Morgunblaðið - 25.06.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.06.1989, Blaðsíða 14
14 „MOKGUNBLAÐJÐ ;S,UNrN'UPAGUH 25. .JÚNÍ, 1989 Af fðrsum og fuskurum Það getur oft verið varasamt að hugsa upphátt og því var það að ég varð að sæta færis að setja hugsanir mínar á blað, þannig að þær yrðu nú ekki til þess að valda meiri háttar „skandal“. Eftirfarandi eru því hugsanir mínar á þeirri stundu er ég settist fyrir framan tölvuna, sem Alþingi var svo vingjamlegt að útvega mér, sem og öðmm þingmönnum sem þess óska. ær hugsanir sem þjóta nú í gegnum huga minn eru margvíslegar, ég ætla að. gera heiðarlega tilraun til þess að setja nokkrar þeirra á blað. Fyrst er að minnast á leikþátt Benedikts Gröndal sem hann svið- setti svo meistaralega fyrir nokkr- um dögum er hann notfærði sér fjarveru utanríkisráðherra og sendi inn uppsagnarbréf sitt sem heima- sendiherra, Þetta var einn af þessum „týpísku" försum sem við höfum svo oft verið vitni að, allt lendir í einu rugli, en skýrist svo þegar á farsann líður, og þegar tjaldið fellur hefur söguhetjan náð því fram sem hún í upphafi hafði ætlað sér. Af þessu máli öllu lagði svo megnan óþef að með ólíkindum var, og verð ég að segja eins og er að ég er yfir mig hissa á Bene- dikt að setja sitt ágæta nafn við annan eins skollaleik, en að leikur- inn skuli tengjast flokki alþýðunnar kemur mér ekkert á óvart, því þar eru skrítnir hlutir ævinlega að ger- ast, og leiðir það þá hugann að við- brögðum utanríkisráðherrans við yfirlýsingum annars heimasendi- herra, Hannesar Jónssonar, er hann sagði að skipulagsmál utanríkis- þjónustunnar væru í höndum fúskara. Ef einhver hefur nokkru sinni verið að kasta grjóti úr glerhúsi er það ráðherrann sjálfur í þessu máli, því hvaða stjómmálamaður hefur verið þessum ráðherra fremri í stór- yrðum og sleggjudómum. Enginn að mínu mati, og gleymi ég þá ekki Sverri Hermannssyni. Því er það með óllkindum að hann skuli nú kreijast afsökunar- beiðni af vörum Hannesar. Ég styð hins vegar Hannes fylli- lega í því að neita að biðja kóng eða prest afsökunar, enda hefur hann fullan rétt á því að hafa sínar eigin skoðanir á hvaða máli sem er, einnig þessu. Það er hins vegar verra að hinn yfirlýsingaglaði ráðherra hefur látið hafa það eftir sér að ef ekki komi fram afsökunarbeiðni frá Hannesi beri honum að víkja honum úr starfi. — Nú er spurningin sú, hvort að ráðherra beri ekki að biðja Hann- es opinberlega afsökunar á frum- hlaupi sínu, ellegar segja af sér. I vikunni stóð fjármálaráðherra fyrir því að ijöldanum öllum af fyr- irtækjum var fyrirvaralaust lokað vegna söluskattsskulda og þau inn- sigluð af innheimtumönnum ríkis- ins. Þessi aðgerð fannst mér fyrir neðan allar hellur, og er ég þó á engan hátt að veija þá sem skulda söluskatt, en lágmarks mannasiðir finnst mér þó vera að tilkynna mönnum hvað standi til, segja til dæmis við þessa aðila að ef ekki verði búið að greiða skuldina fyrir þennan eða hinn daginn þá verði gripið til þessara aðgerða. Þá hefði enginn getað kvartað, en eins og þetta var gert bitn- aði þessi aðgerð ekki aðeins á eigendum fyrirtækjanna, heldur einnig á starfsfólki þeirra og síðast en ekki síst á þeim er síst skyldi, viðskipta- vinunum. í framhaldi af þessu má spyija hvort ríkið geti farið í slíkar aðgerðir þegar það er í ýmsum til- fellum að rukka inn söluskatt af vöru eða þjónustu sem hefur verið seld ríkinu sjálfu, en það hefur svo ekki staðið í skilum með greiðslur, þannig að greiðsla hefur ekki borist seljanda, en engu að síður er honum gert að greiða söluskatt, sem hann er sagður aðeins „geyma“ fyrir ríkissjóð. Auðvitað er þetta fárán- legt. Sama má segja