Morgunblaðið - 25.06.1989, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.06.1989, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JUNI 1989 / RADHERRA AII> VinilOKklKIW HEFIIR 0FTA8T FARIDILLA NED FORMEW SÍW. SEGIR BIM DIKI GROMDAL SEMIIIIIRKA OG FTRRIIM FOKAIADIK ALÞÝDIILOKKSIAS EIVIIAW HEFIIR I\É GERT EIT FORTÍÐIM OG KVEDST HLAKK A TIL AÐ I AKASIÁ VID M AIIRKEEM Á AI ITA AAKISAAIEIMDI ÞIÓD AW A / eftir Svein Guðjónsson SÍMINN HEIMA hjá honum hefiir varla stoppað undan- farna daga og gömul flokks- systkin hafa keppst um að lýsa yfir stuðningi við fyrr- um formann sinn og jafii- framt andúð sinni á fram- komu núverandi formanns, utanríkisráðherrans, í hans garð. Þeir tveir hafa þó gert upp sín mál og Benedikt Gröndal sendiherra, fyrrum forsætisráðherra og formað- ur Alþýðuflokksins, hefur þegið boð ráðherrans um að taka við starfi fastafúlltrúa Islands hjá Sameinuðu þjóð- unum í New York frá og með 1. október næstkom- andi, þegar Hans G. Ander- sen lætur af því starfí. Sjálf- ur kveðst Benedikt vera undrandi á þeirri athygli sem mál hans hefiir vakið. / ánægja fyrst og fremst af því að undanfar- ið hef ég setið starfslítill og einangr- aður í skrifstofu, sem er ekki í ráðu- neytinu, heldur því sem kallað er elliheimili ráðuneytisins," sagði Benedikt er hann var spurður um aðdraganda þess að hann sagði upp starfi sínu sem sendiherra. „Eg undi þessari þróun illa og gerði ýmsar tilraunir til að fá svör og niðurstöðu, en að lokum taldi ég mér ekki fært annað en að segja upp. Það þýddi að ég var reiðubúinn að hætta þá og fara á ellilaun ekki eldri en ég er. Ráðherrann brá þá við, lagði fram þessa lausn á málinu og sjálfur er ég mjög sáttur við þá niðurstöðu." — En er ekki hægt að líta á þetta sem dúsu eða leikfléttu, sem ráð- herrann hefur gripið til í því skyni að lægja öldur innan Alþýðuflokks- ins, — koma sér út úr óþægilegri aðstöðu og friða þig í leiðinni? „Frá mínum bæjardyrum séð er ekkert óeðlilegt við þessa lausn. Það sem ég bað um var að fá að vinna fyrir kaupinu mínu í stað þess að sitja aðgerðarlítill og einangraður í ráðuneytinu. í rauninni má rekja upphaf þessa máls lengra aftur. Þegar ég fór úr pólitíkinni á sínum tíma og tók við sendiherrastöðu í Stokkhólmi, ræddi ég um það við þá utanríkisráðherra sem ég starf- aði fyrir á þessu tímabili, Olaf Jó- hannesson, Geir Hallgrímsson og Matthías A. Matthiesen, að þeir notuðu ekki heimild sem ráðherra hefur jafnan til að senda menn úr einu sendiráði í annað, heldur mætti ég að loknu starfinu í Stokkhólmi koma heim til starfa við utanríkis- ráðuneytið. Það tækifæri kom svo fyrir tæpum tveimur árum þegar Pétur Thorsteinsson lét af starfi heimasendiherra, en hann var brautryðjandi í því kerfí, sem mjög hefur verið að ryðja sér til rúms með þjóðum um allan heim. Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að þetta fyrirkomuleg með heima- sendiherra sé góð lausn, enda að það gefur augaleið að útilokað er fyrir smáþjóð eins og okkur íslend- inga að hafa sendiherra búsetta í mörgum löndum, en frjálsum ríkjum fer nú fjölgandi og eru orðin á milli 170 og 180. Ég tók því við þessu starfi með tilhlökkun og áhuga, fannst þetta spennandi. Þessi fjar- lægu lönd eru á svæði sem sífellt verður þýðingarmeira fyrir við- skiptahagsmuni okkar. Ég gekkst sem sagt upp í þessu og undirbún- ingur undir ferðir til hvers lands var eins og undirbúningur undir há- skólapróf. Þetta gekk vel í byijun og miklum hluta tímans eyddi ég í markaðsmál. En í byijun þessa árs var í spam- aðarskyni farið að stöðva ferðir, sem ég taldi vera mikilvægar embættis- ferðir. Svo birtust áætlanir ráð- herrans um endurskipulagningu og þar var greinilega stefnt að því að leggja þetta starf mitt niður, án þess að nokkuð lægi fyrir um hvað við tæki hjá mér, þótt lögbundið sé •k

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.