Morgunblaðið - 25.06.1989, Síða 13

Morgunblaðið - 25.06.1989, Síða 13
Grænmeti fleygtá öskuhauga TALSVERT hefiir verið um það að undanförnu að grænmeti hafi verið hent á öskuhauga. Af því tilefhi hafa Neytendasamtökin sent frá sér eftirfarandi alyktun: Að undanförnu hefur verði á fjöl- mörgum tegundum af innlendu grænmeti verið haldið óeðlilega háu og hefur það leitt til samdráttar ít neyslu á þessu hollmeti. í stað þess að lækka verðið og auka um leið kynningu á vörunni, grípa framleiðendur til þess ráðs að henda tómötum og fleiri tegund- um grænmetis á haugana. Neytendasamtökin fordæma þessa sóun verðmæta og telja að með slíku athæfi séu framleiðendur að storka neytendum og varpa skugga á eigin orðstír. Hafa ber í huga að stjómvöld vemda innlenda framleiðslu frá samkeppni við innflutt grænmeti. Auk þess ríkir ekki eðlileg sam- keppni í dreifingu á þessum vömm vegna verðsamráðs framleiðenda sem í raun er brot á lögum. Þetta ástand er því með öllu óviðunandi. Ef ekki verður hér tafarlaust ráðin bót á og verð á grænmeti lækkað, munu Neytendasamtökin grípa til allra tiltækra ráða til að bæta hag neytenda í þessu efni. Grænlend- ingnm feerð- argjafirítil- efiii afinælis GRÆNLENDINGAR héldu upp á 10 ára afinæli grænlensku heima- stjórnarinnar á miðvikudag. Við- stödd hátíðahöldin í Nuuk voru, meðal annarra Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra, Jón Sigurðsson viðskipta- og iðnað- arráðherra, Steingrímur J. Sigf- ússon landbúnaðar- og sam- gönguráðherra og eiginkonur þeirra, svo og Páll Pétursson al- þingismaður og Jón Sveinsson aðstoðarmaður forsætisráð- herra. Frá Danmörku komu, meðal annarra, á hátíðina í Nuuk, Margrét Danadrottning, Hinrik prins, Poul Schliiter forsætisráð- herra, Uffe Ellemann-Jensen ut- anríkisráðherra og Erik Ninn- Hansen þingforseti. Grænlendingum voru færðar ýmsar gjafir í Nuuk í tilefni af af- mæli heimastjórnarinnar. Steingrímur Hermannsson afhenti, fyrir hönd íslensku ríkisstjórnarinn- ar, styrki til náms við bændaskól- ann á, Hvanneyri og sjávarútvegs- braut við háskólann á Akureyri. Jón Sigurðsson færði grænlensku land- stjórninni 250 þúsund danskar krónur (um 2 milljónir íslenskra króna) til að styrkja listamenn til dvalar á öðrum Norðurlöndum og Páll Pétursson gaf glerlistaverk fyrir hönd forsætisnefndar Norður- landaráðs. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JUNI 1989 13 U TiTiAfitTM'/ líaplakrild FH^-KR Stórsloguf í kl.*° <3Q Utvegsbanki Islandshf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.