Morgunblaðið - 11.05.1989, Side 1
FJÁRMÁL: Erlent fé um þriðjungur íslenska peningamarkaðarins/ 6- 7
ERLENT: Er komið að skuldadögunum hjá Dönum eftir hóglífi liðinna ára/ 8
VIDSKIPIT AIVINNUIÍF
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 11. MAI 1989
Bankar
Landsbankinn ísamningwn
við Spicer & Oppenheim
Sérhæft fyrirtæki á sviði ráðgjafar í fjármálaþjónustu
LANDSBANKINN hefur ákveðið að ganga til samninga við breska
ráðgjafarfyrirtækið Spicer & Oppenheim um að það taki að sér
viðamikla úttekt sem gerð verður á bankanum. Fyrirtækið er sér-
hæft á sviði fjármálaþjónustu og hefiir reynslu af úttektum í bönk-
um á Norðurlöndunum m.a. Christiane Bank og Kredit Kasse í
Noregi. Má nefiia að Spicer & Oppenheim rekur skrifstofur víða
um heim og hefúr nokkur þúsund manns í vinnu.
Brynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbankans, mun
stýra framkvæmdahóp sem hefur
umsjón með þeirri úttekt sem nú
fer í hönd á Landsbankanum. Auk
hans sitja aðrir aðstoðarbanka-
stjórar Landsbankans og fulltrúi
stjómar starfsmannafélagsins í
framkvæmdahópnum.
Að sögn Brynjólfs komu auk
Spicer & Oppenheim til álita í
verkefnið, ráðgjafarfyrirtækin
SÖLUGENGI
DOLLARS
54,52
n,|.,„iim.............
20.aprh 25. í.mal 5. 10.
Coopers & Lybrand og Booz, Allen
& Hamilton. Brynjólfur segir að
McKinnsey sem upphaflega hafi
verið inn í myndinni hafi ekki sýnt
þau viðbrögð sem ætlast var til.
Marketing Inprovements hafi
hins vegar stungið upp á að það
sérhæfði sig í markaðsmálum
Fjáfmagnsmarkaður
bankans. Booz, Allen & Hamilton
hafi verið bætt við síðar til að
hafa þijú tilboð úr að velja.
Brynjólfur segir að ástæðan
fyrir því að ákveðið hafi verið að
ganga til samninga við Spicer &
Oppenheim sé m.a. sú að fyrirtæk-
ið sé sérhæft í fjármálaráðgjöf.
Hin fyrirtækin séu hins vegar með
sérhæfðar deildir í fjármálaráð-
a'öf.
„Það er reiknað með að verk-
efnið taki 24 vikur og standi út
árið en síðan er eftir einhver fer-
ill við að koma ýmsum hlutum í
framkvæmd,“ sagði Brynjólfur.
15% afföllá Atvinnu-
tryggmgarsjóðsbréfum
KAUPÞING hf. hefúr auglýst til sölu skuldabréf Atvinnutrygginga-
sjóðs útflutningsgreina með 9% ávöxtunarkröfú sem samsvarar
87,11% gengi. Velta með bréf sjóðsins nálgast nú um 20 milljónir
króna á mánuði hjá Kaupþingi að sögn Davíðs Björnssonar, deildar-
stjóra verðbréfadeildar Kaupþings.
Auk þess að greiða 13% afföll
af bréfum Atvinnutryggingasjóðs
þurfa seljendur að greiða til Kaup-
þings 2% sölulaun þannig að heild-
arkostnaður við að selja bréfin nem-
ur alls tæplega 15%. Skuldabréf
sjóðsins eru sem kunnugt er til 6
ára með 5 jöfnum afborgunum,
hinni fyrstu að tveimur árum liðn-
um. Vextir eru 5%.
Davíð segir að seljendur.bréfanna
séu m.a. málmsmiðjur víða um land
og fyrirtæki sem flytji inn vörur
fyrir sjávarútveginn. Kaupendur
hafi aftur á móti verið þeirra eigin
verðbréfasjoðir auk lífeyrissjóða og
tryggingafélaga. „Ég hef ekki verið
í neinum vandræðum með að selja
bréfin enda er þetta ekkert annað
en annað form á spariskírteinum,“
sagði Davíð Björnsson.
Freöfisk-
útflutningur
1984-88
(Frystar botnfiskaturðir)
Bretland
131 milljón dollara
Freðfiskútflutningur 1984-88 (%) (Frystarbotnfiskafuröir)
Til: 1984 1985 1986 1987 1988
Bandartkjanna 68 65 55 48 36
Bretlands ’ 11 15 19 19 22
Sovétrtkjanna 11 10 8 6 6
Annarra landa 10 10 18 26 36
100 100 100 100 100
í millj. dollara 222 261 321 382 367
Á MYNDINNI séstþróun í útflutningi á frystum botnfiskafurðum 3
á árunum 1984—1988 samkvæmt verðmæti í bandaríkjadölum. Þar j
sést að mikil umskipti hafa átt sér stað á helstu mörkuðum íslendinga
á þessu árabili þannig að dregið hefur úr vægi útflutnings til Banda- ;
ríkjanna og Sovétríkjanna. Á sama tíma hefur útflutningur til annarra
markaða og Bretlands aukist hröðum skrefum. Af öðrum mörkuðum
er hlutdeild Japan langsamlega mest. Tekið skal fram að allar dollar-
afjárhæðir eru umreiknaðar frá íslenskum krónum eftir meðalgengi
dollars (kaupgengi) fyrir hvert ár, eins og það er gefið upp af Seðla-
bankanum. Á árinu 1988 var verðmæti útflutnings á frystum botnfiska-
furðum alls 367 milljónir bandaríkjadala eða 35% af heildarverðmæti
sjávarafurða sem nam í fyrra 1048 milljónum dala miðað við meðal-
gengi ársins. Heimild:SjávarafurðadeildSÍS.
EINKAÞJÓNNINN STJANAR VIÐ ÞIG í AUSTURSTRÆTI11
0G í MÚLAKOTI, SUÐURLANDSBRAUT 24
Einkaþjónn er tæki sem flýtir fyrir afgreiðslu. Með aðstoð hans og
bankakortsins færðu eítirtalcla þjónustu á einfaldan og fljótlegan hátt: • Yfirlit yfir Einka-
reikninga og tékkareikninga. • Yfirlit yfir sparisjóðsreikninga.' • Yfirlit yfir innlenda
gjaldeyrisreikninga. • Gengisskráningu dagsins. Ekkert leyninúmer
þarf til að nota Einkaþjóninn, aðeins bankakortið. Láttu Einkaþjón- MBb k
inn stjana við þig - til þess er hann.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna