Morgunblaðið - 07.02.1989, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989
21
Sky Channel í Bretlandi:
„Öld gervihnattasjón-
varps gengin í garð“
- sagði Rupert Murdoch er útsendingar hófiist
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frím
ÚTSENDING fyrstu gervi-
hnattastöðvarinnar, Sky, hófst
síðastliðinn sunnudag klukkan
18. Rupert Murdoch, eigandi
stöðvarinnar, sagði, að nú væri
öld gervihnattasjónvarps geng-
in í garð og einokun i sjón-
varpsmálum þar með endanlega
aflétt.
Það eru ekki nema átta mánuð-
ir, frá því að Murdoch lýsti yfir
áhuga sínum á að hefja þennan
sjónvarpsrekstur. Kostnaðurinn
fram til þessa er 25 milljónir punda
eða ríflega tveir milljarðar
íslenskra króna. Fjórar rásir eru á
stöðinni: Ein fréttarás, sem flytur
fréttir og fréttatengt efni 24 tíma
á sólarhring; ein íþróttarás; ein
issyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
kvikmyndarás; og ein rás með
skemmtiefni. Síðar á árinu bætast
við tvær rásir, önnur með bama-
efni, hin með efni um listir. í einni
svipan hefur fjöldi sjónvarpsrása
í Bretlandi tvöfaldast.
Um 600.000 heimili á Bretlandi
og írlandi gátu séð upphafsútsend-
inguna í kapalstöðvum eða með
sérstökum móttökudiskum.
Murdoch gerir sér vonir um, að í
lok ársins geti tvær milljónir heim-
ila séð útsendingamar. Þótt hann
nái þessu marki, er talið, að halli
á rekstrinum fyrsta árið verði 150
milljónir punda, eða ríflega 13
milljarðar Isl. kr., og stöðin fari
ekki að skila hagnaði fyrr en eftir
tvö til þijú ár.
Erfiðlega hefur gengið að fram-
Grænland:
Borgarstjóri býður
sig fram á sérlista
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgnnblaðsins.
HENRIK Lund, borgarstjóri í
Julianeháb, einn af forystumönn-
um Siumut, grænlenska stjórnar-
flokksins, hefúr tilkynnt úrsögn
sína úr flokknum. Jafnframt seg-
ist hann ætla að bjóða sig fram
á lista óháðra borgara í sveitar-
stjórnakosningunum 4. apríl
næstkomandi.
Ástæðan fyrir úrsögninni er ágrein-
ingur borgarstjórans við formann-
inn í flokksdeild Siumut í Juliane-
háb. Lund sakar formanninn um
að fara leynt með atburði, sem
gerst hafa innan dyra í ráðhúsinu.
Hefur borgarstjórinn óskað eftir
því, að formaðurinn, Per Lynge,
láti af störfum. Henrik Lund er
ræðismaður íslands á Suður-Græn-
landi.
Sektaður fyrir
smáfiskadráp
Skipstjóri vestur-þýska togarans
Hannover var nýlega dæmdur til
greiðslu 60.000 danskra króna
(u.þ.b. 444.000 ísl. kr.) sektar fyrir
ólöglegar þorskveiðar við vestur-
strönd Grænlands. Auk þess var
afli skipsins gerður upptækur.
Það var danska eftirlitsskipið
Agpa, sem kom með togarann til
lands á þriðjudag. í ljós kom, að í
aflanum voru 15 tonn af þorski
undir 40 sm lágmarksstærð.
Skipstjórinn viðurkenndi brot sitt
og samþykkti að greiða sektina.
Þá var aflinn, um 60.000 d. kr. að
verðmæti, gerður upptækur.
Hækkuðu farm-
gjöld um 9,5%
Grænlandsverslunin hækkaði
farmgjöld á flutningaleiðinni frá
Danmörku til Grænlands hinn 1.
febrúar síðastliðinn. Farmgjöldin
frá Grænlandi til Darimerkur verða
óbreytt.
Grænlandsverslunin hefur einok-
un á farmflutningum frá Danmörku
til Grænlands. Flemming Bolo,
framkvæmdastjóri Grænlandsversl-
unarinnar, segir, að hækkunin hafi
verið óhjákvæmileg, af því að um-
fang flutninganna hafi dregist sam-
an á sama tíma og tilkostnaður
hafi aukist.
Israel:
Palestínumenn
felldir á Gaza
Jerúsalem. Reuter.
ÍSRAELSKIR hermenn skutu
þijá Palestínumenn til bana á
Gaza-svæðinu um helgina og
særðu ekki færri en 50. Þá voru
fimm vopnaðir Palestínuskæru-
liðar felldir á mörkum í Suður-
Libanon á sunnudag en þeir
hugðust ráðast gegn ísraelskum
hermönnum.
