Morgunblaðið - 07.02.1989, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989
47
Skákeinvíginu í Seattle lokið með sigri Karpovs:
Hvarflaði aldrei að mér
að ég ynni þessa skák
- sagði Jóhann Hjartarson um 5. einvígisskákina sem lauk með jaftitefli
Frá Valgerði Hafstað, fréttaritara Morgunblaðsins í Seattle.
MIKIL spenna lá í loftinu þegar
Jóhann Hjartarson og Anatólij
Karpov tefldu fimmtu skák ein-
vígisins, sem fram fór í Seattle
á sunnudag. Aheyrendur réðu
sér varla fyrir eftirvæntingu en
skákin var æsispennandi og
fjörug.
Jóhann Hjartarson tefldi af ör-
yggi og aðeins hálftíma áður en
skákinni lauk sagði bandaríski al-
þjóðlegi meistarinn, John Donald-
son, Jóhann eiga mikla möguleika
á að sigra.
En Karpov gaf engan höggstað
á sér, og að 33 leikjum loknum
bauð Jóhann Karpov jafntefli. Þar
með lauk einvíginu með sigri
Karpov sem hlaut þrjá og hálfan
vinning, en Jóhann hlaut einn og
hálfan.
Að skákinni lokinni ræddi
fréttaritari Morgunblaðsins við
Karpov, sem hrósaði Jóhanni fyrir
taflmennskuna í fjórðu og fímmtu
skákinni. Karpov sagði för sinni
heitið til New York-borgar fljót-
lega, en þar hyggst hann dvelja
um tveggja vikna skeið. Þaðan
heldur hann síðan til Linares á
Spáni, þar sem hann mun, ásamt
Jóhanni, tefla á skákmóti er hefst
17. febrúar.
„Það hvarflaði aldrei að mér að
ég myndi vinna þessa skák,“ sagði
Jóhann Hjartarson við fréttaritara
Morgunblaðsins, þegar skákinni
var lokið. Hann sagði fjórðu skák-
ina hafa verið erfiðasta, en jafn-
framt hafí hann telft þá skák best.
Aðspurður hvers vegna sjálf-
straust hans virtist aukast eftir
þriðju skákina, sagði Jóhann:
„Líklega var það vegna þess að
ég kom Karpov á óvart í byijun
Ú’órðu skákarinnar."
Jóhann kvaðst hafa verið
ánægður með aðbúnaðinn á móts-
stað, en bætti við: „Það voru smá
hnökrar á aðstöðunni til að byija
með, sem stöfuðu að reynsluleysi
þeirra sem að einvíginu stóðu."
Fréttaritari spurði Jóhann hvað
nú tæki við. „Ætli maður verði
ekki að flýta sér heim,“ svaraði
hann. „Það er hálfur mánuður í
næsta mót, sem er á Spáni. Það
er ekkert gefíð eftir."
búin var með 15. leiknum. Reiturinn
a8 er tekinn frá fyrir drottninguna.
Hrókurinn er einnig færður yfír á
kóngsvænginn, ef það er mögulegt.
Samt sem áður er þessi leikur ekki
sannfærandi. Peðið á d6 stendur í
vegi fyrir ferð hróksins yfír á mið-
borðið. Eina vandamál hvíts í stöð-
unni er riddarinn hans á d2. Eina
hlutverk hans á þeim reit er að valda
peðið á e4. Ef hægt væri að koma
riddaranum á g3 myndi biskupinn á
cl fá opna skálínu. Þess vegna verð-
ur hvítur að huga að riddaranum og
koma heijum sírium í árásarstöðu.
18. Rh2?! -
Þetta er skref í ranga átt. Þessi
leikur væri skiljanlegur, ef hvítur
ætlaði að leika Rhfl, Rg3 og Rf3.
Þar með þyrfti hann fjóra leiki til
að ná fram stöðu, sem hægt er að ná
í tveimur leikjum, með því að leika
Rfl—Rg3. Áður þyrfti þó að styrkja
e4 reitinn. Besti leikurinn væri 18.
Hae3, síðan Da6.19. De2 myndi leiða
til unaarlegrar stöðu þar sem hvor-
ugt liðið væri vel skipulagt. Samt
sem áður vildi ég heldur stjóma hvítu
mönnunum.
18. - g6!
Skjót og góð viðbrögð. Svörtum
liggur ekkert á; herskáir leikur eins
og 18. — d5; 19. e5 eða 18. — c5;
19. d5 væm slæmir fyrir svartan.
Þess vegria ákveður hann að koma
biskupnum i spilið.
19. Rg4?! -
Jóhann lýkur við að framkvæma
slæma hugmynd. Þessi leikur er skilj-
anlegur að því leyti, að hvítur vill
losna við vamarriddarann á f6. En
hvítur er að reyna að tefla með stöðu-
lega yfirburði. Sem þýðir að hann á
að forðast uppskipti. Þess vegna er
leikurinn 19. Rhfl mun eðlilegri.
19. — Rxg4!
Fallegur leikur. Svartur nær upp-
skiptum og opnar um leið skálínuna
h8-al og fær uppbót að auki: hvítur
þarf að veikja stöðu sína til að drepa
riddarann aftur. Kannski væri best
að taka á sig tvípeð með 20. hxg4
og vona að geta miðað á h6 reitinn
með Hh3.
20. Dxg4 — c5!;
Notfærir sér að hrókurinn á el
er óvaldaður. Ef hvítur leikur d5?
myndi Bxd5 vinna peð.
21. dxc5 - dxc5; 22. e5? -
Greinilegur afleikur. E-peðið verð-
ur freistandi skotmark. Betra er að
leika 22. Rc4 sem heldur stöðunni í
jafnvægi.
22. - Dd4!; 23. Dg3 -
Jóhann reynir að halda lífí í stöð-
unni mðe því að halda drottningunni
áfram á borðinu. Aftur er 23. Rc4
eðlilegasti leikurinn.
23. — Hae6. 24. Hae3 — c4;
Frábærlega teflt. Svartur tengir
menn sína fallega saman. Með d3-
reitinn á valdi sínu hefur svartur nú
betra tafl.
25. Bf5 - Rd3!
Hvítum er boðið upp á að vinna
skiptamun. Það væri svörtum í hag.
Spjót svarts stæðu þá á hróknum á
el þar sem biskupinn á cl valdar
riddarann á d2. í stuttu máli er ridd-
arinn á d3 skrímsli sem verður að
vinna á.
26. Bxd3 - cxd3; 27. Hxd3 -
Hxe5!;
Frábær drottningarfóm. Svartur
heldur frumkvæðinu og nú er öll
taphætta úr sögunni.
28. Hxd4 - Hxel+; 29. Kh2 -
Hxcl; 30.RÍ3?
Jóhann vanmetur hættuna. Ég
hafði búist við 30. Db3. Hvítur þarf
að koma drottningunni í betri stöðu.
Hún „valdar" varla kónginn á kóngs-
vængnum; er frekar taktískt skot-
mark.
30. - Hc5!
Kemur í veg fyrir að riddaranum
sé leikið á e5, þar sem hann væri
virkur.
31. Hd7 - Bxf3; 32. Dxf3 -
Hf5. Jafhtefli.
Svartur stendur betur. Þetta var
erfítt einvígi fyrir Jóhann. En hann
mun njóta reynslunnar alla ævi.
„Það var bara sjálfstraustið sem
vantaði í upphafi," sagði Þráinn
Guðmundsson, forseti Skáksam-
bands íslands, þegar úrslitin lágu
fyrir. „Jóhann hafði frumkvæðið í
fjórðu og fimmmtu skákinni en
vantreysti sjálfum sér bæði í ann-
ari og þriðju."
Bandaríski stórmeistarinn
Yasser Seirawan hafði einnig á
orði að framkoma Jóhanns hefði
breyst í seinustu skákunum: „Jó-
hann virtist miklu yfírvegaðari nú
en áður,“ sagði hann meðan á
síðustu skákinni stóð.
Starfsfólk einvígisins taldi eng-
an vafa leika á því að vinsældir
Jóhanns væm meiri en Karpovs
meðal áhorfenda. „Karpov var
ræðnari en Jóhann," sagði ein
starfsstúlkan, en Jóhann var hlé-
drægur og erfítt var að ná af hon-
um tali. Ahugi fólks var samt sem
áður miklu meiri á Jóhanni en á
Karpov."
Þótt Karpov hafi sýnt og sannað
að í skáklistinni gnæfi hann yfír
flesta aðra er hann maður lágur
vexti og höfðinu lægri en Jóhann.
Stellingar stórmeistaranna vom
ólíkar við taflborðið þegar Karpov
var í þungum þönkum í einvíginu
studdi hann hönd undir kinn en
gaut augunum öðm hveiju út í
salinn er Jóhann átti leik. Jóhann
hélt hins vegar höndum um höfuð
þegar hann var djúpt hugsi, og
hugsaði um stöðuna.
I blaðamannaherbergi var sá
orðrómur á kreiki á sunnudags-
kvöld að í áhorfendasal hefði
Bobby Fisher fyrrverandi heims-
meistari, fylgst með hverri skák,
dulbúinn svo hann yrði ekki ónáð-
aður. Mun hann hafa læðst með
veggjum, síðhærður, með skegg
Morgunblaðið/Reuter.
Jóhann Hjartarson leikur í 5. ein-
vígisskákinni í Seattle á sunnu-
dagsnóttina.
niður á bringu, en sú lýsing mun
einmitt eiga vel við Fisher eins og
hann er nú.
Lokahátíð einvígisins verðnr^—
haldin á Sheraton-hótelinu, mánu-
dagskvöldið 6. febrúar. Þaðan
mun Karpov fara 50.000 dölum
ríkari, en í hlut Jóhanns falla
30.000 dalir, eða um 1,5 milljón
króna.
TEYGflUR §r ÞRBC
fyriralla ■ alla ciaga - allan daginn
Innritun í símum 687701
og 687801
Gerum sértilboð
fyrir starfsmannahópa.
í \
cZ^ÍV++«viÍCUjcLío
SÓLEYJAR ^
Ný námskeið að hefjast
Það er staðreynd að aivöru
líkamsþjálfun sem skilarfögrum
vexti verður aldrei létt.
Við hjá Dansstúdíói Sóleyjar
getum hins vegar lofað því að hjá
okkur verður hún skemmtileg og
hressandi.