Morgunblaðið - 25.06.1989, Page 31

Morgunblaðið - 25.06.1989, Page 31
-m FC5|r' 1 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM MJ03 mr, -iTS SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1989 31 unmur liislason. Islandsmeistarar IBV frá 1979 ásamtþjálfurum og knattspyrnuráði. KNATTSPYRNA Meistararnir frá 1979 samanáný að var líf og fjör á Hásteins- vellinum í Vestmannaeyjum þegar að Islandsmeistarar knatt- spyrnuliðs ÍBV frá 1979 mættu þar og léku gegn 2. deildar liði ÍBV. Leikur þessi var liður í hátíðar- höldum 17. júní og var fjölmenni á Hásteinsvellinum. Flestir leikmenn liðsins frá 1979 eru nú hættir knattspymuiðkun. Nokkrir þeirra em famir frá Eyjum en allir mættu til þess að taka þátt í leiknum. Sumir þeirra lögðu á sig langt ferðalag og kom Gústaf Bald- vinsson lengst að, en hann kom frá Hull gagngert til þess að taka þátt í leiknum. Allur undirbúningur fyrir leikinn fór fram með sama hætti og gert var árið sem meistaratitillinn vannst. Undirbúningsfundur var haldinn fyrir leikinn og þar stapp- aði Viktor Helgason þjálfari stálinu í sína menn. Það var mikil stemmn- ing í hópnum og töluðu strákarnir um að stemmningin væri engu minni en hún var um árið þegar að titillinn vannst. Gamla liðið sýndi síðan skemmti- lega takta í leiknum og virtust þeir engu hafa gleymt. Yngri mennirnir máttu hafa sig alla við til þess að halda í við þá gömlu en höfðu að meija sigur í lokin með tveggja marka mun. Um kvöldið var síðan haldin veisla þar sem slegið var á létta strengi og gömlu árin í fótboltanum rifjuð upp. Grímur. Guðfinna Ásta Birgisdóttir og Viðar Þorsteinsson. Morgunbiaðið/Bjami Alltaf eitthvað nýtt og skemmtilegt Viðar Þorsteinsson og Guðfinna Ásta Birgisdóttir eru á nám- skeiðinu. En hvemig vildi það til að þau fóru á námskeið hjá Rauða krossinum? „Við fengum bækling um nám- skeiðið í skólanum. Þar var talið upp ýmislegt skemmtilegt sem mig lang- aði að taka þátt í,“ segir Guðfinna og Viðar tekur i sama streng. Viðar er búinn að fara á leikjanámskeið og ætlar að fara á reiðnámskeið þeg- ar hann kemur heim úr sveitinni í haust en Guðfinna fer í Vindáshlíð og í sumarhús með foreldrum sínum og litla bróður. Viðar og Guðfinna voru búin að vera tvo daga á nám- skeiðinu. Við spurðum hvað þau hefðu verið að gera. „Við gerum hitt og þetta,“ segir Viðar,„förum í leiki og ferðir. Við fórum t.d. niður á Tjörn í gær. Svo málum við og í gær var sýnd mynd um Eþíópíu. Við tölum líka um alls kyns hluti, t.d. hvað er einelti og hvað er stríðni, og hvað eru náttúru- auðlindir." „Við höfum mikið fjallað um Afríku,“ segir Guðfinna. „I skólanum lærðum við svolítið um Tanzaníu en hér lærum við meira, sérstaklega um hjálparstarfið. Svo lærum við líka um Rauða krossinn." En hvað ætli krökkunum fínnist skemmtilegast að gera? „Ég hlakka sérstaklega til Afríku- dansanna, sem við eigum að læra á eftir,“ segir Guðfinna. Viðar segist aftur á móti hlakka mest til að fara út fyrir borgina og gróðursetja tré. Námskeiðið stendur yfir frá níu á morgnana til fimm á daginn. Þau Viðar og Guðfínna segjast samt ekki finna fyrir þreytu, enda sé alltaf verið að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt á námskeiðinu. Costa Odell OOI eða Benidorm fyrir aðeins kr. 33.900,- _________Með því að nýta _______Lukkuferðir Veraldar tryggir þú þér fyrsta fíokks sumarleyfi á einstöku verði 2 3 4 Þú færð staðfestan brottfarar- dag um leið og þú bókar þig og veist því strax hvenær þú ferð í fríið. Þú færð ferð annað hvort til Costa del Sol eða Benidorm, tveggja vinsælustu sumar- dvalarstaða á Spáni. Þú færð aðeins góða gistingu, annað hvort íbúð á íbúðar- hóteli eða hótelherbergi með morgunmat. Viku fyrir brottför færðu stað- fest hvort þú ferð til Beni- dorm eða Costa del Sol og á hvaða gististað þú dvelur. kr. ó i . Hjón með 2 börn 2ja - 12 ára í 2 vikur 3B.900 Hjón með 2 börn 2ja - 12 ára í 3 vikur 39.900 3 fullorðnir í 2 vikur 41.600 * Verð m.v. 4 í ibúð, 2 börn 2-12 ára og 2 fullorðnir, 2 vikur. nmifiiiisiöfliN munið veraidarrhsu i hlSuéur-Amer(ku november. Austurstræti 17, sími 622200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.