Morgunblaðið - 07.02.1989, Page 37
(¥>r JfAÚíW?®? .p H'JOAOinjfFHcl !?ISA.Pr/UDROV
MORGUNBLÁÐIÍ) ÞRIÐJÚDÁGÚR Y. FÉBRÚAR 1989'
m
37
Minning:
Stefán Pálsson, Ásólfs-
stöðum, Þjórsárdal
Fæddur 13. febrúar 1920
Dáinn 30. janúar 1989
Stefán Pálsson, bóndi á Ásólfs-
stöðum, Þjórsárdal hefur nú kvatt
þennan heim, fjöldskyldu sína og
vini.
Stefán hafði legið meira og
minna á hjartadeild Landspítalans
frá því í ágústsmánuði sl. Hann fór
heim í dalinn sinn til að fagna nýju
ári, en dvaldi þar aðeins f þijá daga,
því þá fór hann aftur á spítalann
þar sem hann lést 30. janúar sl.
Stefán hafði farið í hjartaaðgerð
1983 til Bandaríkjanna og ekki
haft fullt vinnuþrek í nokkur ár.
Eftir Danmerkurferð þeirra hjóna
í júní sl. tók heilsu hans að hraka.
Þegar ég og Davíð sonur minn
komum austur í sumar hafði hann
það á orði að þetta yrði í síðasta
sinn sem hann heyjaði í dalnum,
en ekki hefðum við trúað því þá
að sú yrði raunin.
Stefán Pálsson er fæddur og
uppalinn að Ásólfsstöðum og hefur
fólk hans búið þar í marga ættliði.
Hann ólst upp á stóru heimili föður
síns Páls Stefánssonar, bónda og
athafnamanns, er rak þekktan
gististað að Ásólfsstöðum. Þangað
bárust ýmsir straumar menningar
með ólíku fólki er sótti þennan fagra
stað heim. Þannig varð Stefán
heimsmaður, gestrisinn og hlýr.
9. nóvember 1946 kvæntist Stef-
án föðursystur minni Unni Bjama-
dóttur frá Hafnarfirði og lifír hún
mann sinn. Þau hófu búskap að
Ásólfsstöðum það sama ár. Þannig
varð Stefán hluti af æsku minni,
tengdur sumrinu og góðum minn-
ingum um gott fólk er þar bjó og
hefur heimili þeirra hjóna ætíð stað-
ið mér opið, fyrst sem bami, einni
eða með foreldmm mínum en síðar
syni mínum sem einnig tengir minn-
inguna um Stefán sumrinu og þeirri
hlýju sem því fylgir og einkenndi
hann. Þau hjónin áttu fjögur böm,
Amalíu, Pál, Guðnýju og Hafstein,
sem er yngstur þeirra og mér næst-
ur að árum. Öll hafa þau verið mér
og syni mínum góðir vinir.
Á þeim árstíma, þegar myrkur
umlykur landsmenn og allra veðra
er von, og við þráum sól og sum-
aryl, leitum við gjaman S sjóð minn-
inga, sem tengjast sumrinu, sól og
birtu. Þannig á ég mér minningu
frá Asólfsstöðum sem lýsir skamm-
degið, ilmur af nýslegnum túnum,
fuglasöngur, fegurð náttúmnnar og
gott fólk sem gaf mér og syni
mínum tíma, þrátt fyrir annir sem
fylgja þessum árstíma á bóndabýl-
um. Við vomm alltaf velkomin
hvemig sem á stóð.
Og nú þegar við kveðjum Stefán
Pálsson bónda á Ásólfsstöðum kem-
ur upp í hugann mynd af því sem
blasti við þegar við vomm komin
að Bringu þar sem við stoppuðum
gjaman til að horfa yfír dalinn og
gleðjast yfír fegurð hans, vitandi
Blómostofii
Friöfinm
Suðurtandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll Kl. 22,- einnlg um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
að við ættum góða daga í vændum
meðal vina. Væri Stefán við slátt
eða rakstur á traktor sínum brást
ekki að hann kæmi strax og fagn-
aði okkur þótt verklok væm langt
undan.
