Morgunblaðið - 07.02.1989, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989
Kabúl-stjórnin í Afganistan:
Bj örgunartilraunir
Sovétmanna mistakast
Ferð Shevardnadze til Pakistan varð árangnrslaus
Islamabad. Nikósfu. Reuter.
TILRAUNIR, sem Edúard Shevardnadze, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, gerði um helgina til að koma í veg fyrir að skæru-
liðar í Afganistan réðu niðurlögum leppstjórnar Sovétmanna i
Kabúl með hervaldi virðast hafa mistekist. Ráðagerðir um fúnd
ráðherrans og afganskra skæruliðaleiðtoga í Pakistan voru lagð-
ar á hilluna og bar Shevardnadze tímaskorti við en skæruliðar
segja ástæðuna kröfúr þeirra þess efnis að Sovétmenn hætti
öllum stuðningi við stjórn Najibullas í Kabúl. A sunnudag undir-
rituðu fulltrúar átta afganskra skæruliðahópa í íran og sjö
hópa með bækistöðvar i Pakistan samning um undirbúning valda-
töku í Afganistan að loknum brottflutningi sovéskra hermanna
frá landinu.
Félagar skæruliðahópa með
bækistöðvar í íran eru flestir
shítar en hópamir í Pakistan
súnnítar. Hafa þeir, að sögn út-
varpsins í höfuðborg írans, Teher-
an, orðið ásáttir um skiptingu
sæta á ráðgefandi samkundu allra
hópanna, svonefndri shura, er
Bretland;
Sfjórnin sögð
styðja kyn-
þáttastefnuna
London. Reuter.
SAMTÖK sem betjast gegn kyn-
þáttaaðskilnaðarstefhu suður-
afrískra stjórnvalda (AAM) birtu
í gær skýrslu þar sem breska
stjórnin er sökuð um að ljá að-
skilnaðarstefnunni stuðning
í skýrslunni segja samtökin, sem
hafa bækistöðvar í London, að
breska ríkisstjómin hafi reynt „eft-
ir mætti" að stuðla að viðskiptum
við Suður-Afríku og reynst bresk-
um fyrirtækjum innan handar með
upplýsingar um markaði þar.
Því er einnig haldið fram að við-
skipta- og iðnaðarráðuneytið hafi
hvatt bresk fyrirtæki til að taka
þátt í gasvinnslu út af strönd Suð-
ur-Afríku.
koma skal saman 10. febrúar til
að setja saman bráðbirgðastjóm í
Afganistan. Aðstoðamtanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, Júlíj Vor-
ontsov, ræddi málefni Afganistan
um helgina við Ali Akhbar Velay-
ati, utanríkisráðherra írans, og
Ali Khameini forseta. Teheran-
útvarpið sagði Vorontsov og
íranska ráðamenn hafa verið sam-
mála um nauðsyn þess að koma í
veg fyrir blóðbað eftir brottför
Sovéthersins frá Afganistan.
„Báðir aðilar minntu á svipuð við-
horf ríkjanna og þá samvinnu sem
nú ætti sér stað milli írans og
Sovétríkjanna, hvortttveggja ná-
grannalönd Afgana, en samvinna
ríkjanna væri mikilvæg fyrir þenn-
an hluta heims," sagði útvarpið.
Fjöldi sovéskra hermanna hélt
í gær yfir landamærin frá Afgan-
istan til sovésku borgarinnar
Termez og vestar voru tveir fjöl-
mennir hópar á leið til Kushka.
Skæmliðar hafa ekki áreitt sov-
éska herliðið á leið þess út úr
landinu en Sovétmenn hafa misst
lið í snjóflóðum og skæmliðaárás-
um á önnur skotmörk, þ.á m. olíu-
leiðslur, að sögn sovéska flokks-
málgagnsins Prövdu. Ljóst virðist
að mujahedin-skæmliðamir í Afg-
anistan hafí lítinn áhuga á friðar-
viðræðum við Sovétmenn og Kab-
úl-stjómina þar sem þeir telja sig
geta velt leppstjóm Najibullas úr
sessi fljótlega eftir að síðustu Sov-
étmennimir verða á brott frá borg-
inni. Erlendir stjómarerindrekar
Vökvamótorar
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIPJÓNUSTA - LAGER
segja að aðeins eitt gæti knúið
skæmliða til samninga við Kabúl-
stjómina; það væri sú ákvörðun
Bandaríkjastjómar að stöðva
vopnasendingar til þeirra um Pak-
istan.
Shevardnadze viðurkenndi á
blaðamannafundi fyrir brottför
sína frá Pakistan að sér hefði ekki
tekist að fá Pakistanstjóm til að
tryggja að vopnasendingar til
skæmliða yrðu stöðvaðar um leið
og Sovétherinn væri á brott frá
Afganistan. Ráðherrann hét
áframhaldandi stuðningi við Kab-
úlstjómina. „Enginn hefur uppgjöf
í huga,“ sagði hann. „En brott-
flutningur herliðsins má ekki leiða
til borgarastyrjaldar. Það verður
að fínna pólitíska lausn sem stöðv-
ar bræðravígin," bætti hann við.
Ef blóðsúthellingum linnti ekki
yrðu Sovétmenn að minnast þess
að þeir hefðu „skyldur að rækja í
Afganistan." Hann útskýrði ekki
nánar til hvaða ráða stjóm hans
myndi grípa en sagði þó að hún
hefði ekki í hyggju að senda her-
lið til landsins á ný.
