Morgunblaðið - 25.06.1989, Síða 6
6 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ
Brynjólfiir Sandholt yfirdýralæknir:
Lipurmenni
í léttu skapi
STARF yfirdýralæknis er ekki alltaf dans á rósum; um það vitna
rimmur um riðuveiki, sláturleyfi, innflutning á dýrum og land-
búnaðarafurðum. En Brynjólfúr Sandholt, sem nú hefiir verið skipað-
ur yfirdýralæknir, virðist vera gæddur eiginleikum til að geta tek-
ist á við þetta starf.
Honum bera flestir vel söguna.
Hann er sagður hafa einna
fjölþættustu reynslu af dýralækn-
um landsins. Að hann eigi auðvelt
með að umgangast fólk og leggi
mikið upp úr að eiga friðsamleg
samskipti við menn og skepnur,
þótt þeir séu til sem ekki taka
undir þetta. Hann sé diplómat,
hlusti á skoðanir annarra og taki
tillit til þeirra en þykist ekki hafa
meira vit en aðrir á öllu.
„Ég held að Brynjólfur verði
góður embættismaður: menn fá
ekki allt sitt fram í viðskiptum við
hann en fara þó aldrei alveg bón-
leiðir frá honum,“ sagði Helgi Sig-
urðsson dýralæknir sem starfaði
með honum í Kjósarumdæmi.
Brynjólfur Sandholt fæddist í
Reykjavík árið 1929, sonur Egils
Sandholts skrifstofustjóra og
Kristínar Brynjólfsdóttur Sand-
holts. Hann
lauk stúdents-
prófi frá MA
1950 og dýra-
læknisprófi frá
dýralæknahá-
skóla í Osló sex
árum síðar. Þar starfaði hann sem
aðstoðardýralæknir í eitt ár, en
gerðist þá héraðsdýralæknir í Búð-
ardal. Þar var hann til ársins 1968,
að vísu með þriggja ára hléi meðan
hann var við gæðaeftirlit hjá Cold-
water Seafood í Bandaríkjunum.
Brynjólfur tók þátt í pólitíkinni
í Laxárdalshreppi og var í 3. sæti
á lista Sjálfstæðisflokksins í sveit-
arstjómarkosningunum árið 1966.
Að talningu atkvæða lokinni virtist
Brynjólfur ætla að ná inn í hrepps-
nefnd á einu atkvæði. Atkvæðið
var svo úrskurðað ógilt og Brynjólf-
ur missti sætið. En úrskurðurinn
var kærður, honum hnekkt og
Brynjólfur fór aftur inn í hrepps-
nefndina.
Árið 1967 var Brynjólfur kosinn
oddviti Laxárdalshrepps en árið
eftir var hann skipaður héraðs-
dýralæknir í Kjósarumdæmi með
aðsetri í Reykjavík. Því starfi
gegndi Brynjólfur þar til hann var
skipaður yfirdýralæknir fyrir
skömmu. Á þeim 20 árum sem
Brynjólfur hefur starfað í
Reykjavík og nágrenni hafa orðið
miklár breýtingar, bæði á búskap
og dýrahaldi. Á síðari árum hefur
hefðbundinn búskapur dregist sam-
an en aðrar búgreinar eflst. Starf
Brynjólfs hefur því meir og meir
falist í eftirliti með laxeldisstöðv-
um, alifuglum og fuglasláturhús-
um, svo og hestaútflutningi.
í Reykjavík hefur áhugi á hesta-
mennsku aukist verulega og gælu-
dýrahald er orðið almennara á höf-
uðborgarsvæðinu. Brynjólfur rekur
nú Dýraspítal-
ann í Víðidal
ásamt fleirum
og einnig sér-
stakan hesta-
spítala í Víðidal
og vakti nýlega
athygli fyrir að gera þar holskurð-
aðgerð á hesti í fyrsta skipti hér á
landi. „Brynjólfi hefur alltaf tekist
að aðlaga sig breyttum aðstæðum
og náð að fylgjast með. Hann hef-
ur enn í fullu tré við þessa yngri,“
sagði Helgi Sigurðsson.
