Morgunblaðið - 07.02.1989, Síða 4
4
MÓRGi/nBLAöÍð ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989
Grindavík:
58 björguðust úr
brennandi rútu
Eldurinn kom upp eftir að sprakk á afturdekki
Grindavik.
ELDUR kviknaði í rútubifreið á bifreiðastæði við félags-
heimilið Festi í Grindavík síðastliðið laugardagskvöld. 58
farþegar voru í rútunni og björguðust þeir allir giftusam-
lega úr henni.
Ókumaður rútunnar kvaðst
hafa verið nýkominn inn á bif-
reiðastæðið er hann tók eftir að
eldur var laus við aftari hjólbarða
rútunnar. Hann kvað farþega
hafa komist út úr rútunni vand-
ræðalaust en síðan hafí hann
með aðstoð félaga síns sem þeg-
ar var kominn á vettvang reynt
að ráða niðurlögum eidsins með
handslökkvitækjum sem voru til-
tæk en án árangurs. Kallað var
á aðstoð slökkviliðsins í
Grindavík sem kom skömmu
seinna á vettvang og slökkti eld-
inn.
Ökumaðurinn kvaðst ekki
gera sér grein fyrir upptökum
eldsins en svo virðist sem
sprungið hafí á afturdekkjum
rúturinar og stuttu seinna varð
hann eldsins var. Eldurinn komst
upp með hlið rútunnar og inn í
hana eftir að hliðarrúða sprakk
vegna hitans af honum og læsti
sig í tvö sæti sem brunnu auk
þess sem tvær aðrar sætaraðir
sviðnuðu. Ökumaður kvaðst ekki
gera sér grein fyrir frekari
skemmdum á rútunni. pó
Morgunblaðið/Frimann Ólafsson
Rútan er talsvert mikið skemmd eftir brunann.
Minni snjór
en heldur
meiri um-
hleyping-
ar en 1984
VEÐRÁTTAN að undanfömu er
mjög svipuð og vetuma 1983-
1984, 1982-1983, 1980-1981 og
1975-1976, að sögn Trausta Jóns-
sonar veðurfræðings. Svona um-
hleypingar era ekki algengir og
hafa ekki verið síðastliðin fimm
ár. í desember 1975 fóm 14
lægðir yfir landið og líklega er
lægðafjöldinn sem yfir landið
hefur gengið að undanförnu
svipaður.
Veturinn 1983-1984 var kaldari
en nú. Þá var meiri snjór og munar
þar nokkru. Aftur á móti eru um-
hleypingamir heldur meiri nú.
„Veðráttan nú er óvenjulegust
fyrir það hve margar lægðir hafa
gengið yfír landið. Þetta svipar til
veðursins 1975-1976. Þá stóðu
þessir umhleypingar yfír á fímmta
VEÐURHORFUR í DAG, 7. FEBRÚAR
YFIRUT I GÆR: Gert er róð fyrir stormi á Norður- Austur- Fær-
eyja- Suðaustur- Suður- og Suðvesturdjúpi. Skammt aust-norð-
austur af landinu er 958 mb lægð sem fyllist og hreyfist í noröaust-
ur átt, önnur lægð fremur aðgerðarlítil er um 400 km vestsuð-
vestur af Reykjanesi. Norðan og vestan-hvassviðri. 6-8 stiga frost,
en mun minna frost fyrir sunnan og austanlands.
SPÁ:Suð-vestan kaldi um sunnanvert landið en norö-austan stinn-
ingskaldi á annesjum norðanlands. Él um vestanvert landið, á ann-
esjum norðanlands og austur með Suðurströndinni en nokkuð bjart
veður á austurlandi. Frost 1-7 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Fremur hæg sunnanátt. Dálítil snjókoma
á Suður- og Vesturlandi. En að mestu bjartviðri í öðrum lands-
hlutum. Frost 6-7 stig.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Suð-austan hvassviðri víða rigning eöa
slydda sunnan og austanlands, en úrkomulítið annars staðar. Hiti
3-4 stig.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
•|0' Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V
Él
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
EE Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gœr að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hltl +3 +1 veður snjókoma enjóél
Bergen 8 rignlng og súld
Helsinki 2 rigning
Kaupmannah. 9 alskýjaö
Narsaarssuaq +7 lóttskýjaö
Nuuk +12 snjókoma
Osló 10 skýjaö
Stokkhólmur 8 skýjað
Þórshöfn 3 snjóél
Algarve 14 helðsklrt
Amsterdam 12 léttskýjaft
Barcelona 8 þokumóða
Bertln 12 heiftsklrt
Chicago +19 skýjaft
Feneyjar 2 þoka
Frankfurt 7 þokumófta
Glasgow 11 rigning
Hamborg 10 alskýjað
Las Palmas 19 hálfskýjað
London 14 léttskýjsö
Los Angeles 4 heiðskfrt
Lúxemborg 6 þoka
Madrfd 9 heiftskfrt
Malega 18 skýjsft
Mallorca 16 skýjsft
Montreal +7 snjókoma
New York +3 snjókoma
Orlando 17 léttskýjað
Paris 9 skýjað
Róm 13 þokumófta
San Dlego S skýjaft
Vln 9 akýjaft
Waehington 0 úrkoma
Winnlpeg +13 anjókoma
Særún selur í Hull
VÉLBÁTURINN Særún frá Eyr-
arbakka er nú komin til Englands
og verður aflinn seldur í Hull í
dag. Um er að ræða tæp 90 tonn
af blönduðum afla, ýsu og þorsk.
