðshijáða Afgana.
Spítalinn var opnaður í september
síðastliðinn og er hann gerður fýrir
60 sjúklinga. Jón segir að sjúkra-
Morgunblaðið/Sverrir
Jón Karlsson hjúkrunarfræðing-
ur.
húsin séu hinsvegar fljót að fyllast
svo búast megi við að sjúkrarúmum
verði fjölgað með því að stækka
sjúkrahúsið, annaðhvort með við-
byggingu eða með því að reisa tjöld
við húsið. Til dæmis hafði sjúkra-
rúmum á sjúkrahúsinu í Quetta í
Pakistan fjölgað úr 55 í 200 frá
opnun þess árið 1983 þar til í sum-
ar er Jón kom þangað í annað skipt-
ið. „Sjúklingunum er aldrei úthýst,
heldur eru sjúkrahúsin þess í stað
stækkuð þegar svo ber undir,“ sagði
Jón að lokum.
Morgunblaðið/G.L. Ásg.
Rut Rebekka við verk sín.
MYNDLIST
Hjúkrunarkona o g
listmálari með sýn-
ingu í Danmörku
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
að var líkt og Ijúfir tónar
mættu gestinum þegar komið
var inn í Galerie Gammel Strand,
þar sem Rut Rebekka listmálari
sýndi á dögunum. Stór og falleg
olíumálverkin í fersku litavali
sýndu unga stúlku draga fíðlu-
boga yfir streng, pilt laða fram
skæra sellótóna og gefa í skyn
leik annarra tónlistarmanna, sem
verða eitt með hljóðfærum sínum.
Rut Rebekka Siguijónsdóttir
lærði hjúkrun á sínum tíma og
hefur styrkt sjúkraliðanema
fyrstu skrefín á starfsbrautinni.
Hún er húsmóðir og þriggja barna
móðir, en fyrst og fremst er hún
málari, listamaður, sem helgar sig
hugðarefni sínu og ætlar að „æv-
iráða sig hjá sjálfri sér". „Enginn
er meiri listamaður fyrir að láta
aðra útvega sér það, sem til þarf,“
segir hún.
Rut er fædd í Reykjavík árið
1944 og er alin upp í Skugga-
hverfínu. Hún fór í lýðháskóla í
Svíþjóð og ferðaðist síðan um lönd
og álfur með skólasystur sinni.
Svo tók alvara lífsins við í Hjúk-
runarskóla íslands og síðar átti
hún í 4 ár heimili í Danmörku
með manni sínum, Herði Kristins-
syni, sem var við tækninám. Það
var svo árið 1979, að hún settist
í Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands, eftir Myndlistaskóla
Reykjavíkur, og lauk prófi árið
1982. Og Rut segir: „Eg sé eftir
þeim tíma er ég mála ekki og
krafturinn eyðist oft í annað. Ég
stend og fell með því, sem ég bý
til. Unglingamir mínir hafa lært
að verða sjálfstæðir á heimilinu,
en uppeldið er fyrst og fremst
fordæmi.“
Fyrstu einkasýningarnar hélt
Rut Rebekka árið 1984 í Bóka-
safni Mosfellssveitar og í Hald
Hovedgaard nálægt Viborg í Dan-
mörku, en þar er aðstaða fyrir
listamenn á vegum Norrænu lista-
miðstöðvarinnar, líkt og á Svea-
borg í Finnlandi. Á báðum þeim
stöðum hefur hún átt náms- og
starfsdvöl. Málverk Rutar hafa
verið á samsýningum heima og
erlendis, m.a. í Bandaríkjunum
og Kanada.
— G.L.Ásg.
BARBARA BUSH
Berst fyrir málefnum sjúkra
barna og gegn ólæsi
Barbara Pierce Bush, nýja for-
setafrúin í Bandaríkjunum,
sem hefur mikla unun að garðyrkju
og bamabömunum sínum og geng-
ur með óekta perlur til að hylja
hmkkur á hálsinum, kemur með
nýjan stíl í Hvíta húsið - ólíkan
glæsileikanum sem einkenndi Re-
aganhjónin. Hlutverk hennar í lífi
George Bush Bandaríkjaforseta
breytist ekki að hennar sögn. „Mitt
hlutverk verður það sama. Ég ann-
ast heimilislífíð, hlusta á bömin og
segi George frá vandamálum þeirra
ef þau eru mikilvæg," segir hún.
Barbara er 63 ára gömul, á fimm
böm og tíu bamaböm. Hún hætti
námi á öðm ári við Smith College
árið 1945 til að giftast Bush og því
hefur hún aldrei séð eftir. Hún hef-
ur staðið í búferlaflutningum í 29
skipti í þau 44 ár sem hjónaband
þeirra hefur staðið, þau fluttu með-
al annars til Peking, og hana mun-
ar því ekkert um að flytja þijá kíló-
metra úr bústað varaforseta í Hvíta
húsið.
Hár Barböm byijaði að grána
árið 1953 þegar þriggja ára gömul
dóttir hennar fékk hvítblæði. Bam-
ið dó eftir átta-mánuða sjúkrahús-
vist og eftir það hefur Barbara allt-
af látið málefni sjúkra bama til sín
taka. Þegar ljóst var að einn sona
hennar, Neil, þjáðist af torlæsi hóf
hún herferð gegn ólæsi og hyggst
halda henni áfram í Hvíta húsinu.
George og Barbara Bush ásamt barnabörnum.
MOSKVA
Fegurð og töfrar
Mikið var um dýrðir á dögun-
um í Moskvuborg er þar fór
fram fegurðarsamkeppni þar sem
keppt var um titilinn „Ungfrú töfr-
ar“. 28 þokkadísir frá 12 löndum
tóku þátt í keppninni, sem fram fór
á einu glæsilegasta hóteli borgar-
innar. Keppnin vakti mikla athygli
og komust færri að en vildu en
karlar klæddir gráum jakkafötum
munu hafa verið í meirihluta. Hlut-
skörpust varð Meltem Hakarar frá
Tyrklandi, sem er til vinstri á mynd-
inni. Onnur varð ungfrú Pólland,
Rosa Golosiewich, og lengst til
hægri er ungfrú Nígería, Bianca
Ohon, sem varð þriðja og hlaut titil-
inn „Ungfrú Vinátta". Á innfelldu
myndinni fellir „Ungfrú töfrar"
gleðitár er úrslitin lágu fyrir.