Fulltrúar þein-a búgreina sem
áður voru nefndar, og Morgun-
blaðið ræddi við, voru sammála um
að samstarfið við Brynjólf hefði
verið gott. Fiskeldismaður talaði
um sérlega gott samstarf, alifugia-
ræktandi sagði að Brynjólfur hefði
verið vinsæll meðal þeirra og alltaf
ráðið mönnum heilt. Hestamaður
sagði Brynjólf vera virtan og vin-
sælan meðal hestamanna. Og náinn
Brynjólfiir Sandliolt.
samstarfsmaður hans sagði að
aldrei hefði borið skugga á ára-
langt samstarf þeirra.
Létt skap, er það sem allir segja
einkenna Brynjólf. „Hann er upp-
örvandi og kemur manni alltaf í
gott skap,“ sagði Ólafur Skúlason
á Laxalóni. „Hann er alltaf í léttu
skapi þótt álagið verði mikið,“
sagði Helgi Sigurðsson, „og það
hefur haldið honum gangandi.
Hann er mikill húmoristi og tilbú-
inn til að gera grín að öllu saman
ef því er að skipta. Og hann er
yfirleitt hrókur alls fagnaðar þar
sem fólk kemur sarnan."
Menn vænta sér góðs af Brynj-
ólfi í embætti yfirdýralæknis.
„Þetta er erfitt og vanþakklátt
starf sem hann tekur við. En ég
held að liprari mann sé ekki hægt
að fá.“ „Hann ætti að koma vel til
ráðs vegna þess að hann er lipur-
menni,“ voru dæmigerð ummæli.
Brynjólfur er kvæntur Agnesi
Aðalsteinsdóttur og þau áttu perlu-
brúðkaup, 30 ára, nú í febrúar. Þau
kynntust þegar Brynjólfur kom
heim frá Noregi og byijuðu bú-
skapinn í Búðardal. Þau eiga þijú
börn og tvö þau eldri eru flutt að
heiman, en yngsta dóttirin lauk
stúdentsprófi í vor.
Brynjólfur mun hafa haft fáar
tómstundir gegnum árin. Hann er
veikur fyrir golfíþróttinni, en hefur
lítið getað stundað hana þar sem
starfið hefur tekið mestan hans
tíma. Hvort frítíminn finnst í yfir-
dýralæknisembættinu skal ósagt
látið.
SVIPIVIYND
eftir Gudmund Sv. Hermannsson
1989
Hugsaði um græn-
golandi hylinn sem
ég stefiidi óðfluga á
- segir Jóhann Steinsson sem rak 200
metra undan straumi í Laxá í Kjós
L AXVEIÐIMAÐUR var hætt kom-
inn í Laxá í Kjós fyrir skömmu
er hann hugðist vaða yfir ána, en
vanmat aðstæður og féll í flaum-
inn. Hann rak síðan um 200 metra
niður ána og hringsnérist alla leið
með vöðlurnar fúllar af lofti, en
hann hafði ekki reyrt um sig
vöðlubeltið. Örfáum metrum fyrir
ofan grængolandi hyl steytti veiði-
maðurinn á skeri og tókst að ná
landi við illan leik.
Við félagamir höfum farið nokkr-
um sinnum í Laxá og þekkjum
orðið helstu veiðistaði og staðhætti.
Ofarlega í ánni milli Berghyls og
Túnhyls er venjulega ekið yfir ána
ef menn eru á jeppum, en er við
komum að vaðinu steig ég út úr
bílnum til að kanna aðstæður. Ég
óð aðeins út í og sá ekki betur en
að allt væri í stakasta lagi, áin var
að vísu mjög vatnsmikil, en vel væð.
