Morgunblaðið - 09.02.1989, Side 11
MbRGtNBLAÐÍÐ VDDSKlPTI/ATVlNmír
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1989
B 11
ustu framfarir ítölvutækninni. Það
fyrst og fremst kann að verða því
að falli.
Framleiðendur örtölva, kerfa fyr-
ir lítil og meðalstór fyrirtæki, hafa
að undanförnu reynt að skera niður
kostnað við vélbúnaðinn og mætt
óskum kaupenda með því að leggja
áherslu á staðlaðar tölvur, sem
unnt er að bæta við ýmsum auka-
búnaði. Eru þessar tölvur byggðar
upp á mikilvirkum og stöðluðum
örgjörvum, sem notast við Unix-
kerfið, sem staðlað er fyrir iðnaðinn
og atvinnulífíð.
Þetta kerfi hefur mikla kosti í
för með sér fyrir kaupendur því að
það leyfír þeim að tengja saman
ólíkar tölvugerðir og nota sama
hugbúnaðinn við þær allar. Er nú
svo komið, að ríkisstjórnir og her-
afli ýmissa landa setur það skilyrði
fyrir tölvukaupasamningum, að
unnt sé að notast við Unix-kerfíð.
Veikleiki Norsk Data á þessu sviði
hefur nú þegar valdið því, að fyrir-
tækið missti af samningi við sænsk
stjórnvöld upp á 100 millj. nkr.
Ýmsir hafa velt því fyrir sér
hvemig á því standi, að fyrirtæki,
sem hefur sýnt vemlegan tæknileg-
an styrk á mörgum sviðum, skuli
hafa orðið á þessi alvarlegu mistök.
Fyrir þremur ámm komu Rolf
Skár, stofnandi Norsk Data og
stjómarformaður, og aðrir forsvars-
menn fyrirtækisins í heimsókn til
Information Technology, ITL, lítils
tölvufyrirtækis í Bretlandi, sem
Skár hafði þá áhuga á að eignast.
Forráðamenn ITL vom þá orðnir
sannfærðir um, að Unix væri það,
sem koma skyldi, en þær skoðanir
þeirra féllu í grýtta jörð.
Unix er skelfilega seinvirkt,
sögðu þeir ND-menn, og ókostimir
öllum augljósir, t.d. hvað varðar
upplýsingaöryggi. Það varð því ekk-
ert af kaupunum. Þessi gagnrýni
er alveg réttmæt en hitt yfírsást
þeim hjá Norsk Data, að kostir
Unix-kerfísins em svo miklir, að
kaupendur láta sér ágallana í léttu
rúmi liggja.
Nú fyrir skömmu sagði Skár, að
hann hefði verið búinn að sjá að
hveiju dró með Unix-kerfíð þegar
á árinu 1986 en þá hefði bara ver-
ið óhugsandi að söðla um hjá fyrir-
tækinu, sem græddi þá bæði á tá
og fíngri.
Endurskipulagning eða
sameining
Raunar var farið að huga að
endurskipulagningu Norsk Data
þegar snemma árs 1987 en það var
þó ekki ljóst fyrr en í desember það
ár hve mikið fjármagn þyrfti til eða
nærri 4,5 milljarða ísl. kr. Það er
líka auðvelt að leiða rök að því, að
fyrir þremur ámm þegar ND hafði
ekki undan við að framleiða upp í
pantanir, hafí það verið meira en
lítið erfítt að koma viðskiptavinun-
um í opna skjöldu með nýju kerfi.
Það var þó einmitt það, sem
bandaríski tölvuframleiðandinn
Hewlett Packard gerði fyrir þremur
ámm, og fyrstu nýju tölvumar af
þessari gerð hafa fengið frábæra
einkunn fyrir að vera bæði aflmikl-
ar og ódýrar. Norsk Data hefur nú
gengið Unix á hönd en keppinaut-
amir urðu bara fyrri til. Meðal
þeirra ráðstafana, sem nú hefur
verið gripið til, er að stofna nýtt
dótturfyrirtæki, Dolphin Comput-
ers, sem á að framleiða tölvur fyrir
Unix-kerfið. Norsk Data ræður enn
yfír miklu eigin fé en þegar haft er
í huga hve heimamarkaðurinn er
veikur virðast vaxtarmöguleikamir
ekki miklir á næstunni.
Norskum lögum, sem bönnuðu
meirihlutaeign útlendinga í fyrir-
tækjum á borð við Norsk Data,
hefur nú verið breytt og því getur
vel hugsast, að fyrirtækið gangi í
eina sæng með einhveijum keppi-
nautanna. Slík sameining gæti ver-
ið mjög álitleg því að með í kaupun-
um fylgdu viðskiptamenn og dreif-
ingarkerfi um öll Norðurlönd og
mikil tækniþekking.
