Morgunblaðið - 27.01.1989, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 27.01.1989, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLÁÐIÐ IÞROTTIR POSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989 ÍÞfémR FÓLK ■ SVEINN Sveinsson og Brag-i Bergmann, verða línuverðir með Guðmundi Haraldssyni, þegar hann dæmir ieik Skotlands og Kýpur í heimsmeistarakeppninni á Hampden Park í Glasgow. ■ ÓLIP. Ólsen hefur verið sett- ur dómari á leik Wales og V- Þýskaiands í Evrópukeppni unglingalandsliða. Leikurinn fer fram í Wales. ■ KLAUS Sletting Jenssen, handknattleiksmaðurinn danski, gengur til liðs við franska 1. deild- arliðið Nimes strax eftir.B-keppn- ina í Frakklandi, sem er nú í 4. sæti í deildarkeppninni þar. Hann leikur nú með Holte. ■ ANNAR handboltamaður sem nú er í sviðsljósinu í Danmörku er landsliðsmaðurinn Jens Erik Röpstorff. Hann meiddist á ökkla í deildarleik um sl. helgi og verður að taka sér algjört frí frá æfingum í tæpan hálfan mánuð. Talið er að Röpstorff verði orðinn leikfær fyr- ir B-keppnina, en hann verður þó varla í toppæfingu. ■ ENSKI knattspyrnumaðurinn Simon Stainrod sem síðast lék -með Stoke City, skrifar undir samning við franska 1. deildarliðið Strasbourg í næstu viku. Hann er 29 ára og hefur komið víða við, m.a. leikið með Aston Villa og QPR. ■ ÞAÐ verður væntanlega nóg að gera á næstunni hjá Frank Arnesen, danska landsliðsmannin- um fyrrverandi í knattspymu. Hann starfar nú á þremur stöðum. Arnes- en býr í Eindhoven í Hollandi, og starfar þar hjá PSV sem blaðafull- trúi, hann starfar einnig sem þulur hjá sjónvarpsstöðinni TV2 í Dan- mörku og nú hefur knattspyrnulið- ið B 1913 frá Oðinsvéum ráðið hann sem aðstoðarmann þjálfarans. Hann býr áfram í Hollandi og mun ekki koma nálægt þjálfun danska liðsins, heldur fyrst og fremst sjá um erlend málefni liðsins; kaup og sölur á leikmönnum, skipulagningu æfingaferða og leikja fyrir liðið er- lendis og þar fram eftir götunum. ■ SAMMYLee, fyrrum leikmað- ur Liverpool, sem leikur með Osas- una á Spáni, mun ekki leika meira með liðinu út þetta keppnistímabil. Lee hefur verið skorinn upp fyrir meiðslum í ökkla. ■ V-ÞÝSKA félagið Hannover hefur ákveðið að lækka miðaverð á heimaleikjum sínum um 25%. Þetta er gert til að reyna að auka áhorf- endafjölda á leikjum liðsins, sem hefur ekki gengið nægilega vel í „Bundesligunni" í vetur. ■ TERRY Venables hefur mik- inn áhuga á það fá til sín sóknar- manninn Ian Ormondroyd frá Bradford. Venables bauð nú síðast 700.000 pund en var neítað. HANDKNATTLEIKUR Krístján, Þorgils Óttar og Héðinn í stónim hlutverkum íslendingar leika gegn Tékkum í Hafnarfirði í kvöld Héðlnn Gllsson „FÓSTBRÆÐURNIR" úr Hafn- arfirði - Kristján Arason og Þorgils Óttar Mathiesen, verða í sviðsljósinu í heimabæ sínum í kvöld, þegar íslenska lands- liðið leikur þar gegn Tékkum. Það eru orðin fimm ár síðan að þeir félagar léku saman í Hafnarfirði. Þá með FH. Þriðji FH-ingurinn sem verður í stóru hlutverki á heimavelli er Héð- inn Gilsson, sem hefur leikið stórt hiutverk með landsliðinu að undanförnu. að má fastlega reikna með