Stjórnvöld í ísrael héldu því
fram í gær að Frelsissamtök Pa-
lestínu (PLO) hefðu brotið gegn
skilyrðum þeim sem Bandaríkja-
stjóm hefur sett fyrir viðræðum
við fulltrúa samtakanna með því
að senda vopnaða menn að landa-
mærum ísraels. Talsmaður PLO
sagði þetta ekki rétt vera. Pal-
estínumönnunum fimm hefði verið
falið að gera árásir á ísraelska
hermenn og því hefði för þeirra
verið hemaðarlegs eðlis og slíkt
væri ekki unnt að telja til hryðju-
verka enda hefðu samtökin for-
dæmt þau. Moshe Arens, utanrík-
isráðherra ísraels, sagði hins veg-
ar að mennimir hefðu ætlað að
láta til skarar skríða gegn óbreytt-
um borgurum en rökstuddi ekki
þessa fullyrðingu sína.
Miklar óeirðir brutust út í aust-
urhluta Jerúsalemborgar í gær og
beittu ísraelskar lögreglusveitir
háþrýstidælum, gúmmíkúlum og
táragasi til að dreifa mannfjöldan-
um. Athygli vakti að grænu litar-
efni hafði verið blandað saman við
vatnið til a(\ unnt væri að bera
kennsl á þá sem þátt tóku í mót-
mælunum og handtaka þá. Heim-
ildarmenn Reuters-fréttastofunn-
ar sögðu lögreglusveitimar hafa
beitt óvenju kröftugum vatns-
dælum og nefndu sem dæmi að
rúður hefðu látið undan vatns-
þrýstingnum.
Reuter
Rupert Murdoch hlýðir á útskýringar Andrews Neils, framkvæmdastjóra Sky-stöðvarinnar, þegar útsend-
ing hófst á sunnudag.
leiða diska fyrir gervihnattasjón-
varpið. Murdoch sagði það vera
sér að kenna fyrst og fremst.
Hann hefði tilkynnt framleiðend-
um í lok síðasta árs, að þeir þyrftu
að hafa lykla með diskunum,
vegna þess að hann yrði að læsa
kvikmyndarásinni og barnará-
sinni. Hann hafði ætlað að hafa
báðar þessar rásir opnar tvö fyrstu
árin, en kvikmyndaframleiðendur
hefðu neitað að selja honum mynd-
ir í ólæstar rásir. Það hefði seink-
að framleiðslu diskanna.
Amstrad-fyrirtækið hefur sagt, að
frá og með apríl muni það geta
framleitt 100.000 diska á mánuði.
Andrew Neil, framkvæmda-
stjóri Sky-stöðvarinnar, sagði á
sunnudag, að nokkru fleira fólk
mundi sjá útsendingar Sky en
BBC, þegar það hóf göngu sína
árið 1937, en þá voru aðeins til
200 sjónvarpstæki í Bretlandi.
KEFLAVIK
m,
Pétur Reimarsson
Jón Magnússon
Páll Kr. Pálsson
UPPBYGGING IÐNAÐAR
í DREIFBÝLI
Iðnlánasjóður gengst nú fyrir fundum
um uppbyggingu iðnaðar í dreifbýli.
Að þessu sinni:
■ 9. febrúar í KEFLAVlK
Flug Hótel kl. 20.30.
■ Markmið fundanna er: ■■■■■■■■■
að kynna starfsemi Iðnlánasjóðs fyrir stjórn-
endum fyrirtækja og fulltrúum atvinnullfs f
dreifbýli,
að vekja áhuga stjórnenda fyrirtækja á
nýsköpun, sameiningu fyrirtækja og samstarfi
þeirra.
Lögð verður áhersla á þessa málaflokka:
Lánafyrirgreiðslu, vöruþróun, markaðsmál,
tækni, afkastagetu, söluaðferðir, dreifileiðir
og samstarf við önnur fyrirtæki.
■ Dagskrá:
1. Kynning á starfsemi Iðnlánasjóðs og þeirri
fyrirgreiðslu sem Iðnlánasjóður veitir fyrirtækj-
um.
Bragi Hannesson, bankastjóri.
2. Fyrirlestur um markaðsathuganir og mat á
markaðsþörf.
Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri.
3. Fyrirlestur um vöruþróun.
Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri.
4. Fyrirlestur um samstarf og samruna fyrirtækja.
Pétur Reimarssön, framkvæmdastjóri.
5. Fyrirlestur um arðsemismat á
hugmyndum.
Jafet S. Ólafsson, útibússtjóri.
Gert er ráð fyrir að hver fyrirlestur taki 20-30
mínútur. Fundarstjóri verður Jón Magnússon,
formaður stjórnar Iðnlánasjóðs.
VIÐ HVETJUM ALLA ÞÁ SEM MÁLIÐ VARÐAR TIL AÐ KOMA.
<Ö>
IÐNLÁWASJÓÐUR
ÁRMÚLA 7, 108 REYKJAVlK, SÍMI 680400