Morgunblaðið - 25.06.1989, Page 29

Morgunblaðið - 25.06.1989, Page 29
29 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1989 Afiiám skiptikjarareikning’a er eignaupptaka ríkisins á sparifé - segir Sverrir Hermannsson bankastjóri Landsbankans í viðtali við Morgnnblaðið Viðtal Agnes Bragadóttir SVERRIR Hermannsson, bankastjóri Landsbanka íslands, segir að áform ríkisstjómarinnar um að afnema skiptikjarareikninga bankakerfisins, þar sem meginþorri spariQár landsmanna sé geymdur, jafiigildi eignaupptöku rikisins á sparifé almennings. í samtalinu sem hér fer á eftir greinir hann frá því að Lands- bankinn muni í lengstu lög berjast gegn þessum áformum og verja hag spariQáreigenda. Hann greinir einnig frá því að það hafi verið ákveðið á bankaráðsfundi Landsbankans sl. fimmtudag að Landsbankinn stofiii sérstakt verðbréfafyrirtæki á næstunni. — Nú hefur það komið fram að ríkisstjórnin og Seðlabanki ís- lands telja að stefna beri að því að afnema eða þrengja mjög verð- tryggingarkjör skiptikjarareikn- inga bankanna. Hvert er þitt álit á þessu máli, Sverrir? „Þetta er að vísu ekki stefna Seðlabankans. Það er ríkisstjómin sem er að þrýsta á Seðlabankann, sem er náttúrlega ekkert nema partur af ríkisvaldinu. Ég minni á margendurteknar yfirlýsingar og gagnrýni forsætisráðherra og fleiri ríkisstjómarmanna á síðasta ári og upp úr áramótum í þá veru að bankakerfið græddi svo mikið. Framhaldið var svo það að ríkis- stjórnin fékk því ráðið að vaxta- stefnan varð sú að bankamir hafa stórtapað. Landsbankinn tapaði t.d. á flórða hundrað milljónum króna fyrstu ijóra mánuði þessa árs. Menn mega ekki halda að ríkisstjórnin sé áhrifalaus með öllu. Þetta eru beinar afleiðingar af stefnu hennar og því hvemig hún hefur beitt aðstöðu sinni og áhrifum. Fyrir skemmstu kom svo yfir- lýsing frá forsætisráðherra, að þar sem bankarnir töpuðu, þyrfti að frelsa þá frá skiptikjarareikn- ingum og eins og vant er — öllu snúið öfugt. Auðvitað þurfa kjörin í bönkum að vera bundin verð- bólgu. Ef þessi nýja stefna að eyðileggja skiptikjarareikningana verður ofan á, þá er með öðmm orðum, en réttari, verið að láta sparifjáreigendur borga brúsann. Þetta er einfaldlega eignaupptaka ríkisins á sparifé landsmanna." Milli 13 og 14 milljarðar bundnir á Kjörbók Landsbankans — Hvað er mikið fé bundið á skiptikjarareikningum í Lands- bankanum? „Það er milli 13 og 14 milljarð- ar í Landsbankanum, þannig að hér er ekki verið að ræða um neina smápeninga. Landsbankan- um hefur heppnast einna best með sína Kjörbók. hún hefur ver- ið það form innlána sem hefur gefið hvað besta raun og mest í aðra hönd fyrir sparifjáreigendur. Þessi stefna ríkisstjórnarinnar þarf ekkert að koma fólki á óvart, því forsætisráðherrann hefur ekk- ert hikað við að láta í ljósi þá skoðun að vextir mættu gjarnan vera neikvæðir. Þá ætlar hann að bytja á gamla laginu að láta spa- rifjáreigendur blæða. Landsbanki íslands mun þráast við í lengstu lög að þannig verði farið að spa- rifj áreigendum. “ — Hvernig getur hann það? „Hann verður heldur að þola eitthvert tap sjálfur." Bankaráðið hlíðir ríkisstjórninni — En em hendur hans ekki bundnar af pólitískt kjömu banka- ráði, sem að meirihluta styður ríkisstjórnina og framfylgir henn- ar stefnu við ákvarðanatöku? „Það er auðvitað ljóst að það hefur að vemlegu leyti hlítt þeim fyrirmælum sem frá ríkisstjórn- inni hafa komið og því er nú kom- ið sem komið er að stórtap er á fyrstu mánuðum þessa árs. Ég er samt að vonast til að menn nái áttum og láti það ekki yfir sig ganga, eftir að svo vel hefur tek- ist til um aukningu sparifjár, að eyðileggja þann gmnn sem lagður hefur verið, með svona aðförum." — Ef skiptikjarareikningar verða afnumdir, áttu þá ekki von á því að sparifjáreigendur flykkist í bankana og taki út sparifé sitt? „Við munum með öllum hætti reyna að finna upp eitthvert form, sem við getum varið þá með, án þess sjálfir að verða fyrir öbæri- legum skaða. Ég fullyrði að bankastjóm Landsbanka íslands mun beita sér af alefli fyrir því Morgunblaðið/Einar Falur Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, á skrifstofu sinni. að veija hag sparifjáreigenda. Það em mikil hættuteikn á lofti og því þarf að veijast. Sparifjáreig- endur í landinu em það Ijölmenn- ir að þeir þurfa ekkert að láta bjóða sér þetta.