fjör- ugum og skemmtilegum leik í Firðinum, eða eins og alltaf þegar Islendingar og Tékkar mætast. Báðar þjóðirnar eiga léttleikandi landslið. Tékkar eru í góðri æfingu. Þeir tóku þátt í Baltic Cup í V- Þýskalandi á dögunum. Bogdan Kowalczyk, landsliðs- þjálfari íslands, var í gær ekki bú- inn að veija landsliðshóp sinn sem leikur gegn Tékkum kl. 20.30 í kvöld. Nokkuð er um meiðsli hjá leikmönnum. Sigurður Sveinsson og Páll Ólafsson eru meiddir og þá á Guðmundur Guðmundsson við smávægileg meiðsli að stríða. Að öllum líkindum verður lands- liðið skipað þessum leikmönnum: Markverðir: Einar Þorvarðar- son, Val og Guðmundur Hrafnkels- son, Breiðabliki. Aðrir Ieikmenn: Jakob Sigurðs- son, Val, Bjarki Sigurðsson, Víkingi, Valdimar Grímsson, Val, Geir Sveinsson, Val, Þorgils Óttar Mathiesen, FH, sem er fyrirliði, Alfreð Gíslason, KR, Sigurður Gunnarsson, Vestmannaeyjum, Kristján Arason, Teka, Héðinn Gils- son, FH og Júlíus Jónasson, Val. Ef teflt verður fram þrettán leik- mönnum, koma þeir Guðjón Arna- son, FH, eða Birgir Sigurðsson, Fram, til með að bætast í hópinn. íslenska landsliðið lék einn lands- leik gegn því tékkneska á sl. ári. Það var í Flugleiðamótinu, sem fór rétt áður en haldið var á Ólympíu- leikana. ísland vann þá 23:17. Á morgun leika þjóðirnar aftur. í Laugardalshöllinni kl. 17. KNATTSPYRNA / SPANN Atkinson á akfeitum hesti frá Madrid Atletico varð að borga honum skaðabætur RON Atkinson hefur nú gengið frá sínum málum við Jesus Gil, forseta Atletico Madrid, sem rak Atkinson frá félaginu fyrir skömmu - eftir skamma setu í framkvæmdastjórastólnum. Brottrekstur Atkinsons kom nokkuð á óvart, því hann stjórnaði liði Atlertico f aðeins þrettán leikjum, en náði liðinu þó úr botnsæti í þriðja sætið í deildinni. Ekki verður sagt að Atkinson hafí komið frá Atletiko á skyr- tunni einni. Hann fékk 150.000 sterlingspund í eigin vasa þegar hann skrifaði undir samninginn við spænska liðið og 100.000 pund til viðbótar í skaðabætur um helgina, alls 250.000 pund, eða um 22 millj- ónir króna. Þetta gerir, að hann hafði 2 milljónir og 288 þúsund krónur í Iaun á dag og ef reiknað er út hvað hann fékk að jafnaði fyrir hvern leik sem hann stjórnaði liðinu, en þeir voru 13 talsins. Fékk hann því 1 milljón, 692 þúsund og 240 krónur fyrir hvurn leik. Hann reið því spikfeitum hesti frá ævin- týrinu í Madrid. Krlstján Arason Þorglls Óttar Mathlesen HANDBOLTI B-KEPPNIN Fimm breyf ingar hjá Spánverjum Undirbúningur þeirra ekki mikill SPÁNVERJAR hafa valið lið sitt sem tekur þátt í B-keppn- inni í handknattleik í Frakk- landi (næsta mánuði. Fimm nýliðar eru í iiðinu frá því á Ólympíuleikunum í Seoul. Liðið kemur saman eftir helgi og mun spila fjóra æfingaleiki fyrir B-keppnina. 