Reuter
Friðarsamningar voru gerðir í Genf á síðasta ári þar sem ákveðið
var að allt sovéskt herlið yrði á brott frá Afganistan 15. febrúar á
þessu ári. Mujahedin-skæruliðar, sem barist hafa gegn sovéska innr-
ásarliðinu og leppstjórninni í Kabúl í níu ár, voru ekki aðilar að
samningunum og er búist við að Kabúl falli í hendur þeirra innan
skamms. A myndinni sjást tvær konur, liðsmenn í sérstöku kvenna-
herliði Kabúlstjórnarinnar, vopnaðar sovéskum AK-47 hríðskotariffl-
um, á Qöldafúndi í Kabúl á sunnudag.
Reiði og tortryggni stuðl-
ar að hjartasjúkdómum
-segir bandarískur sálfræðingur
New York Times ^
FIMM sinnum meiri líkur eru á því að heiftúðugt og tortrygg-
ið fólk deyi áður en það nær fímmtugsaldri en þeir sem ró-
lyndir eru að eðlisfari og fúllir trúnaðartrausts, að sögn sál-
fræðingsins dr. Redfords B. Williams, prófessors við lækna-
miðstöðina í Duke-háskóla f Durham, Norður-Karólfnu í
Bandaríkjunum. Hann segir að þessar niðurstöður sanni enn
frekar að svonefíidri A-manngerð —óðamála vinnusjúklingum
sem ávallt eru að flýta sér — sé ekki hættara við að deyja
innnn fimmtugsaldurs af völdum hjartasjúkdóma en öðrum
mönnum. Hann segist hafa fært sönnur á það með rannsókn
sinni að önuglyndu fólki sé hættari við að deyja fyrir aldur
fram af völdum hvaða sjúkdóms sem er.
Á sjötta áratugnum settu
hjartasérfræðingamir dr. Meyer
Friedman og dr. Ray Rosenman
fram þá kenningu að einstakling-
um í A-hegðunarhóp væri tvisvar
sinnum hættara við hjartasjúk-
dómum en einstaklingum í B-
hegðunarhóp. En strax á sjöunda
áratugnum orkaði kenning
þeirra tvímælis því margar rann-
sóknir sem gerðar höfðu verið
bentu síst til þess að hjartasjúk-
dómar legðust frekar á einstakl-
inga í A-hegðunarhópi.
„Við getum sagt það með
nokkurri vissu að þeir, sem til-
heyra A-hegðunarhóp og jafn-
framt hafa tilhneigingu til reiði-
kasta og eru tortryggnir að eðlis-
fari, eru í áhættuhópi," segir dr.
Williams.
Hann byggir niðurstöður sínar
á fjölmörgum rannsóknum, þar
á meðal rannsókn á 118 lögfræð-
ingum sem stóð yfír í 25 ár. •
Dánartíðni fyrir fímmtugsaldur
meðal þeirra sem voru annálaðir
skapofsamenn reyndist fímm
sinnum hærri en starfsbræðra
þeirra sem voru geðprúðari.
Fólk tjáir reiði. sína og tor-
tryggni í daglegri umgengni,
segir dr. Williams. Margir reiðast
heiftarlega eða fyllast óróa þegar
þeir standa við hrað-afgreiðslu-
kassa í verslun og sjá að við-
skiptavinurinn á undan er með
fleiri vörutegundir en heimilt er
við þennan tiltekna kassa. Önug-
lynda manngerðin lætur sér ekki
nægja að komast í uppnám,"
segir Williams,„heldur tekur hún
til sinna ráða.“
Svo virðist sem geðstirt og
geðgott fólk hafí taugakerfí sem
starfar á ólíkan hátt í grundvall-
aratriðum. Þegar geðgóður ein-
staklingur verður fyrir áreiti og
kemst í uppnám þá virkar par-
asympatíska taugakerfíð „eins
og lítil skeiðklukka," segir dr.
Williams og heift einstaklingsins
fjarar út. Parasympatíska tauga-
kerfið í geðstirðum einstaklingi
virðist á hinn bóginn vera veik-
byggðara; sá einstaklingur er
lengur í óþægilegu uppnámi og
bregst þar af leiðandi á allt ann-
an hátt við áreiti í umhverfínu.
Þessi einkenni koma I ljós strax
á fyrstu árum ævinnar.
Geðstirt fólk undir álagi hefur
hærri blóðþrýsting en geðgott
fólk og það getur valdið
skemmdum á hjarta og æða-
kerfí, að sögn dr. Williams.
„Ég held að við ættum að láta
kenninguna um A-hegðunarhóp
lönd og leið,“ segir dr. Williams.
„Ekkert rennir stoðum undir það
að A-manngerð sé hættara við
dauða fyrir aldur ffarp. Hins
vegar bendir margt til þess að
önuglynt fólk megi vara sig.“
DBASE ni 13.-16. fébrúar Kl. 9-13
Kennd veröur uppsetning gagnasafna, skráning gagna og úrvinnsla, samsetning gagnasafna,
útreikningar, prentun o.fl.
Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá Ásrúnu Matthíasdóttur
Einari J. Skúlasyni hf. Grensásvegi 10, sími 686933.
Tölvuskóli Einars J. Skúlasonar hf.
i
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
i