Morgunblaðið - 27.01.1989, Side 35

Morgunblaðið - 27.01.1989, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989 35 Eftir að hafa átt tal saman í flugvél var brúðarparinu boðið af Frank Milks að eyða brúðkaupsdögum í_ Bradford í Bandarikjunum sem þau og gerðu. Frá vinstri eru Frank Milks, Dagbjartur Helgi, Þórunn Ósk og tengdasonur Franks, Jerry Reese. BRÚÐKAUPSFERÐ Islensk brúðhjón fá óvænt heimboð að er ekki á hvetjum degi sem íslensk brúðhjón fá heimboð frá erlendum forstjóra eftir aðeins eina samverustund og hana í flug- vél á leið frá íslandi til Banda- ríkjanna. Það gerðist þó er þau Dagbjartur Helgi Guðmundsson, 26 ára verkfræðingur, og Þórunn Ósk Rafnsdóttir, 23 ára afgreiðslu- stúlka, voru nýlögð af stað í brúð- kaupsferð sína vestur um haf, bæði í brúðarskartinu. Frank Milks, forstjóri matvæla- fyrirtækis í Bradford í Bandaríkjun- um, var á heimleið eftir að hafa hér á landi keypt inn hluti fyrir reksturinn. Hann átti tal við brúð- hjónin og áður en yfir lauk hafði hann stungið upp á því að þau hjón- in eyddu brúðkaupsdögum í Brad- ford. „Boðið kom okkur á óvart,“ sagði Dagbjartur og bætti við: „Við vissum ekki hverju svara skyldi.“ Þau voru á leið til skyldfólks brúðgumans á Long Island og höfðu ekki ákveðið hvert þau ættu að fara eftir það. En af hveiju ekki Bradford? Frank Milks var spurður hvort hann hafi átt von á því að þau tækju hann á orðinu. „Þau sögðust ætla að_ koma, en ég bjóst ekki við þeim. Ég hafði þó vonað að þau kæmu.“ Brúðhjónin dvöldu í Brad- ford við gott atlæti og gistu þau hjá tengdasyni forstjórans. Þetta er önnur ferð Dagbjarts til Banda- ríkjanna en Þórunn er þar í fyrsta skipti. „Við stöndum í þakkarskuld við Frank Milks og fjölskyldu hans. Þau hafa verið afar gestrisin og við höfum átt mjög ánægjulega dvöl hér. Við gleymum aldrei þessu ferðalagi," sagði Dagbjartur Helgi Guðmundsson. Fékk lestarvagri til einkanota NORSKA konan Torill Mars- hall, kveið ósköpin öll við þeirri tilhugsun að þurfa að ferðast með lest í sjö klukkustundir án þess að geta kveikt sér í vindlingi. Hún hafði því samband við ríkisle- starfélagið og kvartaði undan skorti á farþegarými þar sem reykingar væru leyfðar. Það kom Torill þó á óvart þegar henni var tilkynnt að hún fengi heilan járnbrautarvagn út af fyrir sig þar sem hún gæti reykt eins og henni lysti. „Ég vil fremur vera ein í vagni og hafa tækifæri til að reykja en húka innan um alla reyklausu far- þegana," sagði Torill. „Það hefur töluverðan kostnað í för með sér að bæta við reykinga- vagni. En það er notaleg tilfinning að sýna dálitla umhyggjusemi,“ sagði talsmaður járnbrautarfélags- ins, Reidar Skaug Hoeymörk. REYKINGAR Muammad Ghaddafí vill að arabar gangi sameinaðir til atlögu við aðr- ar þjóðir heims á HM í knatt- spyrnu á næsta ári. KNATTSPYRNA LÍBÝA GAF LEIKINN Tugir þúsunda bálreiðra knattspyrnuaðdáenda í Tri- poli í Líbýu mótmæltu því harð- lega síðastliðinn föstudag þegar líbýska knattspyrnusambandið ákvað að gefa leik liðs síns gegn Alsírmönnum en leikurinn var lið- ur í undankeppni heimsmeistara- mótsins í knattspymu. Um 70 þúsund áhorfendur voru staddir á leikvanginum þegar tilkynnt var um ákvörðunina. Áhorfend- umir, sem höfðu borgað sig inn á leikinn, neituðu að yfírgefa leik- vanginn og kröfðust þess að leik- urinn færi fram. Til átaka kom á milli áhorfenda og lögreglunn- ar. Í fréttatilkynningu frá líbýska knattspyrnusambandinu var skýrt frá því að þessi ákvörðun væri þakklætisvottur við alsír- sku þjóðina sem tók afstöðu með Líbýumönnum þegar Banda- ríkjamenn skutu niður tvær orr- ustuflugvélar þeirra fyrir skömmu. „Landslið Líbýu og Alsír em í raun eitt og sama liðið og ekki kemur til greina að þjóðirnar leiði saman hesta sína. Mikil- vægast er að eitt sterkt lið araba taki þátt í úrslitakeppni heims- meistaramótsins árið 1990,“ sagði í fréttatilkynningunni. HONIG er meira en bara spagettí... OPNUM A MORGUN NÝJA OG STÖR- GLÆSILEGA VERSLUN Á LAUGAVEGI45 ♦ NÝJAR VÖRUR^ Metsölublad á hveijum degi!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.