Særún fékk á sig brotsjó skaammt
frá Færeyjum i síðustu viku á leið
sinni til Englands með þeim afleið-
mgum að siglingartæki skemmdust.
í Þorshöfn var settur nýr radar og
nýtt lórantæki um borð og sigling-
unni síðan haldið áfram til Englands.
mánuð. Síðan kom smá hlé um vor-
ið og svo héldu þeir áfram allt
sumarið til ágústloka.
Það væri óvenjulegt ef þetta veð-
ur héldist fram á vor, en enn sem
komið er er þetta innan þeirra
marka sem má búast við öðru
hvoru. Á undanfömum árum hefur
verið lítið um umhleypinga af þessu
tagi. Að vísu var júnímánuður í
fyrra svipaður, þá fóru að minnsta
kosti 10 eða 12 lægðir yfír landið,"
sagði Trausti.
Hiti á landinu hefur verið rétt
ofan við meðallag, en aldrei hefur
mælst minna sólskin en í janúar
síðastliðnum, samtals tvær stundir.
Tveir menn á vél-
sleða í jökulsprungn
Höfii, Hornafírði
TVEIR menn á vélsleða, Gísli Geir Sigiujónsson og Kristján Frið-
riksson, lentu ofan í grunna sprungu á Skálafellsjökli í Vatna-
jökli sfðastliðinn laugardag og sluppu ómeiddir. „Ég hugsaði
mest um að halda í sleðann enda fallið lítið og stóð stutt,“ sagði
Geir. „Þeim brá ömgglega meira sem komu á eftir okkur,“ bætti
hann við.
Það var um hádegi á laugardag,
að fjórir menn lögðu á Skálafells-
jökul til að huga að snjóbíl og snjó-
sleðum, sem Jöklaferðir hf. eiga
upp við jökul á Þormóðshnútu.
Hugmyndin var að flytja tækin
niður í byggð. Ferðalöngum gekk
vel á sleðunum upp á jökul og að
skála Jöklaferða. Hinsvegar gekk
þeim ver að koma bíl og sleðum í
gang.
Þegar leið á daginn var veðurút-
lit verra og um fimmleytið skall á
skafrenningur en þá voru ferða-
langamir þegar á niðurleið.
Skyggni var ekkert og misstu þeir
af slóðinni frá því um morguninn
en ákváðu að halda niður talsvert
vestar en þeir höfðu komið upp.
Þá lenti fremsti sleðinn í einu
sprungunni á leiðinni og varð það
um þriggja til fjögurra metra fall.
Þeir tveir sem féllu í sprunguna
náðust strax upp. Var þá ákveðið
að halda til baka í skálann og sitja
veðrið af sér þar.
Um klukkan fjögur aðfaranótt
sunnudags komu björgunarsveitar-
menn frá Höfn á vettvang eftir að
ættingjar höfðu tekið að óttast um
ferðafélagana. Allir voru þeir vel
búnir en vantaði fjarskiptatæki.
Höfðu þó vonast til að ljós sæist
frá skálanum, sem sýndi að allt
væri í lagi hjá þeim. Sáu menn ljós-
in en töldu þau merki þess að eitt-
hvað væri að.
Þegar björgunarsveitarmennim-
ir vom komnir á staðinn var haldið
að sprungunni og sleðanum náð
upp óskemmdum og tók það um
tvær klukkustundir. Allt endaði vel
og vom allir komnir niður af jökli
um kl. 11 á sunnudagsmorgun og
fram komu þeir með tvo snjósleða
og snjóbíl. JGG
Ólafsvík:
Mesta gæftaleysi í mörg ár
TÍÐARFAR hefiir verið með eindæmum erfitt til sjósóknar það sem
af er vetrarvertíð. Þarf að leita mörg ár aftur í tímann til að finna
samjöfnuð. Bátarnir hafa þvi lítið getað lagað sig til við veiðaraar
og hefur sóknin því aðallega verið
Heildaraflinn í janúar er hér í
Ólafsvík 1.275 lestir. Aflahæstur
línubáta er Garðar II, með 104 tonn
í 13 sjóferðum. Matthildur er hæst
netabáta, með 77 tonn með 23 sjó-
ferðum. Auðbjörg hefur aflað best
dragnótabátanna, fengið 52 tonn í
13 sjóferðum. Afli smábáta er ein-
ungis 46 tonn í 51 róðri. Þá hefur
togarinn Már landað 133 tonnum
úr tveimur sjóferðum.
stutt útskot á grunnslóðir.
Vegna ótíðarinnar og tregs afla
hefur atvinna verið í lágmarki. Ekk-
ert atvinnuleysi er þó hér.
Til landsins hefur veðráttan einnig
verið leiðinleg. Ekki hafa verið hörð
veður en snjóspýjur og skafrenning-
ur úr öllum áttum, með tilheyrandi
ófærð, einkum tvær síðustu vikum-
ar.
Helgi