Morgunblaðið - 07.02.1989, Page 1
56 SIÐUR B
31.tbl. 77. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovéski herinn yfirgefur
höfuðborg Afganistans
Fimm hundruð hermenn standa enn vörð um flugvöllinn í Kabúl
Termez. Reuter.
Á verði við Kabúl-flugvöll brostu
þessir sovésku hermenn við ljós-
myndara iíeuters-fréttastofúnn-
ar þegar þeim var sagt að sovésk-
ir fjölmiðlar hefðu greint frá því
að allir sovéskir hermenn væru
farnir frá höfúðborginni.
ANGÓLA
Namibe
NAMIBlA
\ Windhoek
Walvis Bay>
Keetmanshoop
Luderitz'
| Höföaborg
LANGAR herflutningalestir og skriðdrekar umvafðir rauðum borð-
um siluðust yfir landamæri Afganistans og Sovétríkjanna í gær. Að
sögn fréttaritara breska dagblaðsins Dally Telegraph mátti meðal
annars sjá 300 fallhlífahermenn með fölskvalaus bros á vör eftir
þriggja daga ferð frá Kabúl en þeir voru í fylkingarbrjósti í innrás-
inni árið 1979. Sovéskir sjónvarpsmenn biðu við landamærin en í
fjölmiðlum er brugðið upp þeirri mynd af brottflutningnum að sov-
ésk stjórnviska og friðelskandi heilbrigð skynsemi hafi borið sigur
úr býtum. Kór ungliða í kommúnistaflokknum söng um eilífan frið
með þjóðum heims, dáðir hermannanna, hollustu þeirra við Lenín
og visku kommúnistaflokksins. Pravda, málgagn sovéska kommúni-
staflokksins, greindi frá því í gærmorgun að síðustu sovésku her-
mennirnir væru farnir frá Kabúl og staðfesti Edúard Shevardnadze,
utanríkisráðherra Sovétríkjanna, staddur í Pakistan, þessar fregnir.
Fréttaritari Æeuíers-fréttastofunnar rakst hins vegar á fímm hundr-
uð sovéska hermenn sem gæta flugvallarins í höfúðborginni. Að-
spurðir sögðust þeir eiga að veija flugvöllinn uns flutningum á sov
éskum embættismönnum og birgðum væri lokið að fúliu 15. febrúar.
Að sögn talsmanna sovéska hers-
ins yfirgáfu 30.000 sovéskir her-
menn Afganistan frá ágústmánuði
í fyrra til þessa dags. Frá apríl í
fyrra til ágústmánaðar höfðu
Katrín o g
Raymond
Petit farin
frá Kabúl
Samkvæmt fréttum Reuters-
fréttastofunnar eru allir vest-
rænir sendiráðsstarfsmenn
farnir frá Afganistan ef undan
er skilinn ítalskur prestur sem
starfað hefur við ítalska sendi-
ráðið í Kabúl. í gær var flogið
með síðustu vestrænu sendi-
ráðsmennina til Nýju Delhí, höf-
uðborgar Indlands. íslensk
kona, Katrín Petit, var þar á
meðal ásamt eiginmanni sínum,
Raymond Petit, sem veitt hefur
franska sendiráðinu forstöðu
eftir að sendiherrann var kallað-
ur heim.
50.000 hermenn, eða tæpur helm-
ingur innrásarliðsins, haldið heim.
Samkvæmt því eru 20.000 hermenn
enn á leið út úr Afganistan.
í Ízvestíu, málgagni sovéskra
stjórnvalda, sagði í gær að Kabúl-
stjórnin byggi sig nú undir langt
umsátur. Svo virðist sem Sovét-
menn skilji hergögn eftir í stórum
stíl auk þess sem birgðum hefur
verið safnað af olíu og mat. I borg-
inni eru nú lítil ytri merki um níu
ára nærveru Sovétmanna nema ef
vera skyldu bifreiðar af Volgu- og
Moskovits-gerð, loðhúfur og Kal-
asníkoff-rifflar í höndum stjómar-
liða. Verslanaskilti á rússnesku
víkja meira að segja óðfluga fyrir
áletrunum á ensku.
Sovétmenn reyna nú hvað þeir
geta til að fá skæruliða til sam-
starfs við Najibullah forseta. í við-
tali í gær sagði Benazir Bhutto,
forsætisráðherra Pakistans, að
þessar tilraunir Sovétmanna væru
gagnslausar. Margir telja að Naji-
bullah undirbúi nú flótta frá landinu
áður en skæruliðar ná Kabúl á sitt
vald. í gær bárust svo þau skilaboð
frá Zahir, útlægum konungi Afgan-
istans, að hann væri tilbúinn að
taka við stjómartaumunum.
Sjá „Björgunartilraunir Sovét-
manna mistakast" á bls. 20.
Viðræður Samstöðu og pólskra stjórnvalda:
Kommúnisminn hef-
ur knésett Pólverja
- segir Lech Walesa í sjónvarpsræðu
Varsjá. Reuter.
