Morgunblaðið - 07.02.1989, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 07.02.1989, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989 Jóhannes Jóhannsson frá Bæ — Minning Fæddur 29. ágúst 1905 Dáinn 29. janúar 1989 Margs er að minnast, margt hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Sb. 1886 - V. Briem) Mig langar til þess að minnast afa míns, Jóhannesar Jóhannssonar frá Bæ, með örfáum fátæklegum orðum. Hann lést sunnudaginn 29. janúar sl. á St. Jósefsspítala í Hafn- arfírði. Afí hafði átt við veikindi að stríða um langan tíma og þegar við bættust frekari veikindi í lok október sl. þá var ekki aftur snúið. Gangan langa og stranga var hafín og henni lauk ekki fyrr en fyrr- nefndan sunnudag. Jóhannes Jóhannsson fæddist 29. ágúst 1905 á Kirkjubóli í Múla- hreppi í A-Barðastrandarsýslu. Hann var sonur hjónanna Jóhanns Sigurðssonar og Guðrúnar Bær- ingsdóttur, húsráðenda þar. Jóhann faðir hans var sonur hjónanna Sig- urðar Jónssonar og Jóhönnu Magn- úsdóttur, sem lengst af bjuggu að Múla í Þorskafírði. Guðrún móðir hans var dóttir hjónanna Bærings Jóhannessonar og Valgerðar Ara- dóttur. Jóhannes átti 13 systkini, 8 al- systkini og 5 hálfsystkini. Öll kom- ust þau til fullorðinsára, utan tveir hálfbræður hans sem dóu ungir. Jóhannes var elstur alsystkina sinna, en hálfsystkini hans voru eldri. í dag eru 5 alsystkini hans og ein hálfsystir enn á lífí. Á unglingsárum sínum veiktist Jóhannes. Hann þurfti að leita sér "iækninga, sem þá var að fá í Reykjavík. Þar var hann nokkra vetur, en heima í Múlasveit á sumr- in. Samhliða því, að sækja þjálfun vegna veikinda sinna, fór hann fljót- lega að vinna með. Starfaði hann aðallega við smíðar, en hann þótti afar lagtækur smiður. í Reylqavík kynntist hann upphafi kreppuár- anna og þeim hörmungum sem þeim fylgdu. Síðar minntist hann oft á hið mikla atvinnuleysi og hina miklu baráttu um atvinnu sem þá var. Það var einlæg von hans að við ísiendingar myndum aldrei þurfa að upplifa slíka tíma aftur. Þann 24. nóvember 1936 gekk Jóhannes að eiga eftirlifandi eigin- konu sína, Guðrúnu Steinunni Kristjánsdóttur, ljósmóður (f. 1. nóv. 1912). Guðrún er dóttir hjón- anna Engilberts Kristjáns Arasonar og Guðmundínu Guðmundsdóttur, frá Illugastöðum í Múlasveit. Lítið var um jarðnæði í sveitinni á þessum árum og hófu þau Jóhann- es og Guðrún því ekki búskap fyrr en um vorið 1938. Þá fengu þau hálfa jörðina Bæ, í Múlasveit, til búsetu og skömmu seinna keyptu þau alla jörðina. Hjónin hófu þá þegar, árið 1938, uppbyggingu jarðarinnar, byggðu þar upp hús og ræktuðu upp og stækkuðu tún verulega. Var alla tíð mikill mynd- arbragur á búskap þeirra, þrátt fyrir þrálát veikindi Jóhannesar, og einstök snyrtimennska einkenndi búskapinn í Bæ. Jóhannes hóf að stunda smíðar áður en hann hóf búskap í Bæ og hélt þeim svo áfram samhliða bú- störfum. Hann þótti framúrskar- andi smiður og handlaginn með afbrigðum. Hann smíðaði jafnt hús sem húsgögn, fyrir sjálfan sig, sem og aðra. Aldrei gekk hann þó í skóla til að læra þessa iðn og eru afrek hans á þessu sviði því meiri fyrir bragðið. Búskaparárín í Bæ voru þeim hjónum erfið á margan hátt. Fljót- lega kom í ljós, að veikindi sem hijáð höfðu Jóhannes á unglings- árum hans háðu honum enn. Þau gerðu það að verkum, að hann átti bágt með að vinna alla erfiðisvinnu og náði ekki