Morgunblaðið - 07.02.1989, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRUAR 1989
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL.10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
ílf ftfrglÉTi
Dla farið með góða dægradvöl
Til Velvakanda
í mörg ár hefur Bridsþáttur sem
birtur er á hverjum degi í blaðinu
verið iðkendum og áhugafólki þess-
arar íþróttar til hinnar mestu
ánægju. Stuttar en skemmtilegar
skýringar hafa sett svip sinn á þessa
þætti og þeim til sóma sem um
hefur fjallað. En nú bregður dimmu
á langan og frækinn feril. Af og til
í marga mánuði hefur frágangur
þáttanna verið svo hroðvirknislegur
að óviðunandi er.
Það sem er ástæða þess að gera
þessa dægradvöl svona skemmti-
lega er að spil allra sagnhafa eru
sýnd, í N og S og A og V svo þeir
sem lesa geti áttað sig á spilunum
og skoðað möguleikana, en nú
bregður svo við að spilunum er
ruglað svo hvað eftir annað að með
ólíkindum er, og þeir sem oft fyrst
flettu blaðinu til að skoða bridsinn
skilja vart hvemig slík vinnubrögð
geta endurtekið sig sí og æ á þessu
annars vandaða blaði.
Það er nú von mín og fjölda ann-
arra bridsáhugamanna að fram-
vegis verði ekki kastað höndunum
til þessa efnis eins og átt hefur sér
stað nú um sinn.
Höfundur bridsþáttanna og les-
endur blaðsins eiga kröfu á því að
uppsetning og frágangur sé þannig
af hendi leystur að allir geti vel við
unað og blaðinu áe sómi að.
Magnús Sigurjónsson
FELLUM MATARSKATTINN
Sigurður hringdi:
Mig langar til að kvarta yfir verð-
lagi á matvælum hér á landi. Vina-
fólk mitt sem býr erlendis og hefur
ekki komið hingað lengi, var hér í
heimsókn nýverið. Þeim blöskraði
alveg verðlagið á matvælum í
landinu. Ég sagði þeim frá skáttin-
um sem lagður hefur verið á mat-
vælin og þau urðu mjög hneyskluð.
Sérstaklega þótti þeim þó súrt í
broti hvað harðfiskurinn er orðinn
dýr.
Það var mikil umræða um þenn-
an matarskatt í byijum, bæði frá
Alþýðusambandinu og stjómarand-
stöðunni, en nú heyrist ekkert um
þetta lengur. Alþýðubandalagið
ætlaði að taka þetta upp og Ólafur
Ragnar Grímsson sagði að Jón
Baldvin væri brennimerktur út af
skattinum. Ég ætla bara að vona
að Borgaraflokkurinn fari ekki í
stjórn nema matarskatturinn verði
felldur.
Þessir hringdu ..
Hringnr
Stór sérsmíðaður karlmanns silf-
urhringur með slípuðum agat-
steini týndist á karlaklósettinu á
biðstöð strætisvagna Reykjavíkur
við Lækjartorg, 2. febrúar.
Finnandi vinsamlegast hringi í
Þór í síma 79590. Fundarlaun.
Koparhúðun
Kona hringdi:
Ég þarf að hafa upp á þeim
sem auglýsti fyrir nokkm að hann
koparhúðaði ungbarnaskó. Ég er
með skó sem mig langar til að
láta koparhúða.
Tapað - fúndið
Gleraugu í gráu hlustri fundust
í Lækjargötu fyrir skömmu. Upp-
lýsingar í síma 74265.
Armband tapaðist
Gullarmband tapaðist 20. jan-
úar. Annað hvort á Hótel Sögu
eða í leigubifreið frá Hótel Sögu
vestur á Sólvallagötu. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 16047.
VANTAR LAKK A BILINN?
KOMDU Á LAKKBARINN HJÁ OKKUR
VIÐ BJÓÐUM ALLA LITI.
SELJUM LAKK Á ÚÐABRÚSA.
Notum eingöngu úðabrúsa með „fanspray" ventii.
Autolack-Systeme
BORGARTUNI 26
SÍMI 622262
Ást er ...
. . . að sjá um morg-
un-teið.
TM Reg. U.S. Pat Ott.— all rights reserved
® 1989 Los Angeles Times Syndicate
— 'TARNOW5KI
Mamma!!
HÖGNI HREKKVÍSI
HÖGNI EfZ /M/&TTUR f EOLLUM SKPZÚPA