VIÐRÆÐUR pólskra stjórnvalda
og Samstöðu um framtíð landsins
hófúst í Varsjá í gær. Við upphaf
viðræðnanna sagði Lech Walesa,
ieiðtogi Samstöðu, að kommún-
isminn hefði komið Pólvequm á
kné og víðtækar lýðræðisumbæt-
ur væru eina leiðin til að forða
Grænlendingar og Færeyingar:
Lausn fískveiðideilu í ausfsyn
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jöriren Bruun. fréttaritara MorcninhlAÖsins. ^ ^
Kaupmannahöfh. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
EFTIR fúnd Jonathans Motz-
feldts, formanns grænlensku
landsstjórnarinnar, og Jogvans
Sundsteins, hins nýja lögmanns
í Færeyjum, er útlit fyrir að
lausn á fiskveiðideilu Grænlend-
inga og Færeyinga sé í sjónmáli.
Motzfeldt sagði eftir fúndinn á
sunnudag að nýja lögþingið í
Færeyjum hygðist stöðva fisk-
veiðar Færeyinga við Namibíu.
Veiðamar hafa strítt gegn þeirri
stefnu Grænlendinga og Dana
að beita stjómvöld í Suður-
Afríku efnahagsþvingunum og
hafa Grænlendingar hótað því
að banna veiðar feereyskra skipa
í grænlenskri lögsögu.
í dág, þriðjudag, verður
Namibíu-málið tekið fyrir á fær-
eyska lögþinginu. Nýja landsstjóm-
Port Nolloth
SUÐUR-
AFRÍKA
KRGN
in í Færeyjum hefur lagt fram frum-
varp um bann við viðskiptum við
Suður-Afríku með því fororði að
aftur verið tekið upp viðskiptasam-
band við Namibíu þegar landið öðl-
ast sjálfstæði. Er stefnt að öðrum
fundi Motzfeldts og Sundsteins þeg-
ar lögþingið hefur afgreitt málið
og segist Motzfeldt vonast til að
það verði innan viku. í gærkvöldi
sagði Sundstein í viðtali við græn-
lenska útvarpið að til greina kæmi
að Færeyingar fengju þorskveiði-
kvóta við Grænland. Einnig hefði
verið rætt um að þeir fengju að
veiða loðnu austur af Grænlandi.
„Allir hljóta að skilja að Færeying-
ar verða að stunda sínar veiðar þar
sem kostur er, en nú er lausn á
deilu Færeyinga og Grænlendinga
í sjónmáli," sagði Sundstein.
algera hrani Iandsins. Ræðu Wal-
esa var sjónvarpað um gervallt
Pólland og lét verkalýðsleiðtog-
inn þau orð falla að Samstaða
myndi aldrei fallast á efnahags-
tillögur ríkisstjórnarinnar nema
stjórnarfar yrði samtímis fært í
lýðræðislegt horf.
Czeslaw Kiszczak hershöfðingi
tók á móti 25 manna sendinefnd
Samstöðu fyrir hönd stjórnvalda.
Kiszczak var innanríkisráðherra í
desember árið 1981 þegar verka-
lýðsfélagið var bannað. Nú er hann
aðalsamningamaður ríkisstjórnar-
innar. Búist er við að hinar lang-
þráðu viðræður taki sex vikur en
þær eru hinar fyrstu síðan kommún-
istastjómin reyndi að ráða niðurlög-
um Samstöðu með herlögunum fyrir
rúmum sjö árum.
Við upphaf fundarins var tveggja
Samstöðupresta, sem fundist hafa
myrtir undanfarnar vikur, minnst
með einnar mínútu þögn.
Walesa sagði í ávarpi sínu að
Pólland væri „í rústum vegna kerfis
sem rænir þegnana réttindum sínum
og sóar ávöxtum erfiðisins." Lög-
leiðing Samstöðu er eitt af umræðu-
efnunum og segja stjómvöld að hún
geti átt sér stað um leið og verka-
lýðsleiðtogar fallist á viðræður um
efnahags- og stjórnarfarsumbætur
og lýsi sig reiðubúna tii að taka
sæti á þingi. Tillaga stjómvalda um
að Samstaða myndi nokkurs konar
minnihlutastjórnarandstöðu á þingi
hefur vakið tortryggni og Walesa
hefur sætt gagnrýni fyrir að ljá
máls á slíku.
Thorkild
Hansen látinn
Kaupmannahöfn. Politiken.
DANSKI rithöfundurinn
Thorkild Hansen andaðist á
laugardag, 62 ára að aldri, af
völdum hjartaáfalls. Hansen
var staddur á Litlu-Antillaeyj-
um f Karíbahafi ásamt konu
sinni, Gitte Jæger.
Thorkild Hansen skrifaði
meðal annars bækumar Þræla-
ströndina og Þrælaeyjamar, sem
gefnar hafa verið út á íslensku
í þýðingu Gissurs Ó. Erlingsson-
ar (Ægisútgáfan), og Jens
Munk, sem Magnús Kjartansson
þýddi (Menningarsjóður). Meðal
þekktra verka hans em auk þess
Þrælaskipið og umfangsmikið
verk um Knut Hamsun.
■>