Morgunblaðið - 25.06.1989, Side 21
ATVINNU RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Lausar stöður
í sjávarútvegi
Fiskvinnslufyrirtæki á Suðurnesjum óskar eftir góðum manni
til að sjá um rekstur á litlu frystihúsi. Tekið er fram að
hann þurfi að geta gengið í flest störf. Þá vill ein stærsta
og fullkomnasta rækjuverksmiðja a Norðurlandi ráða fram-
leiðslustjóra til starfa við verksmiðjuna í haust. Leitað er
að manni með haldgóða þekkingu á frystingu og pökkun á
matvælum. Matsréttindi og stjórnunarreynsla er æskileg.
Þá þarf framleiðsiustjórinn að hafa frumkvæði að nýjungum
í framleiðslu, vera ábyggilegur, stundvís og reglusamur.
Trésmiðir óskast
Húsasmíðameistari óskar eftir að ráða trésmiði í viðhalds-
verkefni. Einnig óskar Birkir hf. eftir að ráða trésmiði í
mótauppslátt og Sökkull sf. óskar eftir vönum trésmiðum
til innivinnu. Tekið er fram að unnið sé í uppmælingu og
mikil vinna sé fyrir hendi.
Þroskaþjálfar og
fóstrur óskast
Dagvist bama sem rekur sér deildir fyrir fötluð börn við
dagheimilin Múlaborg og Ösp vantar þroskaþjálfa og fóstrur
til starfa í haust. Einnig er óskað eftir uppeldismenntuðu
starfsfólki nú þegar á Dyngjuborg, Hlíðarenda, Nóaborg,
Njálsborg, Drafnarborg og Suðurborg. Til greina koma hluta-
störf bæði fyrir og eftir hádegi.
Stöður fram-
kvæmdastjóra
Rótgróið og fjárhagslega sterkt þjónustufyrirtæki vill ráða
framkvæmdastjóra strax eða samkvæmt samkomulagi. Leit-
að er að 28-35 ára gömlum manni, sem hefur viðskipta-
og/eða tæknimenntun á háskólastigi. Lögð er sérstök áhersla
á að viðkomandi hafi áhuga og hæfileika á sviði sölu- og
markaðsmála annars vegar og á sviði framleiðslu- og gæða-
stýringar hins vegar. Þá auglýsa stór félagasamtök eftir að
ráða framkvæmdastjóra. Æskileg er þekking á bygginga-
og tölvumálum.
RAÐAUGL ÝSINGAR
Hlutabréf til sölu
Til sölu eru hlutabréf í Verslunarbanka íslands hf að nafn-
verði kr. 493.705. Lágmarkssölugengi 1,47. Tekið er fram
að aðeins staðgeiðsla komi til greina.
Hluti heildverslunar
til sölu
Heildverslun sem verið er að endurskipuleggja hefur áhuga
á að selja eina af fjórum deildum frá sér. Um er að ræða
viðskipti upp á 35—50 millj. kr. á ári. Um er að ræða við-
skiptasambönd innanlands og erlendis og lager. Hugsanlegt
er að selja þessa einingu sem sjálfstæðan rekstur eða sam-
eina öðru starfandi fyrirtæki.
smáÁÚglýsÍngÁr
Kristileg samtök
kvenna með fimd
AGLOW — Kristileg samtök kvenna heldur fund annað
kvöld, 26. júní í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi kl.
20—22. Björg Halldórsdóttir mun tala til gesta um efnið:
Vilji mannsins. Allar konur eru hjartanlega velkomnar.
Iðnaðarmenn:
A tvinn uástand gott
Næg atvinna í sumar, en uggur í mönnum
„Ástandið er í rauninni mjög skrýtið í þjóð-
félaginu í dag hvað varðar vinnu hjá iðnaðar-
mönnum. Það er vitlaust að gera hjá sumum
meðan aðrir hafa lítið sem ekkert fyrir stafni.
Það er meira talað um kreppu en við í raun-
inni fínnum fyrir. Að vísu er öll fjármögnun
erfið og maður hefur heyrt að steypustöðvarn-
ar séu í erfíðleikum með að fá greidda reikn-
inga. En það eru ekki einstaklingarnir sem eru
í vandræðum með að borga, svo að það hljóta
að vera fyrirtækin," segir Friðgeir Indriðason
framkvæmdastjóri Meistara- og verktakasam-
bands byggingarmanna.
Hann telur erfitt að segja um
atvinnuástand félaga innan
sambandsins sé litið á landið í heild,
því það sé mjög mismunandi eftir
Atvinnuleysi:
Greiðslur
frá áramót-
um 440 m.kr.
GREIÐSLUR úr Atvinnuleysis-
tryggingasjóði eru samtals frá
áramótum vegna atvinnuleysis-
bóta og eftirlaunastyrkja lámar
440 miHjónir króna, en um áramót
var eigið fé sjóðsins um 1,8 millj-
arðar. Lausafjárstaða sjóðsins er
nú rúmar 205 milljónir.
Ekki er ljóst hversu lengi verður
hægt að greiða atvinnuleysis-
bætur úr Atvinnuleysistrygginga-
sjóði, því að samkvæmt tölum frá í
apríl sl. voru tekjur sjóðsins tæpar
32 milljónir króna, þar af inngreiðsl-
ur ríkssjóðs 15.333 millj. kr., greiðsl-
ur frá sveitarfélögum 8.782 millj. kr.
og frá atvinnurekendum 7.667 millj.
kr. Hins vegar voru greiddar úr
sjóðnum um 100 millj. kr., þar af
atvinnuleysisbætur að upphæð
70.466 millj. kr. og styrkir vegna
eftirlauna 29.921 millj. kr.