“ Ottast að spariQár- eigendur auki fjárfest- ingar, eyðslu og neyslu — Er ekki líklegt að sparifjár- eigendur muni taka út fé sitt af skiptikjarareikningunum og fyár- festa fremur hjá fjárfestingarsjóð- unum í verðbréfum, kjarabréfum, einingabréfum og spariskírteinum ríkissjóðs, ef þetta sparnaðarform verður afnumið eða verðtrygging þessa forms verður takmörkuð mjög frá því sem nú er? „Að vísu munum við nú stofna sérstakt verðbréfafyrirtæki, sem mun standa fullkomlega jafnfætis öðmm ávöxtunarmöguleikum af þessu tagi. Um þetta var tekin ákvörðun á bankaráðsfundi á fimmtudag. Þetta er ekki aðal- hættan, heldur er hún sú að menn taki út sparifé sitt og fari að fjár- festa, eyða og auka neyslu. Þann- ig yrði atvinnulífið svelt um fjár- magn, mun meira en er í dag. Það var samþykkt á bankaráðs- fundinum á fimmtudag að Lands- bankinn ásamt með Veðdeild Landsbanka íslands stofnaði sjálf- stætt hlutafélag um þetta verð- bréfafyrirtæki. Fyrirtækið mun mjög fljótlega hefja starfsemi sína og verður til húsa við Suðurlands- braut 24.“ Viðræður við Samvinnu- banka á ný í næstu viku — Sverrir, nú hefur þú leitt viðræðumar, fyrir hönd Lands- bankans, við Samband íslenskra samvinnufélaga um hugsanleg kaup Landsbankans á Samvinnu- bankanum. Hvar á vegi eru þær viðræður? „Viðræður hafa legið niðri síðustu dagana, en ég á von á því að við hefjum þær formlega og af fullum krafti um miðja næstu viku. Báðir aðilar leggja mikla áherslu á að fá úr því skorið hvort þeir nái höndum saman. Þetta er auðvitað stórmál, þó það sé kannski ekki í líkingu við Útvegs- bankann. Við sjáum í þessu mikla spamaðarmöguleika, vegna útibúakerfis bankanna. Ef af samningum verður, stefnum við að því að reka Samvinnubankann sem sjálfstæða einingu. Hann er og hefur í mörg ár verið vel rek- inn banki.“ — Nú hef ég heimildir fyrir því að Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins, hafi krafíst 1.800 milljóna króna fyrir bankann, er það nálægt því verði sem Lands- bankinn væri reiðubúinn að greiða? „Samningar em ekki komnir á það stig að ég sé tilbúinn að upp- lýsa hvaða fjárhæðir hafa verið ræddar, en það er vissulega kaup- verðið sem vefst fyrir okkur nú. Við höfum verið að láta meta þetta fyrir okkur, en við emm ekki komnir á leiðarenda. Að mínum dómi getur það verð sem gefið var fyrir Útvegsbanka ís- lands ekki orðið til viðmiðunar, það segi ég af fullri hreinskilni." Samningsstaða Samvinnu- bankans versnað eftir sameiningu einkabankanna — Nú þegar Samvinnubankinn stendur einn eftir, litlu bankanna, á hann þá að þínu mati einhvern annan leik í stöðunni, en að sam- einast Landsbankanum? „Ja, ég verð nú að segja það, að ég álít að sameining einkaban- kanna þriggja og kaup þeirra á Útvegsbankanum hljóti mjög að hvetja eigendur Samvinnubank- ans til þess að selja. Ég er í eng- um vafa um það að einn lítill banki kynni að eiga mjög erfitt upp- dráttar, sér í lagi þegar horft er til þess að eigendumir og þeir sem honum næstir standa hafa orðið að lækka seglin mjög. Ég held að þetta hljóti að verða eindregin hvatning til eigenda Samvinnu- bankans að reyna að koma honum í verð. Vafalaust verður þetta ekki til þess að þeir nái því sem þeir kannski hefðu óskað sér fyrir hann í verði, en um það vil ég ekki ræða nú.