fullum styrk aftur. Þau hjónin áttu því láni að fagna á þess- um árum, að búa í nábýli við skyld- fólk sitt. Það veitti þeim ómetanlega hjálp þegar erfíðleikar steðjuðu að. Aðstæður fyrir vestan á þessum árum voru allt aðrar en þær sem við þekkjum nú á dögum. Samgöng- ur voru erfiðar, hvorki vegir né bílar, ekki sími og ekki rafmagn. Sökum starfs síns, sem ljósmóðir sveitarinnar, þurfti Guðrún oft að vera langdvölum fjarri heimili sínu, stundum svo dögum eða jafnvel vikum skipti. Þessir tímar voru eðli- lega erfíðir fyrir Jóhannes, sem stundum fékk ekki einu sinni frétt- ir af konu sinni allan þann tíma sem hún var í burtu. Oftlega þurfti hún að fara að heiman í vonskuveðri og Jóhannes hafði engar fréttir um það, hvort hún hefði náð alla leið eða ekki, fyrr en hún kom aftur. En sem betur fer fór ætíð betur en á horfði. Jóhannes og Guðrún eignuðust þijú böm; Snorra Rafn f. 1937, kvæntur Guðrúnu Hafliðadóttur, Jóhann Gunnar f. 1938, kvæntur Sóleyju Sveinsdóttur og Kristjönu Guðmundínu f. 1941, gift Hjalta Einarssyni. Bamaböm þeirra em nú 11 talsins og 1 bamabamabam. Afkomendur þeirra eru nú allir búsettir í Hafnarfirði. Heilsu Jóhannesar hrakaði með ámnum og upp úr 1960 ágerðust veikindi hans enn. Þau hjón bmgðu því búi árið 1962 og fluttust suður til Hafnarfjarðar ásamt bömum sínum og hafa búið þar síðan. Fyrstu árin bjuggu þau í sambýli við böm sín, sem enn vom ógift. Þegar bömin fluttu að heiman fylgdu þau Jóhannes og Guðrún dóttur sinni og tengdasyni og hafa búið hjá þeim síðan, í lítilli íbúð út af fyrir sig. Jóhannes hélt áfram smíðum eft- ir að þau fluttu suður, sér til ánægju og yndisauka. Smíðaði hann þá aðallega ýmsa smáhluti. Svo fór að hann þurfti einnig að hætta smíðun- um. Hann Jóhannes, afí minn, var hæglátur maður, sem átti það þó til, að vera hrókur alls fagnaðar þegar sérstaklega vel lá á honum. Hann fann til með öllum þeim sem þjáðust. Hann var einstakt snyrti- menni, en snyrtimennskan var hon- um í blóð borin og henni hélt hann fram á síðustu stundu. Afí minn var gestrisinn og gjafmildur og hafði alltaf jafngaman að því að fá gesti í heimsókn. Hann var vinur vina sinna og reyndist öllum vel, sem til hans þurftu að leita. Afí minn var ávallt þakklátur fyrir það sem gert var fyrir hann. Skipti þá ekki máli hvort um var að ræða stórt eða smátt viðvik. i þau fáu skipti sem ég hafði tæki- færi til að hjálpa honum með eitt- hvað þakkaði hann mér það eins og um stórvirki hefði verið að ræða. Það sama gilti um alla þá sem rétt höfðu honum hjálparhönd í gegnum tíðina. Afi minn hafði mjög mikla hæfí- leika á sviði frásagna. Hann gat lýst löngu liðnum atburðum, jafnvel áratuga gömlum, svo vel að þeir birtust manni ljóslifandi fyrir sjón- um. Hann hafði einnig mjög gott minni sem hann fékk að halda fram á síðustu daga. Mig langar til að þakka honum afa mínum fyrir samfylgdina í gegnum þau ár sem ég átti með honum. Eg átti því láni að fagna, að alast upp í nábýli og síðar sam- býli við hann fyrsta áratug minnar ævi. Á þessum árum bundumst við sterkum böndum, sem síðan hafa stöðugt styrkst. Þessi tryggðarbönd munu aldrei bresta. Nú er hann afi minn látinn og við munum ei sjást um sinn. Eftir lifír minningin um hann og hún mun alltaf lifa. Ég mun aldrei gelyma þeim samvenistundum sem við áttum saman. Ég mun aldrei gleyma ferðum okkar, þegar hann þurfti