Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989
40
•<
OC
h
C/í
I
cc
3
Q.
CO
CQ
DC
3
Q.
_l
UJ
h
CO
I
co
I
oc
3
Q.
cn
2
a>
CL
-J
LLi
h-
C/)
I
cc
■á
U
oc
3
a
_i
ui
P
0>
I
Foreidrar!
Leyfið börnunum að rasa út. Reynsla okkar
er sú að böm losna við feimni og verða
öruggari í f ramkomu á að stunda danstíma.
SÓLEY JAR *4
vera með Jazz-funk
síðastliðin námskeið
og alveg geggjað
stuð. Því ætlum við
að bæta viö öðrum
hópumfyrir 13-15
ára.
Nýjasta nýtt frá New
York.
Jazz-funk byggist upp
á meiri hreyfingu og
reynt að losa um
feimni og hlédrægni.
Eingöngu er notuð
„house“ músik.
Kennari: Bryndís Ein-
arsdóttir.
Innritun á Michael
Jackson námskeið
og Jazz-funk.
Byrjum 6. feKrúar
með námskeió fyrir
8-9 áro, 10-12 ára
og 13 ára og eldri
stelpur og stráka.
Innritun í símum
687701 og 687801.
JAZZ
FUNK
Nú erum við búin að
Vinningsröðin 4. febrúar:
112-1X2-XX2-112
HVERVANN?
2.605.069 kr.
12 réttir = 2.084.293 kr.
Enn var enginn með 12 rétta - og því er þrefaldur pottur núna!
11 réttir = 520.776 kr.
33 voru með 11 rétta - og fær hver í sinn hlut kr. 15.781
félk f
fréttum
ÍÞRÓTTIR
Fatlaður með fotluðum,
ófatlaður með ófötluðum
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
í systkinahópnum. Haukur ásamt tvíburunum Gunnari Þór og
Kristínu og næstelsta bróðurnum, Helga.
— segir Haukur
Gunnarsson
Styrr hefur staðið um Hauk
Gunnarsson, fatlaða íþrótta-
manninn, sem á heimsmet í 100
m hlaupi og vann til gullverð-
launa í því hlaupi auk bronsverð-
launa í 200 og 400 m á Ólympíu-
leikum fatlaðra í Seoul í fyrra-
haust. Hann var kosinn maður
ársins á Stjörnunni og Rás 2 og
íþróttamaður ársins á DV en
þegar kom að því að velja íþrótta-
manq ársins, voru menn ekki á
eitt sáttir um valið. Haukur varð
þriðji í kjörinu og segist ánægður
með árangurinn. Hann hafi ekki
gert sér vonir um að ná svo
langt. Árangurinn á Ólympíu-
leikunum sé besta viðurkenning
sem hann hafi fengið. Umræðuna
og leiðindin vegna vals íþrótta-
fréttamanna vill hann sem
minnst tala um. Segir umfjöllun-
ina hafa verið afar þreytandi og
leiðinlega fyrir sig og Einar Vil-
hjálmsson, sem hlaut titilinn. En
Haukur hefiir ekki látið hana á
sig fá og æfir sig af kappi, sjálf-
um sér til ánægju, ekki fyrir
aðra. Nema þá helst kærustuna
BÍna.
Haukur er 22 ára, fæddur 20.
október 1966. Hann er elstur fjög-
urra systkina, þeirra Helga nítján
ára og tvíburanna Gunnars Þórs
og Kristínar þrettán ára. Þau búa
hjá móður sinni, Signði Kristjáns-
dóttur. Haukur er fæddur spastísk-
ur og hann segir að sér hafí reynst
erfítt að sætta sig við fotlun sína.
í dag sé hann sáttur og til marks
um það nefnir hann hversu gaman
honum hafí þótt að lenda í stórum
hópi manna í Seoul, sem allir voru
spastískir eins og hann.
í byijun janúar hóf Haukur nám
á félagsfræðibraut í Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti. Honum líkar vel
í skólanum en segir hann erfíðan.
Aður vann hann sem sendill hjá
SÍS, bensínafgreiðslumaður í eina
viku en lengst af hjá Sól hf. Hauk-
ur segir Davíð Scheving Thorsteins-
son og samstarfsfólk hafa stutt sig
vel í þeim keppnum sem hann hefur
tekið þátt í.