um það að loka hjá aðilum sem eru með sín mál hjá ríkisskattanefnd og bíða úr- skurðar hennar, einsv og gert var með myndbandaleigurnar. Þau fimm atriði sem ríkisstjórnin kynnti til þess að bæta lífskjör al- mennings í landinu voru aumkunar- verð. Það læðist að manni sá grun- ur að þetta hafi alltaf staðið til, þeir hafi hugsað sem svo, að til þess að fólk sætti sig við ákveðna hækkun skulum við hækka allt nokkuð meira en við þurfum, þá getum við iækkað okkur seinna og komið út sem „góðu“ mennirnir eftirá. En hver voru þessi aumkunar- verðu atriði þá, þau voru í fyrsta lagi, að persónuafsláttur og barna- bætur skyldu hækka, þetta er ekki nein aðgerð af hendi ríkisstjórnarinnar, þar sem þetta átti að taka gildi um næstu mán- aðamót samkvæmt lögum, „ergó“ engin aðgerð. I öðru lagi aukin niðurgreiðsla á mjólk, eða um 3.00 kr. á lítrann, gott og bless- að svo langt sem það nær. En hér er aðeins verið að auka enn hin- ar mjög svo varasömu niðurgreiðslur, sem að sjálfsögðu koma beint úr vasa skattgreið- enda. í þriðja lagi lækk- aði ríkisstjórnin bensínlítrann um 2.00 kr. af blýlausu bensíni, en segja við sama tækifæri að verðlækkun á bensíni sé hvort sem er á leiðinni vegna lækkandi verðs erlendis frá. I fjórða lagi er boðuð mikil verð- lækkun á gömlu lambakjöti, hún á aðeins að standa í nokkra mánuði og þá verður sama háa verðið aftur við lýði hvort sem um er að ræða nýtt eða gamalt lambakjöt. Auðvit- að átti að stíga skrefið til fulls og lækka allt lambakjöt ekki aðeins það gamla óseljanlega og verðandi haugakjöt. í fimmta lagi er boðuð Iækkun raunvaxta og er það eina aðgerðin sem skilar einhveiju raunhæfu til þeirra sem í mestum vanda eru vegna efnahagsstefnu undanfar- inna ár. Ég vona að skilyrðin í þjóð- félaginu séu nú til staðar til þess að þessi lækkun fái staðist og að áfram verði haldið á sömu braut. Það er hins vegar vandséð að svo verði, þar sem verðbólgan virðist vera komin á flug á ný og ekkert sem bendir til þess að þessi ríkis- stjórn kunni nokkur ráð til þess að hemja hana, nema það eina sem hún á í stöðunni, að segja af sér. Flestar þessar aðgerðir eru því ekki í raun aðgerðir heldur það sem var í farvatninu, hitt er svo annað mál að ef ríkisstjórnin vill gera eitt- hvað til þess að bæta lífskjör fólks í Iandinu, þá verður hún að snúa sér strax að því að lækka verð á helstu nauðsynjavörum heimilanna, matvælum. Ef það er ekki hægt að gera það með hagræðingu og endurskipu- lagningu á öllum sviðum, er ekkert annað í stöðunni en að fara að líta alvarlega til þess að opna smátt og smátt fyrir innflutningi á tilteknum HUGSAÐ UPPHÁTT / dag skrifar Ingi Bjöm Albertsson, þingflokksformabur Frjálslynda /uegri flokksins. TILBOÐ OSKAST í Isuzu Trooper II 4 x 4 LS árgerð ’87 (ekinn 19 þús. mílur), Ford Bronco II 4 x 4 XLT „Eddie Bauer“ árgerð ’85, Chevrolet Cavalier Z-24 árgerð '86, ásamt öðrum bifreiðum, er verða sýndar á Grensás- vegi 9, þriðjudaginn 27. júní kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. Kannt þú nýja símanúmerið? Steindór Sendibílar /3/67 Seglbretti og sæsleðar! Arnarnesvogi, v/aðstöðu Siglingaklúbbsins Vogs. Eurosurf seglbrettaskólinn Ný námskeið að hefjast. Kennt jafnt um helgar og virka daga. Nýr góður búnaður útvegaður á staðnum, einnig leiga. Upplýsingar og skráning í símum 82579 og 52779. Sæsleðaleiga Sæmundar á Selnum sf. Ný kraftmikil tæki fyrir fólk frá 16 ára og uppúr. Þurrbúningur fylgir. Opnunartími kl. 14-22 virka daga, 12-22 um helgar. Upplýsingar í síma 52779. kynningarafsláttur af Rosenthal boróbúnaói Matar- og kaffistell í sérflokki Laugavegi91.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.