“ — Hvað finnst þér, Lands- bankastjóranum, um sölu ríkisins á Útvegsbankanum, og samein- ingu bankanna fjögurra, sem nú hefur verið ákveðin? Viðskiptaráðherra gaf milljarð með Út- vegsbankanum „Ég ætla ekki að halda því fram að ég sé nákunnugur öllum inn- viðum þess máls, en mér og öðmm sem þekkja þó rammann að því, er ljóst að þarna er bankinn seld- ur langt undir kostnaðarverði. Viðskiptaráðherra gefur að minnsta kosti einn milljarð í kaup- bæti með bankanum. En ég verð að segja það viðskipta- og banka- málaráðherra til hróss, að þarna hefur hann gengið rösklega fram. Þama held ég að sterkur banki einkaframtaksins rísi og veiti okk- ur samkeppni, sem er afskaplega mikilvæg. Éinkaframtakið í landinu þarf svo sannarlega á öflugum einkabanka að halda og allt bankakerfið. Ég verð því að lýsa yfir aðdáun minni á þessu hörkuframtaki Jóns Sigurðssonar og þvi að hann skuli hafa látið frá sér fara þessa ríkiseign, þó svo að i kaupunum hafi fylgt með eins og þúsund milljónir. Ég dáist að þeim mikla kjarki sem i því felst að taka ríkiseign upp á 2,5 milljarða króna og selja hana einkaframtakinu fyrir um 1,5 railljarð króna. Það er lofsvert af Alþýðuflokksforingja að efla með þessum hætti einkaframtakið í landinu. Ég verð að segja að ýmislegt gamalt rifjast upp fyrir manni við þessa bankasölu. Ég minnist þeirra tíma þegar ég sem mennta- málaráðherra keypti Mjólkursam- söluhúsið fyrir Þjóðskjalasafn á 110 milljónir, sem reyndust vera einhver bestu kaup sem um get- ur. Á þessu var hneykslast með ódæmum og ég man að Dag- blaðið hélt ekki bleki árum saman vegna þessa „hneykslismáls“.“ Norrænt námskeið um fæðu fiska í sjó NORRÆNA sjávarlífifræðiráðið heldur um þessar inundir námskeið fyrir norræna sjávarlíffræðinga um fæðu fiska í sjó. Umsjón með nám- skeiðinu hafa Hafrannsóknarstofinun og Háskóli íslands. Þátttakendur, sem koma frá öllum Norðurlöndunum, stunda flestir framhaldsnám í sjávarlíffræði eða öðrum skyldum Á námskeiðinu er fjallað á margv- íslegan hátt um fæðu físka í sjó, m.a. rætt um fæðuframboð, val fæðu og nýtingu hennar. Þá er rætt sér- staklega um dýrasvif og hlutverk þess sem fæðu fiska. Þátttakendur á námskeiðinu eru 11, þar af er einn íslendingur. Fyrir- lesarar eru 6 talsins. Þeir eru Kjart- an G. Magnússon frá Raunvísinda- stofnun, Jörundur Svavarsson frá Líffræðistofnun, Ólafur Karvel Páls- son, Ólafur S. Ástþórsson og Bjöm Björnsson frá Hafrannsóknarstofn- un. Sérstakur gestafyrirlesari er John Mauchline frá sjávarrannsókn- arstöðinni í Oban í Skotlandi. Að sögn Jörundar Svavarssonar, sem situr í norræna sjávarlíffræði- ráðinu fyrir íslands hönd, er þetta fjórða námskeiðið á vegum ráðsins hér á landi en reynt er að halda námskeið hér annað hvert ár. „Á greinum. þessu námskeiði gefst okkur tæki- færi til að deila þekkingu okkar með starfsfélögum frá hinum Norðurlönd- unum,“ sagði Jörundur. „Viðfangs- efni okkar að þessu sinni, þ.e. fæðuv- al fiska í sjó, er mjög mikilvægt inn- an sjávarlíffræðinnar og hefur reynd- ar mikið gildi fyrir fleiri en okkur. Haldnir eru fyrirlestrar og unnið í hópum. Við fengum inni í Tækni- garði Háskóla íslands og þar er að- staðan eins og best verður á kosið. Einnig er farið leiðangra. Við fórum til dæmis í siglingu með rannsóknar- skipinu Dröfn þar sem aflað var sýna og fæða helstu nytjafíska okkar skoðuð." Jörundur segir námskeið sem þetta mjög mikilvægt til þess að miðla þekkingu á sviði sjávarlíffræði og stuðla að auknum samskiptum sjávarlíffræðinga frá Norðurlöndun- um. Morgunblaðið/Einar Falur Þátttakendur á námskeiði um fæðu fiska í sjó. Björn Björnsson frá Hafrannsóknarstofnun, lengst til hægri, heldur fyrirlestur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.