Morgunblaðið - 04.05.1989, Síða 4
r>
4 C
ígCf L»M .# H jOjVC'TOOŒJKm
morgunblaðie; VDSKIPIt/fl1
,
t/fl TVINNVLIF fimmti
QIOAJaKUOJíOM
• FIMMTUDA'GUK T TflAt lÖÖð'
Rekurþú
lítiófyrirtcekif
Hyggstu stofnafyrirtœki?
Vantar þigyfirsýn?
Námskeidid Stofnun og rekstur fyri-rtcekja
veröurhaldib 9.—20. maí.
Mebal efnis: Stofnandinn, stofnáeetlun,
stefnumótun, markabsmál, jjármál, form fyrir-
tcekja og reikningsskil.
Námskeibibferfram í kennslusal Ibntceknistofnun-
ar í Keldnaholti.
Kennt erþribjudaga, fimmtudaga og laugardaga.
Þátttaka tilkynnist í síma 687000.
IÐNTÆKNISTOFNUN
ISLANDS rekstrartæknisvið.
n
Bílar
Citroen undir-
býr áhlaup
Hagstæð skoðanakönnun og nýjar gerð-
ir leggja grunninn að söluátaki Globus
á Citroén
FORSVARSMENN Globus hyggjast nú efna til sérstaks söluátaks á
Citroen bifreiðum hér á landi eftir að fyrir liggja niðurstöður könnun-
ar sem sýna að yfírgnæfandi meirihluti eigenda bæði Citroen BX og
AX er ánægður með bíla sína af þessum gerðum og þjónustuna hjá
umboðinu. Söluátakið tengist einnig mikilli sókn Citroen í Evrópu en
þar voru Citroen verksmiðjurnar með næstmestu söluaukninguna í
fyrra og á síðustu tveimur árum er söluaukningi hjá Citroen í Evrópu
um og yfir 40%.
,Við fengum Hagvang til að gera
fyrir okkur skoðanakönnun bæði
meðal eigenda Saab og Citroen bif-
reiða, sem við erum umboðsmenn
fyrir,“ segja þeir Þórður Hilmarsson,
forstjóri, og Börkur Árnason, fram-
kvæmdastjóri, hjá Globus. „í stuttu
máli var niðurstaðan mjög jákvæð í
báðum tiifellum en við beinum þó
sérstaklega athyglinni að eigendum
BX og AX bifreiða. í könnunni kom
nefnilega sérstaklega fram að yfir
90% þeirra sem spurðir voru reynd-
ustu vera ánægðir eða mjög ánægð-
ir með bifreiðar sínar af þessum
gerðum. Mikill meirihluti eða 75-80%
eigenda lýst.i því sömuleiðis yfir að
þeir hyggðust kaupa sömu tegundir,
FANAR
Sérmerktir fyrirtækinu
gefa því sterka og eftir-
tektarverða ímynd
FÁNAR
Eru okkar sérgrein
Notum aðeins 100%
Polyester-efni
SÍMINN ER
688066
#▲
▼#
StW\
AUGLYSINGAVORUR
SILKIPRENTSTOFA
AUGLVSINGAVÖRUR SF.
Skeifan 8 • P.O. Box 8586
128 Reykjavík ■ Tel.: 91-688066
blUU-lLHIVMí
TRYGGIEA HF.
9. MAI I989
AD HÖTEL SÖGL
Fundurinn verður í Súlnasal og hefst kl. 16:00
síðdegís. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf
samkvæmt 17. grein félagssamþykkta.
Ennfremur verða lagðir fram til afgreiðslu
ársreikningar Almennra Trygginga hf. og
Sjóvátryggingarfélags íslands hf.
fyrir árið 1988.
Stjórnin
SJOVA-ALMENNAR
þegar kæmi að þv? að endurnýja.
Flestir AX eigendur gáfu upp þær
ástæður fyrir þessari ákvörðun að
verð og útlit hefði verið þeim að
skapi. Þess ber að geta að AX kom
ekki á markað fyrr en 1987 og því
tæpast kominn á þá nægileg reynsla
til eigendurnir nefndu slíkt sem
ástæðu, en hún skipti hins vegar
miklu máli hjá eigendum BX bifreið-
anna sem hafa verið hér á markaði
allt frá 1983. Um 45% eigenda BX
nefndu góða reynslu sem aðalástæð-
una fyrir kaupum á þeirri bifreiða-
tegund. Okkur þótti það'síðan sér-
lega ánægjuleg niðurstaða að lang-
flestir aðspurða voru mjög ánægðir
með þjónustuna sem við veitum hér
hjá Globus. Þar teljum við vera að
skila sér stórátak það sem ráðiast
var í á síðasta ári til að bæta þjón-
ustu bifreiðaumboðsins bæði gagn-
vart viðskiptamönnum og með
ákveðinni hagræðingu í rekstrinum."
Þeir Þórður og Börkur segja niður-
stöður könnunarinnar hér styðja það
sem verið hefur að gerast í sölu Citro-
en í Evrópu síðustu misseri en þar
er þessi framleiðandi í mikilli sókn
eins og áður segir. „Þessi staðreynd
og könnunin hér heima segja okkur
ótvírætt að við erum með mjög góða
framleiðslu í höndunum og eigum
því að geta eytt landlægri tortryggni
og fordómum gagnvart Citroen-bif-
reiðum, sem að sumu leyti geta átt
rætur að rekja til einstakra eldri
gerða af þessari bifreiðategund sem
ekki hentaði íslenskum aðstæðum.
Markaðshlutdeild Citroen á íslensk-
um bifreiðamarkaði hefur verið í
kringum 1,5% eða lakari en víðast
hvar annarsstaðar í Evrópu þar sem
hlutdeild Citroen er yfirleitt á bilinu
2-2,5% og á Bretlandi til dæmis er
markaðshlutdeildin komin upp í 3%.
Við teljum okkur því eiga alla mögu-
Ráðstefna
Einkaritar-
ar þinga
íReykjavík
NORRÆNIR einkaritarar halda
ráðstefnu á Hótel Sögu 4.-7. maí
nk. og ber hún yfirskriftina „Nor-
diske sekretærer i fokus“. Um 200
einkaritarar sitja ráðstefiiuna, þar
af eru um 160 erlendir gestir.
Norrænar ráðstefnur hafa verið
haldnar annað hvert ár og er nú
í fyrsta sinn þingað í Reykjavík.
Undirbúningur hefur verið í hönd-
um Ferðaskrifstofu íslands og Sam-
taka ritara, sem er félagsskapur um
50 einkaritara á höfuðborgasvæðinu.
Einkaritarar á Norðurlöndum telja
sig eiga margt sameiginlegt og koma
saman til að miðla reynslu sín á
milli, efla fræðslu f hagnýtum atrið-
um sem starfið snertir, stofna til
kynna, auk þess sem lögð er áhersla
á að efla norrænt samstarf.
Fyrirlesarar eru Guðrún Helga-
dóttir, rithöfundur og alþingismaður,
Davíð Oddsson, borgarmeistari, dr.
Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlafræð-
ingur, Jón Ásbergsson framkvæmda-
stjóri, Þórhildur Þorleifsdóttir al-
þingismaður og leikstjóri, Thor Vil-
hjálmsson rithöfundur, Ragnar Hall-
dórsson fyrrv. forstjóri Alversins í
Straumsvík og Lovfsa Einarsdóttir
leikfimikennari.