Best að skilja jeppann eftir og vaða
yfir, sagði Jóhann Steinsson, lax-
veiðimaðurinn sem lenti í hrakning-
unum í samtali við Morgunblaðið.
Hann hefur áfram orðið:
„Félagi minn kom út úr jeppanum
og við óðum báðir af stað, ég á und-
an og fór rösklega. Það dýpkaði ört
og straumurinn harðnaði, en ég hélt
mínu striki enda bjóst ég við að áin
grynnkaði með hveiju skrefi. Þegar
ég stóð úti í miðri á með vatnið belj-
andi við magann og náði ekki að
stíga næsta skref varð mér hins veg-
ar ekki um sel. Þegar ég kýldi fótinn
niður, skipti engum togum, að áin
reif mig með sér. Ég hafði ekki reyrt
beltið um mig og vöðlurnar blésu út
og, merkilegt nokk, virtist það verða
mér að einhveiju leyti, að minnsta
kosti, til bjargar. Ég sökk að minnsta
kosti ekki þótt ég sypi hveljur hvað
eftir annað. Ég hugsaði sitthvað
meðan ég flaut niður ána, ekki síst
um grængolandi Túnhylinn sem ég
stefndi óðfluga á, en það er 10 til
15 metra djúpur hylur og breiður
eftir því. Þegar ég flaut upp á sker-
ið rétt fyrir ofan hylinn var fyrsta
Jóhann Steinsson við Laugar-
dalsá við Djúp á síðasta án.
sjónin sem við mér blasti félagi minn
á hinum bakkanum skellihlæjandi,
enda var það ekki fyrr en eftir á að
við áttuðum okkur fyllilega á þeirri
lífshættu sem ég raunverulega var í.
Þetta var mikil raun og ég fiat-
magaði á bakkanum í einar tíu
mínútur áður en ég gat staulast á
fætur, en þá beið mín að komast
aftur yfir á hinn bakkann. Ég óð
yfir á öðrum stað og lenti aftur í
miklum vandræðum, en þetta endaði
farsællega. Eftir á að hyggja held
ég að það hafi verið rétt hjá mér að
beijast ekki við strauminn heldur lét
ég hann taka mig, því í hvert sinn
sem ég fann botn með fótunum snér-
ist ég eins og korktappi í ánni. Þetta
var mikil reynsla og maður gætir sín
betur framvegis. Þetta ætti líka að
vera áminning til allra veiðimanna,
sérstaklega þessa dagana þegar árn-
ar eru í vexti og sumar gruggugar
að auki,“ sagði Jóhann Steinsson.
íslenska unglingalandsiðið í skák sem vann fjögurra landa keppni í
Svíþjóð í vikunni.
Ungir skákmenn
unnu 4 landa keppni
ÍSLENSKA unglingalandsliðið í
skák sigraði á Qögurra landa
skákkeppni sem fram fór í
Malmö í Svíþjóð í vikunni.
Islenska liðið fékk alls 17 vinn-
inga, Norðmenn komu næstir
með 15 vinninga en Danir og Svíar
voru með 14 vinninga. Danir fengu
3. sætið á stigum.
Islendingarnir unnu Svía með
5 ióvinningi gegn 4 'L Þeir unnu
Norðmenn með 6 'Avinningi gegn
3'Aen gerðu jafntefli við Dani 5-5.
Helgi Áss Grétarsson og Þröstur
Ámason náðu bestum árangri ein-
staklinga, 2 !4vinningi af 3 mögu-
legum. Hannes Hlífar Stefánsson,
Andri Áss Grétarsson, Tómas
Björnsson og Héðinn Steingríms-
son náðu allir tveimur vinningum.
Auk þeirra vom í liðinu Þröstur
Þórhallsson, Sigurður Daði Sigfús-
son, Snorri Karlsson og Ragnar
Fjalar Sævarsson. Fararstjórar
voru Ólafur H. Ólafsson og Hilmar
Thors.