Stefán var annt um íslenskt mál
og ekki ósjaldan man ég eftir því
að hafa verið í flósinu með honum,
þar sem hann var við mjaltir og lét
hann mig hafa yfír beygingar og
leiðrétti borgarmálið eins og hann
kallaði það. Hann naut þess mjög
að hlusta á klassíska tónlist og
góðan söng. Hann var hafsjór af
fróðleik um landið, hafði einnig
gaman af að ferðast til annarra
landa og var ótrúlega fróður um
þá staði sem hann heimsótti hvort
heldur innanlands eða utanlands.
Nú þegar ég staldra við og geri
mér grein fyrir að Stefán verður
ekki í dalnum næst þegar við kom-
um, veit ég að minningin um hann
verður samt alltaf til staðar. Ég
mun hugsa um Stefán eins og ég
man hann best og tengja minning-
una við þá birtu sem fylgir sumr-
inu. Ég vil þakka Stefáni þá hlýju
og umhyggju sem hann ætíð sýndi
mér og syni mínum á sin rólega
og trausta hátt.
Það að vita að ég gat komið í
dalinn hvenær sem var er mér
ómetanlegt og vil ég þakka eisku
Stefáni, öll þau góðu sumur er ég
varði með honum og fjölskyldu
hans. Guð veri með honum.
Kæra Unnur og frændsystkini,
við Davíð Ezra sendum ykkur inni-
legar samúðarkveðjur, um leið og
við þökkum fyrir að hafa mátt
kynnast þessum ljúfa manni sem
Stefán var.
Þórunn Guðmundsdóttir
AFGASRULLUR
fyrir bílaverkstædi
ESSO
Olíufélagið hf
681100
Island og EB:
Erum vii ai
missa af vagninum?
Utanrílcismálanefnd Sjálfstæðisflokksins í samvinnu vió sjálf-
stæðisfélögin í Kópavogi, gengst fyrir ráðstefnu um samskipti
íslands og EB, nk. þriðjudag 7. febrúar 1989, í félagsheimili
sjálfstæðisfélaganna, Hamraborg l, Kópavogi.
Ráöstefnan hefst kl. 17.30 og veröur dagskráin sem hér segir:
Ráðstefnan sett:
Matthías Á. Mathiesen, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra.
Framsöguerindi:
Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins og fyrrv. iðnaðarráðherra.
Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri Félags
íslenskra iðnrekenda.
Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sö-
lusambands íslenskra fiskframleiðenda.
Matarhlé.
Pallborðsumræður:
Stjórnandi Halldór Jónsson, formaðurfulltrú-
aráðs sjálfstæðis félaganna í Kópavogi.
Þátttakendur:
Geir H. Haarde, alþingismaður, Brynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjóri Granda, Björn Frið-
finnsson, ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu, Ari Skúlason, hagfræðingur ASÍ, Víglundur
Þorsteinsson, formaður Islenskra iðnrekenda.
Ráóstefnustjóri: Hreinn Loftsson, formaðurutanríkismálanefndarSjálfstæðisflokksins.
Utanríkismálanefnd Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðisfélögin íKópavogi.
Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið:
• Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi.
• Rafstofan Bæ, Borgarfirði.
• Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði.
• Verslunin Blómsturvellir, Hellissandi.
• Verslun Einars Stefánssonar, Búðardal
• Póllinn hf., ísafirði.
• Rafsjá hf., Sauðárkróki.
• Sír hf., Akureyri.
• Grímur & Árni, Húsavík.
• Raftækjaverslun Sveins Guðmundssonar,
Egilsstöðum.
• Rafvöruverslun Stefáns N. Stefánssonar,
Breiðdalsvík.
• Kristall, Höfn í Hornafirði.
• Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvelli.
• Árvirkinn hf., Selfossi.
• Raftækjaverslun Sigurðar Ingvarssonar, Garði.
• Ljósboginn, Keflavík.