Ríkissjóður er borgunarskyldur ef
Atvinnuleysistryggingasjóður getur
ekki staðið undir bótagreiðslum.
byggðarlögum, en það sé ekkert
svartnætti. Varðandi hvað verður í
haust segir Friðgeir að í rauninni sé
ekkert áþreifanlegt um að ástandið
versni, en samt sé það sterk tilfinn-
ing manna. Hins vegar þurfi ekki
nema eitt stórt mannvirki til þess
að allt snúist við og þá sé næg at-
vinna fyrir hendi.
„Á sambandsstjórnarfundi MVB,
sem haldinn var sl. fimmtudag var
kannað ástand félagsmanna um land
allt. Þar kom fram, að á Akranesi
er og hefur verið lítið að gerast í
byggingarmálum. Á svæðinu frá
Akranesi að Sauðárkróki er ekkert
meistarafélag, þannig að engin yfir-
sýn er yfir það svæði.
Fyrir vestan er ástandið þokkalegt
og eins á Sauðákróki. Atvinnu-
ástandið á Akureyri er sambærilegt
við Reykjavík, eða gott, og bendir
allt til þess að svo verði áfram. Hins
vegar ef farið er út Eyjafjörð er ekk-
ert að gerast og sama er að segja
um Húsavík. Á Austfjörðum er ekk-
ert meistarafélag, en ég held að þar
sé atvinnuástandið sæmilegt.
Á suðurlandsundirlendinu er ekk-
ert að gerast hjá bændunum og í
sveitunum. Ef litið er hins vegar til
Selfoss og Hveragerðis er ástandið
ágætt, en þar óttast menn að ekkert
verði að gerast í haus. Á Suðurnesj-
um er fullt að gera hjá fyrirtækjum
sem vinna á Keflavíkurflugvelli, en
lítið að gera hjá bæjarfélögunum og
þar ríkir mikil svartsýni á næsta
vetur. í Hafnarfirði er nóg að gera,
en þar er búist við að hægist með
haustinu.
I Reykjavík er ástandið mjög mis-
munandi. Hjá sumum byggingafyrir-
tækjum eru verkefni framundan fyr-
ir næstu 2-3 ár, aðrir hafa nóg, en
ekkert sérstakt er framundan. Hjá
múrurum er til dæmis vitlaust að
gera og sjá þeir ekki fram á annað
en að það verði áfram. Sama er að
segja um pípulagningamenn og mál-
ara. Sú breyting hefur reyndar átt
sér stað hjá málurum, að þeir eru
meira komnir út í viðgerðir en nýmál-
un. Hjá trésmiðum er nóg að gera
núna, en þeir álíta að það dragist
saman með haustinu."
Mikil viiina
í Súðavík
ATVINNUÁSTAND í Súðavík
hefúr verið mjög gott það sem
af er sumri. Skuttogarinn Bessi
hefúr aflað vel að vanda að und-
anförnu og hefúr uppistaðan í
aflanum verið grálúða eins og
venjulega á þessum árstíma. Hef-
ur því verið stöðug og mikil vinna
hjá Frosta hf. sem vinnur afla
af Bessa ÍS.
Prátt fyrir mikla skerðingu á
fiskikvóta Súðvikinga eru
forráðamenn Frosta hf. þokkalega
bjartsýnir um að hægt verði að
halda uppi fullri atvinnu allt árið.
Togarinn Bessi mun hverfa úr
rekstri á árinu en í hans stað kem-
ur nýr togari með sama nafni. Að
sögn Ingimars Halldórssonar fram-
kvæmdastjóra Frosta hf. er ekki
ljóst hvenær núverandi Bessi hverf-
ur úr rekstri. Ekki þurfa Súðvíking-
ar þó að óttast atvinnuleysi á með-
an, því að sögn Ingimars mun
rækjuveiðiskipið Haffari halda til
bolfiskveiða á þeim tíma svo nægt
hráefni ætti að verða til vinnslu hjá
Frosta hf.
. í sumar hafa verið gerðir út þrír
bátar til úthafsrækjuveiða frá
Súðavík. Afli hefur þó enn sem
komið er verið frekar lítill og er það
í samræmi við það sem er að ger-
ast annars staðar á íandinu.
Skólakrakkar hafa ekki þurft að
kvarta um atvinnuleysi hér þar sem
þau yngstu á aldrinum 12-14 ára
hafa unnið á vegum Súðavíkur-
hrepps að undanförnu við fegrun
og snyrtingu bæjarins.
- DóJó
Tæplega
30 manns
á atvinnu-
leysisskrá
Hellu.
ATVINNA er nú minni hér
en verið hefúr undanfarin ár
og eftirspurn eftir vinnu er
meiri en verið hefúr um ára-
bil.
Síðastliðin þijú ár hefur fólki
heldur fækkað og er það
sjálfsagt réttasti mælikvarðinn
á að atvinna hefur minnkað.
Því veldur samdráttur í land-
búnaði og allri þjónustu sem
honum tengist. Einnig eru
byggingarframkvæmdir í lág-
marki.
Um síðastliðin mánaðamót
voru tæplega 30 manns á at-
vinnuleysiskrá, þar af voru Á
hlutar konur.
- Jón