Ekki þekkja allir samnemendur
Hauks ólympíumethafann frá liðnu
hausti en sumir kennarar hafa
kynnt hann sem slíkan fyrir bekkn-
um. „Krakkamir hrökkva óneitan-
lega við þegar það gerist. Sjálfur
hef ég gaman af þessu, það er allt-
af gaman þegar fólk tekur eftir
manni," segir hann og brosir svolít-
ið leyndardómsfullur á svip. Þegar
hann er spurður hvað búi að baki
svipnum, kemur í ljós að kærastan
hans, Valgerður Gunnarsdóttir, var
ein þeirra sem veitti Hauki athygli
í byijun vetrar á fyrsta ballinu sem
Haukur fór einn á. Valgerður er
árinu yngri en Haukur og vinnur í
Gjaldheimtunni."
Fáa undrar líklega að íþróttimar
skuli vera aðaláhugamál Hauks.
Hann hristir höfuðið þegar hann
er spurður um önnur áhugamál.
Vinimir eru fáir og eiga íþrótta-
áhugann sameiginlegan með Hauki.
Valgerður æfír ekki íþróttir en hef-
ur engu að síður áhuga á þeim.
Hann æfír tvisvar til þrisvar í
viku með Armanni, auk þess sem
hann æfír hjá ÍFR og keppir annað
slagið í fótbolta sér til gamans. „Ég
byijaði að spila fótbolta hér I Breið-
holtinu þegar ég var sex ára en
komst ekki í keppnisliðið, þar sem
ég haltraði of mikið. Núna leik ég
með ÍFR og svo með mönnum yfír
þrítugu. Þeir em bráðhressir en
mddar," segir Haukur og skellir
upp úr. „Þama fæ ég að vera með,
í stað þess að sitja á bekknum."
Stuttu síðar hringir síminn. Haukur
svarar og kemur brosandi út að
eyrum til baka. Segir að sér hafí
verið boðið að keppa á innanhús-
móti í knattspymu, sem ÍFR tekur
þátt í.
Haukur segist alltaf hafa haft
mikið dálæti á fótbolta þó að sprett-
hlaupið hafi náð yfírhöndinni með
ámnum. Hann er eldheitur aðdá-
andi Liverpool og knattspymu-
mannsins Ian Rush. Af íslenskum
liðum heldur hann með Val. „Ætli
ég sé ekki Valsari, að minnsta kosti
á meðan Siggi Sveins leikur með
liðinu. Ég fylgi honum, það kemur
enginn annar til greina."
Arið 1980 var Hauki sagt frá
íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík
og hann segist í fyrstu ekki hafa
ætlað sér að ganga í félagið. „Ég
viðurkenndi ekki að ég væri fatlað-
ur. En að endingu ákvað ég að
prófa að spila boccia, sem er eins
konar boltaleikur. 1983 var mér
boðið á bama- og unglingamót í
fijálsum íþróttum í Noregi. Ég þáði
boðið og gekk mjög vel þar. Ari
síðar var ég tilnefndur á Olympíu-
leika fatlaðra f Bandaríkjunum. A
þeim leikum vann ég tvö brons.
Þegar ég kom heim fór ég að
æfa mig sjálfur, _þar til mér var
boðið að æfa hjá Ármanni. Ég fann
strax að þar var þjálfari og hópur
sem mér hentaði. Eg hef síðan æft
fijálsar með Ármanni og einnig
fengið að keppa á mótum. Það geri
ég ánægjunnar vegna, því þó ég
sé ekki bestur á mótum ófatlaðra,
þá veit ég hvar ég stend. Mér fínnst
ég ófatlaður innan um ófatlaða en
fatlaður þegar ég er með fötluðum.
Ég er mjög þakklátur fyrir að fá
að vera í Armanni og ég hefði ekki
náð eins góðum árangri og raun
ber vitni, ef ég hefði ekki æft svona
vel þar.“
Haukur með nokkra af verðlaunagripunum, sem hann hefur unnið.
L i »
\ tv> tMViú iuú^jvá . * 1 L
,igovK|o>i ,*> louvuiiiinuí
.ÞÞSMv QO OVdðfc ismia