Morgunblaðið - 25.04.1989, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1989
21
Bandaríkjamenn sviptu hulunni af torséðu sprengjuþotunni, B-2, í
nóvember á síðasta ári. Fleiri slíkar verða ekki framleiddar a.m.k.
næsta árið.
kjarnaodda.
Deilan í Bandaríkjunum hefur
einkum snúist um það hvort halda
beri áfram þróun og smíði Midget-
man-eldflauga, sem unnt er að
koma fyrir á hreyfanlegum skot-
pöllum eða hvort koma eigi MX-
eldflaugum, sem staðsettar eru í
Wyoming-ríki, fyrir á járnbrautar-
vögnum. Bandaríkjamenn ráða nú
yfir um 50 MX-flaugum, sem borið
geta tíu kjarnaodda hver, og er
talið að kostnaðurinn við að setja
þær á færanlega skotpalla komi til
með að nema um 5,4 milljörðum
Bandaríkjadala (um 280 milljörðum
ísl. kr.). Midgetman-eldflaugar bera
einn kjarnaodd hver en áætlunin
um smíði þeirra hljóðar upp á 24
milljarða dala (rúma 1.200 milljarða
ísl. kr.). Áformað er að smíða 500
slíkar eldflaugar og verða þær allar
hreyfanlegar. Sovétmenn ráða nú
yfir sambærilegum landeldflaugum;
SS-24 ber tíu kjarnaodda en SS-25
er líkt og Midgetman-flaugin hreyf-
anleg og ber einn kjarnaodd.
Cheney hafði ráðlagt forsetanum
að falla frá Midgetman-áætluninni
sökum kostnaðarins og mun hafa
vísað til þess að óhjákvæmilegt
myndi reynast að hætta við önnur
og ekki síður mikilvæg verkefni ef
ráðist yrði í smíði flauganna. Hins
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ÁSGEIR SVERRISSON
vegar hafa þeir Brent Scowcroft,
öryggisráðgjafi forsetans, Sam
Nunn og Les Aspin, formenn her-
málanefnda Bandaríkjaþings, hvatt
til þess að Midgetman-eldaflaugun-
um verði komið upp. Telja þeir að
MX-flaugarnar geti orðið til þess
að raska stöðugleika í samskiptum
risaveldanna þar eð þær eru aug-
ljóslega mun öflugri vopn en Mid-
getman-flaugarnar. Niðurstaða for-
setans hlýtur því að teljast mála-
miðlun.
í máli Cheneys kom fram að af-
ráðið hefur verið að skera fjárveit-
ingar til geimvarnaráætlunarinnar
niður um 7 milljarða Bandaríkja-
dala (um 360 milljarða ísl. kr.) á
næstu fimm árum. Engu að síður
verður 33 milljörðum dala varið í
þessu skyni á þessu tímabili. Loks
skýrði Cheney frá því að frestað
yrði smíði fleiri torséðra sprengju-
flugvéla af gerðinni B-2 sem
Bandaríkjamenn nefna „Stealth"
en þotan sem er iangdræg kemur
ekki fram á ratsjám óvinarins. I
Reuters-skeyti segir að Cheney
hafi gefið í skyn að hugsanlega
yrði hætt við framleiðslu B-2
sprengjuvéla en gert hafði verið ráð
fyrir því að flugvélar þessar gætu
tortímt langdrægum landeldflaug-
um Sovétmanna á styijaldartímum.
Flotaæfingar
Sovétmanna
á Noregshafi
Osló. Reuter.
TÓLF sovésk herskip eru nú við
æfingar undan Norður-Noregi,
að því er segir í tilkynningu
norsku herstjórnarinnar, sem
birt var á sunnudag.