Ágreiningur um söluskatt:
Fógeti hótar að loka bæjarskrif-
stofimum í Keflavík og Njarðvík
BÆJARFÓGETINN í Keflavík hefúr gefið bæjarsljórnum Njarðvíkur
og Keflavíkur frest til mánudagsmorguns til að greiða söluskattsskuld
frá árunum 1983 og 1984 vegna seldrar raforku ella verði bæjarskrif-
stofúnum lokað og þær innsiglaðar. Skuld Keflavíkurbæjar er 2,7
milljónir, en Njarðvíkinga um 900 þúsund krónur. Fulltrúi fógeta fór
til Grindavíkur á föstudagsinorgun og ætlaði að loka bæjarskrifstof-
unni vegna söluskattsskuldar að upphæð tæplega 900 þúsund króna,
en áður en til þess kom var krafan greidd á staðnum með fyrirvara.
Guðfinnur Sigurvinsson bæjar-
fógeti í Keflavík sagði að hér
væri vart hægt að tala um annað
en ofbeldisaðgerðir af hálfu ríkis-
valdsins. Krafist væri söluskatts af
götulýsingu, en á þessum árum ráku
bæjarfélögin rafveiturnar. Guðfinn-
ur sagði að um þetta væru engar
reglur og hefði úrskurði skattstjór-
ans í Reykjanesi verið vísað til Ríkis-
skattanefndar sem prófmáli af tveim
bæjarfélögum. „Ég hef boðað bæjar-
ráð á fund strax á mánudagsmorgun
þar sem þetta mál verður tekið fyr-
ir, þetta eru harklegar aðgerðir á
meðan ekki hefur verið úrskurðað í
málinu og það er þungt í mér vegna
þessa," sagði Guðfinnur ennfremur.
Oddur Einarsson bæjarstjóri í
Njarðvík sagði að óbilgimi ríkis-
valdsins væri með eindæmum í þessu
máli. Hér væri um hreinar þvingun-
araðgerðir að ræða og deila mætti
um lögmæti þeirra. Oddur sagði að
í ársreikningum frá árinu 1985 hefði
Aðalmál prestastefnunnar 1989
fjallar um safnaðaruppbygg-
ingu. Framsögumenn eru dr. Gunn-
ar Kristjánsson, sr. Bemharður
Guðmundsson fræðslustjóri, sr.
Kristján Valur Ingólfsson og Ragn-
heiður Sverrisdóttir, djákni.
Þá mun prestastefnan fjalla um
frumvarp það um skipan presta-
kalla og prófastdæma, sem hinir
ýmsu kirkjulegu aðilar hafa rætt
að undanfömu og mun væntanlega
komið í ljós að fyrir mistök vegna
tölvuvæðingar hefði söluskattur af
rafmagni verið tvígreiddur í sama
mánuðinum. Þessir fjármunir sem í
dag væru um 1,9 milljón króna hefðu
ekki enn fengist endurgreiddir og
myndi hann á mánudagsmorgun
gera kröfu um að skuld bæjarins
yrði jöfnuð út og honum greiddur
mismunurinn.
verða lagt fyrir Alþingi innan tíðar.
Framsögumaður er séra Jón Einars-
son prófastur.
Prestastefnunni lýkur í Bessa-
staðakirkju á fimmtudag klukkan
18 að loknu heimboði forseta ís-
Iands. Einnig munu prestar og
makar þeirra þiggja boð biskups-
hjónanna Sólveigar Ásgeirsdóttur
og herra Péturs Sigurgeirssonar í
Biskupsgarði.
BB
Prestastefiia á þriðjudag
PRESTASTEFNA 1989 verður sett þriðjudaginn 27. júní. Stelhan
stendur í 3 daga og verður haldin í Kirkjuhvoli, safhaðarheimili
Garðasóknar í Garðabæ. Þetta er síðasta prestastefna sem herra
Pétur Sigurgeirsson biskup stýrir, en hann lætur af embætti 1. júlí nk.