7. og 8. febrúar verða tveir leikir við unglinga- landslið Spánverja FráAtla og síðan tveir leik- Hilmarssyni jr við Rúmena 10. áSpáni og 12. febrúar. Undirbúningur liðsins er því ekki mikill ef miðað er við undirbúning íslenska lands- liðsins. Leikmenn hafa aðeins einu sinni áður komið saman eftir ólympíuleikana og var það t byrj- un janúar er liðið lék tvo leiki við sovéska landsliðið og tapaði þeim báðum. Spánveijar eru í B-riðli ásamt Frökkum, Austurríksimönnum og Brasilíumönnum. Þjálfari Spán- veija, Emilio Alanso, segist vera nokkuð bjartsýnn á að liðið kom- ist áfram í A-keppnina, en hræð- ist helst Frakka í riðlinum. Lið Spánverja er þannig skipað: Markverðir: Rico (Barcelona), Zuniga (Bidasoa) og Fort (Granollers). Aðrir leikmenn: Melo (Teka), Marin (Granollers), Garralda (Granollers), Reino (Caja Madrid), Papida (Barcelona), Hernida (Atletico Madrid), Novoa (Valencia), Serrano (Barcelona), Sagates (Barcelona), Cabanas (Teka), Ruiz (Teka), Puig (Granollers) og Luison (Caja Madrid). GETRAUNIR 1 X 2 RANNSOKNIR Ragnar Örn með í sjö- unda sinn Um helgina verður leikið í 4. umferð ensku bikarkeppninnar. Sjónvarpsleikurinn á morgun verð- ur viðureign Norwich og Sutton á Carrow Road í Norwich. Sutton, sem er utandeildarlið, kom mjög á óvart í 3. umferð er liðið sló bikar- meistara Coventry út. Ragnar Örn Pétursson, formaður ÍBK, er óstöðvandi og er nú með í sjöunda sinn í getraunaleik Morg- unblaðsins. Ragnar Örn hafði átta leiki rétta í síðustu viku, en Adólf Guðmundsson frá Seyðsifirði aðeins fimm og fellur því úr keppni. Guð- inundur Haraldsson, milliríkjadóm- ari, tekur við af Adolfi. 1 Leikir 28. janúar Aston Villa — Wimbledon X X Blackburn — Sheffield Wednesday X W 1 Bradford — Hull 1 1 tm (yí 2 Brentford — Manchester City 2 t$*j| * 2 Grimsby — Reading X fí. 'i ?e , 2 Hartlepool — Bournemoth X " 1 Norwich — Sutton 1 . 1 Nottingham Forest — Leeds 1 fy iyi 2 Plymouth — Everton 2 Wu á t 1 Sheffieid United — Colehester 1 I - 1 1 Stoke — Barnsley Swindon — West Ham X RAGNARÖRN 2 X GUÐMUNDUR Ragnar Örn Pétursson, formaður ÍBK, er nú með í getraunaleiknum sjöundu vikuna í röð. „Ég er að hugsa um að vera með tólf sinnum í röð þar sem ég tel mig ekki geta náð tólf leikjúm réttum. Guðmund- ur er verðugur andstæðingur og ef ég tapa fyrir hon- um er það vegna dómaramistaka í Englandi. Annars líst mér frekar illa á þennan seðil,“ sagði Ragnar Örn. Guðmundur Haraldsson, knattspyrnudómari, er einn harðasti stuðningsmaður Coventry á ís- landi. Hann er enn í sárum eftir að utandeilarliðið Sutton sló liðið út í síðustu umferð. „Það hefur verið þannig með mig að ef Coventry tapar er helgin ómögu- leg fyrir mig. Ragnari hefur gengið allt of vel, en nú kemur að því að hann dettur út,“ sagði Guðmundur. Styrkir frá ÍSÍ Heilbrigðis- og rannsóknarráð ÍSÍ veitir árlega styrki tii rannsóknarverkefna á sviði íþrótta, er tengjast læknisfræði, lífeðlis- fræði, sálarfræði, uppeldisfræði, félagsfræði eða tæknilegum verk- efnum. Einnig eru veittir styrkir til annarra rannsókna er hafa hagnýtt gildi fyrir íþróttir. Umsóknareyðu- blöð um þessa styrki eru afhent á skrifstofu ISI, en umsóknarfrestur rennur út 1. febrúar. NBA-úrslit Úrlsit í NBA-deildinni aðfara- nótt fimmtudags: Indiana Pacers — Boston Celtics 103:94 76ers — Chicago Bulls.120:108 Detroit — Golden State...105:104 Mavericks — L.A. Clippers.117:98 Utah Jazz — San Antonio.107:103

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.