Páll Kr. Pálsson
\
UPPBYGGING IÐNAÐAR
í DREIFBÝLI
Iðnlánasjóður gengst nú fyrir fundum
um uppbyggingu iðnaðar í dreifbýli.
Að þessu sinni:
■ 9. febrúar í KEFLAVfK
Flug Hótel kl. 20.30.
■ Markmið fundanna er: HHHHHi
ad kynna starfsemi Idnlánasjóds fyrir stjórn-
endum fyrirtækja og fulltrúum atvinnulffs f
dreifbýli,
að vekja áhuga stjórnenda fyrirtækja á
nýsköpun, sameiningu fyrirtækja og samstarfi
þeirra.
Lögð verður áhersla á þessa málaflokka:
Lánafyrirgreiðslu, vöruþróun, markaðsmál,
tækni, afkastagetu, söluaðferðir, dreifileiðir
og samstarf við önnur fyrirtæki.
B Dagskrá:
1. Kynning á starfsemi Iðnlánasjóðs og þeirri
fyrirgreiðslu sem Iðnlánasjóður veitir fyrirtækj-
um.
Bragi Hannesson, bankastjóri.
2. Fyrirlestur um markaðsathuganir og mat á
markaðsþörf.
Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjöri.
3. Fyrirlestur um vöruþróun.
Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri.
4. Fyrirlestur um samstarf og samruna fyrirtækja.
Pétur Reimarsson, framkvæmdastjóri.
5. Fyrirlestur um arðsemismat á
hugmyndum.
Jafet S. Ólafsson, útibússtjóri.
Gert er ráð fyrir að hver fyrirlestur taki 20-30
mínútur. Fundarstjóri verður Jón Magnússon,
formaður stjórnar Iðnlánasjóðs.
VIÐ HVETJUM ALLA ÞÁ SEM MÁLIÐ VARÐAR TIL AÐ KOMA.
(ft
IÐNLÁNASJÓÐUR
ÁRMÚLA 7, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 680400
Macintosh
fntt námskeföll
Þú velur fjögur 12 klukkustunda námskcið úr námsskrá okkar og
færð það fimmta fríttl! Ef þú vilt það heldur gefum við þér 18 %
afslátt af fjórum námskeiðum. Eina skilyrðið er að þú ljúkir
þremur námskeiðanna á fimm vikum.
'Helstu námskeiö okkar (13 í allt):
Grundvallaratriði notkunar Macintosh (Works).
Word ritvinnsla. FileMaker gagnasöfnun og
úrvinnsla. viðskiptagrafik og útreikningar með
Excel, upplýsingasöfnun og forrítun með
HyperCard. bœklingagerð og umbrotmeð
PageMaker. teikningar og myndgerð með
MacDraw II og MacPaint o. m. fl...
Innifalið:
Aðgangur að leiðbeinanda og æfingastofu með tölvum og
gcislaprentara utan kennslustunda og handbók með hverju
námskeiði. öll verkefhi verða afhent á disklingi. f lok
námskeiðs er gefið út skfrteini um þátttöku. Taktu þátt í
námskeiði hjá einum bcst búna tölvuskóla landsins.
Mjög reyndir leiöbeinendur
Næsta tfmabil hefst 20.febrúar. Flest námskeiðanna eru
mánudaga til funmtudaga, ki: 16.00-19.00.
Tölvu- og
verkfræðiþjónustan
Grensásvegi 16 - sfimi 68 80 90
Sparifjáreigendur
Bera spariskírteinin ykkar "skúffuvexti"?
Um þessar mundir eru nokkrir flokkar spari-
skírteina innleysanlegir. Gleymist að innleysa þau á
réttum tíma er hætt við að farið sé á mis við hærri
raunvexti. Við ráðleggjum ykkur hvaða spari-
skírteini er rétt að innleysa og sjáum um endur-
fjárfestingu í nýjum spariskírteinum, bankabréfum
eða öðrum öruggum verðbréfum.
Eigendur og útgefendur
skuldabréfa:
Vegna mikillar eftirspumar óskum við eftir góðum
skuldabréfum í umboðssölu.
Verið velkomin á nýjan stað. Næg bflastæði.'
_ fíármál eru okkar fað'-
.-i UERÐBRÉFflUIÐSKIPTI
V/ SAMVINNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 18 • SÍMI 688568
Góðan daginn!