Herskipin tilheyra Norðurflota
Sovétmanna en tundurspillar, beiti-
skip og freigátur taka þátt í æfíng-
unum auk nýjasta flugmóðurskips
Sovétmanna. Æfingarnar hófust í
síðustu viku og hafa sprengjuflug-
vélar af Backfire-gerð æft árásir á
skipalestir, að_ sögn norsku her-
stjórnarinnar. í tilkynningunni seg-
ir og að líklegt sé að kafbátar taki
einnig þátt í æfingunum sem fara
fram á Noregshafi og í Barentshafi.
Honda 89
Civic
Shuttle 4WD
116 hestöfl
AUMA
ER
BÚIO
AB
SK0ÐA
Bíum
Þim?
Síðcjsta tala
númersins segir
til um
skoðunarmánuðinn.
Láttu skoða í tíma
- öryggisins vegna!
--—.. _
Norska blaðið Fiskaren:
Vilja Greenpeace-samtökin kom-
ast að samkomulagi við Magnús?
GREENPEACE-samtökin hafa snuið ser til Magnusar Guðmunds-
sonar, höfúndar myndarinnar „Lífsbjargar í norðurhöfúm“, og
boðist til að „semja við hann sátt“. Heíúr norska sjávarútvegs-
blaðið Fiskaren þetta eftir Magnúsi.
Magnús segir i viðtali við blað-
ið, að sáttaboðið hafi verið heldur
óljóst og því hafi hann beðið sam-
tökin að leggja það fram skrif-
lega. Við því hafi hins vegar ekki
verið orðið enn.
„Eg spurði fulltrúa Greenpeace
hvað átt væri við með „sáttum“,“
segir Magnús í viðtali við Fiskar-
en, „og fékk þau svör, að við
gætum hist og rætt málin og sa-
mið frið með því, _að ég drægi
myndina til baka. Eg spurði þá
hvort þeir ætluðu að hætta að
heija á smáþjóðir og viðurkenna,
að þeir hefðu haft rangt fyrir sér.
Því vildu þeir ekki svara,“
í Fiskaren sagði ennfremur, að
norski þingmaðurinn Peter Ang-
elsen ætlaði á morgun, miðviku-
dag, að taka mynd Magnúsar til
umræðu á þingi og krefjast svara
við þvi hvers vegna hún hefði ekki
verið sýnd í heild í norska ríkis-
sjónvarpinu. Segir hann í viðtali
við blaðið, að hann vilji einnig fá
að vita hvers vegna myndin „Skut-
ullinn flýgur“ eftir Frank A. Jens-
en hafi ekki fengist sýnd og hygg-
ist hann velta upp þeirri spurningu
hvort það sé meðvituð stefna hjá
sjónvarpinu að sýna helst ekki
myndir, sem fjalla um lífskjör fólks
á norðurslóðum.
Þessa má að lokum geta, að
Magnús Guðmundsson og Edda
Sverrisdóttir, sem vann með hon-
um að gerð myndarinnar
„Lífsbjargar í norðurhöfum“, eru
nú stödd í Frakklandi en myndin
verður sýnd í flokki heimildar-
mynda á kvikmyndahátíðinni í
Cannes.
Verð frá 1030 þúsund,
miðað við staðgreiðslu á gengi 1. ap. 1989
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIRALLA.
ÍHONDA
VATNACÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
% íf Iþ Tj-Uj 'k 'l ^ 'l%
Kr. 97.650.-
Fyrir þessa glæsilegu
innréttingu.
Svo eigum við innrétt-
ingar á verði fyrir alla.
Oaýrar, dýrar, í með-
allagi dýrar o.s.frv.
Eitt hafa þær allar
sameiginlegt — Þær
eru mjög vandaðar.
©INNRÉTTINGAR - ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
BÚÐIN ÁRMÚLA 17a
BYGGINGAÞJÓNUSTA SÍMAR 84585-84461
Brúnós hf.
® 97-11480 Egilsstöðum
HKS
hf
Stillholt 16-300 Akranes
Slmi 93-11799
BIFREIÐASKOÐUN
fSLANDS HF.
Hægt er að panta skoðunartíma,
pöntunarsími í Reykjavík er 6728U,
YDDA Y8.12/SÍA