Morgunblaðið - 01.10.1989, Side 1
apigÉ* $
- ****$&*,
FJALLfl
SMALAR
Texti og litmyndir Árni Johnsen
Sv/hv myndir: Rognar Axelsson
Þórður skáld í Köldukinn reið hesti sínum
urn eggjar á aíirétti. Tær fegurð landsins
skein úr auga Qallmannsins í hópi Land-
og Holtamanna. Leitir voru hafiiar af liðlega
tuttugu manna einvala liði kvenna og karla
sem létu sér ekki neitt fyrir brjósti brenna
í smölun fjárstofns heimamanna á heiðum.
Þórður kvað við raust svo helstu hagyrðing-
ar íslandssögunnar hefðu mátt vera vel
sæmdir af. Það var stemmning á hálendinu,
hófadynur, hó smala,
náttúrukliður og rífandi
vinarþel í hópi leitar-
manna, andi víðáttunnar
í kring um verkefnið. í
bölum og slökkum,
hlíðum og gi\jum dólaði
sauðkindin sér eins og
skrautblóm í haga, en nú var komið haust
af sumri og Qallmenn voru komnir á skrið,
gangandi, hlaupandi, ríðandi. Að hefð-
bundnum sið voru ætlaðir sjö dagar til þess
að smala afréttinn í fyrstu leit. Fjallkóngur
Landmanna, Kristinn Guðnason í Skarði, fór
geyst á fáki sínum og fjallkóngur Holta-
manna, Pálmi Sigfússon á Læk, steig ekki
síður fast á bensíngjöfina á brattlendiskerru
sinni. Hægt og sígandi rann féð af fjalli eins
og ótal lækjarsytrur í einn farveg.
irm
Ltlí
JMALAKD-
MARRAAFRETIl
FRAKKUR
í FIRRINGUNNI
Stefán Jón Hafstein
er „maöurintt meb svarta hattinn"
á öldum Ijósvakans
EINKAIÍF
PÓLTTÍKUSA
FJÖUVIIÐLAR
SUNNUDAGUR
SUNNUDAGUR
1. OKTÓBER 1989
jMfrygttiiftlaftfft
BLAÐ
. . -,%4 " «
■