að leita til læknis, né heldur öðrum stundum. Það var mér mjög mikils virði að fá að fylgja honum í þessar ferðir. Elsku amma; Guð gefí þér styrk til að takast á við það sem framtíð- in ber í skauti sér. Ég kveð nú elsku afa minn. Hafi hann þökk fyrir allt og allt. Guð veri með honum um alla tíð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Sb. 1886 - V. Briem) Jóhannes Rúnar Jóhannsson Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (Herdís Andrésdóttir) Þótt dauðinn sé það sem við eig- um öll sameiginlegt, og jafnvel létt- ir þegar um langvarandi veikindi er að ræða, er hann samt sem áður alltaf jafn sár. Vissulega er auð- veldara að horfast í augu við dauð- ann þegar hann hefur gert boð á undan sér, en það var svo erfítt að trúa því að afí ætti bara stutt eftir ólifað. Okkur fannst að afí ætti að hressast og fara aftur heim eins og hann var vanur eftir sjúkrahús- legur sínar. En sú varð ekki raun- in, hann afí er dáinn. Nú hlaðast upp í huga okkar allar góðu minn- ingamar sem við eigum um hann afa okkar. Okkur langar að kveðja ástkæran afa okkar með nokkrum fátæklegum orðum. Alltaf var jafn gaman og gott að koma í heimsókn til afa og ömmu. Þar var alltaf svo vel tekið á móti okkur, oft á tíðum vomm við varla komin inn þegar afi hrað- aði sér inn í eldhús til að taka til kaffi og með því fyrir okkur, og urðum við þá að taka vel til matar okkár og helst að klára af öllum diskum. Ef við vildum ekkert þiggja sámaði afa og sagði að það væri ekkert gaman að fá svona gesti í heimsókn, því honum var mjög umhugað um að við fæmm vel södd frá þeim. Ekkert þýddi að tala um að við væmm í megmn, því hann sagði ætíð að þess þyrftum við ekki því við væmm homð og mættum alveg vð því að borða. Alla tíð bar afí hag okkar allra fyrir bijósti og var umhyggjan þar í fyrirrúmi. Á gleðistundum samgladdist hann okkur innilega og á sorgarstundum bar hann sorg- ina með okkur. Afi var alla tíð mjög nægjusamur og þakklátur fyrir allt sem var gert fyrir hann. Það var því gaman að geta komið færandi hendi til þeirra, því þakklætið var svo mikið og ófá- ir kossamir sem við fengum. Það var alltaf gaman að hlusta á afa þegar hann var að segja okk- ur sögur af lífínu í sveitinni. Lýsing- amar vom svo ljóslifandi að manni fannst maður vera á staðnum. Þetta er fróðleikur sem við eigum eftir að búa að, svo lengi sem við lifum. Það var alltaf ánægjulegt að fá að keyra ömmu eða afa til læknis, því þegar þau kvöddust, kvöddust þau af svo miklum innileik, að það var oft sem okkur vöknaði um aug- un, slíkur var innileikinn hjá þeim. Við viljum þakka elsku afa fyrir allt, og Guð blessi hann. Elsku amma, Guð styrki þig í þinni sorg. Hulda, Jóhanna, Brynhildur og Hilmar. Nú er hann Jóhannes afí okkar dáinn. Það er lengi að komast inn í hugann, að þegar hann sem var alltaf til staðar, er hér ekki lengur. Þegar við fengum fréttina að kvöldi sunnudagsins 29. janúar, fannst okkur þetta svo ótrúlegt að allt væri búið. Hann var búinn að vera veikur lengi og við vissum að hveiju stefndi en samt var þetta svo sárt. Við munum ekki eftir honum fyrr en hann var orðinn það heilsu- lítill að hann fór lítið út. Við áttum heima á Suðurgötu í Hafnarfírði og fannst honum og ömmu mjög gaman hvað víðsýnt var þar út um gluggana bæði til fjallanna og út á höfnina. Eins var það þegar við komum héma upp á Melabraut, þá undi hann sér oft við að horfa út um gluggann. Oft þegar við vorum að vinna á neðri hæðinni og litum upp í gluggann, þá sáum við afa horfa út, nú sjáum við hann ekki lengur þó við lítum upp í gluggann. Já, það er margs að minnast. Þegar við vorum lítil fómm við í sendiferðir fyrir afa og ömmu út í mjólkurbúð og alltaf var stungið einhveijum mola upp í munninn fyrir ferðina. Oft þegar við komum heim úr skólanum var afí að smíða einhveija smáhluti í hefílbekknum sínum og horfðum við á hann, en ekki þorðum við að snerta, enda var hefílbekkurinn heilagur í okkar augum. Alltaf þegar við komum við í eldhúsinu hjá afa og ömmu, sem var oft, fengum við jólaköku og mjólk og átti helst að klára allt af kökudiskinum, en það voru fleiri en við bamabömin sem fengum að njóta gestrisni þeirra því þau voru mjög gestrisin og höfðu gaman af ef einhveijir litu inn til þeirra. Það er varla hægt að minnast á afa nema að minnast á ömmu um leið, þvi þau vom svo samrýnd og örugglega hafa það verið með hans erfiðustu tímum þegar amma var veik og þurfti að fara á sjúkrahús. Alltaf báru þau hag okkar fyrir bijósti og fylgdust með hvemig við höfðum það, bæði þegar vel gekk, og eins þegar við vorum lasin, þá fylgdust þau svo vel með okkur. Eins nú þegar við vorum komin með maka þá tóku þau hlýlega á móti þeim. Það er margs að minnast að ef það væri allt talið upp gæti það orðið í heila bók, en við hættum hér og þökkum afa innilega fyrir allt sem hann var okkur. Við biðjum Guð að styrkja elsku ömmu okkar og aðra aðstandendur. Einar, Hanna og Helgi Unnar, Hrönn og Friðrik Leiðrétting Á laugardag birtist hér í blaðinu minningargrein um Oddnýju Jóns- dóttur frá Másstöðum í Vatnsdal. Greinarhöf. er Hallgrímur Guðjóns- son frá Hvammi. Undirskrift hans á greininni féll niður. Er beðist vel- virðingar á mistökunum. raðauglýsingar raðaug/ýsingar raðauglýsingar Ut úr ógöngunum! Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæð- isflokksins og fyrrv. forsætisráðherra, og núverandi for- sætisráðherra, Steingrímur Her- mannsson, takast á um stjórnmálavið- horfið og efnahags- vandann á Hótel Borg fimmtudaginn 9. febrúar kl. 17.30. Áætlaö er að fundinum Ijúki um kl. 18.30. Allir vetkomnir. Vörður — Hvöt — Óðinn — Heimdallur Sjálfstæðisfólk á Suðurlandi Hið árlega þorrablót verður haldið laugar- daginn 11. febrúar í Inghóli á Selfossi. Gestur kvöldsins verður Ólafur G. Einars- son, alþingismaður og formaður þingflokks- ins. Veislustjóri verður Gunnar Sigurösson frá Seljatungu. Miðaverð kr. 2200,-. Húsið opnað kl. 19.00. Boröhald hefst kl. 20.00. Sjálfstæðisfólk fjölmenniö og takið með ykkur gesti. Vinsamlegast tilkynnið þátt- töku í síðasta lagi fyrir 9. febrúar. Nánari upplýsingar hjá eftirtöldum aðilum: Aðalheiði Jónasdóttur sími 21804, Óskari Magnússyni sími 31117, Boga Karlssyni sími 21733 og Arndísi Jóns- dóttur sími 21978. Undirbúningsnefnd. Sauðárkrókur Atvinnumála- og stjórnmáiafundur Almennur fundur um atvinnumál og stjórnmál verður haldinn i Safna- húsinu á Sauöárkróki miðvikudaginn 8. febrúar nk. kl. 20.30. Frummælendur: Porsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, Pálmi Jónsson, alþingismaður og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri. Allir velkomnir. Sjálfstæðisfálag Sauðárkróks.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.